Tíminn - 07.10.1983, Blaðsíða 20
Opið virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91(7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niöurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
8c ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
abriel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir .SSSS
riamarshöfða 1
^TOTÍUtl Rítstjorn 86300 - Augiysingar 18300 - Afgreidsia og askrift 86300 - Kvoidsimar 86387 og 86306
Könnun Bílgreinasambandsins:
Fóstudagur 7. oktober 1983
Kennarafélag Reykjavlkur:
MtKUUNGUR BILAMB) SKORAR A
ÖLÖGLEGA HJÚLBARÐA!
AStAUGI!
■ Þriðjungur bíla á íslundi
reyndist vera með ólöglega hjól-
barða í könnum sem Bðgreina-
sambandið lét gera í vor og
fyrravor í samráði við ýmsa að-
ila. Þessar niðurstöður sýna að
ástandið er mjög alva/legt því
kannanirnar voru gerðar á þeim
tíma sem hjólbarðar áttu að vera
í hvað bestu lagi, þar sem
skammt var liðið frá því að menn
tóku vetrarhjólbarðana undan
bðunum og liöfðu því haft ástxðu
til að líta eftir sumarhjólbörðun-
Verðlagsrád:
Óverulegar
hækkanir
■ Fimm beiðnir um verðhækk-
anir á vörum og þjónustu voru
teknar fyrir á fundi í Verðlags-
ráði í gær. Beðið var um hækkun
á útseldri vinnu iðnaðarmanna,
fiski á neytendamarkaði, að-
göngumiðum að kvikmyndahús-
um, far- ogfarmgjöldum í innan-
landsflugi Flugleiða og smjör-
líki.
„Ég get að svo stöddu ekki
skýrt frá afgreiðslu þessara mál
þar sem heimildir til hækkana
ganga ekki í gildi fyrr en á
laugardag (á morgunj", sagði
Georg Ólafsson, verðlagsstjóri,
í samtali við Tímann í gær.
Hann sagði hins vegar, að
ailar hækkanirnar yrðu
óverulegar.
-Sjó
HIVI íBridge:
Naum for-
ysta USA
■ A-sveit Ameríku hafði
nauma forustu í úrslitaleik
Heimsmeistaramótsins í bridge
eftir að spiluð höfðu verið 44 spil
af 176. Staðan var 113-111
Ameriku í vil. -GSH
1 samtali við Tímann sagði
Jónas Þór Steinarsson, fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasam-
bandsins.að í fyrri könnuninni
vorið 1982 höfðu 3400 bílarverið
athugaðir um allt land og reyndust
30,6% þeirra vera með einn eða
fleiri hjólbarða í ólagi. í vor náði
könnunin til 441 bíls í Reykjavík
og af þeim reyndust 143 bílar,
eða 32,5%, vera með einn eða
fleiri hjólbarða ólöglega.
Flestir bílarnir voru með of
slitna hjólbarða og fjölgaði þeim
hlutfallslega milli ára. Ginnig
voru 6,6% bíla með óeðlilegt slit
í hjólbörðum í vor,sem stafar af
rangri hjólastillingu eða röngum
Ioftþrýstingi í hjólbörðum.
Jónas sagði að brýnt væri að
auka fræðslu hjá almenningi um
hvað hjólbarðar eru mikilvæg
öryggisatriði. Hann benti á að í
skýrslu finnsku ökuslysarann-
sóknarnefndarinnar komi fram
að gallaðir hjólbarðar ættu mjög
oft þátt í slysum, ef ástandi
bílsins er hægt að kenna um á
annað borð. Þar var yfirleitt um
að ræða of lágan loftþrýsting í
bílum,of slitna hjólbarða eða að
hjólbarðar hentuðu ekki fyrir
viðkomandi akstursskilyrði.
Jónas sagði að slæmt ástand á
hjólbörðum hérlendis mætti að
stórum hluta rekja til þess hvað
hjólbarðar væru dýrir. Nýir vetrar-
hjólbarðar kosta nú í kringum
3000 krónur eða 12.000 fyrir
allan bílinn og þessa upphæð
þarf neytandinn að borga út í
hönd. Af upphæðinni renna um
45% til ríkisins í formi aðflutn-
ingsgjalda og söluskatts.
-GSH
■ Á fundi trúnaðarmanna í
Kennarafélagi Reykjavíkur í
gær var samþykkt ályktun þar
sem skorað er á menntamála-
ráðherra að skipa nú þegar
Áslaugu Brynjólfsdóttur í
embætti Fræðsiustjúra íslands.
Þessi álvktun var send tii
Fræðsluráðs Reykjavíkur.
Á sama fundi var samþykkt
önnur ályktun þar sem því var
beint til trúnaðarmanna að þeir
beiti sér fyrir því að haldnir
verði fundir með kennurum úti
í skólunum í dag, föstudag,
eða fyrir hádegi á mánudag þar
sem mál Fræðslustjórans í
Reykjavík verði kynnt og
fræðslustjóra sýndur sá trúnað-
ur sem hann verðskuldar.
