Tíminn - 01.10.1983, Síða 2

Tíminn - 01.10.1983, Síða 2
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1983 2 fréttir „Dauði H.C. And- ersens” — flutt á mánu- dag ■ Ámánudaginnkemurkl. 22:35 verð- ur flutt útvarpsleikritið „Dauði H.C. Andersens" eftir Jan Guðmundssen í þýðingu Nínu Bjarkar Árnadóttur Leikritið fjallar um síðustu stundir H.C. Andersens. Hann rifjar þar upp liðna ævi, þar á meðal kynni sín af sænsku söngkonunni Jenny Lind. Upptakan er ekki síst athyglisverð fyrir frábæra túlkun Þorsteins Ö. Step- hensens á aðalhlutverkinu, en auk hans koma fram: GuðrúnStephensen, Kristín Anna Þórarinsdóttir og Jón Sigurbjörns- son. Leikstjóri er Þorsteinn Gunnars- son, sem leikur nú sjálfur H.C. Ander- sen í sýningu Leikfélags Reykjavíkur á leikriti P.Ó. Enquists „Úr lífi ánamaðk- anna“ Leikritinu var áður útvarpað 1972. - BK Sam vinnuferðir gera nýjan „sumarhúsa- samning” fyrir næsta sumar: Fá 80 hús til afnota ■ Samvinnuferðir-Landsýn hefur nú undirritað nýjan samning við Spurthuis Ccntrum, eigendur sumarhúsanna í Eemhof og Kempervennen í Hollandi. Hljóðar samningurinn upp á um 15 milljón króna viðskipti og munu íslend- ingar hafa til afnota 80 sumarhús í Hollandi á árinu 1984. „Að jafnaði munu því um 400 íslend- ingar dvelja í húsunum í einu næsta sumar og um 3.600 manns í heild á öllu árinu. Er hér um verulega aukningu að ræða frá síðast liðnu sumri, en þá voru að jafnaði 35 hús setin fslendingum hverju sinni. Uppselt var í allar ferðir sumarsins," segir í frétt frá Samvinnu- ferðum-Landsýn. Þá segir að sú nýbreytni verði tekin upp í vetur að ferðirnar verði seldar strax í oktober á sama verði og gilti í sumar: „Fögnum við því, að geta mætt erfiðu árferði í efnahagsmálum með jafn hagstæðum magnsamningum og raun ber vitni,“ segir í fréttinni. Ferðaskrifstofan mun í vetur gangast fyrir samkeppni meðal almennings um nýtt nafn á húsin sem nefnd hafa verið „Sumarhús í Hollandi“. „Húsin eru annað og meira en það sem við íslend- ingar köllum „Sumarbústað" eða „sumarhús, auk þess sem þau eru opin allan ársins hring,“ segir í frétt ferða- skrifstofunnar. í samkeppninni er óskað eftir einu góðu orði sem stendur ekki aðeins fyrir húsin sjálf og gæði þeirra, heldur einnig það sém einkennir fjölskyldudvöl og annað sem umhverfi húsanna hefur upp á að bjóða. Fyrstu verðlaun í samkeppn- inni verða 3ja vikna dvöl fyrir alla fjölskylduna í „sumarhúsi" í Hollandi á sumri komanda. Ævisaga Eysteins Jónssonar: Medal bóka á jólamarkaði ■ Meðal jólabókanna í ár, verður ævisaga Eysteins Jónssonar fyrrverandi ráðherra og formanns Framsóknar- flokksins, og samkvæmt því sem segir í frétt frá fórlaginu Vöku, sem gefur bókina út, munu í henni koma fram margvíslegar nýjar upplýsingar um íslensk stjórnmál síðustu áratugi og skoðanir Eysteins á mönnum og málefn- um sem tengst hafa löngum ferli hans á stjórnmálasviðinu. Það er annar fyrrverandi ráðherra, sem skrifað hefur bókina, Vilhjálmur Hjálmarsson. í þessum fyrrihluta