Tíminn - 23.09.1983, Síða 3
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1983
3
fréttir
Breytingar á skipulagi stór hluti skýringar á fjölgun nauðungaruppboðsbeiðna: /
STEFNA ÞURFTIINN A
NÝ 500 UPPBOÐSBEINUM
■ „Hér í Kópavogi hefur uppboðs-
beiðnum fjölgað eitthvað en ekkert
gífurlega. Og það sem meira er - hér
hefur ekki farið fram ein einasta lokasala
á nauðungaruppboði það sem af er
árinu,“ sagði Asgeir Pétursson, bxjar-
fógeti í Kópavogi, þegar hann var spurð-
ur hvort mikil fjölgun hefði orðið á
nauðungaruppboðsbeiðnum hjá em-
bættinu.
Hann sagði ennfremur að fjölgunin
hefði ekki orðið neitt í líkingu við það
sem orðið hefði í Reykjavík. Þar stafaði
hún af því að einhverju leyti að minnsta
kosti, að breytingar hefðu verið gerðar
á skipulagi uppboðsréttarins í kjölfar
Hæstaréttardóms, sem gekk snemma á
þessu ári.
Jónas Gústavsson, borgarfógeti í
Reykjavfk, staðfesti í samtali við blaðið
að fjölgunin á nauðungaruppboðsbeiðn-
um í Reykjavík ætti að verulegu leyti
rætur að rekja til breytingar að skipulagi.
í kjölfar breytingarinnar hefðu um 500
uppboðsbeiðnir verið afturkallaðar og
þess vegna hefði þurft að stefna þeim til
uppboðsréttar á ný.
„Þrátt fyrir þetta er ljóst að uppboðs-
beiðnum hefur fjölgað mikið og á þeim
þrettán árum sem ég hef starfað hér
hefur aldrei annar eins fjöldi beiðna
borist,“ sagði Jónas. Það liggur hins
vegar fyrir að lokasölum á nauðungar-
uppboðum hefur ekki fjölgað hjá em-
bættinu.
Hjá bæjarfógetanum á Akureyri,
Elíasi Elíassyni, fengust þær upplýsing-
ar, að ef fjölgun hefði orðið á uppboðs-
beiðnum væri hún óveruleg. Elías sagði,
að aðeins ein lokasala hefði átt sér stað
á nauðungaruppboði hjá embættinu í ár,
en í fyrra hefðu þær verið 7 og árið þar
áður 8.
Einar Ingimundarson, bæjarfógeti í
Hafnarfirði, sagði að uppboðsbeiðnum
hjá sér hefði fjölgað jafnt og þétt
undanfarin ár. Fjölgunin væri kannski
aðeins meiri nú en undanfarið, en ekki
verulega. Lokasölur á nauðungarupp-
boðum hefðu yfirleitt verið álíka margar
á hverju ári og þeim hefði ekkert fjölgað.
-Sjó
Þroskahefl
böm til
Vestfjarða
■ Hópur þroskaheftra bama fer í
kynnisferð til ísafjarðar, Bolungar-
víkur og Súðavíkur á laugardaginn.
í hópnum verða 10 börn sem dvalið
hafa í Reykjadal og í Hlíðaskóla í
Reykjavík.
Kristinn Guðmundsson skrifstofu-
maður hefur skipulagt þessa ferð og
að hans sögn munu Kiwanisklúbb-
arnir á þeim stöðum sem hcimsóttir
verða taka á móti hópnum og sýna
bömunum það markverðasta. Farið
verður af stað snemma á laugardags-
morgun og komið aftur heim um
kvöldmatarleytið.
GSH
Finnskur
vefur á
Kjarvals-
stöðum
■ Á morgun verður opnuð í austursal
Kjarvalsstaða sýning á vefnaði 5 finnskra
kenna og kallast sýningin „Finnskur
vefur“. Þær eru allar í fremstu röð
finnskra textíllistakvenna og hafa sýnt
víða um heim. Hér sýna þær 34 verk,
mörg gríðarstór óg nýstárleg.
