Tíminn - 03.02.1984, Blaðsíða 20
Opiö virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Shcmmuveg' 20 Kopavogi
Simar (9t>7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nylega
bíla til niðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
8c ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
ú ^^■abriel
r' HÖGGDEYFAR
^QJvarahlutir “a1
mar 4 /
:. ' '
Halldör
Ásgríms-
son, sjávar-
útvegsráö-
herra:
AKVEÐUR AD FARA
AFIAMARKSLEHNNA
Fiskverðs-
ákvörðun
fljótlega
■ Halldór Asgrímsson, sjávar-
útvcgsráðherra hefur ákveðið að
fara að ráðum ráðgjafanefndar-
innar í sjávarútvcgi, og fara afla-
marksleiðina í kvótakerfinu, en
sóknarmarksleiðina í ákveðnum
undantekningartilvikum, og
verður þeim sem óska eftir þvi
að fá úthlutun samkvæmt sókn-
armarki gert að sækja sérstak-
lega um að fá úthlutað sam-
kvæmt sóknarkvóta.
Hagsmunaaðiiarnir Fiskiþing
og LÍÚ hafa samþykkt afla-
marksleiðina sem ákjósanlegri
valkost og auk þess telja menn
að aflamarksleiðin ætti að leiða
til þess að menn fari betur með
aflann. Þeir hafasem sagt ákveð-
ið magn, og ættu að reyna að fá
sem mest verðmæti út úr því
magni. Telja menn því að reynt
verði samkvæmt aflamarksleið-
inni að haga útgerðinni á sem
hagkvæmastan máta. Helsti
gallinm sem menn sjá á sóknar-
marksleiöinni er að menn muni
hvorki hugsa um olíusparnað né
góða meðferð á aflanum, heldur
muni þeir hamast við veiðarnar,
þann tíma sem þeim er leyfður
til veiða.
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra sagði í samtali
við Tímann í gær, er hann var
spurður álits á þessari niður-
stöðu: „Ég hef ailtaf verið mjög
inn á því, að okkar sjómenn,
skipstjórar og útgerðarmenn,
fengju að halda því kappi sem er
í þeim, hvað varðar veiðarnar -
þess vegna er ég á móti kvótum.
En nú er neyðarástand. sem
verður víst ekki mætt með
öðrum hætti."
Steingrímur sagðist persónu-
lega vilja allt öðru vísi kvóta,
sem hann hefði látið vinna þegar
hann var ráðherra, en það væri
svæðiskvóti - en það þýðir að
hvert löndunarsvæði- fengi út-
hlutað ákveðnum kvóta. „Það
mega sjómenn og útgerðarmenn
ekki heyra á minnst og segja að
þá séu þeir orðnir þrælar fisk-
vinnslunnar," sagði forsætisráð-
herra, „sem er náttúrlega hlægi-
legt, því fiskvinnslan og útgerðin
er nú á einni hendi í svona 80%
tilvika." -AB
LfYFT AÐSQJA
BORDVfN í MAT-
VÖRUVERSLUNUM?
■ Félag kjötverslana ug
Félag matvörukaupmanna
hafa sent Albert Guð-
mundssyni fjárinálaráð-
herra bréf þar sem farið er
fram á breytingar á sölu
borðvíns hérlendis, þ.e.
leyft verði að selja slíkt í
verslunum.
„Tildrög þessa máls eru
þau aö fjármálaráðherra hefur
sagt að hann vilji létta
kostnað ríkisbáknsins og er
þetta í framhaldi af því auk
þess sem markaðurinn kall-
ar á þessa þjónustu, fólki
finnst súrt í broti að þurfa
að fara í þessar þrjár einka-
leyfisverslanir til að ná í
borðvín“ sagði Jóhannes
Jónsson formaður Félags
kjötverslana í samtali við
Tímann... „ Þetta mál hefur
áður komið upp innan okk-
ar hóps og okkur fannst
kjörið að koma því á fram-
færi nú að við værum reiðu-
búnir að taka þessa þjón-
ustu að okkur“.
í bréfi beggja félaganna,
sem dagsett er 31. janúar
s.l. segir m.a.:
„Ástæða fyrir þessari
beiðni er fyrst og fremst
aukin krafa neytenda um
betri þjónustu og meira
vöruúrval. Hjástórum hluta
neytenda er þetta nú þegar
orðinn hluti af matarinn-
kaupum a.m.k. fyrir hátíðir
og helgar og vilja því Félag
matvörukaupmanna og Fé-
lag kjötverslana koma til
móts við neytendur með
því að hafa á boðstólum
þessar vörutegundir".
Aðspurður um hvort ekki
yrði að vera strangt eftirlit
með þessum vörukaupum
ef af þeim yrði sagði Jó-
hannes að það yrði kannski
erfitt til að byrja með...
„Við færum ekki að selja
ómálga börnum þessa vöru
og það yrði að setja reglu-
gerð um þetta“.
Jóhannes sagði 'að ráð-
herra hefði tekið málaleitan
þeirra vel og virtist hafa
fullan skilning á því hvað
þarna væri á ferðinni, og
mun hann á næstunni at-
huga málið nánar og þá
hvort laga- eða reglugerðar-
breytinga er þörf.
