Tíminn - 01.01.1984, Síða 14
SUNNUDAGUR 1. JANÚAR 1984
Þétt var tjaldað í Húsafelli um verslunarmannahelgina.
(Tímamynd Árni)
SKIPTAPAR OG
UMFEEtÐAR-
SLYSABYLGJA
Breskur kvendávaldur, Gail Gordon,
kom hingað til lands þann 2. september
og hélt hér nokkrar sýningar á list sinni
við góða aðsókn.
Verð á kindakjöti lækkaði þann 2.
september um 20%,-sem nam um 20
krónum á hvert kíló og hugsuðu margir
sér gott til glóðarinnar og vildu birgja sig
vel upp fyrir hátíðarnar, en kjötsalan
skyldi standa í 40 daga á þessu verði.
Veðurfarið hafði slæm áhrif á afkomu
margra bænda og var óttast að margir
þeirra yrðu að bregða búi innan skamms.
Þann 2. september sökk togbáturinn
Brimnes frá Ólafsvík 27 sjómílur vestur
af Öndverðarnesi. Kom upp eldur í
bátnum, sem engin leið var að ráða við.
Fimm skipverjar voru í bátnum og
yfirgáfu þeir hann nokkru áður en hann
sökk. Varðskip kom á vettvang og
reyndi að vinna bug á eldinum en
árangurslaust.
Rauði krossinn skipulagði hjálparstarf
til aðstoðar bændum sem mikil hey áttu
úti vegna ótíðar. Brugðust margir vel við
og kom þessi hjálp víða að verulegu liði.
Þann 10. desember lækkuðu vextirum
September
4-5% og var vonast til að þeir yrðu
orðnir í samræmi við verðbólguna, eða
um 30% um áramót.
A hádegi þann 7. september var
gengið frá bráðabirgðasamkomulagi í
áldeilunni í Zúrich. Fólst í samkomulag-
inu hækkun orkuverðsins og fyrirheit
um heimild til stækkunar álversins.
Nú fréttist um fyrirheit stjórnvalda
um 50% hækkun húsnæðislána til þeirra
er voru að byggja eða kaupa í fyrsta sinn
og var ákveðið að viðbótarlán til þeirra
er fengið höfðu lán sl. tvö ár yrðu greidd
út í desember. Talið var að þetta mundi
kosta að auka yrði framlög til húsnæðis-
lána um 800 milljónir.
Tveir bræður fórust er vélbáturinn
Bakkavík ÁR sökk í innsiglingunni við
Eyrarbakka. Þriðja bróðurnum var
bjargað eftir klukkustundar volk í
sjónum. Mun báturinn hafa fengið á sig
hnút og hvolfdi honum á svipstundu.
Jasshljómsveitin „The Great Eight"
kom til landsins og hélt hljómleika í
Gamla bíói þann 7. september.
M.s. Edda lenti í mikluóveðrifimmtu-
daginn 8. september og brotnuðu nokkr-
ar rúður, svo sjór flóði inn í farþegak-
lefa. Greip nokkur ótti um sig meðal
farþega, en hann dvínaði er gripið var til
þess ráðs að snúa skipinu upp í veðrið.
Ungur fallhlífarstökkvari komst í
hann krappann, þegar fallhlíf hans opn-
aðist ekki, - tvívegis sömú helgina! Náði
fallhlífarstökkvarinn, Kristófer Ragn-
arsson, að opna varafallhlífina og bjarga
sér þannig.
Ótti greip um sig meðal starfsmanna
þvottahúss ríkisspítalanna, þegar ákveð-
ið var að bjóða út reksturinn til einkaað-
Ágúst
L0KS K0M
FLÆSA, -
RÁS 2. í
UNDIRBÚNINGI
. Eftir langvarandi óþurrkatíð gerði
loks flæsu í ágústbyrjun Qg tóku bændur
þá rösklega til hendinni, því víða, t.d. á
Suðurlandi höfðu menn ekki náð inn
þurri tuggu fram til þess tíma.
Að vanda fjölmenntu unglingar og
aðrir íbúar þéttbýlis út á land um
verslunarmannahclgina og bar víða
nokkuð á drykkjuskap, mest þó í Húsa-
felli. Sem betur fer var þar tiltækt
fjölmennt hjálparlið sem forðaði því að
drukkið fólk yrði fyrir óhöppum, cn
vcður var hráslagalegt. Á fjórða þúsund
ntanns var í Húsafelli. Þá var og með
sukksamasta móti í Atlavík.
