Tíminn - 04.01.1984, Blaðsíða 7

Tíminn - 04.01.1984, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 19« ■ Artyk litli, sem er sex ára, teflir hér erflða skák við skákmann í eldri flokk, en hann leggur sig allan fram og grettir sig í ákafanum við að sjá út eitthvert nýtt bragð til að snúa á andstæðinginn. ■ UM ÁRAMÓTIN tók gildi í Svíþjóö löggjöf, sem hefur verið mesta deilumál þar í landi um margra ára skeið. Hún mun líka halda áfram að vera það. Stjórnarandstöðu- flokkarnir, þ.e. íhaldsflokkur- inn, Miðflokkurinn og Þjóðar- flokkurinn (Frjálslyndi flokkur- inn) hafa lýst yfir því, að það verði aðalmál þeirra í næstu þingkosningum að fá hana fellda úr gildi. Þingkosningar eiga að fara fram í Svíþjóð haustið 1985, eða eftir rúmlega eitt og hálft ár. Löggjöf þessi var endanlega samþykkt í þinginu rétt fyrir jólin með 164 atkvæðum sósíal- demókrata ámóti 158atkvæðum áðurnefndra þriggja flokka. Kommúnistar, sem eru 20 talsins á þingi, sátu hjá eftir að felld hafði verið tillaga frá þeim, sem gekk miklu lengra. Nokkrir þingmenn voru fjar- verandi, en samið hafði verið um fjarveru þeirra á þann hátt, að hún hafði ekki nein áhrif á úrslitin. ■ Ulf Adelsohn, formaður íhaldsflokksins, Bengt Westerberg, formaður Þjóðarflokksins og Thorbjörn Fálldin, formaður Miðflokksins. SEX ÁRA GAM- ALL „SKÁK- MEISTARI“ ■ Það var frekar efl heldur en undrun, sem greip um sig meðal félaga í skákklúbbi, í skóla nokkrum í Askhabad, höfuðborg Turkmeníu, er Artyk Ovezov, sem er 6 ára tók þá ákvörðun að tefla fjöltefli við 20 manns í einu. Og það var ekkert undar- legt, þó að efi væri á ferð- inni, þar sem Artyk náði varla upp á skákborðin. En þegar hann var búinn að tefla í tvo klukkutíma og úrslitin voru tilkynnt, klöppuðu allir mikið og lengi, bæði þeir, sem þátt tóku í fjölteflinu og foreldr- ar þeirra. Artyk vann 17 skákir og 3 enduðu með jafntefli. Artyk er fæddur í fjöl- skyldu, þar sein allir hafa gaman af því að tefla. Faðir hans er kennari við Ríkis- háskólann í Túrkmeníu og teflir, og einnig tefla móðir hans og systkini. Artyk byrj- aði að tefla, þegar hann var þriggja ára. Nú er hann í öðrum flokki. Hann er ekki farinn að ganga í skóla enn þá, en kann að lesa og skrifa og kann mörg kvæði utan að. yrðu 7.500 símanúmer tengd við þessa nýju stöð á þessu ári. Þar af yrðu 5.500 nýtt í Reykjavík og ná- grannabyggðum, en 2.000 til útskiptingar úti á lands- byggðinni, eins og fyrr er getið. - Nú hefur verið mjög löng bið eftir nýjum símum í ákveðnum bæjarhverfum - er biðin nú úr sögunni? „Biðin hefur nú ekki ver- ið mjög löng - en nokkur í einstaka tilfellum. Við höfum undanfarið getað flutt símanúmer úr til dæmis Breiðholti í-Vesturbæinn og miðbæinn með ákveðinni tækni. Þannig hefur verið hægt að leysa brýnustu þörf- ina og það er skýringin á því að nokkur númer í Vestur- bænum byrja á 7 eins og í Breiðholtinu. Bið ætti fljót- lega að verða úr sögunni.“ - Er það framtíðin að upphafsstafur númera verði ekki hverfabundinn? „Við höfum reynt að halda ákveðinni hverfa- skiptingu - en í rauninni er það óþarft. I framtíðinni, sennilega innan nokkurra ára, verða aðeins tvær eða þrjár stöðvar sem þjóna Reykjavíkursvæðinu öllu og þá geta menn verið með sitt fasta númer hvert sem þeir flytja innan svæðisins. Og framtíðardraumurinn er náttúrlega sá, að menn haldi sínu númeri hvert sem þeir flytja á landinu," sagði Hilmar. -Má þá búast við þráð- lausum símum, sem menn geta haft með sér hvert á land sem er? „Ég þori nú ekki miklu að spá í þeim efnum, að minnsta kosti ekki um hvað verður á allra næstu árum. En það er Ijóst að þráðlausir símar munu koma einhvern tíma. Spurningin er bara hversu langt er í það. Svíar eru framarlega í þessum efnum og þeir ætla að leyfa þráðlausa síma á næsta ári og fleiri nágrannalönd munu eflaust fylgja í kjöl- farið.