Tíminn - 04.01.1984, Blaðsíða 20

Tíminn - 04.01.1984, Blaðsíða 20
Opið virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 H HEDD Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar 191)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR 8e ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 abriel & w HÖGGDEYFAR QJvarahlutir .S3SS Hamarshöfða 1 Kitstjorn 86300 — Auglysingar 18300- Afgreiðsla og askrift S63ÖO - Kvoldsimar 86387 og 86306 Miðvikudagur 4. janúar 1984 Eldur í íbúðarhúsi í Borgarnesi: HEFÐUM VERIÐ S0FANDI“ ■ „Við vorum nýkomin inn í rúm þegar okkur fannst við heyra einhvcrja sinelli frammi og kíktum því fram. Forstofan var þá full af reyk svo við flýttum okkur út með börnin“, sagði Þóra Þorgeirsdóttir er Tíminn spurði hana um elds- voða er varð ■ húsi hennar að Skúlagötu 19 í Borgarncsi í fyrrinótt. Þóra sagði að eldurinn hefði komið upp í kjallara hússins um hálf eitt leytið. Álitið væri að kviknað hefði í út frá rafmagni. Húsið sagði hún gamalt timburhús, einangrað eins og gerðist á árum áður og hefði því örugglega verið fljótt að fuðra upp. Hefði því örugg- lega getað farið illa ef eldurinn hcfði komið upp síðar um nóttina og fjölskyldan vcrið sofnuð. Hún kvað alveg til sóma hyað slökkviliðsmenn í Borg- arnesi hcfðu verið fljótir að bregðast við og síðan að ráða niðurlögum eidsins. Töluverð- ar skemmdir hefðu orðið í íbúð- inni af reyk og vatni, en eldur- inn verið slökktur áður en hann náði að brenna sig alveg ' gcgnum gólfiö. Þóra kvað gólf- ið þó það mikið brunnið að setja verði nýtt gólf í húsið. Þau Þóra og maður hennar Hilmar Sigurðsson eiga 2 börn eins og tveggja ára. Þóra sagði þau hafa fengið inni hjá tengdaforeidrum hennar. „Og allir vinir okkar og kunningjar vilja líka allt fyrir okkur gera“. -HEI Fulltrúar Framsóknar- flokksins í borgarstjórn leggja til lækkun útsvars: ÚTSVAR LÆKKI UM100 MILU. — álagningin verði 10% í stað þeirra 11% sem gert er rád fyrir í fjár- hagsáætlun TTVerðlagning áfengis og tóbaks á að lúta lögmáli almennra viðskipta” segir Albert Guðmundsson, fjármálaráðherra ■ Þeir eru ekki margir klukkutímarnir sem við njótum sólar á degi hverj- um svona í svartasta skammdeginu. Við getum þó giaðst yfir þvi að hún er farin að hækka á lofti og hver dagur er örlítið lengri en sá næsti á undan. Tímamynd Róbert Munnleg greinar- gerð um líkrann- sókn komin — piltunum tveim- ur sleppt úr gæslu- varðhaldi 'W Piltarnir tveir, sem sátu í gæsluvarðhaldi eftir að tvítugur maður lést eftir átök, voru látnir lausir á mánudagskvöld. Þeir voru upphaflega úrskurðaðir í varðhald til 25. janúar. I samtali við Tímann sagði Þórir Oddsson vararannsóknar- lögreglustjóri að rannsókn væri ekki lokið að fullu enn. Að vísu lægi fyrir munnieg greinargerð um líkrannsókn en endanleg niðurstaða lægi ekki enn fyrir, og á meðan væri ekki hægt að tjá sig formlega um rannsóknina. GSH ■ „Ég hef hugsað mér að lára verð á innfluttu áfengi og tóbaki lúta lögmálum viðskipta almennt. Þannig verður verð hverrar sendingar sem hingað kemur reiknað sérstaklega og síðan verður lögð á sú álagning sem ákveðin er hverju sinni - sú sama á allar tegundir," sagði Albert Guðmundsson, fjármála- ráðherra, í samtaii við Tímann í gær. - Eru þá þessar allsherjar hækkanir á verði áfengis og tó- baks úr sögunni? „Þetta hefur verið þannig til skamms tíma að áfengis og tó- baksverð hefur fylgt bygginga- vísitölu. Það leiddi til þess að einstaka tegundir voru seldar úr áfengisverslunum á lægra verði en innkaupsverði. Það sjá allir að slíkt nær ekki nokkurri átt,“ sagði Albert. Hann sagði ennfremur