Tíminn - 01.01.1984, Blaðsíða 24

Tíminn - 01.01.1984, Blaðsíða 24
24 Mimm SUNNUDAGUR 1. JANÚAR 1984 fþróttaannáll 1983 ... Óskar Jakobsson ÍR var krýndur íþróttamaður ársins 1982 í byrjun janúar. Tímamynd G.E. Janúar ■ Gamla áriö kvaddi um það bil sem Kristján Harðarson langstökkvari setti íslandsmet í langstökki karla innanhúss, stökk 7,30 metra. Meira átti eftir að heyrast frá þessum kappa, og öðrum frjálsíþróttamönnum. Liverpool var hreint ósigrandi á Eng- landi. í fyrstu tveimur leikjum ársins bakaði liðið Arsenal og Notts County, samtals 8-2. Tjallinn hafði eiginlega ekkert til að vera spenntur yfir, Liver- pool hafði 10 stiga forystu þegar fjórir dagar voru liðnir af janúar. Getrauna- leikur Tímans lét þó ekki deigan síga, og sífellt fleiri heiðursmenn spreyttu sig fyrir Tímans hönd, enda kvöldverður í Þórskaffi og að lokum Wembley för í veði. Körfuknattleikssambandið fékk leið- indabréf frá Alþjóðakörfuknattleiks- sambandinu, þar sem Pétur Guðmunds- son var ekki talinn löglegur með íslensku áhugamannalandsliði, þar eð hann hafði leikið sem atvinnumaður í Bandaríkjun- um. Körfuboltamenn voru sárir. yfir þessu, sóttu málið á þingi Alþjóðasam- bandsins um sumarið, en ekki gekk. Pétur fékk þó að vera með í tveimur af þremur landsleikjum gegn Dönum í janúar, mest fyrir góðvild Dana. Víkingar urðu Reykjavíkurmeistarar í innanhússknattspyrnu eftir hörkuúr- slitaleik við Fram, KR vann í kvenna- flokki. íþróttafréttamenn krýndu íþrótta- mann ársins 1982 7. janúar, fyrir valinu varð Óskar Jakobsson kúluvarpari, stór og stæðilegur og vel að titlinum kominn. Óskar hélt strax eftir krýninguna til Bandaríkjanna til náms og æfinga, „klyfjaður eins og jólasveinn." af hangi- kjöti og ýmsu góðgæti til félaganna Einars Vilhjálmssonar og Odds Sigurðs- sonar sem dvöldu við sama skóla, og hangikjötið hafði góðar afleiðingar... Næstir í kjöri íþróttafréttamanna komu í réttri röð: Arnór Guðjohnsen knatt- spyrnumaður, Þorsteinn Bjarnason knattspyrnu og körfuknattleikskappi, Bjarni Friðriksson júdókappi, Oddur Sigurðsson hlaupari, Pétur Guðmunds- son körfutröll, Kristján Arason hand- boltamarkvarðarhrellir, Þórdís Gísla- dóttir háfleygasta kona á íslandi í orðsins fyllstu merkingu, Ingi Þór Jóns- son sundkappi, Lárus Guðmundsson knattspyrnumarkvarðahrellirogjón Páll Sigmarsson lóðalyftari. íslendingar sigruðu Dani í tveimur landsleikjum í körfubolta, en Danir fóru heim með einn sigur, í síðasta leiknum, úrslit 80-67, 84-77 og 77-88. Borðtennismenn urðu í þriðja sæti af fjórum í C-riðli Evrópukeppninnar í borðtennis, en keppt var í Guernsey. ÍA varð íslandsmeistari í knattspyrnu kvenna innanhúss, lagði Breiðablik að velli, en Valur varði í þriðja sæti. íslenska landsliðið í badminton varð í sjöunda sæti í B-Evrópukeppni landsliða í Basel, besti árangur frá upphafi. Markaregn í handboltanum, FH sigr- aði Fram með 23 marka mun, og vann 1. deildarkeppnina, tryggði sæti í IHF- Evrópukeppninni að ári, og virtist til alls líklegt í úrslitakeppni íslandsmótsins. Stjarnan komst í fjögurra liða úrslit á fyrsta ári í 1. deild, og Eyjólfur Bragason skoraði 19 mörk gegn ÍR. íslendingar fóru í Norðurlandareisu í handbolta, sigruðu Dani í fyrsta leik í Fredrikssund, 19-18 og þriðji útisigur íslands á Danmörku í handbolta frá upphafi staðreynd. Danir hefndu ósig- ursins strax daginn eftir, 23-20, einbeit- ing íslendinga brást. Mane Garrincha, einn frægasti knatt- spyrnumaður Brasilíu fyrr og síðar lést