Tíminn - 07.10.1983, Blaðsíða 12

Tíminn - 07.10.1983, Blaðsíða 12
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1983 með. Hann vill það alls ekki, en segir að ég geri ekkert þar, - bara tali og tali. Hann vill heldur vera úti að leika sér. „Ef ég verð svangur fer ég bara til ömmu, og ef ég þarf að pissa, þá pissa ég bara úti,“ segir sá stutti. Klukkan eitt er ég komin í útvarps- húsið. Þar sitja þeir Ólafur Torfa og Örn Ingi og hlæja mikið og lengi. Þeir eru að hlusta á þátt, sem þeir verða með nk. sunnudag (2. okt.) og eru að sjálfsögðu mjög ánægðir með. Jónas kemur með hraði inn úr dyrunum. Króar mig af úti í horni og sýnir mér kynningarnar sem ég á að lesa. Ekki erum við alveg sammála um orðalagið, svo við þráttum dálitla stund, - en eins og góðu fólki sæmir gengur dæmið upp hjá okkur og við erum bæði ánægð. Bjössi tæknimaður er með nýja útsetningu á stefinu okkar norðan- manna og það er sett á kynningarnar. Eins árs afmæli hjá RÚVAK 3. október Hjá RÚVAK hef ég starfað í eitt ár, eða síðan 3. okt. '82. Ég fer einu sinni í viku niður í útvarp og þá eru teknar upp kynningar viku fram í tímann. Margir halda, að ég hlaupi til í hvert skipti sem útvarpað er héðan, en það er ekki svo. Það er hentugra að taka kynningarnar upp fyrirfram, eins og við höfum gert. RÚVAK er í litlu húsi hér á Eyrinni, sem einu sinni var notað sem reykhús, og verðum við oft vör við það, einkum í hvassri suð-vestanátt, en þá kemur ilmandi hangikjötslykt í húsið. Lyktin er enn þá viðloðandi í einangruninni frá því í „fyrra lífi" þessa vinalega húss. Hjá RÚVAK er gott að vera og þar er gott fólk. Á leiðinni heim þarf ég að koma við í miðbænum. Ég hafði ákveðið að kaupa tuskudúkku, helst með rauðar fléttur, - og hana fékk ég reyndar! Veðrið var frábært og ég naut þess að ganga um í miðbænum og sjá breytinguna, sem hefur átt sér stað, en við Akureyringar höfum nú eignast okkar göngugötu. Um klukkan þrjú er ég komin heim, en þá er bóndinn að renna í hlaðið. Hans vinnudagur er búinn í bili en hann byrjar daginn snemma, kl. fimm. Fimm ára sonur minn kemur hlaup- andi og spyr hvort „matartíminn sé bráðum, og hvort ég sé búin að tala í útvarpið“, - og svo er hann horfinn. Síðan komu fjölskyldumeðlimirnir hver af öðrunt heim. Það er mikið talað um umferðarvikuna á Akureyri, sem er að ljúka og hefur tekist bærilega að ég held. Leikiistaráhugi á heimilinu Átta ára sonur minn spyr hvort það sé leikritakvöld í útvarpinu, en við verðum fyrir vonbrigðum, - ekkert leikrit í kvöld. Dyrabjallan hringir, og úti stendur félagi minn, bóndi framan úr Eyjafirði. Hann er að færa mér brodd (ábrystir). Það er lostæti og ég tek því tveim höndum og býð honum inn í kaffi. Hann má ekki vera að því en þarf að flýta sér heim til að setja kýrnar inn, þeim sé kalt. En við tölum aðeins um leikrit, sem félagið okkar, Leikfélag Öngulsstaðahrepps, er að setja á svið. Við erum búin að ráða leikstjóra, en vantar leikara í nokkur hlutverk enn þá. Hann kveður í skyndi, því ekki mega kýrnar fá kvef! ...en þá heyri ég suð.. Ég fer að taka til matinn um hálfsex- leytið. Við borðum oftast snemma. Það er mikið fjör við matborðið, eins og oftast nær. Síðan taka við hreingerningar og svo að koma yngstu börnunum í rúmið. Drengirnir eru orðnir ansi þreyttir.enda búnir að slást í klukku- tíma. Það var ekkert spennandi í útvarp- inu, svo ég fór snemma í háttinn. Ég var alveg að sofna, - en þá heyri ég suð... Þarna er þá komin feit og falleg fluga, - kannski sú sama og í morgun? ■ í nákvæmlega ár (og fjóra daga) höfum við heyrt í útvarpssendingum frá Akureyri „Röddina að norðan“, sem við kynnum í dag í Heimilistíman- um. Það er Anna Ringsted sem segir: „Þetta er RÚVAK..." Hún ætlar að segja okkur frá einum degi í lífi sínu, og kynnir sig sjálf á eftirfarandi hátt: „Ég, Anna Ringsted, er fædd 8/5 '49 á Siglufirði, en hef búið hér á Akureyri síðastl. tuttugu og eitt ár og tel að ég sé því orðin gjaldgengur Akureyring- ur. Ég er gift og við hjónin eigum fjögur börn, á aldrinum 5-17 ára. Mitt aðalstarf er húsmóðurstarfið, en ég hef tvö önnur störf að glíma við þar fyrir utan - er ræstitæknir í brauðgerð og svo á ég RÖDDINA sem kynnir dagskrárliði frá RÚVAK.