-FRI
■ Skíðalyfta hefur verið tekin í notkun á Grundarfirði og er hún staðsett rétt fyrir ofan bæinn þannig að
lítil fyrirhöfn er fyrir bæjarbúa að bregða sér á skíði.
Það var skíðafélag staðarins sem keypti og reisti lyftu sem er 680m framleidd í Sviss. Fjárins var aflað
með samskotumvn.a. frá fyrirtækjum og svcitarfélagi en öll vinna við að koma henni upp var unnin af
sjálfboðaliðum. - Tímamynd Arie Lieberman.
- ellegar má búast við að
fylgi gerð almennra kjara-
samninga
■ Enn liggur ekki fyrir
‘ákvörðun um nýtt fiskverð,
sem átti að taka gildi 1. fcbrúar
síðast liðinn. Stuttur fundur
var í vfirnefnd Verðlagsráðs
sjávarútvcgsins i gær og annar
hefur verið boðaður í dag
klukkan 16.
• Samkvæmi heimildum Tím-
ans er allri undirbúningsvinnu
lokið og mun jafnvel talið að
ákvörðun verði tekin innan-
skamms, jafnvel fljótlega í
næstu viku. Gerist það hins
vegar ekki má búast við, að
ákvörðun dragist á langinn og
fylgi gerð almennra kjara-
samninga í landinu.
Eftir því sem næst verður
komist hefur lítið seni ekkcrt
verið rætt urn breytingar á
mati, eins og greint var frá í
einu dagblaðanna í gær. Hins
vegar mun kappkostað að nýtt
fiskvcrð verði innan þess
ramma að ekki þurfi að koma
til gengisfellingar, sem þýðir að
hækkunin verði um eða innan
við fjóra af hundraði.
-Sjó.
LOÐNUVEIÐI
AÐ GUEÐAST
■ Þrettánbátarfengusamtals
um 8.600 lestir af loðnu nokkr-
ar mílur út af Stokksnesinu í
fyrrakvöld og fyrrinótt. And-
rés Finnbogason hjá Loðnu-
nefnd sagði í samtali við
Tímann, að veiðin hefði verið
jöfn og þétt frá kvöldi og fram
undir morgun. Hann vissi ekki
ti! þess að bátarnir hefðu feng-
ið nein risaköst heldur hcfðu
þeir náð inn svona 100 til 200
tonnum í hverju kasti. Hann
hafði ekki frétt af neinni veiði
á miðunum þegar blaðamaður
talaði við hann í gærkvöldi.
-Sjó.
dropar
Fjölgar toppunum
í ráðuneytinu?
■ Tímabær endurskipulagn-
ing á uppbyggingu mennta-
málaráðuneytisins sem stjórn-
unarheildar hefur átt sér stað,
eins og sagt var frá í blaðinu í
fyrradag. Missa þar hagræðing-
ar- og stjórnunarsérfræðingar
stóran spón úr aski sínum, en
hingað til hefur menntamála-
ráðuneytið ætíð verið tckið
sem skólabókardæmi um
hvemig ekki eigi að haga skip-
an stórra skipulagsheilda.
Neyðast þeir því til að finna
annað negatívt fordæmi.
Við skipulagsbreytinguna er
deildunum tíu þjappað saman
í þrjár megin skrifstofur, sem .
hver fyrir sig hefur ákveðið
verksvið. Stimar dcildirnarein-
kenndust af því að þar voru
deildarstjórar sem nær einung-
is stjórnuðu sjálfum sér. Ekki
er þó þar með sagt að toppun-
um í ráðuneytinu fækki. Sam-
kvæmt gamla kerfinu voru þeir
a.m.k. 12, þ.e. 10 deildarstjór-
ar og svo skrifstofustjóri og
ráðuneytisstjóri. Nú má hins
vegar reikna með að þeir verði
fleiri, þ.e. 9-12 deildarstjórar,
3 skrifstofustjórar og einn
ráðuneytisstjóri. Hinu er hins
vegar ekki að neita að ömgg-
lega verður þægilegra að reka
erindi sín í ráðuneytinu eftirað
hinni nýju skipun hefur verið
koniið á og eðlilegri verka-
skiptingu.
Bílaathvarfið!
■ Menn fást við ýmislegt
þessa dagana í borgarkerfinu.
Eitt af því er að föndra til
nothæft nafn á bílageymsluna
nýju sem Seðlabankinn byggði
fvrir Reykjavíkurborg, sam-
kvæmt samningi þessara aðila.
Bjöm Friðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri lögfræði- og
stjórnsýsludeildar, hefur lagt
fram cftirfarandi hugmyndir:
Kalkofnsskáli, Kalkofnshellir,
Ingólfsskáli, Ingólfshellir,
Sölvhólsskáli, Sölvhólshellir,
Arnarhólshellir, Hegraskáli og
Hegrahellir. Umferðarnefnd-
armenn bættu um betur og iétu
sér detta eftirfarandi hug-
myndir í hug: Kolakjallari,
Kolaport, Bás, Bflabás, Bflaat-
hvarf, Arnarsel, Arnarhellir og
Bílshellir.
Ef einhverjir hafa góðar i
hugmyndir ættu þeir hinir
sömu að setja sig í samband við :
umferðarnefndarmenn borgar- “
innar.
Krummi .. .
...vill ekki trúa því að umferð-
arnefndarmenn leggi hendur á
bfla sína
mm