Tíminn - 07.10.1983, Blaðsíða 4

Tíminn - 07.10.1983, Blaðsíða 4
4 KÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1983 fréttir „KOM A ÓVAKT HVAD VANDAMAUÐ ER MIKUI STÆRRA EN TflllÐ VAR” — Rætt vid Bjarna Torfason, lækni, um könnun hans á skýrslum Slysadeildar Borgarspítalans ■ „Fyrst og fremst kom mér á óvart hve vandamálið er miklu stxrra en talið hefur verið og hve unga fólkið er í miklum meirihluta þeirra sem slasast í umferðarslysum. Einnig kom á óvart hve afleiðingar slysanna eru miklar og langvarandi og í framhaldi af því hve menn eru harðir af sér og stunda vinnu þrátt fyrir verki og þjáningar“, sagði Bjarni Torfason læknir á Borgarspítal- anum erTíminn spurði hann hvað einna helst hafi komið honum á óvart við athugun sína á skýrslum Slysadeildar Borgarspítalans yfir slasaða í umferð- arslysum. Eins og fram kemur annars- staðar komst Bjarni að því í samtölum og bréfaskriftum við þá sem þurftu á sjúkrahús vegna umferðarslysa árið 1975, að helmingur þeirra báru cnn varanleg mein eftir slysið, fimm árum eftir að það atti sér stað. Könnun Bjarna er sú víötækasta sem gerð hefur verið hér á landi og munu niðurstöður hennar koma út í bók bráölega í samvinnu við Landlæknisembættið. Tíminn spurði Bjarna jafnframt hvað hann teldi að verða mætti til úrbóta í baráttunni við að fækka umferðarslys- um. „Ég held að vinna ætti miklu meira að fræðslu og beina henni jafnframt meira að þeim sem of lítið hefur verið sinnt til þessa, þ.e. ungu fólki, gangandi vegfar- endum og hjólreiðafólki. Ökukennslu bifreiðastjóra þarf að bæta, lögleiða notkun bílbelta bæði í fram og aftursæti - því það er jafn hættulegt að sitja aftur í bíl og framí - og taka upp kennslu í slysafræði til prófs í grunnskólum. Vegna mjög tíðra slysa á 15 ára vélhjóla- mönnum tel ég að færa eigi lágmarksald- ur til aksturs vélhjóla upp um eitt ár a.m.k. og hefja vélhjólakennslu. Fyrir þá sem eru á reiðhjólum tel ég að lögleiða eigi hjálmnotkun því m.a. ■ Slysahætta vegfarcnda sem ekki eru í bílum er mjög mismunandi eftir árstímum. Árið 1975 voru slasaðir í þessum hópi 837 af alls 1.882 sem slösuðust í umferðarslysum. Á myndinni sáum við hvernig þeir skiptast eftir einstökum mánuðum ársins. Þannig kom enginn slasaður reiðhjólaökumaður á Slysadeild í janúar, í kring um 20 mánuðina mars og apríl og komust upp í um 60 í maí og yfir hásumarmánuðina. Slys á gangandi vegfarendum voru flest í mars og september, en fæst í júní. _______________________________ ■ Bjarni Torfason læknir, sem gert hefur stærstu könnum sem gerð hefur verið á umferðarslysum hér á landi. Tímamynd: GE. kom í ljós að meiðsl á höfði eru lang algengust meiðsla hjá hjólreiðafólki. Janframt þyrfti að hækka aldursmörkin fyrir þá sem mega vera á reiðhjólum í umferðinni. Gangandi vegfarendum þarf að gera auðveldara að ferðast án þess að þurfa sífellt að fara yfir akbraut- ir. í öðrum löndum má víða sjá skipulag þannig að gangandi fólk getur komist leiðar sinnar án þess að þurfa stöðugt að krossa umferðaræðar. Þetta á að vera hægt að gera á tiltölulega ódýran hátt, t.d. með því að hafa gönguleiðir annars- staðar en alltaf upp við akbrautir. Einnig má hafa brýr eða upphækkaða vegi með undirgöngum sem sést í gegnum. Undir- göng niður í jörðina