Tíminn - 19.02.1984, Page 7
SUNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984
7
meistaratitilinn og þegar regluleg keppni
hófst ufn hann að nýju, 1957, var nýr
keppinautur að kveða sér hljóðs, Robert
Fischer.
Gamla undrabarnið og unga undra-
barnið mættust í fyrsta sinn yfir skák-
borðinu í þriðja Rosenwald-skákmótinu
1956. Þeir tefldu saman í sjöttu umferð
og Reshevsky vann er Fischer féll á
tíma. (Fischer lét það reyndar ekki á sig
fá. Teimur umferðum síðar tefldi hann
„ódauðlegu skákina" gegn D.Byrne.)
En það varð síðan ljóst að Fischer var
ofjarl Reshevskys. Fischer sigraði á
fjórum skákþingum Bandaríkjanna í
röð, Reshevsky varð tvívegis í öðru sæti,
einu sinni í þriðja sæti og loks í 4.-6.
sæti. Fischer varð alls bandarískur meist-
ari átta sinnum og Reshevsky varð jafn
oft að lúta í lægra haldi.
En það gerði hann ekki baráttulaust.
Hann tefldi enn snilldarlega og vann
góða sigra. Frægt er til dæmis mótið í
Buenos Aires 1960 þar sem hann varð
efstur ásamt Korchnoi - „hinum hræði-
lega“ - en Fischer varð langt fyrir neðan.
Arið 1961 var haldið einvígi þeirra til að
skera úr um hvor væri sterkari en það fór
út um þúfur vegna deilna um skiplagsmál
þegar ellefu skákum af 16 var lokið. Þá
voru keppinautarnir jafnir, hvor hafði
unnið tvær skákir. Eins og titt er um
mikla keppinauta voru þeir Reshevsky
og Fischer engir vinir, þeir voru báðir
kröfuharðir og fastir á sínu. Ágreiningur
þeirra leiddi m.a. til þess að þeir kepptu
ekki saman í bandarískri ólympíusveit
fyrr en í Siegen 1970. Annaðhvort var
bara annar þeirra með eða báðir fjarver-
andi.
1964 hóf Reshevsky aftur þátttöku í
heimsmeistarakeppninni og lenti í 8.-9.
ásamt Portisch. Þeir háðu einvígi um eitt
sæti í áskorendakeppninni og í fyrsta
sinn á ævinni tapaði Reshevsky einvígi
og Portisch komst áfram. Reshevsky var |
þó fjarri því dauður úr öllum æðum, í
Sousse þremur árum seinna hafnaði
hann í 6.-8. sæti og keppti síðan auka-
lega við þá Leóníd Stæn og Hort um sæti
í úrslitunum. Keppnin endaði með þvi':
að allir urðu jafnir og Reshevsky komst
áfram á stigum. Hann tefldi síðan við
Korchnoi í fyrstu umferð og tapaði.
Eftir það var Reshevsky með á milli-
svæðamótunum fram til 1973 og stóð
jafnan fyrir sínu þó þrekið færi auðvitað
minnkandi. Nú síðast munaði ekki nema
hársbreidd að hann kæmist á millisvæða-
mót en þá lenti hann í 3.-5. sæti á
bandaríska meistaramótinu 1981 sem
jafnframt var svæðamót. Bandaríkja-
menn áttu þrjú sæti og sigurvegarar
mótsins, Browne og Seirawan, fóru
beint áfram en Reshevsky keppti við
Christiansen og Kavalek um þriðja
sætið. Reshevsky var óheppinn og missti
oftar en einu sinni af vinningi. Að
lyktum urðu þremenningarnir jafnir og
Christiansen komst áfram á stigum.
Seigla Reshevskys er ótrúleg og allt
fram á síðasta áratug hélt hann sér í allra
fremstu röð skákmanna heims. 1966
náði hann til dæmis 50% vinningshlut-
falli á hinu geysisterka Piatigorsky-skák-
móti í Santa Monica (Spassky 11.5,
Fischer 11, Larsen 10, Portisch & Unz-
icker 9.5, Petrósjan og Reshevsky 9,
Najdorf 8, Ivkov 6.5, Donner 6), og um
áramótin 1969-70 gerði hann sér lítið
fyrir og varð bandarískur meistari í
sjötta sinn. Á undanförnum árum hefur
hann hvað eftir annað náð mjög góðum
árangri á bandarísku meistaramótunum,
og eftir að hann hætti störfum sem
endurskoðandi hefur hann í fyrsta sinn
getað einbeitt sér að skáklistinni. Þótt
ekki sé hann lengur á toppnum nær hann
oft fyrirtaks árangri og enginn skákmað-
ur getað bókað vinning gegn Samuel
Reshevsky.
Hann hefur sett svip sinn á skáksöguna
næstum alla þessa öld, bæði með feikna-
sterkum skákstíl sínum og eftirtektar-
verðum persónuleika. Við skákborðið
er hann þolinmóður og úthaldsgóður og
lætur slæmt tímahrak sjáldan á sig fá. Þó
stíll hans sé ekki jafn hvass og sumra
frægustu sóknarskákmanna heims hefur
hánn mjög næmt auga fyrir taktískum
fléttum og brellum þegar svo ber undir,
og óhætt er að hvetja áhorfendur á
Reykjavíkurskákmótinu til að láta skák-
ir hans ekki framhjá sér fara. Þess má
geta að lokum að samkvæmt útreikning-
um talnaprófessorsins Elos hafði Resh-
evsky að meðaltali 2680 stig þau fimm ár
sem hann var bestur. Innan við tugur
skákmanna frá upphafi getur státað af
betri árangri.
Verð kr. 378.800
með sex ára ryðvarnarábyrgð
(miðað við gengi 16.2. 1984).
OP€L A5CONA1984
Á'V' / "
1
Ij. •y|
Fyrsta sending af OPEL ASCONA 1984 er komin
til landsins. Ætternið segir til sín. Fallegur og
rúmgóður. Öruggur og þægilegur. Sprettharður
og sparneytinn. Fjölskyldubíll. Vestur-þýskur fram
í felgur.
OPEL byrjaði að framleiða bíla 1898. Reynsla 86
ára kemur þér til góða, þegar þú kaupir OPEL.
Tákn vestur-þýskrar vandvirkni. Tækni, sem
treystandi er á. Öryggi, kraftur, ending. OPEL.
AUGLVSINGASTOFA SAM8AN0SINS
HOFÐABAKKA 9 SIMI 687300 GÆÐAEFTIRLIT MEÐ GÆÐAVORUM
rffH LAUSAR STÖÐUR HJÁ
M REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til
eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt
kjarasamningum.
Skrifstofumann hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 15937 eða
21769
Bókasafnsfræðing í hálft starf
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu Borgarbókasafns í
síma 27155
Umsóknum beraðskilatilstarfsmannahalds Reykjavík-
urborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð, á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00 mánu-
daginn 27. febrúar 1984.
Tilboð óskast
í gaffallyftara HYSTER, árgerð 1970, (10.000
Ibs.) og gaffallyftara SAXBY, árgerð 1966, 2 1/1
tonn.
Tækin verða sýnd þriðjudaginn 21. febrúar kl.
12-15 að Grensásvegi 9.
Sala varnarliðseigna
Til sölu
Sjálfhleðsluvagn Flliscalvenzi lítið notaður
Upplýsingar gefur Hilmar Guðmundsson
Kolbeinsá sími um Brú