saddur lífdaga þar suðurfrá, og þjóðar- sorg þar. íslendingar héldu áfram Norðurlanda- reisunni, komu norður jil Finnlands og lögðu þar heimamenn í tvígang, fyrst stórt, svosmátt, 31-19 og 30-28. Leiðþar janúar. Áfram ísland. Febrúar Loks tapaði Hamborg í vestur þýsku Búndeslígunni, og Stuttgart með Ásgeir Sigurvinsson í broddi fylkingar hóf upp- leið sína. Íslendingar skelltu Norðmönnum í fyrri leiknum í Osló íhandboltareisunni, Norðmertn réðu ekkert við Alfreð Gísla- son og Brynjar Kvaran, 22-17. íslending- ar lofuðu sigri í síðari leiknum, og stóðu við þó naumt væri, 21-20. Stúdentar stöðvuðu tveggja ára sig- urgöngu Þróttar í blaki karla, sigruðu Þróttarana 3-2 í hörkuspennandi leik, langþráður draumur Stúdenta varð staðreynd, en Þróttarar engu að síður með pálmann í höndum í íslandsmótinu. Kristín Gísladóttir Gerplu sigraði fimmfalt á Unglingameistaramóti fs- lands í fimleikum, orðinn í sérflokki hér og átti eftir að láta meira að sér kveða á árinu. Kristján Harðarson langstökkvari stökk tvisvar 7,50 metra í langstökki á opna norska meistaramótinu í frjálsum íþróttum, og sigraði. Sigurður T. Sig- urðsson varð annar í stangarstökki á mótinu, stökk „aðeins" 4,60 metra, langt frá sínu besta. íslenskar handboltakonur veittu Eng- lendingum verðuga útrejð í handbolta- landsleik á Akranesi 18. febrúar, 28-14, og í síðari leiknum sem var í Reykjavík, fengu þær ensku enn verri útreið 25-9. Atli Eðvaldsson skoraði sitt níunda mark í v-þýsku deildinni 19. febrúar, og fleiri fylgdu á eftir. Liverpool, sem hafði fimmtán stiga forystu í 1. deild á Englandi um miðjan febrúar, féll úr bikarkeppninni með því að tapa fyrir botnliði Brighton, sem reyndar átti eftir að fara langt í þeirri keppni. B-keppnin í Hollandi hófst með pomp og pragt, um leið og Haukar úr Hafnar- firði tryggðu sér í fyrsta sinn sæti í úrvalsdeildinni í körfu. Spánverjar voru of sterkir fyrir íslend- inga í fyrsta leiknum, ísland tapaði 16-23 í beinni sjónvarpssendingu frá Hollandi, þökk sé Bjarna Fel. (Alltsvo fyrir send- inguna). Tapið gegn Spánverjum var hlutur sem reiknað var með, og íslendingar náðu sér vel á strik gegn Svisslendingum, sigruðu þá 19-15 og bjartar vonir um að komast í efri hluta B-keppninnar, með því að ná 2. sæti í C-riðli. En það sem ekki var reiknað með, var að Svisslend- ingar unnu Spánverja óvænt 23-22, og „stálu“ öðru sætinu af íslendingum með því að skora fleiri mörk í innbyrðis leikjum þriggja efstu liða. íslendingar voru mjög sárir yfir þessu, og unnu Belga „bara“ með þriggja marka mun í síðasta leik riðilsins. „Þetta er alltaf sama gamla svínaríðið", sagði Hilmar ' Björnsson landsliðsþjálfari, enda líklegt að íslendingar hefðu komist áfram ef mörk í leikjum liðanna þriggja gegn Belgum hefðu verið talin með. Á meðan handboltavonir hrundu í Hollandi, áttu Ásgeir Sigurvinsson og Atli Eðvaldsson stórleiki í V-Þýska- landi, og Ásgeir var valinn maður vik- unnar. Stenmark var í stuði á skíðunum, vann og varð þriðji. Leið svo febrúar. - Áfram Ásgeir. Mars Einar Ólafsson göngumaður á skíðum varð annar í 15 km göngu á HM lögreglumanna á Ítalíu í byrjun mars. Einar átti eftir að ganga mikið og vel á árinu. Handboltamenn héldu áfram barátt- unni í Hollandi, og var framganga þeirra nær óslitin sigurganga í neðri helmingi B-keppninnar. Búlgaría lá 24-26, Hol- land 17-23, Belgía 17-23, Frakkland 18-20, en ísraelsmenn náðu að „stela“ öðru stiginu af íslendingum, 22-22, eftir að ísland hafði