hafa hinsvegar sýnt sig að vera tilgangslítil því fólk notar þau ekki“, sagði Bjarni m.a.. - Hvað viltu segja um mismun á slysatölum Umferðarráðs og Slysadeild- ar? „Það eru sjálfsagt eðlilegar skýringar á því, því oft leitar fólk sér frekar læknis en lögreglu. Skráning Slysadeildar hefur í mörg ár verið tölvuvædd og hún er talin fullkomnasta slysaskráning á Norður- löndum. Ég vil taka það fram að allar skýrslur Slysadeildar eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og fullri nafnleynd er beitt gagnvart utanaðkomandi aðilum, m.a. lögreglu. En mér finnst mikilvægt að fólk fái að vita allan vandann og því þarf að gera þessar tölur aðgengilegar fyrir fólk til að m.a. foreldrar geti tekið afstöðu gagnvart börnum sínum í um- ferðinni með tilliti til þessra upplýsinga“. Það kom fram í samtalinu við Bjarna að þótt mörgum þyki læknis- og annar meðferðarkostnaður slasaðra hár, þá er hann ekki nema brot af þeim beina og óbeina kostnaði og tjóni sem verður vegna vinnutaps og ótímabærra dauðs- falla þeirra sem slasast í umferðarslys- um. - HEI/GSH. ■ Gífurlega hátt hlutfall slasaðra meðal unglinga og sérstaklega ungra stráka kemur glöggt fram á þessari mynd, er sýnir aldurs dreifingu þeirra er komu á Slysadeild 1975, vegna umferðarslysa. Tölurnar við Ijóðrétta strikið sína fjölda slasaðra í umferðarslysum^er komu á Slysadeild, af hverjum 100 íbúum í hverjum aldursflokki (lárétta strikið) á höfuðborgarsvæðinu. Lang hæsta toppinn mynda slasaðir 15 -19 ára strákar, um 4,3% af strákum á þeim aldri. Fremsta toppinn mynda börn á fyrstu skólaárunum. Frá 25 ára aldri er hlutfall slasaðra af hverjum aldursflokki nokkuð jafnt þar til það lækkar verulega er kemur yfir 75 ára aldurinn. Piltar á aldrinum 15-19 ára á höfuðborgarsvæðinu: Rúmlega 4% slösuðust í umferðinni á einu ■ Um einn af hverjum 23 eða 4,3% 25 -19 ára pilta á höfuðborgarsvæðinu slasaðist í umferðarslysi árið 1975. Hlut- fall stúlkna á sama aldri var um helmingi lægra. En af fólki komnu yfir 25 ára aldur var slysatíðnin innan við 1,5%. Þetta kemur m.a. fram í umferðaslysa- könnun Bjarna Torfasonar læknis. í rannsókninni er einnig sýnt fram á að raunverulegur fjöldi slasaðra í umferð- inni árlega á landinu öllu er að minnsta kosti á þriðja þúsund. í hópi þeirra sem leggjast þurfa inn á sjukrahús eða látast vegna umferðar- slysa eru hinir 15 -19 ára ofurhugar og enn yngri drengir hlutfallslega mjög margir. í þeim hópi eru einnig hlutfalls- lega margir aldraðir - bæði konur og karlar. ari í könnun Bjarna kom og í ljós að ólíkir vegfarendahópar í mjög mismikilli hættu eftir árstímum. Þannig kom í ljós að tvöfalt fleiri gangandi vegfarendur urðu fyrir slysi í mánuðum mars og september en t.d. í dimmustu vetrar- mánuðunum og í apríl, mái og júní. Topparnir í vélhjólaslysum reyndust vera í apríl og október. En þar var slysatíðnin samt jafnari milli mánaða. Reiðhjólaslysin voru hlutfallslega fá tvo fyrstu og tvo síðustu mánuði ársins en ruku svo upp í krongum 60 á mánuði í maí, júní og júlí. í bifeiðum slösuðust langflestir í mán- uðunum ágúst, september og október, eða í kringum 120 á mánuði, en aftur færri hina mánuði ársins, eða kringum 70 á mánuði. - HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.