Tíminn - 01.01.1984, Qupperneq 12
ráðherra Frakka og Mitterrand, forseta,
að máli og var gerður samningur um
samvinnu milli landanna á sviði
menningar og vísinda, er undirritaður
var í París. í för með forsetanum var
Óláfur Jóhannesson, forsætisráðherra.
Skrýtin deila kom upp í Öskjuhlíðar-
hverfinu. Þar höfðu arkitektar nýrra
húsa gert ráð fyrir þökum með bláum lit,
en eigendur vildu hafa þökin Ijósbrún.
Stóð í þófi um hríð, en að lokum höfðu
eigendur betur.
2000 minkar Voru fluttir með þotu til
Akureyrar frá Danmörku. Var hér um
að ræða upphaf að endurnýjun stofnsins,
þar sem vart hafði orðið sýkingar í
dýrum á ýmsum íslenskum loðdýrarækt-
arbúum.
Togarinn Einar Ben var tekinn af
varðskipi á Halamiðum og færður til
hafnar, þar sem haffæriskírteini skipsins
var útrunnið. Eigendur töldu sig hins
vegar hafa verið í gildri undanþágu.
Sprengja sprakk við bandaríska sendi-
ráðið í Reykjavík þann 15. apríl. Var
hún all öflug, en skemmdir urðu þó ekki
miklar og ekki urðu slys á mönnum.
Tveir rússneskir sjómenn voru sóttir á
haf út af þyrlum varnaliðsins í Keflavík
helgina 16-17 apríl. Var annar skað-
brenndur, en hinn hafði fengið hjarta-
áfall. Lést sá fyrrnefndi á sjúkrahúsi í
Rcykjavík.
Söntu helgi gerðist sá atburður í
Rcykjavík að Englendingur sem boðið
hafði tveimur Islendingum hcim meðsér
af dansleik stakk annan þeirra á hol með
hnífi er í kekki kastaðist í samkvæminu.
Meiðsli íslendingsins voru þó ekki mjög
alvarleg.
Nú leið að kosningum og efni Fram-
sóknarflokkurinn til kosningafundar í
Háskólabíói þann 22. apríl sem var mjög
glæsilega sóttur.
Að kvöldi föstudagsins 22. apríl gengu
bráðabirgðalög í gildi, sem mæltu fyrir
um tvo kjördaga helgina 23-24 apríl,
þ.c. utan kaupstaða og kauptúna, því
enn var færð misjöfn víða um landið. Þó
skyldi hægt að Ijúka kosningu að kvöldi
hins 23ja með samþykki kjörstjórna og
umboðsmanna lista.
Kosningar til Alþingis fóru fram um
land allt þann 23ja apríl og tókst alls
staðar að Ijúka kosningunni á einum
degi. Kosningaúrslitin urðu þau að „nýju
framboðin," þ.e. Samtök um kvenna-
lista og Bandalag jafnaðarmanna fengu
sjö þingmenn, en Alþýðuflokkur, Fram-
sóknarflokkur og Alþýðubandalag töp-
uðu mönnum. Sá fyrst taldi fjórum
mönnum, Framsóknarflokkur þrcmur
og Alþýðubandalag einum. Sjálfstæðis-
flokkurinn vann fylgi alls staðar nema í
Reykjavík og eru nú þingmenn hans 23.
Að kvöldi mánudagsins 25. apríl fór-
ust tveir menn með lítilli flugvél er
hrapaði í Hvalfjörð. Þeir voru Svanur
Tryggvason, rafvirki og Eggert
Karlsson, framkvæmdastjóri.
Kostnaður Vcgagerðarinnar við
snjómokstur fram til aprílloka reyndist
hafa orðið 60-65 ntilljónir, enda veturinn
með afbrigðum snjóþungur.
Þann 29. apríl hófust tilraunir til
myndunar ríkisstjórnar og var það Geir
Hallgrtmsson, er fyrstur formanna
stjórnmálaflokkanna gekk í hlað á
Bessastöðum að ræða málin við forseta
íslands.
Laugardaginn 30. apríl lenti ms. ís-
berg í árekstri við v-þýska skipið Tilla
undan strönd Englands og sökk mjög
fljótlega. Allri áhöfninni var bjargað um
borð í þýska skipið.
Formaður kjörstjómar í Reykjavík, Jón G. Tómasson, bíður loka kjörfundar.
(Tímamynd G.E.)
■ Franski fjallgöngumaöurinn rekur ferðasögu sína fyrir blaðamönnum.
Timamynd Róbert
mundi setjast þar að, munkar eða
nunnur.
Þann 5. maí lagði menntamálaráð-
herra, Ingvar Gíslason, hornstein að
. hinu nýja útvarpshúsi við Háaleitisbraut
að viðstöddu fjölmenni.