minningaogstarfs- sögu Eysteins Jónssonar eru kreppuárin og stríðsárin fyrirferðarmikil, margvís- ■ Guðmundur jaki safnaði ekki mörgum undirskriftum þann tíma sem við stóðum við, en hann var drjúgur að spjalla við þá sem á vegi hans urðu. Hér ræðir hann við Björgólf Guðmundsson stjornarformann Hafskips. VERKALÝÐSLEIÐTOGAR REKA ARQÐUR FYRIR UNDIRSKRIFTALISTUM ■ í gær miili fjögur og sex dreifðu helstu verka- lýðsforingjar landsins sér um stræti og torg höfuð- staðarins og afhentu þeim sem á ferli voru bæklinga frá ASÍ, þar sem rekinn er áróður fyrir undirskriftar- söfnun verkalýðsfélaganna með dæmum, frásögnum, töflum og línuritum. Á göngugötustubbnum í Austurstræti höfðu tekið sér stöðu meðal annarra Bjarni Jakobsson, Magnús L. Sveinsson, Grétar Þorsteinsson, Benedikt og Guðmundur J. Guðmundsson. Heldur gekk þeim illa að ná til vegfarenda sem flestir flýttur sér hjá, alls sinnulausir um lífskjör sín. Þó stöldruðu margir við, þáðu bæklinga og nokkrir skrifuðu undir þann tíma sem Tímamenn voru á rölt- inu. Svo voru aðrir sem rökræddu við þá forkólfa og enn aðrir sem aldrei höfðu heyrt minnst á bráðabirgðalög eða undir- skriftarsöfnun. Það var gaman í Austurstrætinu þrátt fyrir að veður væri frekar svalt. Menn og konur buðu fram framleiðslu sína í miklum móð, smákökur, blóm og barm- merki og þegar þeir ASÍ menn bættust í hópinn var erfitt að komast um göngu- götuna ósnortin af mannlegum sam- skiptum. Hér á síðunni fylgja viðtöl við nokkra vegfarendur sem þegið höfðu bæklinga ög fróðleik af þeim ASÍ mönnum. -BK leg stórmál og barátta á mörgum víg- stöðvum, eftir því sem segir í frétt Vöku. Þar segir jafnframt að Vilhjálmur leggi ■ Gunnar Þórólfsson trésmiður: Þetta eru aðhaldsaðgerðir hjá ríkis- stjórninni. Annað hvort verður að draga saman í kaupinu, eða það skellur á okkur atvinnuleysi. ■ Reynir Kjartansson húsasmið- ur: Mér líst ekki nógu vel á þessa undirskriftasöfnun. Eg vil harðari aðgerðir. ■ María Kristinsdóttir, hjúkrun- arfræðingur: Mér finnst þessar að- gerðir ríkisstjórnarinnar eiga fullan rétt á sér, því við verðum að reyna að ná niður verðbólgunni en ég ætia að skoða vel texta undirskrifta- eyðublaðsins áður en ég ákveð hvort ég skrifa undir það. áherslu á, að sagan verði lifandi og læsileg og hann kryddi því frásögnina eftir föngum með sögum og minningar- brotum. Er stefnt að því að bókin komi út fyrri hluta nóvembermánaðar. - AB ■ Gerður Torfadóttir, sóknarkona á Grund: „Mér líst vel á undirskrift- arsöfnunina, því að ég vil að við fáum samningsrétt. Það eru sjálf- sögð mannréttindi." ■ Frá undirrítun samningsins, sem gerir ferðskrífstofunni Ideift að selja ferðir ■ sumarhúsin á sama verði og í sumar næsta ár. Tímamynd GE ■ Þeir Vilhjálmur og Eysteinn skeggræða fortiðina í gönguferð um Ásvallagötuna. Það er margt að ræða frá löngum ferli og því miðla þeir svo í ævisögu Eysteins sem væntanleg er frá bókaútgáfunni Vöku í haust.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.