Tíminn - 19.02.1984, Page 8

Tíminn - 19.02.1984, Page 8
SllNNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1984 a Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv . Hermannsson, Heiður Heigadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristin Lelfsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (iþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir, Þorvaldur Bragason. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, Sigurður Jónsson. Ritstjórn skrifstofurog auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsimar: 86387 og 86306. Verð i lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 250.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Fjármagni beint í atvinnurekstur ■ Mikill styrr hefur staðið um stjórnarfrumvarp þess efnis að fjárfestingar í atvinnurekstri verði frádráttarbærar frá skattskyldum tekjum að tilteknu marki. Sósíalistaflokkarnir hafa lagst eindregið á móti frumvarpinu og haft uppi margs kyns rök fyrir því að hér sé verið að hygla hinum ríku í þjóðfélaginu á kostnað þeirra sem minna hafa handa á milli. Samkvæmt steinrunnum hugmyndum þessara flokka telja þeir óhugsandi að alþýða manna og launþegar eignist hluta í atvinnufyrirtækjum og geti þar með haft hag af rekstri þeirra og afkomu. Svo er ráð fyrir gert að frádrátturinn nemi aukningu í fjárfestingu í atvinnurekstri en verði aldrei hærri en 20 þús. kr. hjá einstaklingi og 40 þús. kr. hjá hjónum. Þessar upphæðir munu ekki vega þungt hjá stóreignafólki svo að fyrir þá sök eina er tómt mál að tala um að hér sé einkum verið að hygla hinum ríku. Hins vegar gæti þessi lagasetning orðið hvati fyrir það fólk sem eitthvað hefur aflögu til að leggja fé sitt fremur í atvinnurekstur en eyða því í meira eða minna gagnslausa hluti eða athafnir eins og lögmál verðbólgu- hugsunarháttarins býður upp á og löngum hefur tíðkast hér á landi. Davíð Aðalsteinsson sagði efnislega í umræðum um þetta mál í efri deild að ljóst væri að drjúgur hópur fólks hafi haft allnokkra fjármuni með höndum eins og eyðsla undangeng- inna ára bæri með sér. Þætti sér viturlegra að stofna til einhverra þeirra ráðstafana, sem hugsanlega mundu veita því fjármagni er þetta fólk hefur undir höndum inn í atvinnulífið og mynda bein áhugatengsl meðal hins almenna manns og atvinnulífsins í landinu. Hann kvaðst leyfa sér að vona að þegar og ef fjárstreymi eykst með þessum hætti til atvinnufyrirtækjanna, þá verði þau betur í stakk búin til að greiða hærri laun. Tómas Árnason sagði að með frumvarpinu sé fyrst og seinast verið að reyna að stuðla að því með löggjöf að fólk beini meira af fjármagni sínu inn í atvinnulífið til að styrkja það og skapa meiri verðmæti, sem síðan gæti orðið grundvöllur að hærri launum í landinu. Það er sérstök ástæða til að gera ráðstafanir af þessu tagi vegna þess að þjóðarframleiðslan og þar með þjóðartekjur hafa minnkað verulega á síðustu tveimur árum eða um 11-12%. Helsta viðfangsefni okkar í framtíðinni er að auka þjóðartekjur á ný, áfram verður að reka undirstöðuatvinnu- vegina, sjávarútveg, landbúnað og iðnað. Tómas kvað það kannski vera vandasamara að efla iðnaðinn heldur en sjávarútveg og landbúnað, sem eru atvinnugreinar sem við höfum lagt stund á um aldir og þekkjum betur til