Tíminn - 19.02.1984, Qupperneq 20
Gata á milli
Vegmúla og Fellsmúla
Fyrsta vísbending gefur 5 stig, önnur 4 stig, þriðja 3 f jórða 2ög fimmta 1 stig Fyrsta vísbending Önnur vísbending Þriðja vísbending Fjórða vfsoending Fimmta vísbending
1. 1. Skátd þetta lést nákvæm- lega 100 árum á eftir Jónasi Hallgrimssyni. 2. En fæddur var hann í Garðasókn 8. júni 1888 3. Fyrsta bók hans hét „Úr dularheimum.“ 4. Hann orti „Ríki ég er morð- ingi, rottan étur ost...“etc. 5. Hann ritaði skáldsöguna „Vítt sé ég land og fagurt"
2. 1. Gata þessi liggur á milli Vegmúla og Fellsmúla i Reykjavík. 2. Hún hefur stundum verið kölluð „Fleet-street" íslands 3. Þar eru ritstjórnarskrif- stofur Timans. 4. Þar er og aðsetur fleiri íslenskra dagblaða. 5. Og þekkt „dyfiissa" Reykja- víkurlögreglu.
3. 3. Læknir þessi fæddist 21. apríl 1807 að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. 2. Hann gerðist ungur her- læknir hjá Dönum. 3. Hann rak um skeið vatns- lækningastöð í Danmörku. 4. Hann varð landlæknir á íslandi. 5. Hann hvatti til byggingar steinhúsa á íslandi.
4. 1. Verslunarstaður þessi kemur lítillega við sögu i Kjalnesingasögu 2. Hann hétáður Einarshöfn. 3. Þar verslaði Lefoli kaup- maður. 4. Þar fæddist Ragnar i Smára. 5. Hann stendur við suður- strönd íslands.
5. 1. íslenskur leikari og háðfugl, fæddur 1929. 2. Hann lærði leikstjórn fyrir útvarps og sjónvarpsleik hjá BBC 1960-1962. 3. Hann samdi gamanóper- una „Þorskhallarundrin." 4. ...og ritaði bókina „Slett úr klaufunum". 5. Kann þýddi „Bjargvættur- inn í grasinu" eftir Salinger.
6. 1. Höfuðborg þessi stendur við fljót í Afríku. 2. Þaðan var mikill þrælaút- flutningur 3. Hún hét áður Bathurst 4. Hún er í Vestur-Afriku 5. Land það sem hún er í á landamæri að Senegal
7. 1. Skáld þetta fæddist 497 eða 496 fyrir Krist í Kólonos Hippios norðan við Aþenu. 2. Hann orti leiki um svipuð efni og Aiskýlos, fyrirrennari hans. 3. Eftir hann er „Ödipus í Kolonos", sem Helgi Hálf- dánarson þýddi. 4. Dr. Jón Gíslason þýddi og mörg verka hans. 5. T.d. „Þebuleikina.“
8. 1. Þetta ár rakst togarinn Fylkir á tundurdufl og sökk 2. Olíuflutningaskipið Hamra- fell kom til islands. 3. Vilhjálmur Einarsson hlaut silfurverðlaun á Olympíuleik- unum í Melbourne 4. Hermann Jónasson mynd- aði 3ja flokka vinstristjórn 5. Sovétríkin gerðu innrás i Ungverjalandi.
9. 1. í farfána Evrópuþjóðar þessarar eru níu rendur og munu þær merkja samstöð- urnar í órðtakinu „frelsið eða dauðann" á máli heima- manna. 2. Rendurnar eru bláar og hvítar 3. Landfáninn er hvitur kross á blaum feldi. 4. íslendingar vildu eitt sinn taka upp mjög líkan fána. 5. En það þótti varla viðeig- andi útaf skyldleikanum.
■ o 1. Móðir hans var systir Grims Jónssonar, amtmanns á Möðruvöllum 2. En faðir hans var staðar- haldarinn á Bessastöðum. 3. Eftir hann er kvæðið „Huldur". > 4. Einnig orti hann um „Arn- Ijót gellini“ 5. Hann var þingmaður á efri árum sínum og sat þá á Bessastöðum.
Svör við spurningaleik á bls. 20