Tíminn - 20.09.1983, Qupperneq 18
ÞRIÐJUDAGUR 20. SEPTEMBER 1983
Pilturinn og folinn á fullri ferð í fjörunni
tekst einmitt að bjarga sér með því að
hagna í folanum. Þá rekur á land á
eyðilegri strönd og verða þar að nánum
vinum.
Síðar í myndinni finnst pilturinn og
hverfur aftur heim til siðmenningar-
innar, en hefur folann með sér. Piltur-
inn kynnist gömlum tamningarmanni
★★Svarti folinn
kvikmyndahornid
Falleg mynd um ungan
dreng og villihest
■ SVARTI FOLINN (Black Stal-
lion). Sýningarstaður: Tónabíó. Leik-
stjóri: CarroU BaUard. Handrit: Mel-
issa Mathison, Jeanne Rosenberg og
William D. WittUfT. Myndataka: Caleb
Deschanel. Aðalhlutverk: KeUy Reno
og Mickey Rooney. Framleidd af
Zeotrope árið 1979.
Sumar kvikmyndir eru ótrúlega lengi
á leiðinni hingað, og „Svarti folinn" er
ein af þeim. Hún var frumsýnd vestra
árið 1979 og gekk þar mjög vel svo
vandséð er hvers vegna hún hefur
verið svo lengi að komast á tjaldið í
Tónabíó.
Kvikmyndin er gerð eftir þekktum
barnabókum eftir Walter Farley og
segir frá samskiptum ungs drengs (leik-
inn af Kelly Reno) og arabísks villi-
hests, sem er svartur á lit og hinn
glæsilegasti. Pilturinn kemst fyrst í
kynni við hestinn um borð í skipi, sem
er á ferð fyrir ströndum Afríku. Skipið
ferst og folinn og pilturinn eru þeir
einu, sem komast lífs af, en piltinum
(Mickey Rooney) og saman gera þeir
arabíska villifolann að frábærum kapp-
reiðahesti, sem sigrar skæðustu stjörn-
ur veðreiðanna í Bandaríkjunum.
Söguþráðurinn er þannig nokkuð
einkennandi fyrir ævintýrasögur síns
tíma, en úrvinnslan í myndinni er
myndrænt séð til mikillar fyrirmyndar.
Hvert glæsilegt myndskeiðið tekur við
af öðru, ekki síst þegar verið er að lýsa
dvölinni um borð í skipinu, björgun
piltsins í land og svo dvöl þeirra
félaganna á eyðilegri ströndinni og
kynnum þeirra þar. Þar eru margar
geysifallegar senur.
Svo virðist sem leikstjóranum
gangi hins vegar ekki jafn vel að eiga
við leikara, því mörg atriðin eftir að
komið er til siðmenningarinnar á ný
eru dálítið vandræðaleg. Þó er Mickey
Rooney að venju óborganlegur í sínu
hlutverki.
Sem sagt falleg mynd, sem hefði
mátt koma hingað miklu fyrr.
- ESJ.
Bœjar- og héraðsbókasafnið á Selfossi
Nýtt tímarit Safnafréttir
■ Komið er út 1. tbl. 1. árg. tímaritsins
Safnafréttir, sem gefið er út af Bæjar- og
héraðsbókasafninu á Selfossi. í því eru
greinar og myndir frá safninu, sagt er frá
stjórn og starfsliði safnsins og grein er um
Hlutverk Bæjar- og héraðsbókasafnsins.
Skylduframlagið er allt of lágt nefnist grein,
þar sem talað er um tekjur safnsins. Nýbygg-
ing er nauðsynleg nefnist önnur grein, og
fylgir henni teikning af einnar hæðar tengi-
byggingu milli safnhúsanna tveggja. Teikn-
ingin er eftir Sigurjón Sveinsson arkitekt,
sem látinn er fyrir nokkrum árum.
f ritinu er skýrt frá því, að opnunartími
safnsins er 21 klukkustund á viku og bóka
eign þess er 25-30 þúsund bindi.
f kynningu á tímaritinu segir, að það muni
koma út eftir efnum og ástæðum nokkrum
sinnum á ári. Ábm. er Steingrímur Jónsson,
en blaðið er prentað í Prentsmiðju Suður-
lands.
RKÍ fréttir, 5. tbl. 1983,eru komnar
út. Forsíðu prýðir Ijósmynd af þátttakendum
og fararstórum í orlofsdvöl eldri borgara á
Vestfjörðum að Laugum í Sælingsdal 11.-16.
ágúst 1983. Meðal efnis í blaðinu má nefna
fregnir af hjálparstarfi RKÍ á erlendum
vettvangi. Skýrt er frá væntanlegri útkomu
íslensks- pólsk orðasafns og pólsk -íslenskrar
orðabókar, scm Jón Gunnarsson lektor hefur
samið í tengslum við komu pólsku flótta-
t
. . ■ .
Amma mín
Halla Eiríksdóttir,
frá Fossi á Síðu
andaðist í Landspítalanum að morgni hins 17. septem.ber.
Halla Eiriksdóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Þuríður Erlendsdóttir,
Karlagötu 9,
Reykjavík
andaðist á Landspitalanum 13. sept. Verður jarðsungin frá Hallgríms-
kirkju miðvikudaginn 21. sept. kl. 13.30.
Smári Bergsson, Ingibjörg Kristinsdóttir,
Trausti Bergsson,
og barnabörn.
Faðir minn, tengdafaðir og afi
Þórður Guðmundsson,
frá Gerðum,
Ljósheimum 4
er látinn. Jarðsungið verður frá Fossvogskapellu föstudaginn 23.
sept. kl. 15.