-GSH
Sfldveiðarnar:
Um 20 bátar
fengid afla
■ Síldarsðltun er nú hafin á
flestum söltunarstöðvum á
Austfjörðum. Um tuttugu sfld-
arbátar höfðu fengið afla um
kvöidmatarleytið í gær, en
vertíðin hófst á sunnudaginn.
Búið er að landa eítthvað á
þriðja þúsund tonnum.
„Það hefur verið bræla á
miðunum í dag og fáir bátar
úti, en það er að lægja núna og
ég held að þeir verði flestir á
miðunum í nótt“, sagði Grétar
Guðmundsson, loftskeyta-
maður á Neskaupstað, í sam-
tali við Tímann í gærkvöld.
Grétar sagði að enn hefði
fengist mjög lítill afli í reknet.
Þeir fáu sem væru búnir að
leggja þau hefðu aðeins fengið
nokkur tonn í trossumar. Taldi
hann að ótíð réði mestu þar
um, því hringnótabátar hefðu
margir fengið ágæt köst. -Sjó
■ Þetta tessjónvarp
sem kvenfélagið Hring-
urinn gaf deild blindra
og sjónskertra er deild-
inni ómetanlegt. Það get-
ur líka stækkað letur af
bók og varpað stöfum á
töflu. Aðeins eitt svona
tæki er til, en þau þyrftu
að vera fleiri. Á bls 2 í
dag er sagt frá opnun
deildarinnar í Álftamýr-
arskólanum, en hún var
áður til húsa í Laugarnes-
skólanum
-BK
Timamynd Árni Sæberg
Blaðburöarbörn
- óskast
ARNARNES
GARÐABÆ
Sími43956
Vinsamlegast sækiö
rukkunarheftin.
SlMI 86300
dropar
„Það hefur tognað
á böndunum“
■ Gullkornin urðu bókstaf-
lega að gullsandi í vellukkaðri
afmælisveislu Albcrts Guð-
mundssonar á Hótel Sögu, svo
mjög fóru ræðumenn á kostum
er þeir árnuðu afmælisbarninu
heilla á sextugsafmælinu. Geir
Hallgrímsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins ávarpaði af-
mælisbarnið og færði gjöf
flokksins. Hann sagði að þótt
ekki hefðu þeir Alliert alltaf
verið sammála, þá hefði vin-
átta þeirra aldrei rofnað. Er
Albcrt þakkaði formanni sin-
um sagði hann það rétt vera,
að þeir hefðu ekki alltaf verið
sammála, hann og Geir, og
hann bætti við: „Það hefur
tognað á böndunum, en þau
hafa aldrei slitnað."
„Albert rekst ekki
illa í flokki“
Geir sagði einnig í ræðu
sinni að oft hefði því verið
haldið fram að Albert rækist
illa í ftokki. Þetta væri ekki
rétt. Albert vildi cinláldlcga fá
að ráða. Það hversu Albert
hefði verið spakur og rólegur
að undanförnu, sýndi cinfald-
lega það hversu miklu Albert
réði.
„Gina hólflö sem Albert
tekur mark á“
Davíð Oddsson borgarstjóri
fylgdi gjöf borgarinnar úr hlaði
með nokkrum vel völdum
orðum. Sagði hann m.a. að
leið Alberts frá Pósthúsinu að
Hótel Borg á morgnana, þegar
Albert kæmi frá því að tæma
pústhólfið sitt, væri oft heil
dagleið, því Albert þyrfti einatt
að funda með fjölmörgum á
þessari leið - ýmist með einum
eða fleirum. Albert mætti allt-
af vera að því að ræða við þá
sem ræða vildu við hann. Hann
væri maður sem ekki yrði sett-
ur í neitt hólf, enda væri póst-
hólfið hans Alberts, „sjálfsagt
eina hólfið sem hann tekur
mark á.“
„Sólar upp
hægri kantinn“
Borgarstjóri gerði einnig að
umræðuefni sínu, að á fót-
boltaárum sínum hefði Albert
að sjálfsögðu sólað upp hægri
kantinn, og það kynnu borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
vel að meta. En þegar séra
Róbert Jack sté í pontu, þá
lciðrétti hann borgarstjóra all-
snarlega og sagði eitthvað á þá
leið að Albert hefði nú fljót-
lega fengið að vita það að hann
kæmist ekki langt nema vera
jafnvígur á báða, og hann héfði
því getað skorað jafnt með
hægri sem vinstri, ef honum
bauð svo við að horfa. Var
ekki annað að heyra af undir-
tektum, en að borgarfuiltrúar
minnihlutans fögnuðu þcssari
söguskýringu.
Krummi . . .
...hefur fyrir satt að það eina
sem er óþægilegra en að læra
af reynslunni, sé það að læra
ekki af reynslunni.