Tíminn - 07.02.1984, Page 10
fttntmr
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
„MRFIN FYRIR KYNNINGAR-
ÞJÓNUSTU SÍFELLT VAXANDI”
— segir Vilhelm G. Kristinsson, einn eigenda nýstofnaðs fyrirtækis, Kynningarþjónustunnar sf.
■ „Við munum veila félögum, fyrir-
tækjum og stofnunum þjónustu við það
að koma sínum málefnum á framfæri við
almenning. Með aukinni samkeppni í
þjóðfélaginu höfum við orðið þess varir
að þörf fyrirtækja fyrir svona þjónustu
hefur vaxið. Það verður ekki nema hluta
af þessari þörf fullnægt með beinum
auglýsingum enda er það ekki okkar
ætlun að fara inn á verksvið auglýsinga-
stofa heldur viljum við samvinnu við
þær,“ sagði Vilhelm G. Kristinsson,
framkvæmdastjóri Sambands islenskra
bgnkamanna og einn eigendanna í nýju
fyrirtæki, Kynningarþjónustunni sf., i
samtali við Tímann.
Þeir Helgi H. Jónsson og Magnús
Bjarnfreðsson, fréttamcnn, eiga Kynn-
ingarþjónustuna ásamt Vilhelm. Allir
eru þeir þrautreyndir fréttamenn, sem
eins og Vilhelm orðaði það, hafa saman-
lagt áratuga reynslu á blöðum og hjá
ríkisfjölmiðlunum, bæði sjónvarpi og
útvarpi. Þeir Helgi og Magnús munu
fljótlcga snúa sér óskiptir að störfum
fyrir nýja fyrirtækið, en Vilhelm mun
ekki starfa við það fyrst um sinn að
minnsta kosti, nema að litlu leyti.
„Við munum taka að okkur að gera
kynningaráætlanir og að gera mönnum
grein fyrir kostnaði því samfara. Við
ætlum að taka að okkur gerð bæklinga
og kynningarrita. Þá munum við skipu-
leggja sýningar og ráðstefnur og útbúa
allt efni, bæði prentað og á myndbönd-
um, scm með þarf. Eins munum við
undirbúa og halda blaðamannafundi,
gera kynningarmyndir og hljóðbönd
hvers konar.
I löndum allt í kringum okkur hefur
alls kyns fræðslustarfsemi aukist mikið á
undanförnum árum og í því sambandi er
notuð margs konar tækni, svo sem
■ Vilhelm G. Kristinsson
myndbönd, glærur og hljóðbönd. Við
getum til dæmis tekið að okkur að
staðfæra svona efni, það er að segja
aðlaga það að íslenskum aðstæðum. Svo
getum við tekið að okkur þýðingar á
kynningarefni þannig að starfsemin
verður nokkuð víðtæk," sagð Vilhelm.
- Er sumt af þessu þjónusta sem ekki
hefur verið hægt að fá hér á landi?
„Það hafa margir verið að fást við
svona lagað, til dæmis hafa sumar auglýs-
ingastofur haft þetta sem einn lið í sinni
starfsemi. En fyrirtæki sem algerlega
hafa sérhæft sig í svona almannatengsl-
um, veit ég ekki til að hafi starfað hérna.
- Eruð þið komnir með mikið af
verkefnum þegar?
„Við höfum fengið mjög góðar undir-
tektir. Og án þess að við höfum auglýst
nokkurn skapaðan hlut höfum við fengið
talsvert mikið af verkefnum."
- Eitthvað hefur heyrst um að þið
ætlið að miðla fréttum frá íslandi til
útlanda?
„Við erum alveg opnir fyrir því þó að
það sé kannski frekar framtíðarsýn. Ég
hef orðið var við að það er ekki vanþörf
á að styrkja og efla fréttaþjónustu héðan
til útlanda. Nýlega var ég á ferð á
Norðurlöndum og hitti marga sem bein-
lt'nis voru með öndina í hálsinum út af
hundamálum Reykvíkinga. Ég hitti til
dæmis íslending í Kaupmannahöfn sem
sagðist undanfarið hafa reynt að halda
þjóðerni sínu kyrfilega leyndu. Hann
sagðist hvar sem hann kænii fá reiðilestur
vegna meðferðar íslendinga á hundum
og að margir Danir héldu að hér gerðist
hreinlega aldrei neitt fréttnæmt annað
en hundaslátrun úti á götu. Ef við gætum
komið að liði við að breyta þessu yrði
það tvímælalaust af hinu góða,“ sagði
Vilhelm.
Gód afkoma
kjá Elkem —
hagnadurinn 230 milljónir norskar
f
J?
■ Flutningar á ísuðum fiski til Englands aukast stöðugt hjá Skipadeild Sambandsins.
Skipadeild Sambandsins:
AUKINN ÚTFLUTN—
INGUR Á ÍSFISKI
■ Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri var
hagnaður Elkem samsteypunnar norsku
um 230 milljónir norskra króna í fyrra.
