Tíminn - 30.12.1983, Qupperneq 11

Tíminn - 30.12.1983, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1983 11 Óskar með Leikni ■ Óskar Tómasson, knattspyrnumað- ur úr Víkingi hefur veríð ráðinn þjálfari hjá 4. deildarliði Lciknis á Fáskrúðsfirði. Oskar mun að líkindum leika með liðinu. Óskar er þekktur knattspyrnumaður, þótti ntjög efnilegur á sínum tíma, en datt síðan út úr knattspyrnunni um árabil vegna meiðsla. Óskar lék með Víkingi síðastliðiðsumar, gerði á köflunt góða hluti, cn náði ckki að fcsta sig í sessi í liðinu. Óskar er mikill fengur Leikni. .nönnum, og áreiðánlegt að liðið verður framarlega í baráttu fjórðu deild- ar í sumar. Leiknir lék í úrslitum deildar- innar síðastliðið haust, en varð að láta í minni pokann fyrir Leiftursmönnum frá Ólafsfirði. -SÖE io iþróttir ^■■11 Forest vann - og er nú í fimmta sæti ■ Nottingham Forest vann góðan sigur á Coventry á heimavelli í fyrrakvold í ensku knattspyrnunni. Peter Davenport tvö og Gary Birtles skoruðu mörk Forest. Tveir leikir voru í annarri deild í fyrrakvöld, Blackburn og Barnsley gerðu jafntefli 1-1, og Cambridge og Grimsby skildu jöfn í Cambridge, hvort • lið skoraði 2 mörk. Með sigrinum t fyrrakvöld lyfti Nott- ingham Forest sér upp í fimmta sæti fyrstu deildar, með 36 stig eftir 20 leiki. Liverpool hefur 41 stig, Manchester Unitcd 38, Southampton 37, Wcst Ham 36,Forest 36, Luton 35 og Covcntry 33. -SÖE Karfa varð að kröfu - prentvillupúkinn sprellfjörugur ■ Prentvillupúkinn brá á leik i vinnslu blaðsins í gær, og breytti fyrirsögn verulega á íþróttasíðunni. Vídeókarfa varð að vídeókröfu, þar sem sagt var frá leik ÍR og Hauka í úrvalsdcildinni í körfubolta. Það átti að sjálfsögðu að standa „Vídeokarfa dugði ekki einu sinni", og var þar átt við körfu þá cr dómarar leiksins fundu á vídeói, eftir að uppgötvast hafði að ritara leiksins sást yfir hana. Tíminn biðst afsökunar á mistökunum. -SÖE I .. ■ ; . " Blakmót fyrir trimmara ■ Á árínu 1984 á BlakdeUd HK 10 ára afmxli. í tilefni af því mun deildin standa fyrír blakmótum. Laugard. 7. jan. verður fyrsta mótið haldið í íþróttahúsinu Digranesi í Kópa- vogi. Mótið hefst kl. 15.00 síðdegis. Petta fyrsta mót er ætlað eldri iðkendum eða þeim sem stunda blak sér til heilsu- bótar. Konur og karlar sem áhuga hafa á að vera með í þessu móti geta fengið nánari upplýsingar og skráð lið til keppni hjá Albert H.N. Valdimarssyni Óldugötu 13, 220 Hafnarftrði (sími 52832). Gerpla fékk studning af fjárlögum til húsakaupanna: Þakka öllum af alhug Starf félagsins ekki lengur í hættu ■ íþróttafélagið Gerpla hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu: „Nú eftir að fyrir liggur samþykki Alþingis og bæjaryfirvalda í Kópavogi um fjárstuðning til íþróttafélagsins Gerplu til kaupa á íþróttahúsi við Skemmuveg, þar sem gert er ráð fyrir að hvor aðili greiði 40% kaupverðs, hcfur stjórn Gerplu ákveðið að kaupa húsið. Sú óvissa, sem ríkt hefur um starfsemi félagsins á næsta ári, er því ekki lengur til staðar. Gerpla þakkar af alhug öllum þeim aðilum. sem veitt hafa félaginu stuðn- ing við að gera kaupin möguleg, bæjar- yfirvöldum í Kópavogi, Menntamála- ráðherra, íþróttanefnd, fjárveitinga- nefnd og fjölmörgum öðrum, sem ekki verða upp taldir. Félagið hefur jafnframt hrint af stokk- unum fjársöfnun til að greiða þann hluta