Tíminn - 03.02.1984, Blaðsíða 2

Tíminn - 03.02.1984, Blaðsíða 2
2______ fréttir FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1984 ■ Látinn er á Akureyri, Sigurður Óli Brynjólfsson, kennari og bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Akureyrar um langt árabil. Sigurður Óli Brynjólfsson var fædd- ur þann 8. september 1929, sonur hjónanna Guðrúnar Rósinkarsdóttur og Brynjólfs Sigtryggsonar í Steinholti í Glerárþorpi. Sigurður lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Akureyrar árið 1947 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1950. Stðan stundaði hann nám við Háskóla íslands í verkfræði árin 1950-51 og tók BA próf í eðlis- fræði og stærðfræði frá HÍ 1954. Hann starfaði síðan sem kennari við Gagn- /fræðaskólann 'á Akureyri um þriggja áratuga skeið og nti á síðustu áruni sem kennari við Iðnskólann. Sigurður Óli var um langt árabil einn helsti forystumaður Framsóknar- flokksins á Akureyri. Hann varð vara- ■ Sigurður Oli Brynjólfsson. bæjarfulltrúi flokksins árið 1958 og síðar bæjarfulltrúi 1962 og því starfi hefur hann gegnt síðan. Hann átti sæti í bæjarráði, var formaður skólanefnd- ar. átti sæti í stjórn Framsóknarfélag- anna og um tíma sæti í miðstjórn Framsóknarílokksins. Hann hefur einnig átt sæti í stjórn KEA og hefur setíð í blaðstjórn Dags auk ýmissa annarra trúnaðarstarfa. Eiginkona Sigurðar Óla, Hólm- fríður Kristjánsdóttir, lifir mann sinn. ■ Átta leikendur koma fram í Músagildrunni: Anna Einarsdóttir, Guðmundur Davíðsson, Björn Hjartarson, Gunnar Halldórsson, Kristinn Kristinsson, Kristín Hjaltadóttir, Kristín Pálsdóttir og Eiríkur Davíðsson. Músagildran sýnd í Félagsgarði í Kjós látinn Sigurður Óli Bryn- jólfsson ÞORRABLÓTIÐ VARÐ ÓBEINT TILEFNIFÍKNIEFNARASSÍU ■ Þorrablót sem haldið var í Seyðis- firði, varð óbeint tilcfni til að lögreglu- yfirvöld hófu aðgerðir til að reyna að stemma stigu við fíkniefnasölu og neyslu sem nokkuð hefur borið á á staðnum. Voru allmargir teknir til yfirheyrslu vegnaþessara mála og gerðar húsleitir að fikniefnum og 12 manns játuðu að hafá átt í fíkniefnaviðskiptum eða neytt þeirra. Talsverð ólæti urðu í kjölfar þorra- blótsins og m.a. fór hópur fólks inn á lögreglustöðina á staðnum og hafði það- an á brott með sér tvo bjórkassa sem gerðir voru upptækir í skipi. Fólkið náðist brátt og við yfirheyrslur komst lögreglan á snoðir um fíkniefnamál og „rassían" fylgdi síðan í kjölfarið. í samtali við Tímann sagði Sveinbjörn Sveinbjörnsson sýslufulltrúi að rannsókn þessara mála hefði verið all umfangsmik- il og m.a. aðstoðaði lögreglan á Egils- stöðum við skýrslutöku. Rannsókninni væri nú lokið. I sjálfu sér væri þetta mál ekki stórt um sig en það vekti að sjálfsögðu mikla athygli í bænum og umræðu um þessi mál almennt og þá væri tilganginum náð. GSH ■ Leikklúbbur Kjósverja heldur upp á 5 ára afmæli sitt með frumsýningu á Músagildrunni eftir Agötu Christie í Félagsgarði í Kjós föstudaginn 3. febrú- ar. Leikstjóri er Jón Hjartarson. Músa- gildran var frumflutt í London árið 1952, þar sem hún er enn á fjölunum og mun ekkert leikhúsverk hafa gengið svo lengi í striklotu. Leikurinn hefur verið sýnd- ur víða um heim og m.a. hjá nokkrum áhugafélögum hér á landi. Næstu sýningar á Músagildrunni verða í Félagsgarði laugard. 4. febr. og þriðja sýning í Hlégarði í Mosfellssveit laugard. 