Tíminn - 04.01.1984, Blaðsíða 13

Tíminn - 04.01.1984, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1984 17 heimilistfminn ■í veglegu riti Neyt- endasamtakanna, sem nýlega er komið út í tilefni 30 ára afmælis samtakanna, eru fjöl- margar fróðlegar grein- ar um hið aðskiljanleg- asta efni, eins og áður hefur verið vikið að hér á síðunni. Þar er m.a. að finna grein eftir Ást- hildi Erlingsdóttur, formann Launamála- ráðs BHM, sem ætti að vekja til umhugsunar. Ásthildur hefur mál sitt á því að skýra frá, að áhugi hennar á neytendamálum hafi vaknað þegar hún flutti heim árið 1964 eftir nokkurra ára búsetu í Dan- mörku. Þá var í Danmörku risin nokkurs konar neytendavakning og voru málefni neytenda mikið til umræðu þar í landi Ásthildi þótti því mikil viðbrigði að kynnast ástandinu hér á landi á nýjan leik eftir fjarveruna. í greininni drepur hún þó aðeins á fáein atriði, sem henni komu spánskt fyrir sjónir þá, þ.e versl- unar- og bankaþjónustu ásamt verðlagi. Hádegislokun — vankunnátta afgreiðslu- fólks - engin biðraða- menning Hádegislokun verslana hafði Ásthild- ■I ■* ■ Vissulega veita bankar á íslandi almenningi margvíslega þjónustu, en sé þjónustan við hinn almenna viðskiptavin hér borin saman við þá, sem hann nýtur í Danmörku, vantar enn mikið á að við njótum sömu aðstoðar. Hefur lítil breyting orðið á rétti neyt- enda og þjónustu við þá á sl. 20 árum? Varðandi þá þrjá málaflokka, scm Ásthildur tekur aðallega til umfjöllunar í grein sinni, sýnist henni sáralítil breyt- ing hafa orðið á. Hádegislokun verslana sé síður en svo úr sögunni og númera- kerfi enn lítið notað við afgreiðslu. Ekki sé enn krafist sérþekkingar til afgreiðslu- starfa. Vörumerkingu sé enn víða ábóta- vant, svo og dagstimpluninni, og engin teljandi breyting hafi enn orðið á þjón- ustu bankanna við einstaklinga. Og síðast en ekki síst sé ekki vafamál, að vöruverð hér sé almennt miklu hærra en vera þyrfti. Telur hún þar einkum koma til tvær ástæður. Óhagkvæmt fram- leiðslu-, dreifingar-, og sölukerfi land- búnaðarafurða og mjög háa óbeina skatta á öllum neysluvörum. Nátt- sokkar — inni- skór Passa stærð 37-43 ■ f eitt par þarf 100 g. af garni, í náttsokka fínna garn og prjónar nr. 4, í inniskóna grófara garn og prjónar nr. 6. Svona gerum við: Fitjið upp 3 1, og prjónið stroff, aukið út á báðum endum á hverjum prjóni um eina lykkju þar til komnar eru 39 1. (grófara garnið) eða 55 1. (fínna garnið). Prjónið nú 8-10 cm áfram, en fellið af eina lykkju á báðum endum hvers prjóns, þar til 3 1. eru eftir. Fellið þá þær allar af. Brjótið saman um mitt stykkið og saumið saman hælinn og ofan á ristinni. Heklið nú lykkjur umhverfis opið, eins og sýnt er á ur ekki vanist í Danmörku og þótti hún heldur óþægileg, þar sem hún varð að gera sér sérferð síðari hluta dags til að kaupa daglegar nauðsynjar til heimilis- ins, í stað þess að nota sér ferðina heim úr hálfsdagsstarfi sínu. í verslunum var (og er) óþekkt að fólk skipi sér í rétta röð eftir afgreiðslu og voru þetta við- brigði frá því að notfæra sér númerakerfi það, sem algengt var í verslunum í Danmörku. Þá þótti Ásthildi fákunnátta afgreiðslufólks áberandi, en í Danmörku hefur afgreiðslufólk í verslunum