Tíminn - 01.01.1984, Qupperneq 10

Tíminn - 01.01.1984, Qupperneq 10
SUNNUDAGUR i. JANÚAR 1984 Janúar PÓUTÍSKUR SKJÁLFTI UNDIR ÓVEÐURS- HIMNI ■ Ekki fór svo vel að áramótin gengju um garð án átakanlegra slysfara og óhappa.því þegar að morgni nýársdags var framinn óhugnanlegur verknaður í húsi við Kleppsveg. Var 28 ára gamall maður, Óskar Arni Blomsterberg, stunginn til bana af aðvífandi manni, en Óskar Árni hafði verið gestkomandi þarna um nóttina. Höfðu menn verið við skál og blossuðu upp deilur milli Óskars Árna og þess er verknaðinn framdi, vegna gamalla væringa, með fyrrgreind- um afleiðingum. Eldhætta er jafnan mikil um hátíðarn- ar og sannaðist það er kviknaði í húsi Sölva Guðbjartssonar á Hellissandi að- faranótt 2. janúar og brann það til grunna. Veður var óhagstætt og gekk slökkvistarf örðuglega, enda missti Sölvi og fjölskylda hans þarna aleigu sína. Tilþrif voru að vanda í efnahagslífinu og heilsaði árið með 9% gengisfellingu í kjölfar nýrrar fiskverðsákvörðunar og jafnframt hækkaði gjaldeyrir um 10%. Var þannig svo að sjá í ársbyrjun, sem vel mundi ára hjá verðbólgudraugnum. Húsráðandi á bænum Saltvík sunnan við Húsavík þótti bregðast skörulega við er hann hrakti fimm óboðna menn sem réðust inn á heimili hans á brott með skotvopni. Kom til nokkurra ryskinga og hlutu húsráðandur, Atli Rúnar Stef- ánsson og kona hans, skrámur í þeirri sennu. Urðu talsverð blaðaskrif og eftirmál af atburði þessum. Kynlegt fyrirbrigði lét mjög á sér kræla í byrjun ársins. Var þar um að ræða hringingar til ýmissa stofnana og fyrirtækja, þar sem boðað var að sprengja ntundi springa í húsakynnum þeirra innan stundar. Varð Hótel Borg fyrst fyrir þessum gráa leik, sem brátt varð að nokkurs konar faraldri. Sem betur fór var hér um glettur einar að ræða. Geysilegt fannfergi var víðast um landið eftir áramótin og snjóflóð tíð, sem síðar urðu valdur að harmleiknum mikla á Patreksfirði. - Segja mátti að tólfunum hefði kastað í Reykjavík þann 5. janúar, þegar slíkt veður gerði á höfuðborgarsvæðinu að öll tiltæk hjálp- ar- og björgunarlið voru kölluð út. Höfðu menn fest bifreiðum sínum hér og þar um bæinn. Veður hafði og verið með afbrigðum vont á Suðurlandi öllu dagana á undan og lá skólastarf t.d. víðast niðri af þeim sökum. í Mosfells- sveit urðu 240 nemendur veðurtepptir í skóla sínum. Snjóflóð féll á Súðavík við Álftafjörð vestra þann 6. janúar og tók það með sér tvö fjárhús, svo og spennubreyti Orku- bús Vestfjarða í plássinu. Mátti mildi teljast að flóðið féll ekki á híbýli manna. Hinir dagfarsprúðu vagnar SVR, sem sjaldan eru í sviðsljósinu, urðu skyndi- lega að bitbeini stjórnenda borgarinnar og verðlagsyfirvalda, þegar þeir fyrr- nefndu ákváðu einhliða að fargjöldin skyldu hækka um 46.5% og verða 12 krónur í stað 8 króna. Gekk á ýmsu fram eftir árinu í deilu þessari og sóttu báðir málspartar sitt mál fast. Miklum tíðindum þótti sæta þegar fréttist að hingað til lands væru komnir japanskir stóriðjuhöldar til viðræðna um hugsanleg kaup á 20% hluta Elkem í íslenska járnblendifélaginu. Formenn stjórnmálaflokkanna þing- uðu stíft um kjördæmamálið og fjölda þingmanna í framtíðinni.Var helst rætt um tvo möguleika og var sá annar að þingmenn yrðu á bilinu 62-64 og út- hlutun þingsæta miðuð við meðaltalsat- kvæðafjölda íkjördæmi. Hinn kosturinn var að miðað yrði við s'-onefnda ■ Ofviðri í Reykjavík 5. janúar. Tímamynd Ella „d‘Hont“-reglu og yrðu þá þingmenn 65, en uppbótarþingsætin bundin við Reykjavík og Reykjaneskjördæmi. Sunnudaginn 10. janúar var talið í prófkjöri Framsóknarmanna í Reykja- vík og varð Ólafur Jóhannesson í fyrsta sæti, en Haraldur Ólafsson í öðru. Borgarfógeti auglýsti 19. janúar lög- bann á fargjaldahækkun SVR og lagði ríkissjóður fram 10 milljón króna tygg- ingu meðan dómsúrskurðar væri beðið. Vegna væntanlegra þingkosninga voru sumri þegar byrjaðir að hugsa sitt ráð og þar á meðal stuðningsmenn