Sömu helgi var „þjóðhátíðin" haldin í
Eyjum og fór hún vel fram ogslysalaust.
Veðurstofan sendi frá sér yfirlit um
hitastig í júlí og kom þar fram að
mánuðurinn hafði verið sá kaldasti í
heila öld.
Fjárlaga og hagsýslustofnun lagði til
5% niðurskurð við gerð næstu fjárlaga
eða alls um 400 milljónir króna.
Mjög óx mörgum í augum er einhverj-
ir reiknuðu það út að bifreiðarstjórar
íslenskra ráðherra hefðu full ráðherra-
laun fyrir akstur sinn þegar best léti.
Kvaðst forsætisráðherra mundu setja
nýjar og hertar reglur til þess að hafa
eftirlit með þessu.
Nú var talsvert tekið að ræða um
væntanlega rás 2. hjá Ríkisútvarpinu og
þann 5. ágúst var ráðinn að henni
forstöðumaður, Þorgeir Ástvaldsson,
löngu kunnur að störfum sínum að
útvarpsþáttum og sem skemmtikraftur.
Válegt atvinnuástand þótti á Akureyri
er í Ijós kom að þar var atvinnuleysi
110% meira en í Reykjavík í júlímánuði.
Þá voru þar 92 án atvinnu.
Ágúst Guðmundsson, kvikmyndaleik-
stjóri, þótti detta í lukkupottinn er hann
var ráðinn til þess að gera kvikmynd um
Harald hárfagra fyrir Norðmenn. Mun
ástæðan hafa verið sú að Norðmenn hafa
nú vaxandi áhuga á að kvikmynda efni
úr sögu sinni, en Ágúst búinn að sanna
hæfni sína á slíku sviði með myndinni
um Gísla Súrsson.
P Framámenn íslensks iðnaðar brugðu sér í gervi olíufursta í tilefni af kynningu
íslcnskrar olíu á iðnsýningunni. (Tímamynd Róbert)
■ Frá brunanum á Hellissandi.
(Tímamynd A.L.)
ítalskt beitiskip, Caio Duillo, kom til
hafnar í Reykjavík og um borð var 550
manna áhöfn og um 100 sjóliðsforingja-
efni.
Tugmilljóna tjón varð í eldsvoða á
Hellissandi, þegar frystihúsið á staðnum
brann til kaldra kola þann 17. ágúst.
Frystihúsið var aðalatvinnuveitandinn á
staðnum, sem veitti um 60% allrar
atvinnu þar.
Þann 17. ágúst kom til landsins Frakk-
inn Jean Claude Bertrand, sem skipulagt
hafði hér svonefnt „íslandsrall.
Verðlaun voru veitt fegurstu götu í
Reykjavík sumarið 1983 og varð Selja-
gerði fyrir valinu fyrir góða umhirðu
lóða, þrátt fyrir erfitt tíðarfar.
Arnarvarpið var með betra móti þetta
árið og komust 22 ungar á legg hjá 15
arnarhjónum.
Ráðning Guðmundar J. Guðmunds-
sonar á Þresti Ólafssyni sem fram-
kvæmdastjóra Dagsbrúnar sætti mikilli
gagnrýni starfsmanna félagsins. Þótti
þeim hart að setja mann yfir sig, er þeir
sjálfir voru kosnir til starfa sinna.
Áhugamannahópur um úrbætur í
húsnæðismálum var settur á laggirnar til
þess að bjarga hag þess fólks sem komið
var í vandræði með íbúðakaup sín í
kjölfar róttækra efnahagsráðstafana.
Það var Reykjavtkurborg r.okkuð
áfall er ljóst varð að tveir af hverjum
þremur mundu ekki ráðast í að byggja á
lóðum þeim er þeim hafði verið úthlutað
við Grafarvog. Samtímis kynnti formað-
ur skipulagsnefndar Reykjavíkur hug-
myndir um að reisa 400 íbúða byggð við
Skúlagötuna.
Sex skip úr fastaflota NATO heim-
sóttu Reykjavík þann 25. ágúst, en þau
voru í grcnnd við landið í tengslum við ■ Brimnesið hverfur undir yfirborð sjávar. Á innfelldu myndinni má sjá
all víðtækar flotaæfingar. varðskipsntenn að slökkviliðsstörfum. (Ljósmynd: Guðm. Valdimarsson).