nám í faginu að baki. Vöruúrval á þeim tíma var lítið í verslunum hérlendis, vörumerking lítil og léleg og dagstimpl- un óþekkt. Á þessum atriðum hefur sem kunnugt er orðið nokkur breyting. Bankaþjonusta við hinn almenna viðskiptavin í Danmörku segir Ásthildur banka aðallega byggja starfsemi sína á við- skiptum við almenning, sem þegar allt komi til alls, sé lang hagkvæmasti og öruggasti viðskiptavinur bankanna. Þessu sé þveröfugt farið hér á landi, þar sem viðskipti við almenning virðist vera eitur í beinum bankastjóra. Ásthildur tiltekur sem dæmi um þjónustu banka í Danmörku við viðskiptavin eftirfarandi: „Sem dæmi um þá þjónustu sem bankar veita í Danmörku langar mig að greina frá því þegar íslenskur vinur okkar var að byggja sér hús. Hann var búinn að safna töluverðum lausa- skuldum eins og títt er um húsbyggjend- ur sem eru ekki búnir að fá föst lán. Viðskiptabanki hans sá um greiðslur vaxta og afborgana af öllum þessum skuldum (til byggingavöruverslana o.fl.), en þetta er þjónusta sem bankar í Danmörku veita. Þar kom að hann var búinn að yfirdraga talsvert ávísanareikn- ing sinn. Þá var einn góðan veðurdag hringt til hans og honum bent vinsamlega á að refsivextirog annar fjármagnskostn- aður væri orðinn of mikill fyrir hann. Bankinn stakk upp á að hann tæki hjá þeim bráðabirgðalán, borgaði með því lausaskuldirnar og jafnaði ávísanareikn- inginn. Vinur okkar þáði boðið, borgaði síðan bráðbirgðalánið niður með jöfnum mánaðarlegum afborgunum og sparaði þannig dálaglega fjárhæð." Vöruverð að öllu jöfnu þriðjungi hærra hér Vöruverð hér segir Ásthildur hafa verið mun hærra en í Danmörku, og skipti þá engu hvort um innlenda eða innflutta vöru væri að ræða. Kaupmáttur ráðstöfunartekna þeirra hjóna hafi verið mun lakari hér en í Danmörku, en þeirra tekna hefði verið aflað við sambærileg störf. Hefur breyting ordið til góðs hér á landi? Ásthildi líst svo á að neytendamál þróast í rétta átt hér á landi á sl. 20 árum, en þó vanti talsvert á að íslenskir neytendur njóti enn þess réttar og þjón- ustu, sem danskir neytendur bjuggu við þegar fyrir 20 árum. Bendir hún á að þar komi margt til, m.a. að á vegum danska ríkisins séu starfræktar ýmsar stofnanir til þess að sjá um neytendamál. T.d. geti neytendur skotið ágreiningsmálum sín- um til „Forbrugerklagenævnet" og feng- ið úr þeim skorið þar. Þar í landi hafi líka verið stofnað sérstakt embætti, „Forbrugerombudsmanden“, 1975 og sé því embætti skylt að fylgjast með að farið sé að lögum í verslunar- og við- skiptamálum (hvort heldur er vegna kæru, beiðni eða eigin frumkvæðis). BROT teikningu nr. 2, þannig, að til skiptist eru heklaðar 2 loftlykkjur og 1 stuðull ,eða 1 föst lykkja í brúnina. Heklið band eða snúið saman, hálfan metra að lengd, til að þræða í gegnum lykkjurnar og binda saman ofan á ristinni. Ef þið ætlið að nota skóna sem inniskó, saumið þið sóla undir úr leðri eða mokkaskinni. Sníðið sólana á þann hátt að teikna eftir útlínum fótarins, sem skórinn á að passa, eða passandi skósóla. Saumið sólana á með hnappagatatvinna og leðurnál. Á meðfylgjandi mynd hafa náttsokkarnir verið punt- aðir rr>eð litlu hekluðu blómi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.