Tíminn - 04.01.1984, Blaðsíða 2

Tíminn - 04.01.1984, Blaðsíða 2
Borgarfulltrúar Framsóknar- flokksins leggja til ad gert verði sérstakt átak til endurbóta og viðhalds eldri húsa í borginni: Borgarstjórn samþykki að verja 500 þús. kr. til þess ■ Borgarfulltrúar Framsóknarflokks- ins lögðu fram tillögu á síðasta borgar- ráðsfundi sem felur í sér að sérstakt átak verði gert á næsta ári til endurbóta og viðhalds eldri húsa í borginni en tillagan hljóðar svo: „Borgarstjórn samþykkir að beita sér fyrir að gert verði sérstakt átak á næsta ári til endurbóta og viðhalds eldri húsa í borginni og stuðla þar með að betri nýtingu þeirra og minni hitunarkostnaði. Til að vinna að þessu verkefni verði sett á laggirnar samstarfsnefnd scm í eigi sæti fulltrúar frá hinum ýmsu greinum byggingariðnaðarins, Húsnæðisstofnun ríkisins, Rannsóknarstofnun byggingar- iðnaðarins og Arkitektafélagi íslands. f>á skal borgarverkfræðingurinn í Reykjavík eða fulltrúi hans eiga sæti í nefndinni. Til að vinna að framan- greindu verkefni samþykkir borgar- stjórn að verja 500 þús. kr. á árinu 1984.“ í greinargerð með þessari tillögu segir m.a. að margt virðist benda til þess að um verulegan samdrátt geti orðið að ræða í nýsmíði húsa í Reykjavík, eftir- spurn eftir lóðum sé dræm og þrengra um fjárhag hjá mörgum en verið hefur á undanförnum árum. í Reykjavík býr fjölmenn stétt bygg- ingariðnaðarmanna og mikils um vert að ekki komi til atvinnuleysis meðal þeirra þótt nýbyggingar dragist saman. Til að koma í veg fyrir það má m.a. leggja aukna áhersiu á endurbætur og viðhald eldra húsnæðis í borginni enda víða þörf á lagfæringum. Mörg af eldri húsum bæjarins eru illa einangruð og þurfa því mikið vatn til upphitunar. Ef hægt væri að minnka vatnsnotkun kæmi það sér vel fyrir Hitaveituna sem þegar er komin í þrot með vatnsöflun. -FRI Óveður hamlar snjómokstri á Norðurlandi og Vestfjörðum: TTVedrið kolvit- laust og ekkert hægt að gera” — segir Bjarni Sigurðsson, hjá Vegagerðinni á ■ Fram eftir degi í gær var þvílíkt óveður á Norðurlandi, víðast á Vest- fjörðum og austur á firöi-, að ekki þótti eigandi við neinn snjómokstur á þeim stöðum, að sögn manna hjá Vegagerð ríkisins. Hins vegar voru helstu vegir á Vesturlandi og Snæfellsnesi mokaðir i gær. Veður fór síðan að ganga niður undir kvöld í gær og var búist við að hægt yrði að byrja mokstur nyrðra nú með inorgninum. Aætlaö cr að moka inargar leiðir í dag. Óveður hindraði allt flug framan af degi í gær, en síðdegis rættist úr. Að sögn Sæmundar Guðvinssonar hjá Flug- leiðum tókst að flytja lang flesta þeirra um 1.000 manns cr áttu bókað hjá félaginu í gær. í gærkvöldi var búist við að hægt yrði að fljúga 13 ferðir, til allra áætlunarstaða, en 17 ferðir höfðu verið fyrirhugaðar. Til Akureyrar var fyrsta ferð kl. 19 í gærkvöldi og búist við að hægt yrði að fljúga 3-4 ferðir þangað seinna um kvöldið. Akureyri „Það byrjaði að hvessa og skafa hér upp úr kl. eitt s.l. nótt og hefur verið kolvitlaust veður fram eftir degi í dag og ckkert hægt að gera. Það hefur ekki þýtt að reyna að moka í dag vegna skafrenn- ings“, sagði Bjarni Þ Sigurðsson hjá Vegagerðinni á Akureyri. Sagði hann allar leiðir út frá Akureyri ófærar. Ekki taldi hann þó að margir hefðu lent í erfiðleikum af þessum sökum - flestir hefðu sjálfsagt reynt að halda