kaupverðsins, sem á vantar. Er velunn- urum félagsins bent á að snúa sér til starfsfólks íþróttahússins, eða leggja fé inn á Gíróreikning í Sparisjóði Kópa- vogs nr. 1136-26-3223, vilji þeir hjálpa til við söfnunina með peningagjöfum." Enska bikarkeppnin beint 7. jan: Tottenham — að öllum líkindum segir Bjarni Felixson ■ „Við munum sýna leik úr ensku bikarkeppninni beint 7. janúar“, sagði Bjarni Felixson íþróttafréttamaður sjónvarpsins í samtali við Tímann í gær. Það er nokkurn veginn öruggt að við sýnum leik Fulham og Tottenham á Craven Cottage" bætti Bjarni við. Bjarni sagði að vegna verkfalla yrði nær öruggt að áðurnefndur leikur yrði sýndur, leikur Liver- pool og Newcastle á föstudags- kvöldinu, 6. janúar yrði sýndur beint um Engiand, og síðan Ful- ham-Tottenham beint til Norður- landanna daginn eftir. Aðdáendur knattspyrnu á ís- landi, og þá ekki síst ensku knatt- spyrnunnar geta farið að setja sig í stellingar og hlakka til, ekki er að efa að leikurinn á Craven Cottage verði fjörlegur, enda algilt að í bikarkeppni á Englandi segir deildaskipan minna um getu liða í slíkri keppni en víðast hvar annars staðar. Bjarni Fel, á hr<5s skilið fyrir vasklega framgöngu í samn- ingum um beinar knattspyrnu- sendingar frá útlöndum, áfram Bjarni. -SÖE ■ Glenn Hoddle mun að öllum líkindum verða í aðalhlutverki í beinu sjónvarpssendingunni frá Craven Cottage 7. janúar. Aðdá- endur hans geta brátt farið að setja sig í stellingar. V umsjón: Samúel öm Erlingsson VILLUVANDRÆÐIN URÐU VAL DÝRKEYPT Njarvíkingar sigrudu Valsmenn 89-83 í úrvalsdeildinni í körfuknattleik ■ Valsmenn urðu að lúta í lægra haldi fyrír baráttuglöðum Njarðvíkingum i leik liðanna í úrvalsdeildinni í körfu- knattleik, en leikurinn var háður í íþróttahúsi Seljaskóla í gærkvöldi. Loka- staðan varð 89-83, en staðan í hálfleik var 44-40 Valsmönnum í vil. f fyrri hálfleik var yfirhöndin ávallt Valsmanna og höfðu þeir á tímabili 10 stiga forskot 32-22 þegar 6 mínútur voru til leikhlés. Valsmenn höfðu svo fjögurra stiga forskot, 44-40 í hálfleik, en strax í upphafi síðari hálfleiksins náðu Njarð- víkingar að jafna, 50-50. Afturvarjafnt, 60-60, um miðjan hálfleikinn, en þegar 9 mínútur voru eftir af leiknum fékk Torfi Magnússon sína 5. villu. Staðan var þá 68-63 Njarðvíkingum í vil. Vals- menn gáfust þó ekki upp og börðust áfram á fullu. Það gerðu Njarðvíkingar líka og þegar um fjórar og hálf mínúta voru eftir urðu Valsmenn aftur fyrir þungu áfalli, Kristján Ágústsson fékk ■ Sturla Örlygsson sést hér skora fyrir Njarðvíkinga í leiknum við Val i gærkvöldi. Sturla og félagar fóru meö sigur af hólini 89-83. Njarðvík- ingar hafa þar með náð forystunni í úrvalsdeildinni með 16 stig. Tímumynd Ari. Lauk f erli — golf leikari missti handlegg og auga í slysi ■ Ástralski golfleikarinn Jack Newton lauk ferli sínum á sorglegan hátt. Jack hcfur verið cinn bestí golfleikari Ástrah'u undanfarin 10 ár, en varð að hætta golfiðkun, alla vega í þeim flokki, mjög snögglega. Jack Newton varð fyrir því slysi, að ganga á flugvélarskrúfu sem var í gangi, er hann kom út úr flugvélinni, og missti við það bæði handlegg og auga. Hann var útskrifaður eftir níu vikna sjúkra- hússvist, og er orðinn ótrúlega hress, en er án beggja, augans og handarinnar. Það var því sorglegur endir á góðum íþróttamannsferli. Eiginkona