Tíminn - 01.01.1984, Blaðsíða 22

Tíminn - 01.01.1984, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 1. JANÚAR 1984 nútrminnt umsjón: Friðrik Indriðason — stiklað á stóru í poppannál ársins Janúar ■ Nútíminn vill óska öllum vinum og velunnurum, nær og fjær, gleðilegs nýs árs og þakka samstarfið á liðnu ári en hér á eftir fylgir poppannáll ársins 1983, eins og hann lítur út frá okkar bæjardyrum séð. Arið hófst rólega. menn voru svona fram í miðjan janúar að ná sér eftir timburmenn „stuðmanna-jólanna 1982“ en meðlimir þungarokkssveitarinnar Pass úr Mosfellssvcit gáfu sér tíma frá „eggjabakkaumhverfi" sínu til að vippa sér upp á skrifstofur okkar og gáfu þá m.a. út þá yfirlýsingu að þessi „bransi“ væri orðinn sjúkur af klíkuskap. Um miðjan mánuðinn getum við þess að Jakob Magnússon væri kominn með nýja hljómsveit í Los Angeles, Bone Symphony, sem nýlega gaf út sína fyrstu plötu. Hljómsveitin hefur raunar gist landið að undanförnu og haldið hér tónleika og sú breyting er orðin á henni aö Ragnhildur Gísladóttir er gengin í hópinn. Orghestarnir gáfu út sína fyrstu plötu í þessum mánuði, Konungarspaghettifr- umskógarins, en í umsögn sinni um hana sagði poppskríbent okkar bra m.a. að „framhlið albúmsins er frámunalega sví- viröileg skírskotun til neytandans..." Hljómsveitin DRON fékk vcrðlaun fyrir bestu frammistöu á Músíktilraun- um SATT ogTónabæjar. Vinsældakosn- ingar Nútímans eru í gangi allan mánuð- inn og má ekki á milli sjá hvor er í ökusætinu þar, Egó eða Stuðmenn. Febrúar Gullströndin andar, hóstar og hnerrar út mestan part þessa mánaðar, en þetta samstarf listafólks af öllum tegundum og gerðum þótti heppnast nokkuð vel. Lukkutröll og „alt-muligt" maður Nú- tímans Luigi poppfréttaritari brá sér á eina skemmtunina, eitthvað sem kallað- ist Mögulegt óverdós, hópur tónlistarm- anna með Bubba Morthens í broddi íylkingar...“ djöfull voru þeir speisað- ir, málaðir í bak og fyrir, hárið í alls konar litum og Bubbi í ballctt-búning.. Nútíminn frétti af því síðar að Bubbi hafi boðið Stjörnumessutoppum DV að koma með „Showið" á Broadway en þeir hafi koksað á því, ákvörðun sem auðvelt er að sjá út frá þeirra sjónarmiði því ef Mögulegt óverdós hefði troðið upp á þessari skemmtun hefði sennilega þurft að bera helming gesta út í vírkörf- um og hinn helmingurinn hefði setið eftir í varanlegu „kúltúrsjokki". Og fyrst við erum að tala um Bubba i þá tók hljómsveit hans Egó vinsælda- kosningar Nútímans með trompi, var kosinn vinsælasta hljómsveitin, plata þeirra „í mynd“ var kosin vinsælasta platan og þeir áttu 4 af 6 vinsælustu lögum ársins. Af öðrum merkum úrs- litum í vinsældakosningunum má nefna hið undarlega atriði að vinsælasta lagið samkvæmt kosningunum 'var Rabbar- bara Rúna, sennilega áhrif frá dreifbýl- inu. Stærstu poppfréttir mánaðarins og raunar alls ársins, ef út í það er farið, voru að Mezzolorte sló í gegn á Bret- landsmarkaði með lagi sínu Garden Party og sem dæmi um vinsældir plötu þeirra þá má vitna í Black Echo vikuritið sem í fcbrúar var með 12 tommu plötu Mezzo „Surprise surprise" í 4. sæti listans hjá sér næst á cftir plötum eins og „Thriller" með Michael Jackson, „Stre- etsounds" og „Powerlight" með Earth Wind & Fire. Mars Vclgengni Mezzoforte hélt áfram í mars, en í byrjun þess mánaðar náðu þeir inn á 61. sæti National-listansbreska með Garden party og á tveim vikum fóru þeir með lagið í 29. sæti. í byrjun þessa mánaðar gefur hljomsveitin 04U út sína fyrstu plötu 01 og segist ekki ætla að hætta fyrr en 02,'03, o.sv. frv. eða heilt fjós sé komið, en síðan hefur lítið heyrst í þcirri sveit. Spurnir berast af því að breska hljóm- sveitin Echo and the bunnymen muni verða með tónleika hér um sumarið. Þursaflokkurinn