Tíminn - 07.02.1984, Qupperneq 18

Tíminn - 07.02.1984, Qupperneq 18
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRUAR 1984 kvikmyndir Hrafninn flýgur ★★★★ HRAFNINN FLÝGUR HÁTT Háskólabíú Hrafninn flýgur Leikstjórn og handrit Hrafn Gunn- laugsson Kviknivndataka Tony Forsberg Hljóð Gunnar Smári Helgason Leikmynd Gunnar Baldursson Búningar Karl Júlíusson Tónlist Hans Erik Philip Aðalhlutverk Jakob Þór Einarsson, Helgi Skúlason, Flosi Ólafsson, Edda Björgvinsdóttir, Sveinn M. Eiðsson og Gottskálk Sigurðsson. ■ Nýjasta kvikmynd Hrafns Gunn- laugssonar, Hrafnin flýgur, sem frum- sýnd var á kvikmyndahátíð Listahátíð- ar kemur manni þægilega á óvart og í huga undirritaðs er hún einfaldlega besta íslenska myndin sem gerð hefur verið hérlendis og hjálpast þar flest að, handrit, kvikmyndataka, sviðsmynd og búningar, tónlist og leikur. Á heild- ina litið stenst myndin fyllilega alþjóðleg gæðamörk að flestu, ef ekki öllu leyti | enda var henni boðið að vera í aðaldagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Berlín sem cr einn mesti heiður sem kvikmynd getur hlotið. Það sem öðru fremur ber af í myndinni er tónlistin og kvikmynda-1 takan, tónlistin er aðgrunni tii raminís- lensk, maður kannast við lög eins og | „Ríðum ríðum..." en þau eru færð í dulúðlegan búning af Hans Erik Philip og fellur tónlistin eins vel og kostur er að efnivið myndarinnar. Yfir kvik- myndatökunni er léttur „Bergman- stíll“ Hrafn notar mikið af „nærmynd- arskotum" og byggir myndina mikið upp þannig, eins og til dæmis í upphafs- atriði myndarinnar og gefur þessi tækni myndinni mjög sérstakt yfirbragð og heíur á heildina litið heppnast vonum framar. Söguþráðurinn byggir á einu þekkt- asta mótívi eða þema íslendingasagn- anna, hefndinni. Norskir víkingar í ránsferð á írlandi ráðast á fjölskyldu eina, drepa hjónin, ræna dótturinni en yngsti sonurinn kemst lífs af. Víkingarnir flýja svo Noreg til ís- lands og hefur annar þeirra stelpuna með sér en hún getur honum son á Islandi og hann tekur hana sem eigin- konu sína. Víkingarnir cru fóstbræður tveir, Eiríkur og Þórður, leiknir af Helga Skúlasyni og Flosa Ólafssyni og líkar þeim vistin á íslandi illa. Tuttugu árum síðar kemur farskip til íslands og með því sonurinn, Gestur, en hann hefur fullan hug á því að leita hefnda fyrir víg fjölskyldu sinnar. Hann tekur til við að drepa menn þeirra fóstbræðra og tekst hon- i um að sá svo mikilli tortryggni og fjandskap á millum þeirra að Þórður drepur fóstbróðir sinn Eirík. Systir Gests, leikin af Eddu Björg- vinsdóttur, lendir á milli tvcggja elda þar sem er annarsvegar bróðir hennar og hinsvegar barnsfaðir og til að bjarga barni sínu svíkur hún Gest í hendur Þórðar en Gestur sleppur úr haldi, fyrir tilstuðlan hennar, og vígin halda áfram. Loks tekst honum að drepa Þórð og grefur hann vopn sín að því loknu en sonur Þórðar stendur í svipuðum sporum og Gestur í myndar-1 lok oggrefurupp vopnin. Saganendur- tekur sig. Hrafn sjálfur hefur kallað þessa' mynd fjölskyldumynd en það er kan,nski ekki réttasta lýsingin á henni einkum vegna mikils blóðbaðs í henni, þeir fóstbræður halda stór bú með miklum mannskap sem Gestur verður að ganga af dauðum áður en hann nær til foringjanna. Þessi víg öll eru hins- vegar eins hreinleg og hægt er að ætlast til í svona mynd og verða aldrei neitt aðalatriði í sjálfu sér í myndinni. Annað sem hugsanlega mætti finna að myndinni er málið sem talað er. Sumum finnst kannski miður að ekki er notað fonaldarlegt mál í henni en þetta er atriði sem manni sjálf- um finnst síður en svo athugasemda- vert, fólk á mun auðveldar með að 1 skilja það sem fram fer og svo er mál- farið yfirleitt kjarnyrt, setningar eins og „„norður í rassgat..." og þessi andskotans grjóthólmi..." koma fyrir og handritið að myndinni er í alla