Tíminn - 09.10.1983, Blaðsíða 22
SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1983
nútíminn
Bara-
flokkur-
inn í
hljóm-
leikaför
■ Baraflokkurinn er nú farinn í
hljómleikaför um landiö og hófst
hún í gærkvöldi er þeir léku i
Agnarögn, hinni nýju félagsmiðstöð
í Kópavogi.
í kvöld, laugardagskvöld, eru þeir
svo með tónleika í Safari og á
mánudagskvöld verða þeir í fjöl-
brautarskólanum á Akranesi, þriðju-
dagskvöldið í Bæjarbíói í Hafnar-
firði, miðvikudagskvöldið í MH og
fimmtudagskvöldið í Samvinnuskól-
anum að Bifröst.
Föstudagskvöld er Baraflokkurinn
svo á Blöndósi og laugardagskvöldið
á Sauðárkrók og þar lýkur förinni.
Hljómleikaförin er farin í tilefni
þess að um næstu mánaðarmót kem-
ur út ný plata með Baraflokknum en
hún var tekin upp í London í sumar.
Vonbrigdi
á Borginni
Qtzi, Qtsi, Qtzi, Svart-hvítur
draumur, Vonbrigði á Hótei
Borg.
■ Þetta kvöld voru vonbrigði í tvenn-
um skilningi, vonbrigði með Qtzi og
svart-hvítan og svo Vonbrigði sem var
sveit kvöldsins á Hótel Borg í fyrra-
kvöld, við hæfi að þeir kæmu fram á
þessum stað eftir vonbrigðin með Borg-
ina sem tónlistarstað í ár en þeir eru að
rétta úr kútnum núna og hafa staðið fyrir
nokkrum ágætum tónleikum að undan-
förnu.
Qtzi tróð upp fyrst, fjórir strákar í
snjáðum gallabuxum, hefðbundin
skipun hljóðfæra og „þriggja-gripa
rokkið" anno ’81 í algleymi hjá þeim
mjög hávaðasamt á köflum, þarfnast
mikillar fínpússningar, jafnvel heils
múrverks.
Svart-hvítur draumur var næst á
dagskrá en í millitíðinni brá einhver
gamla Pink Floyd slagaranum „Time“ á
fóninn, sem var svona álíka við hæfi og
að hljómsveitin Sjálfsfróun hefði troðið
upp í sextugs afmæli Alberts um daginn.
Þeir í svart-hvítum draumi eru nokkuð
efnilegt band, taktfast nýbylgjurokk sem
minnti mann mjög á Þeyr-plötu spilaða
með sandpappír, sem sagt mjög gróf
tónlist a la Þeyr ef finna á einhverja
samlíkingu við hæfi.
Hljómsveit kvöldsins var svo Von-
brigði sem tróðu upp síðast, mannfjöld-
inn í salnum þá að nálgast þriggja stafa
töluna og nokkrir brugðu sér út á gólfið
undir trylltu nýbylgjurokki Vonbrigða
em sýndu allar sínar bestu hliðar þetta
kvöld. Maður er alltaf að komast meir
og meir á þá skoðun að bassaleikarinn
Gunni, sé sá pottþéttasti á þessu sviði
hér innanlands, frábær án þess að falla
úr þeirri samstæðuheild sem sveitin er
orðin.
-FRI
Gotl Seafunk en
Afsakið ei gott
Jóhann
í úrslit
■ Lag Jóhanns Helgasonar, Sail
On af Tass-plötunni komst í úrslit í
alþjóðlegu söngvakeppninni í Cast-
lebar á Irlandi, og var það eitt af níu
lögum sem komst áfram.
Úrslitakeppnin fór fram í gær-
kvöldi og var henni sjónvarpað beint
um Irland og Skotland. Söng Jóhann
lagið á henni sjálfur og naut aðstoðar
Björgvins Halldórssonar sem einnig
átti lag í keppninni.
■ Hátíðaralur Verslunarskóla íslands
varð vettvangur tónleika s.l. þriðjudags-
kvöld. Flytjendur tónleikanna voru þrjár
hljómsveitir. Fyrst tróð upp 12 ára
bandið Fox Voices, þá lék Icelandic
Seafund Corporation og eftir hlé hljóm-
sveitin Afsakið!