Jacks er þó að sjálfsögðu ánægðust með að hann skuli hafa lifað slysið af sem skiljanlegt er. Jack er sjálfur ótrúlega hress, og er á sömu skoðun og eiginkonan. ■ Jack Newton ásamt konu sinni og dóttur, er hann var útskrifaður af spítalanum. Falla Norður landametin á morgun? Baldur og Ingvar reyna f síöasta sinn við unglingametin ■ A morgun, gamlársdag munu þeir Baldur Borgþórsson og Ingvar J. Ingvarsson revna af alefli við Norðuríandamet unglinga í ólym- pískri tvíþraut iyftinga á Reykjavík- urmótinu í lyftingum. Þetta ersíðasta mót beggja í unglingaflokki, og verð- ur væntanlega ekkert gefið eftir. Reykjavíkurmótið hefst klukkan 14.00 á morgun í Ármannsheimil- inu. Líklegt er að Ingvar rcyni við nýtt met í jafnhendingu, en núgild- andi Norðurlandamet unglinga á hann sjálfur, 193,5 kg. Baldur á Norðurlandamet unglinga í bæði snörun (150 kg.), og samanlögðu (237,5 kg), í 90 kg. flokki, og mun að líkindum reyna að slá þau. Allt útlit er því fyrir skemmtilegt mót. -SÖE MARAD0NA AF STAÐ ■ Diego Maradona, knattspvmusnillingur frá Argentínu, sem fotliratnaði svo að sögulegt var í haust, mun hefia æfingar hjá liöi sínu Barcelona eftir helgina. Þetta eru miklar gleoifréttir fyrir aðstandendur og áhangendur Barce- lonaliðsins, sem um fyrir miklu áfalli þegar Maradona meiddist. Diego litfi hefur verið undir læknishöndum allt frá því hann meiddist, og grannt verið fylgst með bata hans.Ef allt fer vel ætti Maradona að verða Barce- síðari hluta lona vemlegur styrkur í síð mcistaramótsins a Spáni. -SOE sína 5. villu og voru þá tveir bestu menn Vals kómnir útaf, staðan var þá 80-73 fyrir UMFN. Stuttu síðar varð Tómas Holton einnig að yfirgefa völlinn með 5 villur. Eftirleikurinn reyndist Njarðvík- ingum auðveldur og þeir tryggðu sér öruggan sigur, 89-83, og efsta sæti úrvals- deildarinnar, með 16 stig. Kristinn góður í lokin Bestu menn Njarðvíkinga í þessum leik voru þeir Valur Ingimundarson og Gunnar Þorvarðarson, þá átti hinn ungi og efnilegi Kristinn Einarsson frábæran leik undir lokin og geta Njarðvíkingar þakkað honum öðrum fremur hvernig leikurinn fór, en Kristinn er aðeins 16 ára gamall.ísak Tómasson átti líka góða spretti í síðari hálfleiknum. Valsmenn í öldudal Valsmenn koma enn á óvart, fyrir mótið voru þeir taldir með langsterkasta liðið og framan af mótinu léku þeir vel. En í dag eru þeir í fjórða sæti úrvals- deildar og tapa hverjum leiknum á fætur örðum. Verða Valsmenn að taka sig verulega á ef þeir ætla sér að komast í úrslitakeppnina, því engan veginn er tryggt að þeir haldi fjórða sætinu ef þeir leika ekki betur en þeir hafa gert uppá síðkastið. Stig UMFN: Valur Ingimundarson 30, Gunnar Þorvarðarson 24, Kristinn Einarsson 13, Isak Tómasson 9, Sturla Örlygsson 7, Júlíus 4 og Helgi 2. Stig Vals: Kristján Ágústsson 24, Björn Zoéga 12, Jón Steingrímsson 10, Tómas Holton 6, Páll Arnar 4, Leifur Gústafsson 4, Helgi Gústafsson 2 og Valdimar Guðlaugsson 2. - BL STAÐAN Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik er nú þessi: Njarðvik .... KR ......... Haukar...... Valur....... Keflavík .. . . ÍR.......... 11 8 3 878-824 16 10 7 3 723-689 14 11 6 5 796-807 12 11 5 6 899-842 10 10 4 6 667-760 8 11 2 9 820-881 4 BESIUR? EKKIENNM — segir sænski tennisleikarinn Mats Wilander ■ „Ég er enn ekki orðinn bestur, en ég er ánægður með