Tíminn - 09.11.1983, Blaðsíða 10
10
Lausar stöður
Norræna félagið óskar að ráða framkvæmda-
stjóra í fullt starf.
Launakjör verða eftir samkomulagi.
Ennfremur vill félagið ráða starfsmann á skrif-
stofu.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf berist skrifstofu Norræna félagsins í
Norræna húsinu fyrir 10. des. n.k.
Styrkir til háskólanáms og
vísindalegs sérnáms í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóöa fram styrk handa íslendingi til háskólanáms
í Svíþjóð námsáriö 1984-85. Styrkfjárhæö er 3.020.00 s.kr. á mánuöi
í 8 mánuði. - Jafnframt bjóöa sænsk stjórnvöld fram fjóra styrki handa
íslendingum til vísindalegs sérnáms í Svíþjóö á háskólaárinu
1984-85. Styrkirnir eru til 8 mánaöa dvalar, en skipting í styrki til
skemmri tíma kemur einnig til greina. Styrkfjárhæö er 3.020.- s.kr. á
mánuði. - Ennfremur gefst íslenskum námsmönnum kostur á aö
sækja um styrki þá, er sænsk stjórnvöld bjóöa fram í löndum þeim,
sem aðild eiga aö Evrópuráöinu, en þeir styrkir eru eingöngu ætlaðir
til framhaldsnáms við háskóla.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til menntamálaráöu-
neytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 1. janúar n.k., og fylgi
staðfest afrit prófskírteina ásamt meömælum. - Sérstök umsóknar-
eyðublöö fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytiö
7. nóvember 1983.
’sScSiF
Sbun
Erlingur Isleifsson
Kvöldsími 76772
Móttaka ver'kbeiöna
sicm
Sími 83499
FER
HVERT
ÁLAND
SEM ER
VIÐGERÐIR
á öllum smá rafstöðvum og
rafmótorum
Einnig iitlum bensín- og
dieselmótorum.
Getum bætt við okkur viðgerðaþjón-
ustu fyrir innflutningsfyrirtæki.
VÉLIN S.F.
Súðarvogi 18 (Kænuvogsmegin)
sími 85128.;
IStAND VANN
■ íslendingar unnu Grænlendinga í
óopinberum landsleik í borðtennis í
fyrrakvöld. Pað var b-liö íslands sem
kcppti og sigraði það með fimrn vinning-
um gcgn cinum.
- SÖE
STENMARK
FÆR EKKI
AÐ KEPPA
■ Sænski skíðakappinn lngemar Sten-
mark fær að öllum likindum ekki að
keppa á Ólympíuieikunum í Sarajevo í
febrúar. Það fær ekki heldur Hanni
Wenzel frá Liechtenstein. Þetta skíða-
fólk hefur haft of miklar tekjur af
auglýsingum á undaförnum árum að áliti
Alþjóðaskíðasambandsins, sem hefur
farið fram á keppnisbann þeim til hdnda
gefið út af Alþjóðaólympíuncfndinni.
-SÖE
ZICOMEÐ
ÁTTA MÖRK
- í ÍTÖLSKU DEILDINNI
■ Brasilíski knattspyrnusnillingurinn
Zico hefur nú skorað 8 mörk í ítölsku
fyrstu deildinni í fótbolta. Zico skoraði
sigurmark Udinese um síðustu helgi,
þegar liðið skellti Ítalíumeisturunum,
AS Roma, öllum áóvart 1-0. Þarsigraði
Zico ianda sína, því Falcao og Cerezo
leika með Roma. Juventus vann Verona
í sömu umferð, Rossi skoraöi tvö mörk
og Boniek eitt í 3-1 sigri. Ronia er enn
efst á Ítalíu, hefur 12 stig, en Juventus
og Verona hafa 11 stig hvort. Fiorentina
og Torino hafa 10 stig og. Udinese 9 og
Avellino, AC Milanö og Sampdoria
hafa 8 stig.
