Tíminn - 01.01.1984, Blaðsíða 15
15
SUNNUDAGUR 1. JANUAR 1984
fréttaannáll 1983]
■ Dr. Gunnar Thoroddsen lést þann 24. september, 73ja ára að aldri.
Frá slysstað, þar sem Sandey II hvolfdi
(Tímamynd Róbert)
vogi er þar fannst fallbyssukúla frá miðri
19. öld er verið var að vinna við
vegagerð.
Nú leið að landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins og þann 11. október kvisaðist
að Geir Hallgrímsson mundi ekki gefa
kost á sér sem formanni að nýju.
Hörmulegt slys varð í Reykjavík þann
Egilsstöðum gekk út úr vélinni áður en
hreyflar hennar höfðu verið stöðvaðir og
varð fyrir hreyfilspaðanum. Lést hann
þegar í stað.
Þremur lögregluþjónum var vikið úr
starfi á ísafirði eftir að þeir höfðu rofið
innsigli á áfengisgeymslu flutningaskips
án heimildar, og tekið þaðan eitthvað af
áfenginu. Var þarna um að ræða eins-
konar „risnu" skipverja, sem lögreglu-
mennirnir sögðu vera alsiða.
Boðað var til fundar með fulltrúum
verkalýðshreyfingarinnar, forsætisráð-
herra og fulltrúum atvinnurekenda þann
25. október. Höfðu viðræðurnar ekki
lengi staðið er fulltrúar verkalýðssam-
takanna gengu af fundi. Kvaðst forsætis-
ráðherra líta á atburð þennan sem þátt í
ákveðinni sýningu.
Ekki létu stórslysin á sér standa í
mánuðinum: Skclfilegt slys varð austan
við Viðey þann 28. október, þcgar
Sandey II hvolfdi á svipstundu og fjórir
skipverja fórust. Aðeins tveir sluppu
naumlega. Var talið að sanddæla skips-
ins hefði fest í botni og kranar þess
dregið skipið niður er reynt var að losa
hana.
Gerðíst nú skammt stórra högga á
milli: Þann 30. október sökk haförninn
SH-122 við Bjarnareyjar á Breiðafirði.
Fórust þrír menn, en þrír komust upp í
sker og var bjargað um borð í þyrluna
Rán.
■ Nýr eigandi ákvað að ieggja gamla Hamarshúsið undir íbúðabyggingar og koma þar fyrir 50 smáíbúðum til sölu eða leigu.
(Tímamynd Ami)
ila. Frekari útboð á ýmsum verkþáttum
við spítlana voru í bígerð og töldu ýmsir
að þetta leiddi til þess að um 500 manns
misstu atvinnu sína.
Orðrómur komst á kreik um að rekstr-
argrundvöllur Járnblendiverksmiðjunn-
ar að Grundartanga væri brostinn, vegna
hrapandi markaðar' fyrir kísiljárn, en
þessu neitaði forstjóri, Jón Sigurðsson,
harðlega og kvað útlitið bjart í nýjum
rekstraráætlunum fyrirtækisins.
Mikið var um bifreiðarslys helgina
18.-19. september: Ökumaður einn
sofnaði undir stýri og hafnaði inni í garði
við Sunnuveg í Reykjavík, og annar
slasaðist lífshættulega, þegar maður fékk
flog undir stýri og ók á þrjá vegfarendur
við Laugaveg. Loks beið maður bana, er
bifreið hans valt í lausamöl við Laugar-
vatn.
Dr. Gunnar Thoroddsen, frv. forsæt-
isráðherra, andaðist á Landsspítalanum
í Reykjavík laugardaginn 24. septem-
ber. Var útför hans gerð frá Dómkirkj-
unni þann 30. september að viðstöddu
miklu fjölmenni.
Kennarasamband íslands höfðaði mál
á hendur menntamálaráðherra, Ragn-
hildi Helgadóttur, þar sem hún hafnaði
endurráðningu kennara við Þelamerkur-
skóla, sem fyrirrennari hennar, Ingvar
Gíslason, hafði veitt vilyrði fyrir.
Hæstiréttur staðfesti dóm undirréttar
í „Þverholtsmálinu" svonefnda og var
ákærði, Hallgrímur Ingi Hallgrímsson.
dæmdur í 10 ára fangelsisvist.
