Tíminn - 24.02.1984, Blaðsíða 1

Tíminn - 24.02.1984, Blaðsíða 1
Dagskrá rfkisfjölmidlanna — Sjá bls. 13 FJÖLBREYTTARA OG BEIRA BLAD! Föstudagur 24. febrúar 1984 47. tölublað - 68. árgangur Sidumula 15—Postholf 370Reykjavik—Ritstjorn86300- Auglysingar 18300- Afgreíðsla og askrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Áldeilan: LÍKUR Á SAMKOMUr LAGIAÐ AUKAST! ■ Miklar líkur voru tald- ar á því að samkomulag í deilu starfsmanna álvers- ins í Straumsvík og stjórn- enda verksmiðjunnar væri á næsta leiti í gærkvöldi. Þegar síðast fréttist stóð fundur ennþá yflr hjá ríkissáttasemjara og búist var við að hann stæði fram á nótt eða morgun. Samkvæmt heimildum Tímaps var í burðarliðn- um samkomulag sem er á líkum nótum og samning- ar ASÍ og VSf hvað varðar launaliðinn, það er að segja 5% hækkun strax og síðan þrjár áfangahækk- anir á gildistímanum, rúm- um 13 mánuðum. Til við- bótar áttu að fara fram einhverjar launaflokkatil- færslur, sem hefðu í för með sér að lægsti launa- flokkurinn að minnsta kosti yrði lagður niður þannig að þeir lægst launuðu fengju meiri hækkun ep aðrir. -Sjó RAMMINN EKKI SPRUNGINN SEGIR ALBERT ■ Steingrímur Her- mannsson forsætis- ráðherra lýsti því yfir á Alþingi í gær að samnings- drögin sem nú eru til af- greiðslu í verkalýðsfélög- unum brytu ekki í bága við efnahagsstefnu ríkis- stjórnarinnar og mundu ekki koma í veg fyrir að þau markmið náist sem að er stefnt. Albert Guðmundsson fjármálaráðherra kvaðst mjög óánægður með að ríkið gripi inn í samninga og færi að greiða niður laun fyrir atvinnurekend- ur, eins og hann telur að yfirlýsing ríkisstjórnarinn- ar beri með sér. Hafi hún verið gerð að sér fjar- stöddum og hafi hann ekki hugmynd um hvernig eigi að fá það fé sem varið verður til hinna lægst launuðu. Hins vegar kvað hann ramma fjárlaga ekki sprunginn og því engin ástæða fyrir hann að segja af sér enda ekki tilefni til. Sjá bls.2 ■ Leifamar af heflinum og steypubílnum sem voru inni í verkstæðinu þegar snjóflóðið féll. Heflllinn stóð yfir smurgryfjunni sem þeir Valgeir og Kristján runnu ofan í og flóðið bar steypubðinn á hefílinn. ___ Tímamynd Árni Sæberg Tugmilljónatjón á Ólafsvík er snjóflóð lenti á verkstædishúsi: „HÉLT AÐ MÍN SÍÐASTA STUND VÆRI RUNNIN UPP” — segir Valgeir Asmundsson, annar þeirra manna sem bjargaðist ■ „Ég hélt að mín síðasta stund væri runnin upp“, sagði Valgeir Ásmundsson, annar mannanna sem bjargaðist giftusamlega þeg- ar snjóflóð féil úr Ólafsvíkurenni kl. 24.00 á miðvikudagskvöld og lenti á verkstæðishúsi í eign steypustöðvarinnar Bjargs hf. Snjóflóðið olli hinsvegar gífur- legu eignatjóni, bæði á eigum Bjargs, og verktakafyrirtækisins Hagvirkis sem hafði aðstöðu sína í húsinu. Mjög slæmt veður var í Ólafs- vík um kvöldið, ofsarok og snjókoma. Því var búist við að snjóflóð féllu á veginn undir Ólafsvíkurenni og voru starfs- menn Hagvirkis því á næturvakt. Tvö flóð féllu síðan á veginn um kvöldið og voru tveir mannanna að reyna að grafa í gegn um þau með gröfu þegar þriðja flóðið féll á verkstæðishúsið. Mennirnir tveir runnu með flóðinu niður í smurgryfju en öðrum þeirra tókst að losa sig og losa um hinn. Mennirnir tveir sem voru á veginum snéru síðan við fljótlega og sáu hvers kyns var. Þá var kallað út björgunar- lið, lögregla og sjúkralið og mennirnir voru báðir komnir undir læknishendur um kl. 2.00. Tugmilljóna tjón varð vegna flóðsins þar sem öll tæki steypu- stöðvarinnar og byggingar eyði- lögðust og tæki í eigu Hagvirkis og verkstæðislager sömuleiðis. Fjórða snjóflóðið féll sömu nótt innar í bænum úr hlíðinni fyrir ofan heilsugæslustöðina en það stöðvaðist nokkra metra frá húsinu. Þá slapp vegfarandi nokkur naumlega við snjóflóðin tvö sem féllu á Ennisveg en hann var á leiðinni frá Rifi þegar hann kom að öðru flóðinu. Hann snéri þá við og skömmu síðar rann hitt flóðið yfir veginn fyrir aftan hann. Almannavarnanefnd Ólafs- víkur kom saman í gær vegna atburðarins og sendi frá sér á- lyktun þar sem óskað er eftir því við stjórnvöld að fram fari athug- ■ Krístján Lárusson og Valgeir Ásmundsson sem björguðust ór snjóflóðinu voru í gær fluttir til Reykjavíkur með flugvél til frekari rannsóknar. Kristján fótbrotnaði þegar flóðið skall á honum og á myndinni sést hann fluttur inn í flugvélina. un á snjóflóðahættu á staðnum og geri tillögur um úrbætur. Að sögn Stefáns Jóhanns Sigurðs- sonar forseta bæjarstjórnar er búist við sérfræðingi frá Al- mannavörnum ríkisins vestur í dag og Guðjón Petersen fram- kvæmdastjóri Almannavarna er Tímamynd Ami Sæberg væntanlegur til Ólafsvíkur eftir helgina til að ræða málin við hlutaðeigandi. -GSH Sjá nánar bls. 4-5

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.