á 5 ára afmæli og heldur í tónleikaför um landið af því tilefni. Nútíminn bregður sér í heimsókn til hljómsveiarinnar KIKK sem síðar á árinu vekur á sér athygli. Hljómsveitin Puppets, síðar Deild 1, er stofnuð en sú útgerð stendur á brauðfótum frá upp- hafi... Apríl Möðruvallamunkarnir, stórsveitin frá Akureyri, leit inn í kaffi og kökur til Nútímans í byrjun apríl og gáfu þeir þá m.a. út þá yfirlýsingu að þeir hefðu „jukk,að saman í fieiri ár“ ... Fyrirtækið Mctro Musík er stofnað af Hallvarði Þórssyni umba og einhverjum óþekktum samstarfsaðila, en það lifði ekki út árið eins og fjölmargt annað í bransanum þ.á.m. hómósexúalræbblarokkhljóm- sveitin Húsgögn sem sendi okkur sæta mynd af sér í þessum mánuði en síðan ekki söguna meir. Þá fréttist af því að Rut Reginalds væri gengin í Fræbblana. Einhver fótur mun hafa verið fyrir þessu en hann í smærra lagi. Mezzoforte náðu fótfestu á Hollands- markaði í þesunt mánuði og fór litla plata þeirra í 19. sæti vinsældalistans þar, en sú stóra í 16. sæti listans. Fræbbblarnir hættu endanlega að vera til um svipað leyti, en þá hafði Valli gengið úr hópnum og hinir skipt um nafn, raunar fóru þeir í gegnum nokkur nafnaskipti áður en nafnið VA varð fyrir valinu og undir því nafni dóu þeir drottni sínum. Maí Kántrýstjarnan Hallbjörn Hjartarson gaf út sína þriðju sólóplötu í byrjun maí en hann lenti í nokkurri vinsældabombu hérlendis á þessu ári. Stofnaður var KR-Stuð klúbburinn eftir að kappinn kom sá og sigraði á Laugardalsvellinum í sumar auk fleiri atriða. Tónlistarviðburður mánaðarins var svo tónleikar bresku hljómsveitarinnar Fall í Austurbæjarbíói, en um þá sagði bra m.a.: „Einhver hefur fleygt því fram að með The Fall hafi rokktónlist dottið í gröfina og Mark E. Smith hafi messað við þá jarðarför. En þótt hann messi enn fannst mér tónleikarnir á föstudaginn gefa það til kynna að The Fall eigi ekki langt í gröfina þótt það sé langt í að hún gleymist“... Trommuleikaraskipti urðu í hljóm- sveitinni Egó, Magnús Stefánsson fór út en Jökull nokkur frá ísafirði kom inn í staðinn. Söngvari Pere Ubu, David Thomas hélt tónleika hér undir lok máimánaðar og tókst honum að skapa dúndur- stemmningu, einn uppá sviði með segul- band sér til aðstoðar, en skemmtun hans var fólgin í söng blönduðu léttu gríni, mest um eigið holdafar sem er allum- fangsmikið. Júní Þessi mánuður hófst á tónleikum næt- urklúbbadrottningarinnar Grace Jones í Sigtúni, hreint magnað „Show" fyrir landann og tvímælalaust í hópi stærstu fonlistarviðburða þessa árs. Konsert hennar hófst raunar ekki fyrr en rúmum klukkutíma of seint og var allt komið á suðupunkt í salnum, raunar átti maður von á að „hlaðan" yrði rifin til grunna, áður en Grace steig fram á sviðið. Hún hafði þó góð tök á áheryendum og varð kvöldið eftirminnilegt. Breska hljómsveitin Classix Nouvaux hélt tónleika hér í lok mánaðarins og voru hreint frbærir en áhuginn fyrir þeim ekki mikill. Laugardalshöllin þunn- skipuð er þeir hófu leik sinn, en pró- grammið var að miklu leyti byggt upp af gömlum „hit" lögum þeirra og mikið gert í að fá áheyrendur með í klapp og stapp. Þekktasta nýbylgjuhljómsveit fsl'ands ÞEYR hættu svo að starfa sem slíkir í lok þessa mánaðar en meðlimirnir hafa verið í hinu og þessu síðan.Um sama leyti stofnaði Valli í Fræbblunum nýja hljómsveit, Fitlarann á bakinu, sem ekkert hefur heyrst til síðan. JÚlí Ný hljómsveit, Frakkarnir, leit dags- ins ljós í Safari í byrjun mánaðarins, þá með Þorstein Magnússon sem gest. Síð- an hefur hún komist í annála poppsögu- nnar fyrir að vera ein óheppnasta hljóm- sveit landsins hvað plötuútgáfu snertir eins og kunnugt er af fréttum nýverið. Echo and the Bunnymen héldu svo tónleika st'na í Laugardalshöllinni.