Tíminn - 07.02.1984, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1984
17
■ Víkingur H. Arnórsson prófessor, yfírlæknir barnaspítala Hringsins, flutti Hringskonum árnaðaróskir og þakkir fyrir
áhugasamt starf. Hann nefndi þann draum, að i framtíðinni rísi bygging yfir starfsemi barnaspítalans, sem sérhönnuð sé frá
upphafi til þeirra nota.
(Tímamyndir Árni Sæberg)
Margra ára reynsla CENERAL á sviði reikni og rafeindabún-
aðar tryggir að hugsað er fyrir þörfum kaupenda í öllum
smáatriðum.
í fjölbreyttu og vönduðu úrvali CENERAL reiknivéla eru
vélar fyrir einföldustu og flóknustu verkefni.
LÁTTU GENERALINN LEYSA DÆMIÐ
OGENERnL
BORÐREIKNIVÉLAR
Árið 1931 keyptu Hringskonurnar
jörðina, sem hæiið stóð á, réðu ráðs-
mann og tóku að reka þar kúabú. Þetta
var mjög merkilegur rekstur og átti
mjólkursala þaðan að standa undir
rekstri hælisins. Þetta bú ráku konurnar
allt til ársins 1948, þó að þær væru hættar
rekstri hælisins.
Samkomulag náð vid
yfirvöld um stofnun
barnaspítala
Um það leyti, sem Hirngskonur gáfu
ríkinu Kópavogshæli, fóru þær að líta
eftir öðrum verkefnum, þar sem þá voru
aðrir aðilar teknir til við að sinna
máefnum berklasjúklinga, ekki síst þeir
sjálfir, sem stofnuðu eigin samtök, SÍBS.
1942 taka þær þá ákvörðun að koma á
stofn barnspítala og þá fara þær að safna
fé með alls konar útiskemmtunum. leik-
skemmtunum, merkjasölu, basörum,
Hringskaffi, sem hefur verið haldið ár-
visst í desember um margra ára skeið,
o.s.frv. Ágóðinn af allri þessari starfsemi
átti að renna til barnaspítala.
Jafnframt fara þær að athuga, hvernig
eigi að koma slíkum spítala upp, velta
fyrir sér að kaupa gamlar húseignir í
bænum og breyta þeim, eða þá fá inni í
Landspítalanum eða Borgarspítalan-
um. sem þá var farið að ráðgera að reisa.
Þrátt fyrir heldur litlar undirtektir,
voru konurnar ekkert á því að gefast upp
og í kringum 1950 komust þær að
samkomulagi við landlækni og ríkis-
stjórnina um að til bráðabirgða væri
barnadeild komið fyrir í gamla spítalan-
um, - í húsnæði, sem þar losnaði vegna
flutnings hjúkrunarkvennaskólans, til að
flýta fyrir því að hún kæmist á laggirnar,
en henni yrði síðan ætlaður staður í
framtíðarbyggingum Landspítalans.
Gegn þessu loforði lögðu þær fram
byggingarsjóð sinn.
Barnaspítali Hringsins tók svo til
starfa á kvennadaginn 19. júní 1957, en
fram að þeim tíma höfðu börn legið
innan um aðra sjúklinga á hinum ýmsu
deildum spítalans. í núverandi húsnæði
flutti spítalinn svo 1965.
Geðdeild Barnaspítala Hringsins við
Dalbraut var svo opnuð 1971. Ríkið
reisti hana, en Hringskonur gáfu allan
húsbúnað. Á Geðdeild er yfirlæknir Páll
Ásgeirsson, en alltaf var ráðgert að náið
samstarf yrði með Barnaspítalanum og
Geðdeild. Það hefur þó ekki verið sem
skyldi vegna fjarlægðarinnar.
Nýjasta viðbótin við Barnaspítalann
er svokölluð vökudeild, ungbarnadeild
fyrir nýfæddu börnin, sem þurfa á
sérstakri umönnun að halda, fyrirburði,
vansköpuð börn o.s.frv. Hún er sérdeild,
sem heyrir undir Barnaspítalann, en er
staðsett á kvennadeildinni, eða fæð-
ingardeildinni. Þar eru 14 rúm.