“ Síðan segir Anna Ringsted á eftirfar- andi hátt frá deginum 29. septcmber sl.: Þegar umsjónarmaður Heimilistím- ans fór þess á leit við mig að lýsa einum degi mínum, þá tók ég vcl í það, en fékk um leið hálfgert samviskubit, - það eru allir dagar eins, hugsaði ég með sjálfri mér, og ég hef ekki haldið dagbók síðan ég var í skóla! Þetta var áreiðanlega ekki „Litla flugan" hans Fúsa Fimmtudaginn 29. sept. vaknaði ég rétt fyrir átta við það, að stór og bústin fluga fór á ógnarhraða um herbergið og suðaði mikið. Synir mínir vöknuðu einnig, og við fylgdumst lengi með flugunni. Þeir töluðu um það sfn á milli, að flugan væri örugglcga ófrísk því hún væri svo feit! Ég hugsaði með mér, að þetta væri að minnsta kosti ekki hin fræga „Litla fluga.’sem mest hefur verið sungið um. Því næst klæddum við okkur, og fengum okkur te og brauð, nema sá yngri. Hann vildi MAT, sagði hann. Eldri sonurinn átti eftir að reikna, svo við settum okkur niður, en sá yngri fór út til að gá að hvort enginn snjór væri kominn. Það liðu þó ekki nema 5 mínútur en þá opnaði hann útidyra- hurðina og kallaði: „Mamma mundu eftir að panta tíma hjá tannlækninum". Það þykir kannski skrýtið hjá herra- manni á þessum aldri að hafa áhuga á að fá tíma hjá tannlækni, en það var ástæða fyrir því. Vinur hans hafði verið hjá tannlækni nýlcga og verið leystur út með gjöfum, smádóti, sem sonur minn varð geysilega hrifinn af. Þaðan var kominn áhuginn á tann- lækningum. Við héldum svo áfram aö reikna, en í sama bili heyrðum við að í útvarpinu var verið að segja magnaða tröllasögu, svo við lögðum reikninginn til hliðar og hlustuðum alveg hugfangin, og þar á eftir setti þulur svo hinar einu og sönnu Grýlur á fóninn og við sungum meö. Anna Ringsted, útvarpsþulur á Akureyri Rödd að norðan „Þetta er RÚVAK“ ■ RÚVAK er í litlu húsi, sem einu sinni var reykhús, og það er eins og „Mamma, kallinn í útvarpinu er í símanum“ Klukkan er að verða níu ogdagurinn rétt að byrja. Ég hleyp ofan í kjallara. Þar bíður mín hægri hönd (þvottavél- in) tilbúin í slaginn. Þá kallar sonur minn. „Mamma, mamma, kallinn í útvarpinu er í símanum.". Ég hleyp upp og í símanum er Jónas Jónasson, hress og endurnærður eftir nætursvefninn, og hann spyr. „Hvað, ... af hverju ertu ekki að vinna?" „Ég er hætt", segi ég. „Hvað ætlar þú eiginlega að fara að gera? Ekki neitt kannski?" „Jónas minn, ég er með sex manna fjölskyldu, má ég minna þig á það“, segi ég. Þessi vinna, sem Jónas talar um, er sú, - að ég vann í allt sumar hjá KEA og hef verið þar af og til síðan ég var 17 ára gömul, - en þetta var nú útúrdúr. Bílaeigendur skafa rúður —það er f rost en fallegt veður Jónas Jónasson, deildarstjóri hjá RÚVAK, biður mig að koma ofan í útvarp kl. 1 (13.00) til að kynna þátt, sem verður á vetrardagskrá. Sá þáttur mun vera úr sögu Akureyrar. Klukkan er orðin 10 og ég þarf að fara í búðina. Þegar ég kem út sé ég að bílaeigendur eru í óðaönn að skafa rúður á bílum sínum, sem eru hrímað- ar. Það er frost, en mjög fallegt veður. Fjörðurinn okkar er hreinn og fallegur. Mér er boðíð upp á kaffi í búðinni og þar er mikið talað um kjötfjallið, og hvort verðbólgan sé kannski að verða að engu? Þegar ég kem heim „brosir" við mér þvottabunki, sem þarf að strauja. Ég er rétt byrjuð, en þá hringir síminn, og í símanum er kunningi okkar hjóna sem ég hef ekki heyrt í langa lengi, og við röbbum lengi saman, og enn er verðbólgan á dagskrá. „...þá fer ég bara til ömmu“ Það er kominn matartími, en í hangikjötslyktin loði enn við þar. hádeginu borðum við bara léttmeti. Ekki koma allir heim í mat. Stundum erum við bara þrjú, stundum fjögur og fimm, en eiginmaðurinn kemur ekki heim í hádeginu, hann hringir bara heim. Við förum að tínast út eitt og eitt. Tvö fara í skólann, ég fer niður í útvarp, og ætla að taka 5 ára soninn Dagur í lífi Önnu Ringsted, þular í Ríkisútvarpinu á Akureyri

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.