Tíminn - 17.02.1984, Side 20

Tíminn - 17.02.1984, Side 20
Opið virka daga 9-19 Laugardaga 10-16 H HEDD Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 00 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á ollu Kaupum nýlega bíla tll niöurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 Ritstiorn86300 - Auglysmgar 18300- Afgreidfda o?. 86300 - Kvbjdsimar 86387 og 86306 Islendingar löghlýdnastir allra Evrópubúa?: abriel HÖGGDEYFAR ___i | , • Hamarshöfða 1 (JJvarahlutir sími365io. Föstudagur 17. febrúar 1984 FANGAR HLUTFALLSLEGfl LANGFÆST1R A ÍSIANDI — en hins vegar er hlutfall kvenfanga hæst hér á landi ■ Ef marka má skýrslu Evrópu- ráðsins cru íslendingar cin lög- hlýðnasta þjóð í Evrópu. I samantekl um fangelsismál Evr- ópuríkja sem Evrópuráðið hefur sent frá sér, keinur m.a. fram að 1. september 1983 voru hiutfalls- lega langfxstir fangar á lslandi eða 24,3 miöað við hverja 100.000 íbúa. Flestir fangar voru þá í Austurríki eða 114 iniðað við hverja 100.000 íbúa. Á sartia tíma var hinsvcgar hæsta hlutfall kvenfanga á Islandi af öllum Evrópuþjóðum eða 5,3% af föngum. í skýrslunni er dreginn saman ýmislegur fróðleikur um fangels- ismál í Evrópu, bæði í tölum og umfjöllun. Parerm.a. birt heild- artala fangelsana hjá 19 Evrópu- þjóðum árið 1982 og voru þær 154 á íslandi eða 65,5 miðað við 100.000 íbúa. Aðeins í Kýpur var hlutfallsleg fangatala lægri eða 54,1. Langhæsta hlutfallið var í Danmörku eða 377,7 en Bretland og Noregur kom næst með 315,5 og 292,2. Á sama tíma var meðaltími fangelsisvista einna lengstur á íslandi eða 6,5 mánuðir og eru aðeins tvær þjóðir með hærri meðaltíma, Kýpur með 6,6 mán- uðr og Portúgal með 8 mánuði. Styst virðist hver fangi sitja inni í Hollandi eða 1,6 mánuð að meðaltali. f skýrslunni kemur fram að fjöldi fanga virðist aukast hlut- fallslega í réttu hlutfalli við fólks- fjölda. Ef þjóðum er skipt í 3 hópa 1. febrúar 1983 koma Malta, Kýpur og ísland best út með í kringum 30 fanga á hverja 100.000 íbúa. Þessi lönd hafa öll undir einni milljón íbúa. I öðrum hópnum eru lönd með milli 1 milljón og 15 milljónir íbúa með milli 35 og 65 fanga. í þriðja hópnum eru síðan þjóðir með yfir 15 milljónir íbúa þar sem meðaltal fanga á hverja 100.000 íbúa er yfir 59.. -GSH ■ Þótt sólin sé nú aftur tekin að skína á ísafirði öðru hvoru, eftir sitt ár- lega tveggja mánaða jóla- frí, er heldur kuldalegt um að litast á ísafirði ennþá. Þétt jakahröngl þekur Pollinn og hlákan sem hefur verið að drekkja Suðurlandi undanfarna daga hafði ekki lagt leið sína þar vestur þegar þessi mynd var tekin nú nýlega. Tímamynd Finnbogi Flugleidir: BRAUTARLENGD- IN MEIRI EN NÓG — ef bremsuskilyrði hefdu verið þau sömu og flugstjóri fékk uppgefin ■ Vegna fréttatilkynn- ingar Flugmálastjórnar um óhapp við lendingu DC-8 þotu Flugleiða á Keflavíkurflugvelli hafa Flugleiðir sent frá sér fréttatilkynningu þar sem segir m.a.: „Samkvæmt DC-8-63 handbók er nauösynleg flugbrautarlengd miðað viö hámarks lendingar- vigt, þurra braut og góð bremsuskilyrði, 1997 metrar, án þess aö bremsu- kný hreyfla sé notaö. Sam- kvæmt handbókinni á vél- in að stöðvast á 60% þeirr- ar vegalengdar þ.e. á 1198 metrum." Flugleiðir segja jafn- framt að ef bremsuskilyrði viö