Kvikmyndin „Nýtt líf" var frumsýnd í
Nýja bíói þann 30. september. Leikstjóri
myndarinnar er Þráinn Bertelsson, en
þarna segir fra ævintýrum ungra Reyk-
víkinga í Eyjum.
Október
11 KÍLÓ AF
HASSI GERÐ
UPPTÆK
Víða bar á erfiðleikum í atvinnulífi á
árinu og í byrjun október sagði Slippfé-
lagið upp starfsmönnum sínum, 77
talsins. Vonast var þó til að flesta yrði
hægt að endurráða.
Ekki er víst að landsmenn muni að
nýju eiga kost á utanferðum með far-
þegaflutningaskipi á vegum íslenskra
aðila næsta sumar. Hallinn af rekstri ms.
Eddu varð nefnilega um ein milljón
dollara og von að útgerðin hugsi sitt ráð
áður en í slíkt fyrirtæki verður aftur
ráðist.
Óvæntur fornleifafundur varð í Kópa-
12. október, þegar fjögurra ára gamalt
barn lét lífið vegna rafmagnslosts úr
gölluðu sjónvarpsloftneti.
Kartöfluuppskeran brást fullkomlega
þetta árið. Var ekki hægt að senda nema
mánaðarsölumagn á markaðinn.
Öll ráðuneytin og forsetaembættið
hlutu áminningu, þegar Ijóst varð að
kostnaður við yfirstjórn ríkisins hafði
farið 67% fram úr áætlun.
Gallar fundust í kjöti sem orðið hafði
fyrir frostskemmdum í frystigeymslum
ísbjarnarins og óvart var látið á markað.
Rannsókn fór fram á máli þessu að
frumkvæði yfirkjötmats ríkisins, en það
var Afurðadeild Sambandsins sem kjötið
átti.
Skipverji á Karlsefni var handtekinn
með 11 kíló af hassi í fórum sínum þann
17. október. Var þetta mesta magn af
hassi sem náðst hafði að gera upptækt í
einu.
Þrír menn buðu sig fram sem formann-
sefni í Sjálfstæðisflokknum og voru þeir
Birgir ísleifur Gunnarsson, Friðrik Sóf-
usson og Þorsteinn Pálsson. Þótti sá
síðastnefndi sigurstranglegastur frá
byrjun.
Maður klemmdist inni í bíl eftir
árekstur á Breiðholtsbraut og tók þrjá
tíma að losa hann úr prísundinni.
Óhugnanlegt slys varð á Reykjavík-
urflugvelli hinn 22. október er maður
sem var að koma til Reykjavíkur frá
■ í þessum pokum reyndust vera hvorki meira né minna en 11 kíló af hassi að
verðgildi 4.5 milljónir í smásölu (Tímamynd Róbert)
Nóvember
SLYSAHRINAN
HELDUR
ÁFRAM
Áfram héldu sjóskaðar við landið, því
að kvöldi hins 1. nóvember sökk þýska
flutningaskipið „Karnpen" við Vest-
mannaeyjar. Fórust sjö menn af þrettán
manna áhöfn. Bátar frá Vestmannaey-
jum björguðu þeim sem af komust.
Þann 2. nóvember leit svartasta
skýrsla fiskifræðinga til þessa dagsins
ljos. Var ástandi þorskstofnsins þar svo
lýst að draga yrði um þriðjung úr
veiðunum og yrði heildarafli ekki nema
200 þúsund lestir ef ráðum fiskifræðinga
væri fylgt.
Aðalfundur Sjálfstæðisflokksins var
settur í Háskólabíói í Reykjavík þann
3ja nóvember. Á fundinum hlaut Þorste-
inn Pálsson yfirgnæfandi meirihluta við
formannskjör, en sá er næstur honum
varð að atkvæðum Friðrik Sófusson, var
kjörinn varaformaður.
Talsverða athygli vakti fegurðarsam-
keppni sem ameríska tímaritið Pentho-
use gekkst fyrir hér á landi með aðstoð
tímaritsins Samúel. Varð hlutskörpust
19 ára gömul síulka úr Njarðvíkum,
Margrét Örlygsdóttir, og hélt hún út til
Bandartkjanna þann 10. nóvember.
Enn voru tímaritin á dagskrá, þegar
Hæstiréttur dæmdi í máli sem tímaritið
„Life“ höfðaði gegn íslenska fimaritinu
„Líf“, vegna nafnlíkingar. Var úrskurð-
að að „Líf“ væri óheimilt nafnið.
Sjá einnig
bls. 18