Hljómleikarnir hófust a.m.k. hálftíma
á eftir áætlun og það er ekki ný bóla.
Peyjarnir 12 ára í Fox Voices hófu
leikinn og þar hreifst undirritaður virki-
lega af. Þeir eru þrír: Einn trymbill og
tveir gítarleikarar. Lögin voru ekki
pönkleg, miklu fremur í Bítlaandanum.
Var strákunum vel tekið af hinum 70
tónleikagestum.
Þá var röðin komin að fönk-bandinu,
Seafunkinu, sem undirritaður hafði
heyrt að væri skipað færum, efnilegum
hljóðfæraleikurum.
Þeir hófu leik sinn af fítonskrafti og
það fór ei framhjá undirrituðum að
strákarnir eru afar flinkir, hver á sitt
hljóðfæri. Þó er ég ekki frá því að
trommuleikarinn Þorsteinn nokkur hafi
verið og sé yfirburðamaður í hljómsveit-
inni. Pilturinn tók rosalegt trommusóló,
trommusóló sem Gunnlaugur í Mezzo-
forte hefði mátt gera sig ánægðan með.
Vissulega var Mezzoforte keimur af
lögum piltanna en það er á engan hátt
Sefunkinu til minnkunar. Tveir hljóm-
borðsleikarar eru í hljómsveitinni og
miðað við þetta kvöld í Versló, þá held
ég að einn sé alveg nóg. Á meðan það
heyrist aðeins í öðrum þeirra allavega.
Lokalag hljómsveitarinnar fyrir hlé var
Ný hljómsveit FOSS
stofnuð upp úr
Start og Svizz:
Gefa út
fjögurra
laga plötu
■ Ný hljómsvcit FOSS hefur verið
stofnuð upp úr hljómsveitunum Start og
Svizz en þeir sem skipa nýju sveitina eru
þeir Ólafur Kolbeinsson, Jón Ólafsson,
Axel Einarsson og Ágúst Ragnarsson.
Umboðsmaður þeirra, Eygló
Gunnþórs, leit inn á skrifstofu Nútímans
til að segja okkur fréttirnar.og sagði hún
að hljómsveitin væri bæði með frumsam-
ið efni og góða danstónlist í prógrammi
sínu.
Nú fyrir áramótin kemur svo ný
fjögurra laga, 12 tommu, plata með
þessari hljómsveit og hefur Tony Cook
annast upptökur á þeirri plötu, heldur
utan til Bretlands með efnið nú á
næstunni í skurð og pressun. Á þessari
plötu eru tvö lög eftir Axel og tvö eftir
Ágúst.
FOSS er með eigið stúdíó á Vitastíg,
raunar er það í eigu Axels Einarssonar
en þar er æfingaaðstaða sveitarinnar og
ekki óþekkt að hún leiki þar fyrir
biðröðina fyrir utan Safari um helgar.
Umboðssíminn hjá þeim er 78886.
-FRI
„Kántríbærinn" hans Hallbjörns en að
mínu viti fer það að verða ansi þreytt að
klykkja út með því lagi þó það sé auðvitað
einstakt lag. Varð það vinur minn Einar
saxófónn sem raulaði lagið. Legg ég til
að hann einbeiti sér að saxófónleik og
minnki við sig sönginn.
Eftir hlé spilaði hljómsveitin Afsakið
en hún er skipuð meðlimum Seafunksins
að viðbættum nokkrum söngvurum. Er
skemmst frá því að segja að undirritaður
hreifst engan veginn af þessari hljóm-
sveit. Fyrir það fyrsta heyrðist afar lítið
í söngvurunum og í öðru lagi fannst mér
lagasmíðarnar óttalega „cheap“. Tón-
listin virkaði á undirritaðan eins og
slappt sambland af Ljósunum í Bænum
og Þú og Ég-dúettinum. Samt ber að
taka fram að hljóðfæraleikurinn var
pottþéttur en útsetningarnar bara voða
gamaldags.