Það er Norræna menningarmiðstöðin
sem hefur sett saman þessa sýningu og
hefur hún áður verið sett upp á öllum
hinum Norðurlöndunum. Hún verður
opin daglega kl. 14.-22 fram til 9.
október. Listakonurnar sem eiga verk á
sýningunni heita Kirsti Tantanen, Irma
Kukkasjárvi, Lea Eskola, Eeva Renvall
og Airi Snellman-Hánninen.
■ Tvær kvennanna sem eiga verk á
sýningunni „Finnskur vefnaður“ komu
til landsins til að sjá um uppsetningu
sýningarinnar. Hér eru þær við eitt
verkanna; Kirsti Tantanen og Airi
Snellman-Hánninen. Tímamynd Róbert
■ Septem-hópurinn F.v. Jóhanncs Jóhannesson, Karl Kvaran, Þorvaldur
Skúlason, Valtýr Pétursson, Kristján Davíðsson og Guðmunda Andrésdóttir.
Þau standa við síðasta verk Sigurjóns heitins Ólafssonar, Spor í sandinn.
Timamynd Róbert
11. ^eptem sýningin opnar
á Kjarvalsstödum í dag
■ „Það eru víst orðin 37 ár síðan
septem-hópurinn var með sína
fyrstu og frægustu sýningu og þetta er
11. sýningin hans. Þetta fer að verða
eitthvað fyrir heimsmetabók Guinnes,"
sagði Valtýr Pétursson listmálari þegar
blaðamaður leit við á Kjarvalsstöðum
í gær. Þar var verið að koma fyrir
myndum á 11. septem sýningunni, en
iú fyrsta var 1946 og vakti meiri deilur
en nokkur önnur myndlistarsýning
hérlendis fyrr og síðar.
„Nú erum við í septem hópnum
orðin fulltrúar eldri kynslóðarinnar,“
sagði Valtýr. „Nýja málverkiðer kom-
ið til sögunnar, svo að það er líklcga
gamla málvcrkið sem við erum að sýna
hérna og það er ágætt. Það eru verk
eftir fólk sem hejur ræktað sinn garð.'’
Þeir scm sýna eru Jóhannes
Jóhaónesson, Valtýr, Karl Kvaran,
Þorvaldur Skúlason, Kristján Davíðs-
son og Guðmunda Andrésdóttir. Auk
þess eru á sýningunni nokkur verk eftir
Sigurjón heitinn Ólafsson myndhögg-
vara.
„Þetta eru síðustu verkin hans, m.a.
eitt sem hann var að vinna að rétt áður
en hann dó og hefur líklega ekki verið
búinn að ganga frá. En það sýnir að
hann var að vinna að hlutum sem voru
nýir hjá honum. Á næstu sýningu
verðum við búin að taka einhvern
myndhöggvara inn í hópinn, en núna
sýnum við síðustu verkin hans Sigur-
jóns. Við söknum hans og hann er
nokkurs konar heiðursgestur á þessari
sýningu, þótt hann sé ekki viðstadd-
ur.“
' Sýningin verður opnuð í dag í
vestursal Kjarvalsstaða og verður opin
næstu vikurnar á opnunarttmum
hússins.
JGK
Lögreglan gómar
vel tækjum búna
innbrotsþjófa!
■ Lögreglan í Reykjavík handtók þrjá
unga menn við Vörumarkaðinn í Ár-
múla, um kl. 1.00 í fyrrinótt, þar sem
þeir voru að reyna að brjótast inn. Við
nánari athugun kom í Ijós að í bfl sem
þjófarnir höfðu með sér hafði verið
safnað saman mjög fullkomnum útbún-
aði til innbrota. Við yfirheyrslur hjá
lögreglunni kom í Ijós að þessir menn
virðast hafa stundað innbrot lengi og þá
játuðu þeir ein sjö innbrot á sig. Búist er
við að ýmislegt fleira eigi eftir að koma
upp úr kafinu.
