Tíminn - 01.01.1984, Síða 18

Tíminn - 01.01.1984, Síða 18
SUNNUDAGUR U JANÚAR 1984 Tímamynd Ámi Silfurmunir Hallgrímskirkju komnir heim (Tímamynd Ámi) ■ TF Rán á þilfari varðskipsins Óðins Nóvember Framh. af bls. 15 Tómas Guðmundsson, skáld, lést þann 14. nóvember, 82ja ára að aldri. Enn eitt sforslysið á skömmum tíma, - þyrla Landhelgisgæslunnar TF-Rán hrapaði í sjóinn undan Jökulfjörðum vestra í náttmyrkri, aðfaranótt hins 10. nóvember. Fórust þar fjórir menn. Tókst að ná þyrlunni upp af hafsbotninum lítt laskaðri, þótt ónothæf væri vegna salt- skemmda. Var flakið sent úr landi til rannsóknar. Vélbáturinn Ragnar Ben frá Ólafsvík strandaði vestan við Hellissand þann 16. nóvember og sökk báturinn á aug- abragði. Mannbjörg varð. Mörgum var skemmt, þegar það frett- ist að inn í kvikmynd um öryggismál sem ætluð var sjómönnum, væri fléttað nekt- ardansi. Mun þetta hafa átt að vera tálbeita til þess að menn kynntu sér myndina fremur. Mcnn fóru nú að hugsa til jólahátíðar- innar og vegna minnkandi kaupmáttar var nokkurn kvíða að heyra á bóksölum, en búist var við 20% samdrætti á bókamarkaði frá fyrri árum. Meðal úrræða til verndunar fiskistofn- um var íhuguð sú leið að leggja einhverj- um hluta togaraflotans og þá helst skipum á þéttbýlissvæðunum. Ungur blaðamaður, Skafti Jónsson lagði fram kæru gegn þremur lögreglu- mönnurh í Reykjavík, vegna harðræðis er þcir höfðu beitt hann við handtöku aðfaranótt 27. nóvember. Átti atburður þessi sér stað í Þjóðleikhúskjallaranum. Spunnust um þetta mál miklar deilur og blaðaskrif og hlaut málið heitið „Skafta- málið“ í munni almennings og í skrifum fjölmiðla. Er ekki úr nálinni bitið með þá umræðu þegar þetta er ritað, næstsíð- asta dag ársins. Ljósin í lagi - iundin góð Slík áhrif hafa rétt stillt Ijós í umferðinni. riæ FERÐAR ■ Geir Hallgrímsson býður nýjan formann Sjálfstæðisflokksins vclkominn til starfa (Tímamynd Árni) Desember sem kvaðst vona að koma mætti fuglin- um til heilsu á ný. Segja mátti að þau sætu í súpunni hjónaleysi, sem í galgopahætti fengu allsherjargoða ásatrúarmanna til þess að gefa sig saman á Austurvelli á sinni tíð. Úrskurðaði Hæstiréttur í mánuðinum að víglsan væri gild að lögum og yrði að fara um skilnað samkvæmt því. Saksóknari ríkisins úrskurðaði að rannsaka yrði „Skaftamálið" svonefnda nánar með dómsrannsókn fyrir sak- adómi, þar sem fyrri rannsókn væri ófullnægjandi. Um það bil 4700 manns sóttu um viðbótarlán til Húsnæðismálastofnunar og var áætlað að til afgreiðslu lánanna hefðu farið 250-300 milljónir. „Sprengja" féll niður á jólabókamar- kaðinn, þegar A.B. gaf út áður óþekkt ástarbréf Þórbergs Þórðarsonar til ga- mallar unnustu. Nefndist bókin „Bréf til Sólu.“ Urðu nokkrar deilur um útgáfu- rétt á bréfum þessum, en Mál og Menn- ing telst hafa útgáfurétt á ritum Þórbergs. Óvenjulegt innbrot var framið í Reykjavík, þegar brotist var inn í Hallgrímskirkju helgina 17.-18. des- ember og stolið þaðan bestu silfurmun- um kirkjunnar. Sem betur fór upplýstist málið áður en jólahátíðin gekk í garð og munirnir endurheimtir. Átti hér hlut að máli óreglufólk, sem bækistöð átti í húsi einu við Laugaveg. Því miður liðu jólin ekki hjá án skugga, því 11 ára gamall drengur brann inni í húsi við Austurbrún á aðfangadag. Þá lést piltur í húsi einu í Seljahverfi í Reykjavík á Þorláksmessu eftir átök við tvo pilta og var annar þeirra bróðir hans. í lok ársins urðu breytingar á rekstri Tímans með þeim hætti að nýtt hlutafé- lag, „Nútíminn“ undirbjó að taka við rekstri hans í stað Framsóknarflokksins. Vonast starfsmenn blaðsins til að blaðið megi enn eflast og batna við þessar skipulagsbreytingar á nýju ári. „BREFA- SPRENGJA” ÁBÓKA- MARKAÐI Mikið óveður gekk yfir landið um mánaðamótin nóvember-desember og sukku tveir bátar í Hafnarfjarðarhöfn í látunum. Rás 2 hóf sendingar sínar þann 1. desember og var meginefni dagskrárinn- ar létt tónlist. Þó yrði að finna nokkurn blæbrigðamun frá einni viku til annarrar þegar frá liði, að sögn Þorgeirs Ástvalds- sonar, forstöðumanns hinnar nýju stöðvar. Bóksalan fór heldur dræmt af stað eins og menn hafði grunað, en bók Jóhannesar Snorrasonar, „Skrifað í skýin“ tók þó skjótt forystuna og varð metsölubók ársins. Upplýst var að ekki færri en 615 nefndir höfðu starfað á vegum ríkisins árið 1982 og kostuðu þær ríkiskassann um 22 milljónir króna. Særður fálki fannst á svölum húss við Eskihlíð í Reykjavík. Varhonum komið í hendur Ævars Petersen, fuglafræðings, ■ Fálkinn úr Hlíðunum í höndum Ævars Petersen. (Tímamynd Róbert)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.