- SÖE
ÞORVALDUR
BYRIAÐUR MEÐ
INNIG0LFIÐ
■ Þorvaldur Ásgeirsson golfkennari
hefur nú hafið stjórn innahússæftnga
fyrir golfmenn, eins og hann hefur gert
undanfarin 15-16 ár. Þorvaldur kennir í
Ásgarði í Garðabæ á laugardögum frá
klukkan 9.30-14.(X). Kennslan er b;eði
fyrir byrjendur og lengra komna, og þeir
sem hafa áhuga geta Itringt í Þorvald í
síma 34390.
- SÖE
AÐALFUNDUR
■ Aðalfundur knattspyrnudeildar ÍK
verður haldinn sunnudaginn 13. nóvcm-
ber klukkan 14.00 í Sjálfstæðishúsinu
Hamraborg Kópavogi. Á dagskrá veru
venjuleg aðalfundarstörf.
- SÖE
ENNRÚM
Á ÆFINGUM
HJÁ ERNINUM
■ „Það eru enn lausir æfingartfmar
hjá okkur fyrir unglinga, byrjcndur og
lengra komna. Gunnar Finnbjörnsson
þjálfari mun stjórna æfingunum", sagði
Ásta Urbancic borðtennisfrumkvöðull
hjá Erninunt er hún lcit við hjá Tíntanum
f gær. Þeir sem ahuga hafa geta haft
samband við Ástu í sínta 37073, cða
Jónas í síma 26806.
-SÖE
HAPPDRÆTTIÍBK
■ (síðustu viku var dregið í happdrætti
knattspyrnuráðs ÍBK. Þessi númcrhlutu
vinning: 1393,2225,112,1846,137,638,
105.
STARFSMENN ERU
SJALDAN STARFI
SÍNU VAXNIR”
— segir Rögnvaldur Erlingsson,
m.a. um starfsaðstöðu
dómara í Hafnarfirði
■ „Það er ekkert grín að dæma bar-
áttuleiki í handboltanum í Hafnarfirði,
sjaldnast eru starfsmenn starfi sínu
vaxnir, staðsetning þeirra er óvenjuleg
og þó yfir þessu hafi verið kvartað
margoft, og svo árum skiptir, er ekkert
gert þar til úrbóta. Allt sem miður fer af
þessum sökum er okkur kennt dómur-
um. Menn eru nú almennt ekki hrifnir af
að dæma í Firðinum, oft er heitt í
kolunum og sumir eru beinlínis hræddir
við áhorfendur þar. Það er leiðinlegt að
fá það framan í sig að maður vinni störf
sín illa, þegar þau mistök sem eru
starfsmanna, eru manni eignuð, úr því
maður lætur sig hafa það að dæma þama
yfirleitt“, sagði Rögnvaldur Erlingsson
handknattleiksdómari í samtali við Tím-
ann í gær.
Rögnvaldur sagði, að tímaverðir í
Hafnarfirði væru oftast unglingsstelpur,
sem vildu gera vel, en kynnu ekki
nægileg skil á hlutverki sínu, og því hvað
og rangt innan þeirra
„Þetta fólk veit ekki mun á
rétt væn
starfssviðs.
réttri og rangri innáskiptingu, hvar hún
á að fara fram og hvar ekki. Það tekur
tímann ekki rétt, þegar menn em útaf í
tvan’ mínútur. Stefán Arnarson dómari,
sem áhorfandi, tók tímann á öllum þeim
sem voru reknir útaf í leik Stjörnunnar
og Hauka á föstudag, og í öllum tilvikum
var ífminn sem menn vom útaf 15-20
sekúndum of stuttur. Það á nefnilega að
taka tímann frá því dómarinn setur
leikimaf stað á ný, en ekki frá því að
leikmaðurinn kemur útaf.“ Þá er stað-
setning tímavarðar leiksins og þess sem
tekur tímann á þeim sem reknir em útaf
í Hafnarfirði fáránleg, sitt hvoru megin
við völlinn, starfsmenn þessir eiga að
vera á sama stað, og eiga að kunna skil
á innáskiptingum. Þetta er búið að
margbiðja Hafnfirðinga um að leiðrétta,
en ekkert gengur“, sagði Rögnvaldur
Erlingsson. -SÖE
■ Amór Guðjohnsen hefur ekki getað snert bolta síðan hann lék með íslenska
landsliðinu gegn íram á dögunum. Þar meiddist hann, og nú bendir margt til að hann
þurfi að gangast undir skurðaðgerð. Fari svo, verður hann frá keppni í minnst tvo
mánuði til viðbótar. Þetta er mikið áfall fyrir Amór, þar sem hann var að vinna sér
fastan sess hjá stórliðinu Anderlecht.