og kunnum betur til verka heldur en í nýjum iðngreinum og iðnaði. En það ætti ekki að fæla menn frá því að beina fjármagni í iðnaðaruppbygginguna. Þegar eru heimildir nokkuð rúmar til að starfsmannasjóðir eignist hluti í viðkomandi fyrirtækjum. Hafa starfsmannafé- lög margra fyrirtækja gerst hluthafar og bera þannig að vissu marki ábyrgð á rekstri fyrirtækjanna, og starfsmennirnir hafa hag af góðri afkomu þeirra. Hlutafélög á íslandi hafa löngum verið eins og lokaðir klúbbar þeirra sem aðstæður hafa til að eignast í þeim hluti, enda hefur ekki verið til siðs að leita eftir fjármagni hjá almenningi til að fjármagna stofnkostnað og rekstur. Undantekningar frá þessu eru Eimskipafélagið, en fyrir réttum 70 árum var safnað fé hjá almenningi með hlutabréfaútboði, og rúmum 30 árum síðar voru boðin hlutabréf m.a. í matvöruverslunum, í nýstofnuðu flugfélagi sem hlaut nafnið Loftleiðir. Helstu rök þeirra sem eru á móti skattfrádrættinum vegna fjárfestingar í atvinnurekstri eru þau að láglaunafólkið hefur ekki fjármuni afgangs til að geta nýtt sér frádráttinn. Þetta er hárrétt, en hins ber að gæta að það eru líka mörg heimilin sem hafa afgang þegar nauðþurftum hefur verið fullnægt. Það getur engan skaðað þótt því fólki sem rýmra hefur um hendur sé gert fýsilegra að leggja fé í atvinnurekstur en að eyða því í fánýti. OÓ Minningar Raisu Orlova ■ Út eru komnar hjá Random House í New York minningar Raisa Orlova og ber bókin einfaldlega nafnið „Endur- minningar". Orlova var ung kona í Moskvu árið 1930 þegar þar var að vaxa upp æska sem leit á það sem hlutverk sitt að kl ífa hæstu tinda, fljúga á Norður-pólinn og aðstoða land sitt við framsókn í átt til dagrenn- ingar sósíalismans. Þegar frá leið reyndi mjög á trú hennar á stjórnarfar Stalíns vegna handtöku og hvarfs fjölda fólks og hinna grófustu blekkinga og lyga allt umhverfis. En hún lét allan vafa lönd og leið og taldi sér trú um að allt væru þetta óhjákvæmilegir hlutir og að innst inni væri kjarninn hreinn. Annað hefði kost- að hana að fyrirgera trú sinni og tapa mynd sinni sem gildum borgara í heimi hinna nýju trúarbragða Hún giftist og eignaðist börn, en í stríðinu féll maður hennar. Hún giftist að nýju skrifstofumanni einum Nikolai Orlov, en hjónabandið var óhamingju- samt. Hún tók nú að skapa sér feril sem bókmenntakennari og gagnrýnandi. Hún gekk í flokkinn og sem sérfræðingur í amerískum bókmenntum og menningu var hún send til ýmissa grannríkja aust- antjalds. Henni lærðist að halda réttu ræðurnar og veðja á rétta hestinn þegar hreinsanir riðu yfir og hún tók þátt í baráttu gegn öllum andstöðuöflum, sem á vegi hennar urðu og hallaðist að andúð á Gyðingum, en þann tíma nefnir hún „mesta niðurlægingarskeið lífs míns.“ Var það ekki fyrr en Stalín var allur og hún hafði byrjað nýtt líf með öðrum efahyggjumanni, Lev Kopelev, á ágæti kerfisins, að hún sagði að fullu skilið við kommúnismann. Lev Kopelev varð fyrirmynd Rubin hjá Solzhenitsyn í „Innsti hringurinn." Bók þessi er hlífðarlaus, hrærandi og sársaukafullur vitnisburður um hvernig heiðarlegir og vel greindir Rússar gátu lifað lífinu með augun fast klemmd aftur, sviknir af öðrum og svíkjandi sig sjálfa. Eina ástæðuna segir Orlova vera tvöfalt siðgæði. „Það sem öreigaríkinu er gagnlegt er rétt." Hún segir að augu sín hafi lokist upp fyrir áhrif skáldskapar. „í ýmsum Ijóðum var margt það sagt opinskátt, sem ég og ýmsir umhverfis mig voru að hugsa.