Tækjagjafir
Allt frá stofnun Barnaspítalans hafa
Hringskonur stutt hann með ráðum og
dáð. Þær eru oft með söfnunarstarfsemi
og hafa gefið Barnaspítalanum tæki,
sem sárlega hefur vantað en Ríkisspítal-
arnir ekki getað keypt. Þetta á ekki hvað
s.íst við nú seinni árin, enda um mjög dýr
tæki að ræða. Tækninni hefur fleygt
áfram og því er hægt að fá alls konar
hjálpartæki til að fylgjast með sjúkling-
unum. Svo þarf náttúrlega alltaf að vera
að endurnýja tæki.
Á sl. sumri fórum við þess á leit, að
konurnar styddu okkur við kaup á
tækjabúnaði til að fylgjast betur og
nákvæmar með börnum, sem eru bráð-
veik. Þessum tækjum er verið að koma
upp núna, en um er að ræða sjónvarps-
skerma, þar sent liægt er að fylgjast með
hjartslætti, æðaslætti, blóðþrýstingi, púls
og því um líku.
Auk þess eru væntanleg á þessu ári
tæki til að endurnýja tæki úti á vöku-
deildinni.
Nýr sérhannaður
barnaspítali.
Loftkastalar?
Að lokum sagði Víkingur. ,.Ég hef
mikinn áhuga á, að það verði farið að
huga að nýju húsnæði fyrir barnaspítal-
ann. Viö fengum bara tvær hæðir í
fyrirframhannaðri sjúkrahúsbyggingu,
sem var fyrst og fremst hönnuð fyrir
fullorðna. En krakkar hafa sérþarfir.
Okkur vantar miklu meira leikpláss, þau
þurfa að hafa rúmt í kringum sig. Þau
þurfa að hafa aðstöðu til að föndra og
komast út fyrir hússins dyr.
Þess vegna höfum við verið að gæla
við þá hugmynd, að við gætum einhvern
tíma í framtíðinni fengið fyrir þessa
starfsemi byggingar, sem liafa verið
ætlaðar fyrir þessa starfsemi frá upphafi.
Þá gæti þetta húsnæði, sem við erum í
núna, konti til góða fyrir aðrar deildir
spítalans, sem væri mjög hentugt.
Vökudeildin þyrfti líka að vera í
nánari snertingu við deildiná hérna inni.
Það þyrfti að vera greiðari gangur á
milli, því að það eru sömu læknarnir og
starfsfólkið, sem vinnur á báðum deild-
unum.
Kannski eru þetta loftkastalar, en við
erum að hvetja þær Hringskonursvolítið
að ríða á vaðið, því að við viljum gjarna
hafa áhugamannafélög í þessu og þær
eru svo duglegar. Það er segin saga með
Hringskonur, það er ekki fyrr cinum
áfanganum náð en þær leggja af stað í
þann næsta.
Verð frá kr:
1.549,- s,sr
Viðgerða og varahlutaþjónusta.
&SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 SÍMAR 38900 - 38903
OG KAUPFÉLÖGIN
EINHELL „SOGMEISTARINN”
SÝGUR FLEST SEM FYRIR ER
30 LTR. VATNS- OG RYKSUGA A
EINSTÖKU VERÐI AÐEINS KR. 4.746.00
EINNIG 20 LTR. Á LÆGRA VERÐI /
Skeljungsbúðin
Síöumúla33
símar81722 og 38125
■ Hertha Jónsdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri afhenti Sigríði Johnson, formanni Hringsins, að gjöf veggkertastjaka
eftir Steinunni Marteinsdóttur og ávarpaði hana í nafni hjúkrunarstjórnar og hjúkrunarfræðinga, sem starfað hafa við
barnaspítalann frá 1957. Gjöfina sagði hún vera tákn um „sameiginlegt áhugamál, tákn urn það líf sem við höfum tekið að
okkur að hlúa að og hjúkra með okkar daglegu störfum og þið hafið brugðið Ijósi yfir. Á borðinu t.h. standa nýju tækin,
sem Hringskonur afhentu barnaspítalanum í tilefni afmælisins.
Tölvuritun
Starfskraftur óskast í tölvuritun.
Vinnutími frá kl. 8-16. Upplýsingar veittar í
síma 84648, mánudag og þriöjudag kl. 14-16.
Umsóknarfrestur ertil 17. febr. nk.
Fasteignamat ríkisins
Borgartúni 21
105 Reykjavík
Hestar í óskilum
í Skeiðahreppi eru í óskilum tveir rauðir hestar, ómar-
kaðir.
Sennilega tamdir. Hafi eigendur ekki gefið sig fram
innan hálfs mánaðar verða hestarnir seldir á uppboði.
Upplýsingar í síma 99-6512.
Hreppstjóri.