Tímamyitd EHa.
ER ORÐINN
SVEKKTUR”
— segir Arnór Gudjohnsen,
sem ekki hefur getað
snert bolta í sjö vikur
■ „Maður er óneitanlega orðinn
svekktur á þessu, það eru liðnar 7 vikur
síðan ég meiddist í leiknum gegn írum,
og ég hef ekkert getað snert bolta
síðan“, sagði Araór Guðjohnsen knatt-
spyrnumaður í Anderlecht í samtali við
Tímann í gær. „Það má búast við því að
ég þurfi að fara undir hnífinn, en það
kemur nánar í Ijós síðar í vikunni", sagði
Arnór.
Arnór sagði, að færi svo að hann yrði
skorinn, mundi taka minnst tvo mánuði
að jafna sig. Hann sagði að efnahagslega
kæmi þetta ekki við hann, þar eð hann
fengi allar greiðslur frá klúbbnum og
trygging hans í landsleiknum gegn írum
hlyti því að hafa verið í góðu lagi.
„Maður er alveg orðinn vitlaus á
þessu, að sitja bara og horfa á. Maður
hefur ekki getað snert bolta,“ sagði
Arnór.
Nýja íþróttamiðstöðin ÍLaugardal fokheld:
JJÚKUM VÆNTMtfGft
VIB BY0GINGUNA 1985"
— segir Gísli Halldórsson, formaður byggingarnefndar
■ „Við vonumst til að geta lokið við
þessa byggingu árið 1985“, sagði Gísli
Halldórsson, formaður bygginganefndar
nýju iþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal
og fyrrum forseti íþróttasambands ís-
lands í samtali við Tímann í gær, er hann
var inntur eftir gangi byggingarinnar,
sem nú er verið að Ijúka við að gera
fokhelda. „Við gætum klárað þessa
byggingu á næsta ári hún er það langt
komin, en Ijármálin koma í veg fyrir að
það verði hægt,“ sagði Gísli.
Gísli Halldórsson sagði, að byggingin
mundi þjóna margs konar hlutverki.
Hún yrði aðstaða til námskeiðahalda, og
þar yrði heimavist fyrir 26 manns í
tengslum við það. Sagði Gísli að þá væri
um að ræða aðallega styttri námskeið,
viku eða helgamámskeið, og þá ein-
göngu að vetrarlagi. Þá sagði Gísli að
heimavistin mundi geta þjónað íþrótta-
flokkum, sem kæmu til Reykjavíkur, en
fátt hefur verið fyrir slíka nema hótel í
Reykjavík til þessa. Gistiherbergin eru
á fyrstu hæð.
Á annarri hæð eru kennslustofur og
eldhús ásamt samkomusal, sem notaður
yrði sem morgunverðarsalur fyrir þá
sem gistu á morgnana, og sem fundarsal-
ur síðdegis.
Á þriðju hæð verður aðsetur íþrótta-.
sambands íslands og Olympíunefndar
íslands. Gísli sagði að þröngt væri orðið
um íþróttasambandið í núverandi hús-
næði í gömlu íþróttamiðstöðinni, og auk
þess vildu sérsamböndin allmörg stækka
við sig. Þá sagði Gísli að Olympíunefnd
íslands hefði ekki ráðið yfir neinu hús-
næði hingað til, en þama yrði bætt úr.
Nú er verið að setja gler í bygginguna,
og skoðast hún fokheld að því loknu.
Gísli Halldórsson sagði, að framkvæmd-
um yrði haldið áfram en líklega þó
aðeins hægar en verið hefði í sumar, og
verið gæti að byggingin stöðvaðist alveg
í lok næsta árs. - En við vonumst til að
byrja aftur af endurnýjuðum krafti um
áramótin 1984-85, og ætlum að reyna að
Ijúka byggingunni á því ári“, sagði Gísli
Halldórsson formaður bygginganefndar
nýju íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal
að lokum.