“ Bókin er byggð á dagbókum sem hún hélt á árunum 1961-1981, þegar hún og maður hennai neyddust til að halda í útlegð til V-Þýskalands. Hver kafli ber yfirskrift þess árs er hann var skrifaður. Færslurnar eru allar ritaðár án breytinga, til þess að þær missi ekkert af uppruna- legum blæ sínum. Þótt það komi nokkuð niður á samhengi, verður úr þessu vold- ug og áhrifamikil saga. Raisa Orlova dregur upp eftirminni- legar og viðkvæmar myndir af þekktum rússneskum rithöfundum, gagnrýnend- um og menningarfulltrúum, sem ríktu yfir andlegu lífi landsins á þessum tíma. Þarna kemur fram ómetanleg frásögn af ■ Raisa Orlova þeim brennandi umbótaanda sem ríkti í miðþrepunum í stiga kommúnistaflokks- ins eftir leyniræðu Krústéfs. Einnig er vonbrigðin dundu yfir með innrásinni í Tékkóslóvakíu og þegar „vorið í Prag“ var kæft með skriðdrekum. Hún segir frá mörgu hugrökku fólki sem stöðugt hélt fast í vonina um umbætur, en var rekið í útlegð og vinnubúðir, þegar þíðan var um garð gengin ogfrostið ríkti á ný. Einna eftirminnilegastar eru þó þær hættur sem hún bendir á að fylgi einsýnum hugsjónamönnum, - þegar fólk er ekki lengur mannverur heldur pólitísk tákn. Þegar hið illa er réttlætt vegna hins góða, en slíkt er ekki óþekkt fyrirbæri í Sovétríkjunum. fN.Y.T.Book Review) ■ Rauðu herdeild- irnar á Ítalíu hafa á undanförnum árum oft velgt bæði her og lögreglu undir uggum. t ’ , S vSB : ■ , a, 4 li lEÍ1 • Undirbúa skærulið- ar á Ítalíu stórsókn? ■ í fáum löndum Evrópu eru hryðju- verkamenn jafn margir og á Ítalíu. Talið er fullvíst að nú séu tæplega 400 þekktir hryðjuverkamenn í landinu fyrir utan minni spámenn í greininni. ítölsku lög- reglunni gengur að vonum illa að hafa hendur í hári þessara manna þar sem tækni þeirra, þjálfun og útbúnaður hefur orðið betri og betri eftir því sem þetta „stríð" hefur haldið áfram. Á undan- förnum árum hefur lögregla og her af og til látið til skarar skríða en með hverri tilrauninni læra hryðjuverkamenn betur að verjast og árásir þeirra verða mark- vissari. Þannig heldurstyr þessi áfram og verður tæknilega fullkomnari eftir því sem tímar líða. Stærsti hluti skæruliðanna eru með- limir í vinstrisinnuðum öfgasamtökum en afgangurinn tilheyrir ýmsum öfga- samtökum til hægri. Þetta mun því vera ærið mislitur hópur. Samtökum af þ^ssu tagi virðist fara fjölgandi á Ítalíu þrátt fyrir stöðugar aðgerðir stjórnvalda til að útrýma þeim. Talsmaður ítalska innan- ríkisráðuneytisins sagði nýlega að yfir- völd gerðu allt sem í þeirra valdi stæði til að gefa lögreglu og her „svigrúm" til að ráðast gegn þessari „plágu" eins og hann orðaði það. Skæruliðar hafa að vísu ekki sýnt á sér klærnar í neinum meiriháttar árásum síðustu mánuðina en óttast er að Rómar- deild Rauðu herdeildanna sé nú að undirbúa stórsókn á ýmsum vígstöðvum. Einn af hryðjuverkamönnum herdeild- anna sem „tjáði“ sig nýlega um málið í yfirheyrslu sagði að 18 meðlimir Rauðu herdeildanna væru nú í viðbragðsstöðu og tilbúnir til að láta frá sér heyra á eftirminnilegan hátt þegar tækifærið gefst.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.