Árið 1982 var tap samsteypunnar 308
milljónir norskra króna og má því segja,
að útkoma fyrirtækisins hafi batnað um
yfir 500 milljónir norskra króna milli
ára. Þennan árangur þakka talsmenn
Elkem í fyrsta lagi batnandi efnahagsá-
standi í heiminum og í öðru lagi ráð-
stöfunum, sem gerðar voru í upphafi
ársins og miðuðu að því að bæta afkomu
samsteypunnar.
■ Með vaxtabreytingunum 21. janú-
ar eru jafnframt stigin spor í frjáls-
ræðisátt í viðskiptum milli innláns-
stofnana og sparifjárcigenda annars-
vegar og á milli innlánsstofnana inn-
byrðis hinsvegar.
Innlánsstofnanir geta nú boðið upp
á ný sparnaðarform ntcð skilmálum
sem þær ákveða sjálfar, en eiga að vera
jafn aðgengilegir fyrir alla viðskipta-
vini. Þetta á þó eingöngu við um
Heildarsöluverðmæti samsteypunnar
jókst um 12 af hundraði í fyrra í sex
milljarða norskra króna þrátt fyrir þá
staðreynd að hún losaði sig við nokkuð
af starfsemi sinni á árinu.
Telja forráðamenn samsteypunnar
góðar horfur á þessu ári. Samkvæmt
yfirlýsingu sem gefin var í lok síðasta
árs, gera þeir ráð fyrir að hagnaður
samsteypunnar verði að minnsta kosti
tvöfaldur hagnaður ársins 1983 - eða um
460 milljónir norskar.
sparifé sem bundið er til minnst 6
mánaða.
Þcss er vænst að brcytingin verði til
þcss að örva samkeppni milli innláns-
stofnana um sparifé og þar með hvetji
til lægri reksturskostnaðar þcirra,
hærri innlánsvaxta og meiri frjáls
sparnaðar.
Þá er innlánsstofnuhum nú heimilt
að semja sín á miili um vexti af lánum,
sem ein innlánsstofnun vcitir annarri í
svokölluðum millibankaviðskiptum.
■ Allmikil eftirspurn hefur verið hjá
Skipadeild Sambandsins eftir flutningum
á ferskum fiski í gámum til Bretlands nú
undanfarið. Sigvaldi Hrafn Jósafatsson
sölustjóri Skipadeildar sagði að Sam-
bandsskipin hefðu siglt reglulega til Hull
og Goole á Humbersvæðinu á annan
áratug, og nú væri nokkuð á annað ár
síðan menn hér heima hefðu byrjað að
nýta þessar ferðir til að flytja þangað
ísaðan ferskan fisk í gámum til sölu á
fiskmörkuðum. Þessir flutningar eru
orðnir töluvert umfangsmiklir, og m.a.
má nefna að í síðustu viku fór skip frá
deildinni sem var með tæp 300 tonn af
slíkum fiski í gámum. Eftirspurnin er
orðin það mikil að í þessari viku er gert
ráð fyrir að Dísarfell hafi sérstaka við-
komu í Hull og landi þar 2-300 tonnum
af forskfiski semþaðeraðlesta hér heima
þessa dagana. Þá hefur Skipadeild einnig
flutt talsvert af ísuðum ferskfiski í
gámum til Hamborgar, en það hefur þó
verið í nokkuð smærri stíl.
Véla-
taxti
SKÝRR
lækkar
um 5%
■ „Minnkandi verðbólga, hagstæð
gengisskráning og þróun á umfangi
’verkefna, hefur haft mjög jákvæð áhrif
á rekstrarafkomu fyrirtækisins. SKYRR
mun á næstunni geta mætt hækkun
rekstrarútgjalda með því að bæta við
verkefnum og auka framleiðni," segir
meðal annars í frétt, sem birtist í
nýútkomnu fréttabréfi Skýrsluvéla ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar.
Sem fyrsta skref í áformum um að
lækka vélataxta fyrirtækisins hcfur stjórn
þess ákveðið að 5% lækkun frá síðustu
áramótum. í fréttabréfinu kemur fram,
að frekari lækkanir á töxtum fyrirtækis-
ins á þessu ári muni ráðast af því hvernig
verkefni þróast og breytingu verðlags í
(andinu.
í grein í fréttabréfinu kemur fram að
■ þróun á vélatöxtum síðustu fimm árin
hefur verið sú, að komast hefði mátt hjá
hækkunum á vélataxta ef verðbólga
hefði ekki farið yfir 31,5 af hundraði á
ári. „Þetta gefur vonir um að ekki þurfi
að hækka taxtana í náinni framtíð ef
verðbólga og gengisþróun verður svipuð
og stjórnvöld stefna að. Það er þó háð
því skilyrði að þróun verkefna verðí ekki
óhagstæðari en undanfarin ár," segir í
greininni.
Breyttar reglur
í frjálsræðisátt