Þótt nú væri komið fram í maímánuð
var afar kalt víða um landið og til dæmis
á Bæjum á Snæfjallaströnd sögðu menn
vera jökulvetur enn.
Óskað var opinberrar rannsóknar
vegna 54 tonna af skreið sem send höfðu
verið áleiðis til Nígeríu, án þess að
tilskildir pappírar fylgdu. Talið var að
skreiðin (hertir þorskhausar) hefði verið
send um borð eftir að lestarstjóri var
farinn frab orði.
Þann 11. maí skilaði Geir Hallgríms-
son umboði sínu til stjórnarmyndunar
og fékk þá Steingrímur Hermannsson
það í hendur. Kannaði hann fyrst mögu-
leika á saimstarfi Framsdknarflokks, Al-
þýðubandalags og Sjálfstæðisflokks, en
án árangurs. Skilaði Steingrímur umboði
sínu þann 16. maí.
Sama dag fékk Svavar Gestsson um-
boð til stjórnarmyndunar. Lagði Svavar
milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks og var ný ríkisstjórn mynduð
undir forsæti Steingríms Hermannsson-
ar. Tók hin nýja stjórn við völdum sama
dag.
Þegar föstudaginn 27. maí voru gefin
út fimm bráðabirgðalög sem miðuðu að
lausn aðsteðjandi vanda. M.a. var gengi
krónunnar fellt um 14.5% og kveðið á
um afnám verðbótavísitölunnar 1. júní
og 1. október, auk þess sem verðlagseft-
irlit skyldi hert. Þá má nefna ákvæði um
gjaldfrest á verðtryggðum lánum og
fleirá sem nauðsynlegt þótti til þess að
létta á vandanum.
Dr. Gunnar Thoroddsen afhenti
Steingrími Hermannssyni lyklana að
skrifstofu forsætisráðherra þann 26. maí
og notaði tækifærið til þess að bera lof á
ánægjulegt stjórnarsamstarf í fyrri
stjórn.
Humarvertíð hófst þann 26. maí og
fengu alls um 110 bátar leyfi til humar-
veiða.
Gos hófst í Grímsvötnum þann 29.
maí og reis upp mökkur 3-4 þúsund fet
á hæð. Síðast hafði gosið í Grímsvötnum
Maí
NÝ STJÓRN, -
ATLAGA AÐ
VERÐ-
BÓLGUNNI
Hátíðarhöldin 1. maí fóru fram með
nýju sniði og var nú gengið frá húsi ASI
að Laugardalshöll í stað þess að haldið
væri um Laugavegá Lækjartorg. Sýndist
mönnum ekki öllum eitt um þessa ný-
breytni.
Vegna hugmynda um að leggja niður
klaustrið að Jófríðarstöðum í Hafnar-
firði hugleiddi Hafnarfjarðarbær að
kaupa klausturhúsið. Þær ráðagerðir
urðu þó að engu er Frehen biskup
Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar á fyrsta ríkisráðsfundi sínum.
kaþólskra tilkynnti að ekkert mundi
verða úr sölunni og yrði helgur lifnaður
í klaustrinu eftir sem áður, en nýtt fólk
Tekið á móti forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur á Orlyflugvelli.
(Tímamynd GTK)
fram spurningalista er hann bað forsvars-
menn annarra flokka að svara og snertu
spurningarnar margvíslega málaflokka.
Mæltist þessi aðferð misjafnlega fyrirog
litu margir svo á sem Svavar sóaði
naumum tíma með þessu móti, en mikill
vandi beið úrlausnar.
Mörgum varð litið til lofts þann 19.
maí, er geimskutlan bandaríska kom í
heimsókn til íslands á leið á flugsýningu
í París. Flaug þotan sem skutluna bar
lágt yfir Reykjavík, en lenti síðan á
Keflavíkurflugvelli.
Fegurðardrottning íslands var krýnd
á veitingahúsinu Broadway um miðnætti
þann 20. maí. Varð Unnur Steinsson
hlutskörpust og setti fegurðardrottning
Breta 1982 kórónuna á höfuð henni.
Skuttogarinn Haukur GK-25 strand-
aði í rennunni við Sandgerði þann 20.
maí. Var strandið kennt bilun i stýris-
búnaði. Náðist skipið skjótt á flot að
nýju og reyndist ekki mikið skemmt.
Síðdegis laugardaginn 21. maí skilaði
Svavar Gestsson umboði sínu til stjórn-
armyndunar.
Nú tóku hlutirnir að gerast hratt:
Aðfaranótt fimmtudagsins 26. maí náð-
ist samkomulag um málefnasamning
(Tíntamynd Róbert)
1934 og kom þá mikið Skeiðarárhlaup,
sem ekki varð að þessu sinni.
■ Unnur Steinsson var fegurðar-
drottning Islands, þegar stjórnarmynd-
unartilraunirnar stóðu hvað hæst.
Tímamynd Ámi)