Að sögn Guðmundar Hermannssonar
yfirlögregluþjóns er það mjög óvenju-
legt að stunda þessa iðju af svona mikilli
alvöru en flest innbrot eru framin til að
stela fyrir áfengi eða tóbaki. Útbúnaður-
inn sem fannst í bílnum var meðal
annars klippur, kúbein, tengur, hanskar
og sigvaður þannig að vel virtist séð fyrir
öllu. Tveir þessara pilta voru 17 ára
gamlír og einn tvítugur en enginn þeirra
hefur komið við sögu lögreglunnar áður.
Rannsóknarlögreglan var í gær að
yfirheyra piltana og var búist við að þá
kæmi ýmislegt fleira í ljós en við frum-
yfirheyrslur lögreglunnar. Þá átti að
gera húsleit hjá þeim í leit að þjófstoln-
um varningi sem piltarnir munu hafa
sagt til. Eitthvað af munum fannst einnig
í bíl þeirra.
-GSH
\
■ Blaðamaður og Ijósmyndari lentu í
umferðarrembihnút í gær á leið sinni á
blaðamannafund í Höfða. Lauk svo eftir
mikla hringsnúninga að þeir ákváðu að
leggja bflnum og ganga síðustu 100
metrana. Það var hins vegar huggun
harmi gegn að á fundinum afhenti
Reykjavíkurborg Skipulagsstofu höfuð-
borgarsvæðisins formlega reiknilíkan af
■ Davíð Oddsson afhendir Richard Björgvinssyni reiknilíkanið.
Reykjavíkurborg afhendir Skipulagsstofu
höfuðborgarsvæðisins reiknilíkan umferðar:
Afangi í samstarfi
sveitarfélaganna
umferð á svæðinu til viðmiðunar við
gerð skipulags. Það er sem sé von um að
úr rætist í umferðarmálunum.
„Þetta er stór áfangi í samstarfi sveit-
arfélaganna á höfuöborgarsvæðinu,"
sagði Davíð Oddsson borgarstjóri í
ávarpi sínu í upphafi fundarins. í sama
streng tók Richard Björgvinsson for-
maður samtaka sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu, en þau samtök reka sem
kunnugt er Skipulagsstofu höfuðborgar-
svæðisins. Hann vakti athygli á því að í
fjölmörgum málum færu hagsmunir
þeirra 9 sveitarfélaga sem aðild eiga að
samtökunum saman og það gæti valdið
þeim ómældu tjóni, ef þau gættu þess
ekki að rækta samstarf um þau mál sem
snerta þau sameiginlega. Hann benti á
að 54% þjóðarinnar byggi á því svæði
sem samtökin ná til og skipti því
verulegu bæði fyrir íbúa svæðisins og
þjóðarheildina að vel tækist til í skipul-
agsmálum.
Fram að þessu hefur danskt fyrirtæki,
A.S. Nyvig séð um þessi mál fyrir
Borgarskipulag Reykjavíkur sem hefur
síðan útfært þau en hefur þessi starfsemi
sem sagt verið flutt inn í landið og er nú
á ábyrgð sveitarfélaganna á höfuðborg-
arsvæðinu sameiginlega. Gestur Ólafs-
son forstöðumaður Skipulagsstofnunar
sagði að þetta væri eðlilegt skref því að
íslendingar hefðu á að skipa nægum og
vel hæfum mannafla til að annast þessi
mál og þessi nýja skipan hefði í för með
sér að starf skipulagsfólks yrði nú allt
auðveldara og bæði skipulagsaðilum og
stjórnmálamönnum yrði nú auðveldara
að átta sig á möguleikum og gera sér
grein fyrir afleiðingum tiltekinna á-
kvarðana í skipulagsmálum. „Bílisminn
hér á höfuðborgarsvæðinu kostar 4-5
milljónir króna. Það gefur auga leið að
það er mikið hagsmunamál ef hægt er að
skera þessa upphæð niður. Ef hægt er að
lækka þennan kostnað um 1% þýðir það
40-50 milljónir króna,“ sagði Gestur
Ólafsson. „Það er veruleg upphæð og
það samstarf sem nú hefur tekist milli
sveitarfélaganna ætti að geta orðið skref
í hagkvæmnisátt.
-JGK