gang mála, og vonandi kemur að því að ég verði bestur“, sagði Svíinn ungi, Mats Wilander, nýja tenn- isstjarnan. Mats Wilander er orðinn mjög hátt skrifaður tennisleikari, ekki síst eftir sigur hans í opna Ástralska meistaramót- inu í tennis,þar sem hann sigraði Wim- bledon meistarann John Mc Enroe frá Bandaríkjunum í undanúrslitum, og síð- anTékkann fræga, Ivan Lendl í úrslila- leik. Wilanderer núsú stjarnasem Svíar binda vonir við í tennisíþróttinni eftir að Björn Borg hætti alvarlegri keppni. Vonir Svía um arftaka Wilanders eru meira að segja þegar farnar að glæðast, unglingurinn Karlsson sigraði nú nýlega í stórmóti, og er yngsti keppandinn sem unnið hefur í því móti síðan Börn Borg keppti þar ungur að árum... -SÖE ■•tw® jNK IKSaaiiifa:;: HMÍl ■ Mats Wilander með Ástrralíubikarinn: „ekki enn orðinn bestur", en þessi ungi Svíi ætlar sér það áreiðanlega, og reyndar eru margir komnir á þá skoðun að hann sé það þegar. Huginn á ■ mm 70 ára ■ Iþróttafélagið Huginn á Seyðisfirði varð 70 ára fyrir skömmu. Afmælisins var rninnst með veglegri veislu í félags- heimilinu Herðubreið á Seyðisfirði í byrjun desember. 1 fagnaðinum voru fluttar ræður, saga félagsins rakin t stuttu ntáli, sungið og síðan dansað fram eftir allri nóttu. Um 250 manns sóttu hófíð, scm hciðrað var með nærveru formanns, varaformanns og framkvæmdastjóra ÚÍA. Hermann Níelsson formaður ÚÍA færði fclaginu að gjöf fagran og stóran bikar, til frjálsrar ráðstöfunar. Núverandi for- maður íþróttafélagins Hugins er Jóhann Hansson. -SÖE Siglingaklúbbur á Fljótsdals- héraði ■ Nýstofnaður „Siglingaklúbbur Fljótsdalshéraðs" var tekinn í Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands fyrir skömmu. Þar með eru áhugantenn um siglingar á Austurlandi komnir í hóp sívaxandi fjölda siglingamanna sem stunda íþrótt sfna af kappi í skipulögðum félögum hér á landi. _ SÖE Knattspyrnusam- band íslands: Þátttökutilkynningar og þátttökugjöld: ■ Þeir aðilar sem ætla að taka þátt á landsmótum og hikarkeppnum Knatt- spyrnusambands íslands árið 1984 verða að senda þátttökutilkynningar ásamt þátttökugjöldum til KSÍ pósthólf 1011 Reykjavík fyrir 20. janúar næstkomandi. Þátttökugjöld eru sem hér segir: 1. deild ........... 4(KK).-kr 2. deild ............. 2200.-kr 3. dcild ............. 1600.-kr 4. deild ............. 1600.-kr Kvennaflokkur..........8(K).-kr 2. flokkur ............ 800.-kr 3. flokkur ............8(K).-kr 4. flokkur ............8(K).-kr 5. flokkur ............8(X).-kr Bikarkeppni KSÍ: Meistaraflokkur karla.. 2200.-kr 1. flokkurkarla....... 800.-kr 2. flokkur karla.......8(K).-kr kvennaflokkur .......... 800.-kr Öidungaflokkur........ I600.-kr íslandsmót í innanhúss- knattspyrnu: ■ íslandsmótið í innanhússknatt- spyrnu verður haldið í Laugardalshöll 21-22 janúar nk. og 25-26 febrúar nk. Þátttökugjald í hvorum flokki (karla og kvenna) er kr. 800. Þátttökutilkynningar ásamt gjöldum berist KSf fyrir 31. des. nk. Skuldarar fá ekki að vera með ■ Þeir sem skulda KSÍ þátttökugjöld fá ekki að vera með í mótum Knatt- spyrnusambandsins á næsta keppnis- tírnabili. Þetta er tekið fram í bréfi sem KSÍ hefur sent þeim aðilum sem eiga lilut að máli. Samkvæmt bréfinu eru margir þátttökuaðilar í verulegum van- skilum við sambandið. - SÖE

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.