haft yfir 10-2 í fyrri hálfleik. ísland því í 7. sæti í B-keppn- inni, og gátu íslendingar vel við unað, úr því lið okkar komst ekki í efri hlutann. Robert McField, stjarna Þórs á Akur- eyri í körfunni flaug heim án þess að kveðja, og sátu Norðanmenn eftir með sárt ennið. HK tryggði sér sæti í fyrstu deild í blaki, og Breiðablik varð íslánds- meistari í innanhússknattspyrnu karla, sigraði Þrott frá Neskaupstað í úrslitum. Bragi Garðarsson prentari féll út úr Getraunaleik Tímans eftir frækilega frammistsöðu, spáði rétt 7 sinnum í röð, borðaði í Þórskaffi og komst í úrslita- keppnina. Fram á sjónarsviðið kom Flosi Kristjánsson kennari, sem spáði grimmt í lok undankeppninnar. Ásgeir Sigurvinsson varð pabbi 7. mars, og var aðalstjarnan hjá Stuttgart um þessar mundir, „allt mjög lukkulegt hér“, sagði hann í viðtali við Tfmann. Þróttur Reykjavík varð íslandsmeist- ari í blaki 9. mars, sigraði Stúdenta í æsispennandi leik, 3-2. Nanna Leifsdótt- ir Akureyri hélt áfram óslitinni sigur- göngu í bikarkeppni Skíðasambandsins, og unglingalandsliðið í badminton tap- aði öllum leikjum sínum á NM unglinga. Þórdís Gísladóttir hástökkvari setti nýtt Islandsmet í hástökki, um leið og hún sigraði á Meistaramóti háskólanna í Bandaríkjunum, sem haldið var í Ala- bama. Þórdts stökk 1,88 metra, og hækkaði íslandsmetið um tvosentimetra innanhúss. „Ég sest að í Eyjum þegarég hætti, og ætla ekki út í pólitík", sagði Ásgeir Sigurvinsson knattspyrnumaður í Stutt- gart í ítarlegu opnuviðtali við Tímann 17. mars, og þá höfum við það. „Það er gaman að geta fylgt Þórdísi“ sagði Þráinn Hafsteinsson tugþrautar- maður 18. mars, en hann var þá nýbúinn aðsetja íslandsmet í tugþraut, 7718 stig. Valur varð íslandsmeistari í körfu- knattleik, sigraði Keflavík í síðasta leik sínum 88-87. Áður höfðu Valsmenn slegið Keflvíkinga út í undanúrslitum bikarkeppninnar, og sigruðu ÍR í úrslita- leik viku síðar. Valsmenn því tvöfaldir meistarar, og sigruðu að auki í Reykja- víkurmótinu 1982. Þróttarar urðu Bikarmeistarar í karla og kvennaflokki í blaki 19. mars, og íslandsmeistarar urðu Þróttarstúlkurnar líka í mars. Því tvöfalt hjá Þrótti í báðum flokkum, kvenna og karla. Jónas Tryggvason og Kristín Gísla- dóttir urðu íslandsmeistarar í fim- leikum, báru bæði af í sínum flokkum og voru vel að sigrinum komin, bæði glæsi- legir íþróttamenn. ÍR krækti í bronsverðlaunin í úrvals- deildinni í körfuknattleik, stóðu sig vel í síðari hluta keppninnar, eftir að hafa farið illa af stað og verið í verulegri fallhættu. Einar Vilhjálmsson spjótkastari setti nýtt íslandsmet í spjótkasti á frjáls- íþróttamóti t Texas, kastaði 85,12 metra, bætti tveggja ára gamalt met sitt um tæpa fjóra metra. Með þessum árangri hóf Einar frábæran feril á árinu. Óskar Jakobsson sigraði í kringlukasti á sama móti, og varð annar í kúluvarpi. Bjarni Friðriksson varð íslandsmeist- ari í opnum flokki karla í júdó, fimmta árið í röð. Bjarni hafði mikla yfirburði, eins og reyndar í flestum mótum á árinu. Margrét Þráinsdóttir félagi Bjama úr Ármanni sigraði í kvennaflokki. Phil Mahre og Tamara McKinney frá Bandaríkjunum urðu heimsbikarmeist- arar á skíðum, en Ingimar frændi okkar Stenmark varð sigurvegari í svigi. Valsmenn urðu bikarmeistarar í körfuknattleik 14. mars, sigruðu ÍR í úrslitum 78-75. KR varð bikarmeistari í kvennaflokki, enda langbesta lið íslands t" kvennakörfubolta á síðasta keppnis- tímabili, varð líka íslandsmeistari. Sex íslandsmet fuku á