ásamt Egó, Deild 1 og Grýlunum. Þeir mættu með 4 aukahljóðfæraleikara en.....gíf- urleg keyrsla setti mestan svip á tónlist þeirra... trommuleikararnir, með góðri aðstoð bassaleikarans, lömdu hlustir áheyrenda sundur og saman og þar sem udnirritaður dinglaði á miðju gólfinu lá við að hávaðinn skæri í evrun...“ Undir lok mánaðarins kom svo platan The Boys from Chicago út með Þorláki Morthens og Ikarusgenginu en í dómi um þá plötu var hún kölluð „hljómplata ársins" einkum vegna þáttar Megasar á henni, en hann á fjögur lög á plötunni, þar á meðal krókudílamaðurinn sem er eitt fyndnasta lag sem maður hefur heyrt lengi. Ágúst Frekar daufur mánuður enda Nútím- inn í nokkurskonar sumarfríi svona svipað og ríflega helmingur frönsku þjóðarinnar. Borgin reyndi að endur- heimta fyrri „reisn" í tónlistarlífinu, en án verulegs árangurs. September Mánuðurinn hófst á því að hljómsveit- in Jonee Jonee fór óvænt í tonleikaför um Ítalíu, för sem Purrk Pillnikk hafði lengi staðið til boða en þeir ekki getað notfært sér þar sem þeir voru fyrir löngu hættir. Mezzoforte gáfu út nýja „live“ plötu í byrjun mánaðarins, tekin upp í Domin- ion leikhúsinu í London, rafmögnuð stemmning. Tónleikar „Við krefjumst framtíðar“ í Laugardalshöll í þessum mánuði voru svo tónleikar ársins og komust nálægt því að vera fullkomnir á köflum en aðalnúmer kvöldsins var breska pönk- hljómsveitin Crass. Leikhópurinn Svart og sykurlaust sá svo um að alltaf væri eitthvað í gangi en meðal þeirra sem komu fram voru Megas og Ikarus, vonbrigði, Kukl, Egó. Oktober Nokkuð annasamur mánuður hjá rokkurum landsins, Bubbi fer í tóleika- för um Austuriand, Baraflokkurinn bregður sér suður og heldur fonleika á höfuðborgarsvæðinu og Vonbrigði skreppa á unglingahátíð í Svíþjóð. Frétt- ir berast af því að hljómsveitin Dead Kennedys hafi áhuga á tónleikum hér og er „Við krefjumst framtíðar" hópurinn í sambandi við þá. Jóhann Helgason kemst í úrslit í alþjóðlegu söngvakeppn- inni í Castlebar á írlandi og nær síðan öðru sæti með aðstoð vinar síns Björgv- ins Halldórssonar. Hljomsveitin Foss er stofnuð upp úr Start og Svizz og hyggur hún á plötuút- gáfu. Ikarus-hópurinn fer aftur í stúdíóið að taka upp nýja lp plötu sem væntanlega kemur út á næsta ári. Kikk skiptir um trommuleikara. Nóvember Stórfreft þessa mánaðar er að Tappi tíkarrass hættir og eru meðlimir sveitar- innar óánægðir með frétt NT þess efnis, segjast vilja flá undirritaðan lifandi með ostaskera auk ýmiss annars sem ekki er hafandi eftir. Mike Pollock er rekinn frá Englandi sama dag og hann kemur þangað með Frakka-plötuna „1984“, en Ásgeir Bragason fer utan með hana í staðinn. Músíktilraunir SATT og Tónabæjar hefjast og það er hljomsveitin Þarma- gustur sem vinnur fyrstu umferð. Breska hljómsveitin Psychic Tv heldur (onleika hér og kvelja áheyrendur í tæpa tvo tíma, en á undan þeim kemur Kukl fram og er Einar Örn söngvari Kukl sendur um gervihnött á sviðið í MH þar sem tónleikarnir voru haldnir. Desember Mezzoforte kemur heim í jólamánuð- inum og heldur hér nokkra tónleika, en þeim finnst viðtökur íslendinga á þeim daufar. Úrslit Músíktilrauna eru á Kjar- valsstöðum og vinnur kvennahljómsveit- in Dúkkulísurnar keppnina að þessu sinni. Magnús Stefánsson kemur fram á lokakvöldinu með Egó en aðeins sem session maður. Frökkunum tekst að koma „1984“ út nú tveim dögum fyrir áramót og halda þeir veglega útgáfutónleika af þeim sökum. Hellingur af íslenskum og er- lendum plötum steypist yfir markaðinn rétt fyrir jól og seljast vel enda tók Albert sig til og felldi niður vörugjald af hljómplötum. Og þá er bara að skvetta í glasið og bjóða hið margumrædda ár 1984 vel- komið. -FRI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.