staði mjög frambærilegt. Hvað leikinn varðar þá er Flosi hreint óborganlegur í hlutverki bragðarefsins Eiríks sem á sér þann draum æðstan að hverfa frá „grjót- hólmanum" og aftur til Noregs. Hann er nokkurskonar víkingaútgáfan af sukksömum rómverskum keisara í útliti, bragðarefur hið innra sem bregst slægðin þegar hann þarf hennar mest. Helgi Skúlason og Edda Björgvinsdótt- ir gera hlutverkum sínum einnig mjög góð skil en Jakob Þór Einarsson sem Gestur er aftur á móti nokkuð fjar- lægur áhorfandanum, hlutverk hans er svipað og hlutverk hins „þögla sterka manns" í óteljandi vestrum sem maður hefur séð, persóna sem er hvati atburð- arrásarinnar, persóna sem er bundin aðgerðum sínum, hefur ekki nema eitt markmið og fylgir því eftir hvað sem á dynur. Hlutverk sem þessi bjóða yfirleitt ekki upp á mikla leikræna tjáningu, eru heldur að miklu leyti bundin persónuleika/skapgerð við- komandi leikara. Búningar og sviðsmynd eru sérkapi- tuli út af fyrir sig, hvorttveggja frábær- lega vel leyst úr hendi en myndin er að mestu tekin í nágrenni Víkur í Mýrdal og spilar landslagið og náttúrufegurðin þar stórt hlutverk í henni. -FRI Friðrik Indriðason skrifar um kvikntyndir Þórður (Helgi Skúlason) leitar Gests í lokauppgjöri myndarinnar. Eríkur (Flosi Ólafsson) hreint frábær í hlutverki sínu. Jörð Kaupi íslensk frímerki á pappír/afklippur á hæsta verði. Staðgreiði. Tilboð sendist til H. Andersen, Stærevej 45, 2, 2400 Köbenhavn NV Danmark. til sölu Tilboð óskast í jörðina Göngustaði í Svarfaðadalshreppi í Eyjafjarðarsýslu, sem er laus til ábúðar á fardögum í vor. ^ Sauðárkrókur Upplýsingar um jörðina eru veittar í síma 96-61150. Tilboðum skal skilað til eiganda jarðarinnar Þórarins Valdimarssonar Jarðbrú 620, Dalvík fyrir 1. mars nk. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga og Ijós- mæður til sumarafleysinga. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri á staðnum og í síma 95-5270. Hjúkrunarforstjóri. Kvikmyndir SALUR 1 Frumsýnir stormyndina Daginn eftir (The Day Atter) Perhaps The Most Important Film Ever Made. * ^ p the DAY AFTER Heimsfræg og margumtöluð stór- mynd sem sett hefur allt á annan endann þar sem hún hefur verið sýnd. Fáar myndir hafa fengið eins mikla umfjöllun í fjölmiðlum, og vakið eins mikla athygli eins og THE DAY AFTER. Myndin er tekin i Kansas City þar sem aðalstöðvar Bandaríkjanna eru. Þeir senda kjarnorkuflaug til Sovétríkjanna sem svara i sömu mynl. Aðalhlutverk: Jason Robards, Jo- beth Williams, John Cullum, John Lithgow. Leikstjóri: Nicholas Meyer. Sýnd kl. 5,7.30 og 10 Ath. breyttan sýningartima Bönnuð börnum innan 12 ára. Hækkað verð. ■:------' ^ - SALUR2 ! Nýjasta James Bond myndin Segðu aldrei aftur aldrei er mættur aflur ti! leiks í hinni splunkunýju mynd Never say nev- er again. : ‘ Aðalhlutverk: Sean Connery, Klaus Maria Brandauer, Barbara i Carrera, Max Von Sydow, Kim Basinger, Edward Fox sem „M“. Byggð é sögu: Kevin McClory, lan Flemlng. Framlelðandi: Jack Schwartzman. Leikstjórl: Irvin Kershner. Myndin er tekin I Dolbv Sterio. Sýnd kl. 5,7.30 og 10 Ath. breyttan sýningartima i i SALUR3 Skógarlíf og jólasyrpa af Mikkamús Einhver'su alfrægasta grinmyncf sem gerð hefur verið. Jungle Book hefur allstaðar slegið aðsóknar- met, enda mynd fyrir alla aldurs- hópa. Saga eftir Rudyard Kipling um hið pvenjulega líf Mowglis. Aðalhlutverk: King Louie, Mowgli, Baloo, Bagheera, Shere-Khan, Col-Hathi Kaa. Sýnd kl. 3, 5 og 7. Píkuskrækir Djörf mynd. Tilvalin fyrir þá sem klæðast frakka þessa köldu vetrar- daga. Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 9 og 11 SALUR4 T~’ ------r Svörtu tígrisdýrin Sýnd kl. 5,9 og 11 La Travíata Sýnd kl. 7 Hækkað verð Ath: Fullt verð í sal 1 og 2 Afsláttarsýningar í sal 3 og 4

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.