Tíminn - 03.02.1984, Page 1
Halldór ákvedur aflamarksleiðina - Sjá baksíðu
FJÖLBREYTTARA
OG BEIRA BLAÐ!
Föstudagur 3. febrúar 1984
29. tölublað - 68. árgangur
Siðumula 15-Postholf 370Reykjavik — Ritstjorn86300- Augtysingar 18300- Atgreiðsta og askrrtt 88300 - Kvóldsimar 86387 og 86306
Stofnun nýs f jölmiðlarisa í undirbuningi í Reykjavík:
„VINSTRA-VÍDEÓ” STOFNAÐ
TIL MÓTVÆGIS VIÐ ÍSFILM?
— Sjö adilar á vinstri vængnum hafa haldið þrjá fundi um málið
■ Talsverður hópur ýmissa
aðila á vinstri vængnum hefur
undanfarið fundað um mögu-
lega stofnun nýs fjölmiðlarisa
hér í borg, til mótvægis við
ísfilm hf. og er þessi hugsanlegi
möguleiki gjarnan nefndur
„Vinstra-vídeó“.
Samkvæmt heimildum Tím-
ans munu þessir aðilar, sem
eru m.a. frá Máli og menningu,
Þjóðviljanum, Alþýðublaðinu,
Helgarpóstinum, Menningar-
og fræðslusambandi alþýðu,
Kvennaframboðinu í Reykja-
vík og Alþýðubandalaginu,
hafa rætt nauðsyn þess að
stofna fyrirtæki af sömu stærð-
argráðu og ísfilm er, þ.e. með
12 milljónir króna í hlutafé, til
þess að koma í veg fyrir það
sem þeir nefna einokun pen-
ingaaflanna.
Munu þessir aðilar hafa
rætt þessi mál á a.m.k. þremur
fundum, og eftir síðasta fund,
sem haldinn var í fyrradag, var
ákveðið að bíða og sjá hvað
setur, á meðan vissir aðilar úr
umræðuhópnum ræða við fjár-
sterka aðila eins og bókafor-
lög, hafa Iðu'nn og Örn og
Örlygur verið þar nefnd, og
tæknimenn eins og kvikmynda-
gerðarmenn, með hugsanlega
þátttnkn í huea F.r þetta cinn-
ig gert. til þcss að vinstri stimpill-
inn verði ekki jafn áberandi
og hann ci, miðaö við þá hópa
sem hafa tekið þátt í þessum
fyrstu fundunt.
- AB Sjá nánar bls. 3.
■ Mjög þungfært var víða í Reykjavík og nágrenni í áhlaupinu sem gerði síðdegis í gær. í Breiðholti og Árbæjarhverfi sátu bílar fastir víða
og þegar myndin var tekin hér að ofan var Ámi Sæberg , Ijósmyndari Tímans, staddur í Stelkshólum. Eins og sjá má voru menn duglegir að
aðstoða hver annan við losa bíla úr festum.
„Segjum
til þess að koma Al-
bert úr nkisstjórn“
segir Steingrímur Hermannsson
■ „Auðvitað erum við ekki
að segja þetta til þess að koma
Albert úr ríkisstjórninni, en
staðreyndin er sú, að við erum
búnir að segja að það séu
frjálsir samningar hjá aðilum
vinnumarkaðarins, og það eru
náttúrlega ekki mikið frjálsir
samningar, ef menn eru með
hótanir um að ríkisstjórnin segi
af sér og cfnt verði til kosn-
inga, ef laun hækka prósentu
meir en við teljum skynsam-
legt,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra er
Tíminn spurði hann hvort það
væri rétt sem Albert Guð-
mundsson fjármálaráðherra
sagði í samtali við Tímann, að
hann væri með orðum sínum
um möguleika á 6% launa-
hækkun, að reyna að losna við
Albcrt úr ríkisstjórninni.
Forsætisráðherra sagði
jafnframt:
„Vitaniega er alveg Ijóst að
það verður erfiðara að ná þcím
markmiöum sem við höfum
sett okkur, ef samið verður um
hækkanir umfram þau 4% yrði
viðskiptahalli líklega ekki 1%,
heldur 2%, sem þýddi 6 til 700
milljónum króna meira í er-
lendum skuldum. og líklega
þýddi það að verðbólgan yrði
ekki undir 10%, eins og við
stefnum að, heldur á bilinu 10
til 11%. Ég er alls ekki ánægð-
ur ef svo fer, en við getum ekki
sagt annars vegar það eru
frjálsir samningar, og hins veg-
ar ef þið semjið ckki algjörlega
með hliðsjón af fjárlagafrum-
varpinu, þá förum við út í
nýjar kosningar. Ég segi því að
samningar séu frjálsir og ég
vona að þeir verði með sem
allra mestu tilliti til þess sem
við höfum lagt á borðið, en ef
ekki nást samningar á hinum
frjálsa markaði, nema um
eitthvað sem er umfram það
sem við viljum, þá munum við
ekki breyta gengi til þess að
hjálpa útflutningsatvinnu-
vegunum til að standa undir
samningunum, þeir vcrða að
standa undir þeim sjálfir. Auk
þess verðum við að meta hvaða
áhrif meiri launahækkanir, cn
við höfum ráðgert, hafa á
okkar markmið í verðbólgu-
málum og viðskiptahalla. Ef
áhrifin verða svo mikil að allt
fer úr böndum, þá auðvitað
verða stjórnarflokkarnir að
endurskoða sitt prógramm."
- AB.
„LITUR UT FYRIR
AÐ ÞEIR VIUI
— segir Albert Guðmundsson
um yfirlýsingar forsætisráð-
herra og iðnaðarráðherra um að
ræða megi 6% launahækkanir
■ „Eg átta mig nú varla á
þessum yfirlýsingum iðnaðar-
ráðherra og forsætisráðherra.
Það lítur bcinlínis út fyrir að
þeir séu að nota tækifærið til
þess að losna við mig úr ríkis-
stjorninni", sagði Albert
Guðmundsson, fjármálaráð-
herra er Tíminn spurði hann í
gær hver hans skoðun væri á
þeim orðum Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra
og Sverris Hermannssonar iðn-
aöarráöherra að það koll-
varpaði svo sem ekki öllu, þótt
laun hækkuðu um 6%, en ekki
einungis um 4%, eins og gert
er ráð fyrir í fjárlögum.
„Þeir segja þetta án þess að
hafa nokkurt samráð við mig,
en samningamálin heyra undir
fjármálaráðuneytið, þannig að
þessi orð eru ekki sögö incð
mínu leyfi,“ sagði fjármálaráð-
herra jafnframt.
Albert hcfur ítrckað lýst því
yfir, að ef forsendur fjárlaga
brystu, þá ætti ríkisstjórnin að
segja af sér og leggja málið
undir dóm kjósenda. Hann
sagðist ekki sjá betur en for-
sætísráðherra ög iðnaðarráð-
herra vildu með þessum yfirlýs-
ingum sínum losna við sig úr
ríkisstjörninni og hann bætti
við: „Ég lít á þctta sem grófa
íhlutun í ntín störf."
„Annaðhvort eru mcnn
trúverðugir í sínum málflutn-
ingi og staðfastir, og trúa því
að þeir séu að gcra rétt, eða
þeir verða áð fá sér aðra vinnu,
sagði Albert -,‘og ef ég hef ekki
verið að gera rétt með því að
framfylgja stefnu ríkisstjórnar-
innar, þá segir það sig sjálft að
ég á ekki hcima í ríkisstjórn-
inni.“ - AB.
.