“ -Sjó Hörð kosningabarátta fyrir- sjáanleg í Svíþjóð 1985 Aðalbaráttan verður um launþegasjóðina LÖGGJÖF sú, sem hér ræðir um, fjallar um hina svokölluðu launþegasjóði. Sósíaldemókrat- ar hófu máls á því fyrir allmörg- um árum að auka bæri þátttöku og áhrif launafólks í atvinnu- rekstrinum. Vænlegast yrði að gera þetta á þann hátt, að stofnaðir yrðu sérstakir sjóðir, sem launþegar réðu yfir að mestu leyti, og yrði fjármunum þeirra varið til kaupa á hlutabréfum í fyrirtækjunum. Þannig yrðu launþegar að veru- legu leyti þátttakendur í atvinnu- fyrirtækum og stjórnun þeirra. Uppi hafa verið ýmsar hug- myndir um hvernig þetta yrði bezt framkvæmt. Niðurstaðan hefur orðið sú, eins og hin áðurnefnda löggjöf ber vitni um, að strax á þessu ári verða stofnaðir fimm sjóðir, staðbundnir við tiltekin land - svæði. Tekna verður sjóðunum aflað á þann hátt, að atvinnufyrirtæki greiða 0.2% launaskatt, sem rennur til sjóðanna, og auk þess annan skatt, sem leggst á tekju- afgang þeirra, ef hann nær vissu marki. Hver einstakur sjóður hefur níu manna stjórn, sem ríkis- stjórnin skipar og skulu a.m.k. fimm stjórnarmanna vera full- trúar hagsmuna launafólks. Tekjum sínum skulu sjóðirnir verja til kaupa á hlutabréfum í fyrirtækjum. Þessum hlutabréfa- kaupum eru sett þau takmörk, að sjóðurinn má ekki ráða yfir meiru en 8% af atkvæðamagn- inu. I lögum er gert ráð fyrir, að skattar þeir, sem atvinnurekend- ur greiða sjóðnum, skuli falla niður í byrjun næsta áratugs. Reiknað er með því, að þá verði sjóðirnir orðnir svo öflugir, að þeir þurfi ekki lengur á þessum tekjum að halda. Andstæðingar sjóðanna eru ekki trúaðir á, að þessu ákvæði verði framfylgt, heldur megi al- veg eins búast við að skattlagning vegna sjóðanna verði aukin. Einkum eigi þetta við, ef sósíal- demókratar verði þá við völd. SÓSIALDEMÓKRATAR halda því fram, að tvennt vinnist á með launþegasjóðunum. Ann- að sé það, að þátttaka launafólks í atvinnurekstrinum aukist. Hitt ■ Olof Palme forsætisráðherra sé það, að meira fé fáist til eflingar atvinnulífinu. Andstæðingar sjóðanna eru á öðru máli. Þeir segja, að þetta skerði það fjármagn, scm at- vinnufyrirtækin sjálf geti lagt í atvinnureksturinn. Jafnframt dragi þetta úr áhuga almennings á að kaupa hlutabréf fyrir eigið fé, en heppilegt sé að jafnt launafólk og aðrir gerist þátttak- endur í atvinnurekstrinum á þann hátt. Að dómi andstæðinganna er hér á ferðinni dulbúinn sósíal- ismi. Það sé verið að stíga fyrsta áfangann. Aðrir komi á eftir, ef ekki verði brugðizt hart við í tíma. Borgaralegu flokkarnir þrír, sem svo eru oft nefndir, þ.e. íhaldsflokkurinn, Miðflokkur- inn og Þjóðarflokkurinn, hafa því brugðizt hart við og lýst yfir því, að þeir muni afnema lög- gjöfina um launasjóðina strax á árinu 1986, ef þeir fái meirihluta í þingkosningunum haustið 1985. Til áréttingar þessu hafa þeir kosið sameiginlega nefnd, sem á að hafa tilbúnar tillögur fyrir kosningarnar 1985 um af- nám sjóðanna, svo að kjósendur viti áður en þeir ganga að kjör- borðinu hvernig afnáminu verð- ur háttað. Kommúnistar hafa þriðju af- stöðuna. Þeir segja launasjóða- lögin kák eitt og hafa því borið fram miklu róttækari tillögur eins og áður segir. Sennilega munu þeir þó ekki hjálpa borg- araflokkunum til að afnema lögin. Hins vegar kunna þeir að reyna að setja sósíaldemókröt- um einhver skilyrði, ef þeir hjálpa til að afstýra afnámi þeirra. Flest bendir nú. til, að launa- sjóðirnir muni setja meginsvip á kosningabaráttuna í Svíþjóð annað haust. Skoðanakannanir hafa sýnt, að verulegur ineiri- hluti kjósendaer andvígur þeim. Sósíaldemókratar treysta á að annað muni reynast, þegar búið er að stofna sjóðina og farið að verja fé úr þeim til eflingar atvinnurekstrinum á viðkomandi landsvæðum. Skoðanakannanir á fylgi flokkanna nú benda til þess, að borgaraflpkkarnir myndu sigra, ef kosið yrði strax. En sitthvað getur breytzt á einu og hálfu ári. Óhætt virðist vera að spá harðri og sögulegri kosningabaráttu í Svíþjóð haustið 1985. Þórarinri Þoraránsson, ritstjori, skrifar ilj

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.