-SÖE
■ ■■9HI
Kasta kúlu
|til styrktar
jÓlympíuförum [
I
i
i
i
i
i
i
i
i
i
nemendur íþróttakennara-
skólans með
sérkennilega fjáröflun
I
I
1
I
H
I
I
I
Nemendur Iþróttakennaraskóla
Islands ætla að hrinda af stað dálítið
sérstakri fjáröflunarherferð til styrkt-
ar íþróttamönnum þeimm sem keppa
munu á Olympíuleikunum á næsta
ári fyrir íslands hönd. Ætla nemend-
urnir að kasta kúlu frá Laugarvatni
til Reykjavíkur og safna áheitum og
styrktarframlögum í þvi tilefni.
Kúluvarpið hefst á Laugarvatni á
hádegi á föstudaginn kemur. Tals-
menn nemenda töldu, í samtali við
Tímann, að ferðin til Reykjavíkur
mundi taka um það bil sólarhring, og
koma því nemendumir að öllum
líkindum tU Reykjavíkur um hádegis-
bilið á laugardag. Kúluvarpinu mun
Ijúka á LaugardalsveUi, Nemendura-
ir munu kasta til skiptis, og mun
fylgja þeim lanferðabQl aUa leið.
Auk fjármögnunar með áheitum
og styrktarframlögum hafa ýmis
fyrirtæki tekið vel á móti nemendum
ÍKÍ, með auglýsingaframlögum, og
má þar nefna Samvinnuferðir/
Landsýn, Henson, Adidas og fieiri.
-SÖE
- Hafa læknar þínir komist að niður-
stöðu um hvað sé að?
„Nei, það er nú ekki alveg ljóst, en
þeir halda að vöðvi sé tognaður eða
rifinn, en nákvæma niðurstöðu hef ég
nú ekki fengið að heyra. Nú kemst ég
alveg um, get gengið alveg eðlilega, en
þegar maður ætlar að taka á, þá togar í
þetta“.
Ástandið hjá Anderlecht er ekki glæsi-
legt nú, tveir af burðarásum í liðinu eru
meiddir, Arnór og Daninn Per Frimann
meiddist í hné nýlega, og verður frá í
minnst þrjár vikur. Á móti kemur, að
Daninn Frank Arnesen er kominn á fullt
með liðinu, en hann hefur átt við meiðsli
að stríða í um það bil ár. Félaginu hefur
ekki gengið sem skyldi undanfarið,
deildin hefur gengið illa, ogfélagiðvar
slegið út úr bikarkeppninni. „Þetta
gengur ekki vel eins og er, en það
vonandi lagast“, sagði Arnór Guðjohn-
sen að lokum.
-SÖE
■ Diego Armando Maradona er
bráðlátur að áliti iækna Barcelonu-
félagsins, en heimilislæknir hans seg-
ir að þetta sé allt í lagi...
Nýja íþróttamiðstöðin í Laugardal er nú að heita má fokheld. Áætlað er að Ijúka byggingu hússins á árinu 1985.
Tímamynd Arai Sæberg.
Maradona
brádlátur
— er farinn að nota veika fótinn
■ Diego Armando Maradona knatt-
spyrnusnillingur í Barcelona er farinn að
stíga í fót þann sem slátrarinn frá Bilbao,
Goicoechea hantéraði fyrir ekki all-
löngu.
Maradona fer eftir ráðleggingum hins
argentínska heimilislæknis síns, sem seg-
ir að hann megi fara að ganga á fætinum,
fimm vikum eftir slysið. Læknar Barce-
lonuliðsins ráðleggja hins vegar 6-7
vikur, og telja að meðþessu háttarlagi
séu aðeins 20% líkur á að kappinn fái
fullan bata.
Maradona trúir hinum argentínska
lækni, en læknirinn sem raðaði fætinum
saman“ á sínum tíma eftir slysið segist
enga ábyrgð taka á lækningu kappans,
úr því hann sé svona óþolinmóður. Hið
sama segja kollegar hans í Barcelona.