dr. Gunnars Thoroddsen, sem áhuga höfðu á sér- framboði undir forystu hans. Áttu þeir með sér regluleg fundahöld í mánuðin- um. Fjórir fórust og 30 manns misstu heimili sín er snjófloð féll á Patreksfirði síðdegis laugardaginn 22. janúar. Nánar segir fra þeim athburði á öðrum stað hér. Krapaflóð hljóp úr árgljúfri í Álfta- dalsá aðfaranótt 23. janúar og reif það ■ Fulltrúijapanska fyrirtækisins Suitomo (t.v.) og dr. RolfNordheim stjómarmaður Elkem, ræða við blaðamann Tímans. (Tímamynd Róbert) ■ Ris hússins nr. 79 A við Aðalstræti á Patreksfirði. Þar var eldri kona og tvær dætur hennar staddar er ósköpin dundu yfir. (Tímamynd Róbert) Febrúar HVALNUM F0RÐAÐ FRÁ „0FSÓKNAR- MÖNNUM" Mótmæli - eða mótmæli ekki - gegn hvalveiðibanni voru mál dagsins í byrjun febrúar og þótti það athyglisvert innlegg í þa mræðu er boð barst frá bandarísk- um stjórnvöldum um að íslendingar skyldu fá leyfi til veiða í bandarískri lögsögu, tækju þeir þann kostinn að mótmæla eigi. í skoðanakönnun kjördæmisþings Framsóknarflokksins í Norðurlands- kjördæmi vestra var Páll Pétursson, alþingismaður, valinn í fyrsta sæti á lista flokksins, en Stefán Guðmundsson, al- þingismaður, í annað sætið. Ingólfur Guðnason, alþingismaður, er hlaut þriðja sætið, neitaði að þiggja það. Mjög þótti ÁTVR berast á er það freftist að settar hefðu verið upp dyr miklar og vandaðar fyrir inngang hússins að Borgartúni 7, fyrir 640 þúsundir króna. Sagði Jón Kjartansson, forstjóri ÁTVR, að þótt víst væri mannvirki þetta dýrt, hefði lægsta tilboði verið tekið. Naumur meirihluti á Alþingi sam- þykkti að kvöldi annars febrúar að mótmæla ekki hvalveiðibanninu og fögnuðu friðunarsinnar þeim málalokum ákaft, - einkum þó erlendis. Þann 2. febrúar var talið í prófkjöri Framsóknarflokksins á Austurlandi. Varð Halldór Ásgrímsson, alþingismað- ur, í fyrsta sæti, en Tómas Árnason, alþingismaður, í öðru. Tíminn greindi frá því þann 4. febrúar að Steingrímur Hermannsson, hefði lagt fram sérstakar tillögur til lausnar deilun- um á milli Alusuisse og íslenskra stjórn- valda, sem mótvægi við tillögur iðnaðar- ráðherra um einhliða aðgerðir. Fólust tillögur Steingríms m.a. í því að komið yrði á álviðræðunefnd, sem skipuð skyldi fullrúum allra flokka til þess að vinna í málinu, en gömul deilumál skyldu lögð í gerðardóm. Litlu munaði að stórslys yrði, þegar 12 ára gamall drengur varð fyrir snjótroð- ara á skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Hann slapp þó með handleggsbrot og fótbrot. Að morgni sunnudagsins 6. febrúar bættust þjóðinni þrír nýir borgarar með nokkuð óvenjulegum hætti. Það var er þeim hjónum Guðmundu Brynjólfsdótt- ur og Reyni Arnórssyni fæddust þríburar á Fæðingardeild Landspítalans. Þau hjón eru frá Djúpavogi og reiknuðu fróðir menn út að íbúum í plássinu hefði þar með fjölgað um 1%. Mikil flóð gerði í hlákukafla í Stranda- sýslu í mánuðinum og tóku flóðin fjórar með sér átta metra stálbitabrú og bar hana með sér um 300 metra leið. Heitt gerðist í kolunum í Vestmanna- eyjum, er bæjarráð ákvað að selja íþróttafélaginu Þór svonefnd Steinker- hús. Lá einnig fyrir tilboð í húsið frá Tý og þóttust félagar hans hafa-verið illa hlunnfarnir. Nú kom til álita hvort íslendingar ættu að mótmæla ákvörðun Hvalveiðiráðsins frá fyrra sumri um algjört bann við hvalveiðum frá og með árinu 1986, en mótmæli urðu að hafa borist fyrir 3. febrúar. Sýndist sitt hverjum, hvað gera skyldi. Sjálfstæðismenn á Vestfjörðum, sem fylgdu Sigurlaugu Bjarnadóttur að málum, tilkynntu þann 28. febrúar að þeir hyggðu á sérframboð og var ástæðan óánægja með að ekki hafði farið fram prófkjör hjá flokknum í kjördæminu um áraraðir. Skjálfti greip stjórnarliða á Alþingi, þar sem útlit var fyrir að Eggert Haukdal mundi ekki verða viðstaddur afgreiðslu bráðabirgðalaga mánudaginn 31. janú- ar. ■ Akurey á strandsstaö. (Tímamynd Kristján Jónsson)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.