sig heima. Á Akureyri voru menn í gærkvöldi að búa sig undir að geta byrjað mokstur snemma í dag. „Hann skellti þessu yfir í morgun, norðaustanátt og snjókomu. Snjór hefur ekki verið mjög mikill, en aðallcga dimmviðri sem hamlað hefur för manna“, sagði viðmælandi okkar hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði. Eystra birti einnig upp síðdegis og átti að reyna að aðstoða rútu yfir Fagradal til Egilsstaða, í sambandi við flug þangað. -HEI Fimm bílar fuku út af á sama vegaspottanum ■ „Það koma alvcg geysilegir byljir á þessum spotta ef hann er á vissri átt. Síðan var alveg glcrhált þarna á veginum" sagði Ingólfur Waagc lög- regluvarðstjóri á Höfn í Hornafirði í samtali við Tímann í gær en 5 bílar, þar á meðal lögreglubíll, fuku út af veginum á 70-100 metra spotta milli bæjanna Haga og Dynjanda. Engin meiðsl urðu á mönnum. Ingólfur sagði að lögregla hefði farið manni tii að'stoðar sem missti bíl sinn út af veginum. Þrátt fyrir að lögreglu- bíllinn væri járnaður á öllum hjólum fauk hann út af veginum í einni hviðunni og valt heilan hring. Bíllinn var þó ökufær á eftir. Skömmu seinna fuku þrír bílar til viðbótar út af veginum á þessurn kafla og var honum þá lokað þar til veðrið lægði, seinni partinn í gær. GSH Krakkarnir leika sér í jólafríinu ■ Fólk á þessum aldri er hreint ekki að ergja sig yfir því þótt hann snjói svolítið - nema að síður sé. Hið lang- þráða jólafrí er nú að verða langt komið og bálkestimir sem margir krakkar á þessum aldri notuðu frístundirnar til að safna í og byggja upp í des- ember þjónuðu tilgangi sínum með því að brenna til grunna á gamlárskvöld. Hvað er þá betra við tímann að gera þessa síðustu daga áður en skólinn byrjar á ný heldur en að leika sér í snjónum. Sumir draga fram skíðin, aðrir byggja nú snjóhús og snjókalla og enn aðrir efna til snjóboltabar- daga, eða einfaldlega kasta þeim í þá sem eiga leið framhjá hinum skotglöðu köppum. - Tímamynd Róbert Þjóðleikhúsið: RÆÐUR TVO LEIKRITA- HÖFUNDAíHÁLFT AR ■ Þjóðleikhúsið hefur ráðið rithöfund- ana Sigurð Pálsson og Nínu Björk Árna- dóttur til starfa fyrir árið 1984; Sigurð fyrstu 6 mánuði ársins og Nínu Björk síðari hluta ársins. Sigurður Pálsson fæddist árið 1948 á Skinnastað í N-Þingeyjarsýslu. Eftir stúdentspróf frá Mcnntaskólanum í Reykjavík stundaði hann nám í leikhús- fræðum og bókmenntum við Sorbonne háskólann í París og lauk þaðan Magist- crprófi og DEA prófi, þ.e. fyrri hluta doktorsgráðu. Einnig lauk hann prófi í kvikmyndaleikstjórn frá CLCF kvik- myndaskólanum í París. Sigurður hefur stundað kennslustörf í leikhúsfræðum ogfengist við leikstjórn, m.a. ísjónvarp- inu. Sigurður hefur sent frá sér þrjár Ijóðabækur og samið þrjú leikrit fyrir Nemendaleikhús Leiklistarskóla fslands. Þá hefur hann einnig þýtt all- mörg leikrit eftir franska og spænska höfunda sem sett hafa verið á svið hér á landi. Nína Björk Árnadóttir fæddist árið 1941 að Þóreyjarnúpi í V-Húnavatns- sýslu. Hún stundaði nám við Leiklistar- skóla Leikfélags Reykjavíkur og fram- haldsnám í Danmörku. Nína Björk hefur unnið margvísleg störf meðfram ritstörfum en‘ hún hefur sent frá sér 6 Ijóðabækur og 8 leikrit hennar hafa verið sýnd á sviði og í sjónvarpi. Að auki hefur hún þýtt skáldsögur, leikrit og ljó. GSH

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.