Forráðamenn Barcelonuliðsins láta
ekkert uppi um hvort þeim líki betur eða
verr, þeir vilja helst sjá snillinginn í
kapphlaupi við tuðruna eftir hálfan
mánuð...
-SÖE
Motherwell gerði
jafntefli við -
Saint Mirren
- Aberdeen áfram efst
■ Motherwell, lið Jóhannesar Eð-
valdssonar í Skotlandi gerði um síðustu
helgi jafntefli við St. Mirren í botnbar-
áttu úrvalsdeiidarinnar í grófum leik þar
sem sjö leikmennAwu bókaðir.
Aberdeen er enn efst í deildinni,
sigraði um helgina botnliðið St. Johm
stone á útivelli 5-0. Joþn Hewitt gerði
þrcnnu, og Pcter Weir og Gordon
Strachan eitt ntark hvor.
Skotlandsmeistararnir -Dundee Unit-
ed töpuðu óvænt heima fyrir Dundee,
0-1 og eru það óhagstæð úrslit fyrir
Jóhannesog félaga. Hibcrnianog Hearts
gerðu jafntefli 1-1 og Celtic vann Rang-
ers 2-1 á Ibrox.,
Staðan er nú þessi í úrvalsdeildinni:
Aberdeen .
Celtic.....
Dundee Utd
Hearts ....
Hibernian .
Dundee ...
Rangers ...
St. Mirren .
Motherwell
St. Johnstone
11 8 1 2 32:7 17
11 7, 2 2 29:14 16
10 7 1 2 22:9 15
11 6 3 2 14:9 15
11 5 1 5 16:21 11
11 4 1 6 15:23 9
11 3 1 7 16:21
. 10 1 5 4 9:15
. 11 1 5 5 8:18
11 2 0 9 10:33
-SÖE
Týr vann
Eyjamennirnir efstir í 3. deiídinni
■ Týrarar unnu Þórsara frá Akureyri í
Eyjum um helgina í þriðju deildarkeppn-
inni í handknattleik 22-19. Staðan var
-14-12 Tý í hag í hálfleik. Hörður Pálsson
var atkvæðamestur Týrara með 7 mörk,
og Sigurlás Þorleifsson þjálfari skoraði 5
mörk, öll úr vítum. Sigurður Pálsson
skoraði mest Þórsara, 6 mörk þar af 3Tír
vítum^-
í öðrum leikjum í þriðju deild um
helgina sigraði Afturelding ÍA 22-16,
Ármann ÍBK 27-21 og Selfoss Skalla-
grím 24-12. Týrarar eru nú efstir í
dcildinni með II stig eftir 6?lciki,
Afturclding og Ármann hafa 8 ^tig eftir
5 leiki, Þór frá Akureyri hefur 6 stig eftir
fjóra leiki og ÍBK hcfur 6 stig eftir fimm
léiki. f A hefur 5 stig eftir 6 lciki, Selfoss
2 stig eftir fimm leiki og Skallagrímur og
ögri hvorugurhlotiðstig í fimmleikjum.
SGG/-SÖE
Haukarunnu
■ Haukar unnu Selfoss 14-10 f annarri
dcild kvenna í handknattlcik um hclgina
í Hafnarfirði. Staðan í hálfleik var5-5.
-LSG/SÖE
2. deildin
af stað
í körfunni
■ 2. deild karla í körfuknattleik fór af
stað urn helgina. Þá voru lciknir fjórir
lcikir. Úrslit urðu þessi:
Breiðablik-ÍA........... 60-47
Esja-K.F.Í.............. 35-70
Drangur-Reynir ......... 36-101
Drangur-KFÍ ............ 40-100
-SÖE
N
Urslit
- í 1. og 2. flokki í
'■ Eftirtaldir leikir voru leiknir í 1. og
2. flokki karla í körfuknattleik um
síðustu helgi:
1. flokkur:
Valur-Njarðvík................. 65-63
2. flokkur:
Reynir-Fram.................... 53-74
Njarðvík-Haukar.................0-2
Þá sigraði (S a-lið ÍR 70-48 í Lávarða-
deild.
-SÖE