Icelandic Seafund Corporation er góð
hljómsveit og efnileg og með enn meiri
samæfingu og fjölbreyttari lagasmíðum
þurfa þeir ekki að kvíða neinu, en ég
held að þetta Afsakið-mál ættu þeir bara
að láta lönd og leið.
Mixer-maður úti í sal var Sigurgeir
Sigmundson, fyrrum Startari og stóð
hann sig að mörgu leyti vel en rafmagnið
í skólanum klikkaði 3-4 sinnum um
kvöldið og skemmdi það auðvitað tölu-
vert fyrir hljómleikunum.
10 nýjar plötur hjá Steinar fyrir jólin:
SAFNPLATA
MEÐ BUBBA
— inniheldur tvö ný lög. ,,Plötur ættu
ekki að hækka i verði fram að jólum”
segir Pétur Kristjánsson
■ Fyrir jólin mun Steinar útgáfan senda frá sér 10 nýjar
plötur, þeirra á meðal nýja plötu með Baraflokknum,
Jóhanni Helgasyni og Ladda auk safnplata,en síðan er
rúsínan í pylsuendanum. ný safnplata með Bubba
Morthens en á henni verða lög allt frá ísbjarnarblúsnum
og fram til dagsins í dag auk tveggja nýrra laga sem tekin
voru upp fyrir skömmu.
Þetta kom fram í spjalli Nútímans við Pétur Kristjáns-
son sem nú er forstjóri Steina í fjarveru Steinars Berg.
Hann sagði að plötuverð kæmi sennilega til með að
haldast eins og það er, fram að áramótum og væru þeir
því vel settir hvað varðaði samkeppnina við bækurnar...
“Það er engin hækkun í nánd og ef ekki verður
gengisfelling, sem ekki er útlit fyrir, þá hækka plötur
ekki“ sagði hann.
Hin nýju lög á safnplötu Bubba, eru rokklög, tekin
upp með honum, Begga og Rúnari úr Egó og Ásgeir
Óskarsson, úr Stuðmönnum, er á trommur.
-FRI
DEAD KENNEDYS
HAFA ÁHUGA Á
TÓNLEIKUM HÉR
—„Við krefjumst framtíðar”-hópurinn er í sambandi við þá
■ Pönk-hljómsveit Bandaríkjanna
númer 1,2 og 3, Dead Kennedys hafa
áhuga á að halda tónleika hérlcndis
fyrir áramótin og hefur „Við krefjumst
framtíðar” - hópurinn verið í sam-
bandi við þá vegna þessa. Hljónisveitin
flýgur frá Kaliforníu til Heisinki i
Finnlandi, seinni part nóvembermán-
aðar og var hugmyndin að fá þá lil að
millilcnda hér á leiðinni.
Eins og staðan er í dag er hinsvegar
útlitið ekki mjög gott að af þcssu verði,
að sögn eins úr „Við krefjumst fram-
tfðar" - hópnum, og hafa mcnn eink-
um áhyggjur af því að ekki fáist nógu
stór salur til að halda þessa tónleika í
og af þeim sökum verði miðaverð
mjög hátt. Laugardalshöllin er algjör-
lega út úr myndinni á þessum tíma
ársins.
Allir möguleikar verða hinsvegar
kannaðir til hlítar og cr verið að vinna
í því nú, enda yrði það einn merkasti
tónlistarviðburður ársins ef þessi
hljómsveit kæmi hingað.
„Við kefjumst framtíðar" - hópur-
inn sem hér um ræðir er sama fólkið og
stóð að stórtónleikunum með Crass og
mörgum islenskum hljómsveitum í
Höilinni snemma í haust.
Dead Kennedys þarf varla að kynna.
þeir eru ein þekktasta pönk sveit
heimsins og hafa verið það um árabil.
Söngvari þeirra Jello Biafra hefur
einnig vakið athygli fyrir ýmis uppá-
tæki sín, t.d. bauð hann sig fram til
borgarstjóra San Francisco 1980 og
varð þriðji af sjö frambjóðendum.
Kosningasöngur hans þetta ár náði
miklum vinsældum cn það er hið
þekkta Dead Kennedys lag „California
úber alles”. - -FRI