Tíminn - 23.09.1983, Page 1

Tíminn - 23.09.1983, Page 1
Dagskrá ríkisfjölmiðlanna næstu viku - sjá bls. 13 FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Föstudagur 23. september 1983 220. tölublað - 78. árgangur Sidumúla 15-Postholf 370Reykjavík—Rítstjorn86300-Augtysingar 18300- Afgreidsia og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Rikisstjörnin samþykkir tillögur félagsmálaráðherra: OLL LAN TIL HUSNÆÐISMAU HÆKKA UM 50% UM ARAMÓTIN ■ Öll lán hækki um 50%. Lán til þeirra sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn skulu greidd í tveim- ur hlutum, lánstími lána lengist um fimm ár, öll lán verði afborg- unarlaus fyrstu tvö árin og gjald- dögum verði fjölgað í 4 á ári eru, í stuttu máli tillögur Alexanders Stefánssonar félagsmálaráð- herra um breytingar á útlánar- eglum Byggingarsjóðs ríkisins sem samþykktar voru á fundi ríkisstjómarinnar í gærmorgun. Félagsmálaráðherra kynnti fréttamönnum í gær þessar til- lögur sínar, og þar kom jafn- framt fram að samþykktar hefðu verið tillögur hans um lausn á vanda húsbyggjenda sem fengið hafa lán til nýbygginga eða kaupa á eldra húsnæði á árunum 1982 og 1983, en í þann lið gerir ríkisstjórnin ráð fyrir að verja 200 til 250 milljónum króna, auk þeirra 1600 milljóna sem varið verður til húsnæðismála að öðru leyti, eins og áður hefur komið fram. Hækkun allra lána felur það í sér að nú fæst lán fyrir um 50% af vísitöluíbúð, en það vill segja að lánaðerfyrir29,l% afstaðal- íbúð. Benti félagsmálaráðherra á, að auk þess ávinnings sem það fæli í sér að fá fram 50% hækkun á húsnæðisláninu, þá væri geysi- legur ávinningur fyrir þá sem væru að kaupa eða byggja í fyrsta sinn- að fá nú húsnæðis- málalánið greitt í tveimur hlutum, fyrri hluti yrði greiddur mánuði eftir fokheldisstig og sá síðari sex mánuðum eftir það. Núgildandi reglur eru á þann veg að fyrsti hluti eru greiddur þrem- ur mánuðum eftir fokheldisstig og síðan er restin greidd í tveim- ur hlutum á sex mánaða fresti, en eins og félagsmálaráðherra benti á, þá hafa slíkar greiðslur stundum dregist, þannig að það hefur getað tekið 18 mánuði að fá allt lánið út, sem hefur reynst mörgum húsbyggjandanum dýrt. Er reiknað með að þessar nýju reglur um úthlutun taki gildi um næstu áramót. - AB Sjá nánar bls.5 Kosningaslagurinn ad magnast í Sjálfstæðisflokknum: GUNNAR G. SCHRAM FORMANNSKANDIDAT GUNNARSARMSINS? ■ Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Tímans, þá telur dr. Gunnar Thoroddsen fyrr- verandi forsætisráðherra, for- mannamál Sjálfstæðisflokksins best leyst með dr. Gunnari G. Schram alþingismanni, en dr. Gunnar G. Schram hefur hing- að til ekki verið nefndur sem einn þeirra sem hygðist keppa að formannskjöri í Sjálfstæðis- flokknum. Herma heimildir Tímans jafnframt að fjölmarg- ir sjáifstæðismenn úr stuðn- ingsmannaliði dr. Gunnars Thoroddsen séu sömu skoðun- ar og dr. Gunnar Thoroddsen, og að þeir hyggist beita sér fyrir kosningu dr. Gunnars G. Schram, svo fremi sem hann gefi kost á sér. „Ég hef ekki ákveðið að bjóða mig fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum,“ sagði dr. Gunnar G. Schram alþing- ismaður, er Tíminn spurði hann hvort hann væri orðinn fjórðí kandídatinn í formanna- slagnum í Sjálfstæðisflokkn- um, og er blaðamaður spurði: „en þú hefur ekki ákveðið að bjóða þig ekki fram?“ svaraði dr. Gunnar G. Schram: „Ja, á þessu stigi þá dugar hitt!“ Þei; gætu því orðið fjórir sem keppa um formannssætið í Sjálfstteðisflokknum á næsta Landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins, þ.e. að því tilskildu að Geir Hallgrímsson núverandi formaður lýsí því yfir að hann muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs, en menn búast fastlega við slíkri yfirlýsingu frá formanninum á miðstjórn- arfundi flokksins fyrri hluta októbcrmánaðar. Eins og kunnugt er hafa þeir Friðrik Sóphusson varafor- maður flokksins, Porsteinn Pálsson alþingismaður og Birg- ir ísleifur Gunnarsson alþing- ismaður frant til þessa verið nefndir sem líklegustu kand- ídatarnir. - AB Akureyri: FÆR BÆRINN EINKARÉTT Á REKSTRILEIKTÆKIA? ■ „Við vildum að þeim sem svona spilatæki reka væri treystandi til þess að hafa ofan af fyrir unglingunum á ein- hvern annan hátt líka. Einnig að hægt yrði að hafa áhrif á verðlagningu og að nýta hugs- anlegan h'agnað í þágu krakk- anna sjálfra. Þess vegna kom- umst við að þeirri niðurstöðu að þessi rckstur skyldi vera í höndum þeirra sem fara með æskulýðsmál á vegum bæjar- ins.“ sagði Valgerður Bjarna- dóttir, forseti bæjarstjórnar á Akureyri, þegar hún var spurð um efni tillögu sem hún flutti í bæjarstjórn og fékkst ekki samþykktáfundi nú í vikúnni. Tillaga þessi hcfur valdið miklum deilum á Akureyri. Á bæjarráðsfundi fyrir skömmu var hún samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur, en þegar hún var tekin fyrir á bæjarstjórnarfundi var hún felld og vísað til bæjarráðs að nýju til frekari umfjöllunar. -Sjó ■ Popparar sjöunda áratugarins munu rifja upp bítlastemninguna á Broadway í kvöld. My.ndin var tekin á æfingu í gærkvöldi, en á henni eru Rúnar Júlíusson og Gunnar Þórðarson. Tímamynd Róbert AFLÍFA ÞURFTI DÝRBITIÐ LAMB ■ Dýrbitið lamb frá Fellsenda í Þingvallasveit fannst í Skála- felli, fyrir ofan Stardal á Kjalar- nesi, þegar verið var að smala í Stardalnum á þriðjudaginn. Lambið var lifandi þegar það fannst en þar aflífað nær strax. Að sögn Gunnars Þórissonar bónda á Fellsenda hafa Þing- vallasveitarmenn leitað að grenj- um á hverju ári á þessum slóðum en einhver misbrestur virðist hafa orðið á leitinni þegar kemur nálægt byggðinni. I vor fannst dýrbítisgreni á Mosfellsheiði og þar höfðu yrðlingar greinilega komist á legg í fyrra. - GSH

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.