Inga Rósa Þórðardóttir,
Guðmundur Steingrímsson,
Berglind Rós Guðmundsdóttir,
Sunna Björk Guðmundsdóttir,
Þórður Ingi Guðmundsson.
mannanna hingað og íslenskunám þeirra.
Birtar eru fréttir af starfi hinna ýmsu deilda
innan RKÍ. Þá er bréf frá Lúðvík H. Gröndal
hjúkrunarfræðingi, sem starfar í Khao-I-
Dang í Thailandi. Sagt er frá starfsemi Skóla
fatlaðra, sem nú í haust hefur annað starfsár
sitt. Greint er frá kennaranámskeiði RKÍ í
skyndihjálp. Kynntir eru þeir 23 Víetnamar,
sem hafa ílenst hérna, en RKÍ hefur sótt um
að þeim verði veittur íslenskur borgararéttur
eftir fjögurra ára dvöl hér á landi. Þeir komu
hingað til lands 20. sept. 1979. Þá er sagt frá
hjálparsveitum til heybjargar, sem RKlkom
á fót, þegar loks fór að viðra til heyskapar
um mánaðamótin síðustu.
Fréttabréf Reykjavíkurdeildar
Rauða kross íslands hefur hafið
göngu sína. Því er ætlað að kynna starfsemi
deildarinnar. Þar er m.a. sagt frá störfum
kvennadeildar Reykjavíkurdeildar RKÍ, en
það er mjög öflugt. Þá er sagt frá starfi
deildarinnar á ári aldraðra, lýst aðdraganda
að opnun Múlabæjar og dagvistarstarfinu
þar, símakeðjuþjónustu, heimsendingu mál-
tíða o.fl. Sagt er frá sjúkraflutningum, en
þeir hafa allt frá stofnun deildarinnar verið
eitt af meginverkefnum hennar. Upplýsingar
eru gefnar um hvar og hvenær ellilífeyrisþeg-
ar eiga rétt á afslætti. Fleira efni er í bréfinu.
Auglýsing um aðalskoðun bifreiða í
lögsagnarumdæmi Keflavíkur,
Njarðvíkur, Grindavíkur og
Gullbringusýslu fyrir árið 1983.
Mánudaginn 19. september Ö-7351-Ö-7450
Þriöjudaginn 20. september Ö-7451 - Ö-7550
Miðvikudaginn 21. september Ö-7551 - Ö-7650
Fimmtudaginn 22. september Ö-7651 - Ö-7750
Föstudaginn 23. september Ö-7751 og þar yfir.
Skoðunin fer fram að Iðavöllum 4, Keflavík milli kl. 8-12 og 13-16.
Á sama stað og tíma fer fram aðalskoðun annarra skráningarskyldra
ökutækja s.s. bifhjóla og á eftirfarandi einnig viö um umráðamenn
þeirra.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild öku-
skírteini. Framvísa skal og kvittun fyrir greiðslu bifreiðagjalda og gildri
ábyrgðartryggingu.
í skráningarskírteini bifreiðarinnar skal vera áritun um að
aðalljós hennar hafi verið stillt eftir 31. júlf 1983.
Vanræki einhver að færa bifreið sína til skoðunar á auglýstum
tíma, verður hann látinn sæta ábyrgð að lögum og bifreiðin tekin
úr umferð, hvar sem til hennar næst.
Lögreglustjórinn í Keflavík
Njarðvík, Grindavík og
Gullbringusýslu.
Kvikmyndir
Sími 78900
SALUR 1
Evrópu-Frumsýning
GETCRAZY
Splunkuný söngva gleði og grín-
mynd sem skeður á gamlárskvöld
1983. Ýmsir frægir skemmtikraftar
koma fil að skemmta þetta kvöld á
- diskotekinu Saturn. Það er mikill
glaumur, superstjarnan Malcolm
McDowell fer á kostum, og Anna
Björns lumar á einhverju sem
kemur á óvart.
Aðalhlutverk: Malcolm
McDowell, Anna Björnsdóttir,
Allen Goorwitz, Daniel Stern.
Sýndkl. 5,7,9 og 11
Hækkað verð
Myndin er tekin í Dolby sterio og
sýnd í 4ra rása starscope sterio
SALUR2
National Lampoon’s
Bekkjar-Klíkan
Ihanthisdass. ka
-Splunkuný mynd um þá frægu
Delta-klíku sem kemur saman til
gleðskapar til að fagna fiu ára
afmæli, en ekki fer allt eins og
áætlað var. Matty Simons fram-
leiðandi segir: Kómedían er best ■
þegar hægt er að fara undir skinnið
á fólki.
Aðalhlutverk: Gerrit Graham,
Stephen Furst, Fred McCarren, ,
Miriam Flynn
Leikstjóri, Michael Miller.Myndin
■er tekin í Dolby-Sterio og sýnd I ,
■ 4ra rása Starscope sterio.
Hækkað verð
Sýnd kl. 5,7,9 og 11
Súgöldrótta v
Frábær Wait Disney mýnd bæði
. leikin og teiknuð. I þessari mynd er
,sá albesti kappleikur sem sést
hefur á hvita tjaktinu.
Sýnd kl. 5
SALUR3
Utangarðsdrengir
(The Outsiders)
Bönnuð innan 14 ára.
Hækkað verð.
Myndin er tekln upp i Dolby
sterio og sýnd i 4 rása Star-
scopesterio.
t Sýndkl. 5,7,9og 11
SALUR4
Snákurinn
(Venom)
Ein spenna frá upphafi til endá.
Mynd fyrir þá. sem una góðum
spennumyndum.
Aðalhlutverk: Oliveer Reed,
Klaus Kinski, Susan George.
Sýnd kl. 11.
Myndin er tekin í Dolby stereo
Bönnuð innan 14 ára