að ef þróunin í gengismálum hér á landi yrði lík því sem verið hefur undanfarna mánuði, mætti búast við að verð á áfengi og tóbaki yrði nokkuð stöðugt því inn- kaupsverð breyttist yfirleitt ekki mikið. Hins vegar myndu þessar vörur hækka í verði miðað við íslensku krónuna, ef gengi henn- ar félli. „Þetta lýtur bara sömu lögmálum og annar innflutning- ur,“ sagði Albert. -Sjó. ■ Borgarfulltrúar Framsókn- arflokksins lögðu fram breyting- artillögu við tjárhagsáætlun borgarinnar á borgarráðsfundi í gær sem fól í sér að útsvar yrði lækkað um 100 milljónir, eða úr 1090 miiljónum nettó og í 990 milljónir og er þá miðað við að álagningin verði 10% í stað þeirra 11% sem gert er ráð fyrir i fjárhagsáætlun borgarstjórnar fyrir þetta ár. Kristján Benediktsson borg- arfulltrúi Framsóknarfiokksins sagði í samtali við Tímann að það sem lægi til grundvallar þess- ari tillögu þeirra væri að þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram á Alþingi fyrir hátíðarnar héfði í því verið miðað við áætlun Þjóð- hagsstofnunar sem spáði að tekjuaukning almennings á milli áranna 1983 og '84 verði um 20%...“ „þessvegna er mikil- vægt að alþingi og sveitarfélög hækki ekki skatta umfram þetta mark því þá eykst greiðslubyrö- in“ sagði Kristján. „Þegar borgarstjórn kom fram með sína fjárhagsáætlun var ætl- unin að Itækka tekjur um meir en 40% en útgjöld hinsvegar ekki meir en 20%. Til að greiðslubyrðin þyngist ekki á næsta ári þyrfti útsvarsálagningin því að vera 9%“ sagði Kristján. Hann sagði ennfremur að í lækkandi verðbólgu, eins og við búum við nú, þyrfti að lækka álagninguna því tekjuaukningin er minni og því erfiðara að standa skil á greiðslum sem mið- aðar eru við tekjur síðasta árs. í mikilli verðbólgu væri þetta svo öfugt. -FRI dropar Nýtt líf fæðir af sér tvær kvikmyndir ■ Þráinn Bertelsson og Jón Hermannsson sem stóðu að kvikmyndinni Nýtt líf sem gengið hefur vei undirbúa nú töku tveggja nýrra mynda á þessu ári og slefna þeir að því að frumsýna þær báðar fyrir næstu áramót, að því er kemur fram í nýjasta tölublaði tíma- ritsins Myndmál. Önnur myndin gengur undir vinnuheitinu Heilbrigt líf og mun ekki vera ósvipuð dúettin- um í Nýtt líl og gengur út á rekstur heilsuhælis og uppá- komur sem verða þar innan veggja. Hin myndin hefur hlot- ið nafnið Skammdegi og segir í henni frá dularfullum atburð- um á sveitabæ nútímans og gerist að vetri til. Ekki sama stór- iðja og iðnaður ■ Stjórnmálamenn hafa nú um margra ára skeið rifist um möguleika á hækkun raforku- verðs til stóriðju, sérstakiega með Islenska álfélagið í huga, óg verið að ræða hækkun um nokkur „mills“. Þeir sem bjartsýnastir eru telja mögu- leika á að fá 15-20 mills fyrir raforku til slíkra stórnotenda. Nýlega lögðu nokkrir alþing- ismenn fram tiliögu tii þings- ályktunar um könnun á or- sökum hins háa raforkuverðs tii almennings, hins vegar er ekkert hugað að orkuverði til kílóvattstund rafma kostnaður vegna olíu unnar er jafnað tii ra verðs. Krummi .. . ...hcyrði kunningja segja þeg- ar hann reif fyrst af dagatali nýja ársins: „Nei, hvað varð af 1“...! almenns atvinnurekstrar. í nýj- asta fréttabréfl Landssam- bands iðnaðarmanna eru nefnd dæmi um hátt raforkuverð til fyrirtækja vegna vélanotkun- ar. Þannig greiða iðnfyrirtæki í Keflavík ríflega 370 mills fyrir kílóvattstundina. A Selfossi greiða fyrirtæki í brauð- og kökugerð um 120 mills fyrir kílóvattstundina vegna notkunar ofna. Ef þessi fyrir- tæki væru á hinn bóginn með olíukynnta ofna, þyrftu þau að eins að greiða um 60 mills fyrir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.