lendingu þotunnar á Keflavíkurflugvelli hefðu verið þau sömu og flug- stjóri fékk gefið upp liefði brautarlengdin verið nieiri en nóg til að stöðva vélina en í tilkynningu Flugmála- stjórnar er talað unt að þotan hafi haft 2150 metra. Við léleg bremsuskil- yrði er nauðsynleg flug- brautarlengd samkvæmt flugrekstrarbók Flugleiða fyrir DC-8 vélarnar, sem næst 2.500 metrar og þá miðað við að bremsukný hreyfla sé notað. Séu bremsuskilyrði léleg (bremsustuðull 0,25 eða minna) er flugstjórum félags- ins ráðlagt að reyna ekki lendingu. -FRI Bílageymsluhús fyrir ÍOOO bifreiðar byggt í midborginni? ■ „Tæknilega séð er ekkert því til fyrirstöðu að framkvæmd- ir hefjist strax á næsta ári. Þetta kostar hins vegar nokkurt fé og ég get engu spáð um hvort reikn- að verður með því á næstu fjárhagsáætlun borgarinnar," sagði Þórður Þorbjarnarson, borgarverkfræðingur, þegar hann var spurður hvort til stæði að hefja byggingu tveggja stórra bílageymsluhúsa í miðborg Reykjavíkur á næstunni. Á aðalfundi Félags stór- kaupmanna í gær sagði Davíð Oddsson, borgarstjóri, að fyrir lægju hugmyndir um að byggja bílageymsluhús fyrir allt að 1000 bíla í Kvosinni. Hann nefndi tvo staði í því sambandi, autt svæði austan við Hafnarbúðir og horn Tryggvagötu og Kalkofnsvegar. Telur Ðavíð að fjölgun bílastæða á þessu svæði muni létta mjög á allri umferð um gamla miðbæ- inn, en um hann er talið að fari að meðaltali 42 þúsund bílar á dag og þar af nokkur stór hluti sem hringsóli í bílastæðaleit. -Sjó dropar Misskilnin sam- eignarstefna! ■ Draumurinn um „réttlátt þjóðfélag" hefur lcngi blundað hjá sameignarsinnum, þó sjaldnast hafi þeir haft tækifæri til að koma hugmyndum sínum fuilkomlega í framkvæmd. í kjölfar stjórnarbyltinga í Af- ríku hafa þó slíkir menn komist til áhrifa með misjöfnum ár- angri, sem aliir hafa haft sam- eignarhugsjónir sínar að leið- arljósi. Áhrifamenn í Zimbabwe föndra við þennan drauin sinn eins og aðrir í álfunni, en þó er sá agnúi á að komið hefur upp misskilningur annars vegar milli stjórnenda, en hins vegar íbúa landsins, um túlkun sam- eignarstefnunnar. Þannig en öllu steini léttara stolið úr skólum landsins, s.s. bókum, stólum, borðum o.fl. á þeim grundvelli að þjófarnir eigi hlutina hvort sem er. Standa yfirvöld í ströngu við að skýra út, að þrátt fyrir samcignarrétt- inn á þessum hlutum, þá sé ætlast til að þeir fái að vera í friði, svo kennararnir standi ekki uppi allslausir í skólanum. Ætlarðu að fara yfir í sexið??? ■ Þau eru mörg spaugileg atvikin sem gerast í hliðar- sölum hins háæruverðuga al- þingis. Þannig fréttu Dropar af einurn þingmanni á tali við skjólstæðing sinn í símaklefa sjö í þinginu, þegar annar hrinedi oe vildi fá samband við hann. Þar sem samtalið við hinn fyrra ætlaði aldrei að Ijúka greip símastúlka til þess bragðs að hringja í símaklefa sex í þeirri von að þingmaður- inn tæki þar til við nýtt sanital er hinu fyrra væri lokið. Leið nú og beið, þar til bæði sá sem hringdi og símastúlkan misstu þolinmæöina. Flaug þá þessi gullvæga setning til þing- mannsins: Ætlarðu að fara yfir í sexið og taka upp tólið." Krummi .. . ... skilur ekki að nokkur semji ef allir ætla að bíða eftir öllum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.