Tíminn - 07.02.1984, Blaðsíða 2

Tíminn - 07.02.1984, Blaðsíða 2
2______ fréttir ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984 LÍKUR BENDfl TIL SEX DAUÐSFALLA HERLENDIS VEGNA ASBESTMENGUNAR ■ Líkur þykja benda til aö dauösföll hafi orðið hér á landi á síöustu árum vegna asbestmengunar, samkvæmt rannsóknum sem geröar voru af Vinnu- eftirlitinu og Rannsóknarstofu Háskól- ans í meinafræði. Greinst hafa 6 tilfelli af illkynja mesótelíóma hér á landi á árunum 1965-1982, sem öll leiddu til dauða. Könnun benti til að asbestmeng- un hafi verið algengari meðal þeirra sem fengu sjúkdominn en hjá viðmiðunar- hópum samkvæmt upplýsingum frá vinnueftirlitinu. HP ekki með í vinstra-vídeói ■ Tímanu barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Helgarpóstinum: Tíminn greindi frá því föstudaginn 3. febrúar að Ingólfur Margeirsson tæki þátt í undirbúningsviðræðum fyrir hönd Helgarpóstsins í stofnun „vinstra-Videós". Þessi frétt er röng. Ingólfi var boðin þátttaka í viðræð- unurn, en þá sem einstaklingur, en alls ekki fyrir hönd Helgarpóstsins. Hvað Helgarpóstinn varðar er hann ekki að neinu lcyti rciðubúinn til samstarfs við „Vinstra-Videó". Virðingarfyllst, Guðm. Jónasson. Sjúkdómurinn illkynja mesótelíóma er æxli sem vaxið er frá brjósthimnu, sem umlykur lungu og klæðir innan innri vegg brjóstkassans, eða lífhimnu, sem umlykukr líffærin í kviðarholinu. Sjúk- dómurinn leiðir yfirleitt til dauða nokkrum mánuðum frá því hann greinist og læknisaðgerðir hafa lítil sem engin áhrif haft. Sjúkdómurinn er sjaldgæfur, en tíðni hans hefur á undanförnum árum aukist í nágrannalöndum okkar og sú aukning verið rakin til aukinnar asbest- mengunar fyrir nokkrum áratugum. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar- innar, sem fyrr er getið, virðist tíðni sjúkdómsins svipuð hér á landi og í Bretlandi og Bandaríkjunum. Jafnframt virðist tilfellum heldur hafa farið fjölg- andi á undanförnum árum. Þá er sagt að erlendar rannsóknir bendi til að auk þess að stórauka hættu á illkynja mesótelíóma valdi innöndun asbestryks aukinni tíðni Ingnakrabba- meins. Reglur um bann við notkun asbests á Islandi nema í undantckningartilvikum tóku gildi s.l. haust. Þó er sagt Ijóst að áfram verði unnið með asbest á ýmsum vinnustöðum m.a. vegna viðhalds bún- aðar sem innihelur asbest, við niðurrifs bygginga úr asbesti, viðhalds hitaveitu- lagna og fleira. -HEI Heimilisfólki á Grund f jölgaði um 14 á síðasta ári ■ Heimilisfólki á Elliheimilinu Grund og Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði fjölgaði um 16 frá ársbyrjun til ársloka 1983 og var' þá samtals 460 manns. Á Grund voru heimilismenn 314 um síð- ustu áramót, þar af 239 konur og 75 karlar. Á árinu komu 112 en 62 létust og; 36 fóru af heimilinu á árinu. Á Ási voru heimilismenn 146 um síðustu áramót. Karlar voru þar í meirihluta, eða 82 en 64 konur. Alls 52 komu á heimilið á árinu en 50 fóru. -HEI UNICO-kolsýruvélin, sem er tilvalin i bilskúrinn, verkstæðiö eða hvar sem rafsuðu þarf með. J. HINRIKSSON HF. Súðavogi 4. 104 R. S-84677 - 84559. 145 amp., 15%, 25% m/viftu. 