Tíminn - 07.10.1983, Side 3
Síldveiöibátar:
FÁ AÐ VEIÐA 25% TIL VIÐBÓT-
AR ÞVÍ SEM FER í FRYSTINGU
— til að stuðla
að því að
frysting síldar
hefjist sem
fyrst
■ Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að lcvfa hverjum síldarbát að
veiða 25% til viðbótar því magni, sem
bátur leggur upp til frystingar.
„Við auðvitað fögnum þessari ákvörð-
un ráðherrans: Hún verður til þess, að
meiri jöfnuður næst milli þeirra sem
landa til frystingar og þeirra sem landa
tif söltunar," sagði Óskar Vigfússon,
forseti Sjóimannasambands Islands, í
samtali við Tímann.
í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu
segir, að ákvörðun þessi sé tekin til að
stuðla að því að frysting síldar hefjist
sem fyrst. Ennfremur til að jafna hlut
þeirra báta, sem landa síld til söltunar og
þeirra sem landa til frystingar. Síldar-
verð til frystingar er um 30% lægra en
verð á síld til söltunar.
Gert var ráð fyrir, að tæplega 20
þúsund tonn af 52 þúsund tonna heildar-
kvóta færu til frystingar, þannig að með
ákvörðun ráðuneytisins bætast tæplega
5000 tonn við heildarkvótann. -Sjó.
■ Forsvarsmenn „Gagnvega“ blaða í Æskunni. F.v. Þór Jakobsson, Eðvarð
Ingólfsson, Agnes M. Sigurðardóttir og Níels Árni Lund.
„GAGNVEGIR”
— Ellefu til átján ára unglingar
ræði við eldra fólk
■ Á þessum mildu haustdögum beina
fjórir áhugamenn um fólk því til 11-18
ára unglinga, að þeir taki þátt í verkefn-
inu „Gagnvegir". Það er í því fólgið að
taka viðtal við manneskju, skylda eða
óskylda, sem orðin er 70 ára, finna sér
umsjónarmann, sem fylgist með því að
vel sé að verki staðið og riti nafn sitt
undir viðtalið, og senda afraksturinn til
Æskunnar en í septemberhefti þess blaðs
er framtak þetta kynnt. Viðtalið á að
vera 3-10 „vélritaðar" síður, vélritað eða
handskrifað. Skilafrestur er til áramóta
og allir sem taka þátt í þessu fá sent
viðurkenningarskjal. Ekki er verra að
mynd fylgi .viðtalinu. í Viðtali dagsins í
Tímanum í dag er viðtal við einn af
aðstandendum, Þór Jakobsson, veður-
fræðing um þetta framtak.
BK
Lionsmenn selja
perur á Akranesi
— til styrktar Sjúkrahúsi
Akraness
■ í dag föstudag munu félagar í Lions-
klúbbi Akraness ganga í hús á Akranesi
og bjóða bæjarbúum ljósaperur til
kaups. Eru perurnar seldar til ágóða
fyrir áhaldakaupasjóð Sjúkrahúss Akra-
ness, en um langt árabil hefur klúbbur-
inn aflað með þessum hætti fjár til að
gefa sjúkrahúsinu fjölmörg lækninga-og
rannsóknatæki. Akurnesingar hafa ætíð
burgðist vel við perusölu Lionsmanna,
og þannig stutt í verki sjúkrahús sitt með
myndarlegum hætti. Er ekki að efa að
svo verður einnig að þessu sinni.
-aó
^*>%******>*>**%%*»»<,,t ;■
SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRU
SUÐURLANDSBRAUT 32 - SIMI 82033
Allar skrúfur,
múrfestingar
draghnoð
og skotnaglar
RAWLPLUG
TFECSHJM TTW5GQUM
tYÞWH>| SWININCSREIt
SKRIFUM UNDIR!
Kristján Thorlacíus, Albert Kristinsson, Einar Ólafsson, Sigþrúður Ingimundardóttir,
Haraldur Steinþórsson, Hrafn Marinósson, Haraldur Hannesson.