11. febrúar. Síðar mun leikklúbburinn sýna víðar í nágrannabyggðum. Tilraunastöðin á Reykhólum: 119 íbúar mótmæla því að hún verði lögð niður ■ Samtals 119 íbúar í Reykhólasveit og Geiradalshreppi í A-Barðastrandar- sýslu hafa undirritað áskorun til stjórnar Rannsóknastofnunar landbúnaðarins um að hætta þegar í stað við þá ákvörðun að leggja niður sauðfjárbú Tilraunastöðvarinnar á Reykhólum, heldur láta hana halda áfram störfum þar undir sömu yfirstjórn og nú. í áskoruninni er það álit látið í ljós að það starf sem unnið hefur verið á Reykhólum sé mjög til framdráttarsauð- fjárrækt í landinu og að Reykhólaféð sé auðlind sem geti skilað miklum verð- mætum í þjóðarbúið. Bent er á að af Reykhólafé skili hver kind 2,86 kílóum af ull nú þegar miðað við 1,94 kg. af ull af hverri kind á vísitölubúinu. Miðað við vísitölubúið gefi þessi umframull auka- verðmæti sem nemi 37 lömbum. Jafnframt er talið að ef nóg væri til af ull með þeim kostum sem Reykhólaféð hefur mætti stórminnka ullarinnflutning. Hægt yrði að framleiða hágæðavörur úr alíslenskri ull. Pá er og vakin athygli á því að gærur af Reykhólafé líki mjög vel. Fullyrða - megi að á Reykhólum sé kominn upp sterkur vísir að alhvítu feldfé. ________ Baraflokkurinn með tónleika Baraflokkurinn heldur tónleika hér í borg- inni á næstunni, og verða þeir fyrstu í Safari á fimmtudagskvöidið 2. febrúar. Síðan held- ur flokkurinn til Vestmannaeyja þar sem þeir leika á almennum dansieik í Samkomu- húsinu föstudaginn 3. 2. Síðustu tónleikarnir verða svo á Hótel Borg laugardagskvöldið 4. febrúar. Með Baraflokknum koma fram á öllum tónleikun- um Stuðmennirnir Ásgeir Óskarsson og Tómas Tómasson. BIÐSKAKIRNAR ■ í gær var lokið við að tefla biðskák- ir á Búnaðarbankaskákmótinu. Úrslit urðu: Jón L. Árnason - Alburt, 1-0, Jón Kristinsson - Sævar Bjarnason, 1-0, Mareeir Pétursson - deFirmian, 1-0, Alburt - Guðmundur Sigurjónsson, Vi - Vi, Shamkovich - Jón L. Árnason, Vi-Vi. Jón L. náði mátsókn á Alburt, og gafst sá síðarnefndi upp í 56. leik. Alburt hafði ekki mikil gagnfæri fyrir manninn, en ekki er Ijóst, hvort hann hefði getað haldið jafntefli með bestu taflmennsku. Sævar gaf biðskákina við Jón Kristinsson án þess að tefla frekar, enda staðan gjörtöpuð. Margeir hafði ekki mikið fyrir því að innbyrða vinn- inginn í biðskákinni við deFirmian. Lokin urðu þó allóvenjuleg. Banda- ríkjamaðurinn gaf skákina með því að leika sig viljandi í mát. Alburt lét Guðmund Sigurjónsson brjótast frá Hafnarfirði til Reykjavíkur í ófærðinni í gærkvöldi til að leika 7 leiki í dauðri jafnteflisstöðu, Shamkovich og Jón L. sömdu um jafntefli í 63. leik, en skákin leystist upp í jafntefli fljótlega eftir bið. abcdefgh Hvítt: Jón L. Árnason Svart: Lev Alburt Framhaldið varð: 41. Bbl (biðleikurinn) Bxe4 42. Bxe4 Hd2 43. Df3 Hxb2 44. Bxf5 exf5 45. Da8t Kg7 46. Dxa7t Kh6 47. Da8 Dc5 48. DI3 Kg7 49. Hdl Kf6 50. Hd5 Dcl 51. Hd6t Ke7 52. Hd4 Dc2 53. Db7t Kf6 54. Hd6t Kg5 55. De7t Kg4 56. Hd4t og Alburt gafst upp, því hann veður óverjandi mát eftir 56. -- Kh5 57. Hh4 eða 56. - Kf3 57. Hf4 eða 56. - De4 57. Hxe4f fxe4 58. Dxe4f Kg5 59. Df4t Kh5 60. Dh4. BINAÐARBANKA .V SKÁKMÓT 30 1984 ss i Hvítt: Leonid Shamkovich Svart: Jón L. Árnason Framhaldið varð: 41. d6 (biðleikurínn) Hb3 42. d7 Kh6 43. Be4 Hb2 44. d8D Hxd8 45. Hxf7 Hh8 46. Hxf6t Kg7 47. Hg6t KÍ7 48. Hxa6 Ha2 49. Bd5t Kg7 50. Ha7t Kg6 51. a6 Hal 52. Kg3 Hglt 53. Kf2 Hal 54. Kg3 Hglt 55. Kf2 Hal 56. Hc7 Hxa6 57. Kg3 Hal 58. Hc6t Kg7 59. Hxc5 Hglt 60. Kf2 Hcl 61. Hc7t Kf6 62. Hc6t Kg7 63. Hc7t. Jafntefli. Hvítt: Margeir Pctursson Svart: Nick deFirmian Framhaldið varð: 42. Bxg4 (biðleikurinn) Kg7 43. Hd7 a5 44. Hb7 Hd8 45. Hxb6 Hd2 46. a4 f6 47. Hb7t Kh6 48. Hf7 Hd6 49. Be2 Bg8 50. Hb7 Hd2 51. Bc4 Bxc4 52. bxc4 Ha2 53. Hf7 Hf2t 54. Ke3 Hc2 55. Kd4 Kg5 56. Hg7t Kh5 57. Hg6 Ha2 58. Hxf6 Hxa4 59. Kd5 Kg5 60. Hf8 Hal 61. Ke6 a4 62. Hg8t Kh6 63. e5 a3 64. Kf6 Kh7 65. Ha8 Kh6! 66. Hh8 mát! abcdefgh Hvítt: Jón Kristinsson Svart: Sævar Bjarnason Sævar gaf skákina vegna eftirfarandi afbrigðis: 41, Kd2 (biðleikurinn) Bbl 42. Bg8 g5 43. h5! Hxg8 44. Hf7! Hh8 45. Hxföt Bg6 46. hxg6 hxg6 47. Hff7 og svartur er bundinn við að valda máthótunina abcdefgh Hvítt: Alburt Svart: Guðmundur Sigurjónsson 41. — f5 (biðleikurinn) 42. gxf5t gxf5 43. Hxa2 Hxd6 44. He2t Kd7 45. He5 Ha6 46. Kd4 Ha4t 47. Ke3 Ha2 48. h4 Ha3t 49. Kf2, jafntefli. Bragi Kristjánsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.