Meistaramóti íslands í sundi, þau Ingi Þór Jónsson Akranesi, Ragnheiður Runólfsdóttir Akranesi og Tryggvi Helgason frá Sel- fossi settu tvö fslandsmet hvert. íslendingar léku landsleiki við Færey- inga í blaki í lok mars, þrjá í karlaflokki. og þrjá í kvennaflokki. Þar afrekuðu íslendingar að tapa í fyrsta sinn fyrir Færeyingum í karlaflokki, fyrsta leiknum 1-3. íslendingar hefndu ósigurs- ins daginn eftir 3-1, og unnu 3-2 í síðasta leiknum. Stúlkurnar höfðu hins vegar af að sigra í öllum þremur, 3-1,3-2 og3-2. Bob Paisley framkvæmdastjóri Liver- pool fékk eina skrautfjöður enn í hattinn. er Liverpool varð deildabikar- meistari á Englandi 26. mars. Liverpool vann erkimótherjann, Manchester Unit- ed 2-1 eftir framlengingu. Baldur Borgþórsson lyftingamaður setti Norðurlandamet ungiinga í 90 kg flokki í ólympískri tvíþraut, snaraði 143,5 kg. Leið svo mars, áfram Einar. Apríl Aprílmánuður hófst með Landsmóti á Skíðum, í 5eljalandsdal á ísafirði. Mótið heppnaðist vel, eftir að veðurguð- ir höfðu tafið um einn dag. Nanna Leifsdóttir frá Akureyri var stjarna mótsins, sigraði þrefalt, í svigi, stórsvigi ■ Nanna Leifsdóttir Akureyri bar höfuð og herðar yfir aðrar skíðakon- ur á árinu. Tímamynd Guðmundur Sveinsson og Alpatvíkeppni. Guðrún Pálsdóttir frá Siglufirði og Stella Hjaltadóttir frá ísafirði voru einráðar í kvennaflokkum í göngu kvenna, Einar Ólafsson ísafirði og Finnur V. Gunnarsson Ólafsftrði í göngu karla. Þorvaldur Jónsson frá Ólafsfirði vann í stökki, en Árni Þór Árnason Reykjavík í Alpatvíkeppni og svigi karla. Guðmundur Jóhannsson frá ísafirði sigraði í stórsvigi karla. Tómas Guðjónsson KR varð fjórfald- ur íslandsmeistari í borðtennis, sigraði í sveitakeppni með sveit KR, í einliðaleik, í tvíliðaleik með Hjálmtý Hafsteinssyni og tvenndarleik með Ástu Urbancic. Ragnhildur Sigurðardóttir UMSB varð íslandsmeistari í einliðaleik kvenna og í tvíliðaleik kvenna ásamt Kristínu Njáls- dóttur UMSB. Stuttgart og Ásgeir Sigurvinsson féllu úr v-þýsku bikarkeppninni, töpuðu fyrir Fortuna Köln, sem lék svo til úrslita við hitt Kölnarliðið, FC. Liverpool hafði 16 stiga forskot í Englandi í byrjun apríl. Islensku unglingalandsliðin í blaki héldu til Færeyja og léku þar þrjá landsleiki hvbrt. Islendingar unnu þar sína fyrstu unglingalandsleiki í báðum flokkum, stúlkurnar sigruðu í öllum leikjunum 3-0, en piltarnir sigruðu í tveimur fyrstu leikjunum 3-1 og 3-1, en töpuðu síðasta leiknum 2-3. Örninn tryggði sér sigur í kvenna- flokki í sveitakeppni í borðtennis, og rauf þar með sigurgöngu UMSB, en þessi lið berjast jafnan um fslandsmeist- aratitilinn. Kristín Magnúsdóttir TBR varð þre- faldur íslandsmeistari í badminton 10. apríl, vann í einliðaleik, tvíliðaleik ásamt Kristínu Berglindi TBR og í tvenndarleik ásamt Brodda Kristjáns- syni TBR. Broddi vann einnig í einliða- leik karla, en í tvíliðaleik karla sigruðu Sigfús Ægir Árnason TBR og Víðir Bragason ÍA. íslensku stúkurnar í landsliðinu í handbolta töpuðu í tvígang fyrir þeim dönsku í apríl. Fyrst í fyrri leik liðanna í undankeppni HM í handknattleik 17- 21, og síðan 15-25 í vináttuleik. Landsliðið í körfubolta vann pressulið 91-73 í Keflavík 11. apríl, í undirbún- ingsleik fyrir NM í körfubolta. Landslið- ið náði síðan þriðja sæti í NM, eftir ■ Þróttarar unnu allt sem hægt var að vinna í blakinu, og kvennaflokkurinn vann líka tvöfalt. Tímamynd Róbert fþróttaannáll 1983 ...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.