1.fasa 220 v og 380 v IHtBIIKHHI ■ Þegar Flateyri einangrast vegna ófærðar þykir gott að geta gripið til snjóbflsins til aðdrátta á brýnustu nauðsynjum og til flutninga þeirra sem nauðsynlega þurfa að komast á milli fjaröa. Snjóbíllinn á Flat- eyri komid sér vel við línuvidgerdir ■ Snjóbíllinn áFlateyri fór í sína fyrstu ferð yfir Breiðdalsheiði í vetur eftir að verulegar viðgerðir höfðu farið fram á honum, bæði á beltum og vél. Bíllinn er að stærstum hluta í eigu Flateyrarhrepps og hefur á undanförnum árum verið notaður við línuviðgerðir, til mjólkur- flutninga og mannflutninga þegar önnur farartæki komast ekki um vegna ófærð- ar. Sturlaugur Pálsson, verkstjóri hjá Orkubúinu á Flateyri, sem var farþegi í þessari fyrstu ferð vetrarins, sagði bílinn hafa komið sér mjög vel við línuviðgerð- ir þar vestra. Vitnaði hann þar sérstak- lega í Kjararstaðardal í Dýrafirði, en niður dalinn liggur lína frá Mjólkárvirkj- un. Að sögn Kristjáns J. Jóhannessonar sveitarstjóra á Flateyri er rekstur og viðhaldskostnaður slíkra farartækja þó ekki gefinn. Á síðasta ári hafi hreppur- inn t.d. þurft að borga um 100 þús. krónur með bílnum, m.a. vegna mikils viðhaldskostnaðar á beltabúnaðinum. ■ Auk bOstjórans Grétars Arnbergssonar voru þeir Kristján J. Jóhannsson, sveitarstjóri og Sturlaugur Pálsson frá Orkubúinu með í fyrstu ferð snjóbílsins frá Flatcyri yfir Breiðadalsheiðina á þessum vetri. Tímamyndir Finnbogi. Sérstaklega kvað hann það fara illa með halla eins og oft þurfi að gera á hluta beltin þegar aka þurfi í miklum hliðar- leiðarinnar yfir Breiðdalsheiði. -F. Helmings samdráttur í bifreiðainnflutningi síðasta ár: Nissan er eini bfllinn sem heldur sínum hlut ■ Aðeins 17 bOakaupendur „létu skynsemina ráða„ á s.l. ári, þ.e. völdu Trabant, eða meira en fjórum sinnum færri en árið áður, samkvæmt skýrslu Hagstofunnar um innflutning nýrra híla árið 1983. Tölurnar eru hins vegar nær þær sömu þcgar litið er á innflutning sumra nýrra glæsivagna, t.d. banda- rískra frá GM sem aðeins voru nú 17 á móti 75 árið áður og þýskra Bensa sem. voru 18 miöað við 57 árið áður. Innflutningur nýrra fólksbíla á s.l. ári varð hátt í helmingi minni en árið 1982, eða 4.650 á móti 8.574. Enn meiri breytingar hafa þó órðið á innflutningi rnilli einstakra tegunda. Sala á BMW hefur t.d. hrapað úr 454 í 106 milli ára, á Saab úr 569 niður í 138, Volvo úr 755 niður í 219 og Völkswagen úr 318 niður í 48. Nissan (sem áður hét Datsun) er eini bíllinn sem heldur sínum hlut og meira en það. Af þeirri tegund seldust í fyrra 331 bíll á' rnóti 296 árið áðuÞ. Skoda hefur einnig nokkurnveginn haldið sín- um hlut. 130 bílar í fyrra á móti 144 árið áður, sem er mun hærra hlutfall af heildarinnflutningnum en á síðasta ári. Nokkrar aðrar tegundir hafa einnig auk- ið sölu sína hlutfallslega svo sem Fiat með 229 á móti 266 árið áður, Daihattsu með 385 á móti 499 árið áður, og Lada ■ Borgarstjórn samþykkti á síöasta fundi sínum leyfi til handa Viggó V. Sigurðssyni kennara til reksturs leik- tækjasalar að Aðalstræti 8 í Reykjavík. Áður hafði borgarráð mælt með íeyf- isveitingunni með 4 atkvæðum gegn einu. Barnaverndarnefnd hafði áður gefið umsögn um þetta mál og lagst gegn veitingunni á þeim forsendum að hús- næðið rúmaði ekki með góðu móti þann fjölda leiktækja sem þarna væri fyrirhug- aður. Þá er einnig á það bent í umsögn barnaverndarnefndar að leiktækjasalur væri starfræktur í næsta liúsi og var það með 487 bíla nú á móti 705 árið áður. Mazdabílarnir urðu söluhæstir á síð- asta ári sem og árið 1982 með alls 534 bfla, en þeir voru 994 árið áður. skoðun nefndarinnar að nóg væri fyrir af þessari starfsemi í miðbænum. Félagsmálaráð samþykkti fyrir skömmu erindi, þar sem segir að vegna r.ökstuddra ábendinga starfsmanna Fél- agsmálastofnunar og barnaverndar- nefndar um að ákvæðum lögreglusam- þykktar um aldurslágmark gesta í leik- tækjasölum séu almennt ekki virt sé því beint til lögreglustjóra að hann herði eftirlit í þessum efnum og að þeir sem af sér brjóti verði sviftir leyfi til rekstrarins eins og lögreglusamþykktin geri ráð fyrir. -HEI Nýr leiktækjasal ur við Aðalstræti -JGK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.