Tíminn - 24.02.1984, Blaðsíða 2
2______
fréttir
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra:
„KIARASAMNINGARNIR SPRENGJA
EKKI RAMMA EFNAHAGSSTEFNUNNAR”
— Albert segir ekki af sér, en telur fráleitt að greiða niður launakostnaðinn
■ Það sýnist á misskilningi byggt að
ramminn sem mikið er talað um hafí
verið sprengdur með samkomulaginu
sem náðst hefur um nýja kjarasamninga,
sagði Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra á Alþingi í gær. Árangur-
inn í baráttunni við verðbólguna varð
mun betri um s.l. áramót en gert hafði
verið ráð fyrir í upphafi aðgerðanna og
stefnt var að 10% verðbólgu um næstu
áramót og mun sú spá ekki langt frá því
að standast. I fjárlögum er gert ráð fyrir
að svigrúmið til launahækkana verði 4%
á árinu, en margt bendir til að ef það
hefði staðist hefði verðbólgan komist
niður í 7% um næstu áramót. En með
því samkomulagi sem nú hefur tekist er
útlit á að verðbólgan verði 10-11% frá
upphafí árs til ársloka.
Þetta kom fram í ræðu sem forsætis-
ráðherra flutti í miklum umræðum utan
dagskrár um samningana.
Albcrt Guðmundsson fjármálaráð-
herra lýsti yfir að hann mundi ekki segja
af sér embætti að svo stöddu vegna
þessara samninga, en að hann væri
óánægður með að greiða niður laun fyrir
atvinnurekendur, eins og hann orðaði
það og að ekki kæmi annað til mála en
að framlag ríkisins til ráðstafana í
sambandi við samningana yrði fengið
með tilfærslum innan fjárlaga en viðbót-
arfjár ekki aflað.
Ólafur Ragnar Grímsson kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár og sagði að í
fjölmiðlum hafi komið fram mismunandi
túlkanir á hvað felist í samningunum og
vildi fá skýr svör frá ráðherrum um hvað
yfirlýsing ríkisstjórnarinnar fæli í sér og
hvernig ráðstafanirnar yrðu fjármagnað-
ar.
Hann vildi sérstaklega fá að vita hvort
fjármálaráðherra mundi standa við yfir-
lýsingar sínar um að segja af sér ef farið
yrði yfir 4% markið og hvort hann
hygðist ekki bjóða opinberum starfs-
mönnum sömu kjör og ASl og VSl hafa
samið um.
Kjartan Jóhannsson spurði hvort það
samrýmdist skoðunum ríkisstjórnarinn-
ar að bjóða opinberum starfsmönnum
ekki hið sama og hcildarsamkomulagið
kvcður á um og hvort að fyrirheit um
ráðstafanir til hinna verst settu væru háð
því að öll verkalýðsfélög landsins sam-
þykktu samningsdrögin.
■ Steingrímur Hermannsson
Ramminn ekki
sprengdur
Steingrímur Hermannsson gerði grein
fyrir þeirri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar,
að koma til móts við samningsaðila með
yfirlýsingu um kjarabætur fyrir hina
verst settu. Kvað hann það hefði verið
gert að tilmælum fulltrúa vinnumarkað-
arins. Á fundi sem haldinn var kynntu
fulltrúar vinnumarkaðarins þá samninga
sem þá voru í burðarliðnum og óskuðu
fulltrúur ASÍ og VSÍ eftir því að ríkis-
stjórnin færði til fjármagn til þeirra sem
lökust kjör hafa, samkvæmt þeirri athug-
un sem Kjararannsóknarnefnd lét gera
fyrir nokkru.
Ríkisstjórnin ákvað að verða við þess-
um tilmælum. í yfirlýsingu ríkisstjórnar-
innareru í meginatriðum þærhugmyndir
sem samninganefndirnar höfðu sett fram
um útvegun fjármagns innan ramma
fjárlaga til láglaunabóta og því heitið að
ríkisstjórnin sé tilbúin til viðræðna um
þcssar tilfærslur. Engin ákvörðun hefur
verið tekin um það hvaðan þetta fjár-
magn verður fært. Það mun ríkisstjórnin
athuga og eiga samráð um við aðila
vinnumarkaðarins. Engin ákvörðun hef-
ur verið tekin, en minnkun niðurgreiðslna
hefur verið nefnd, til greina kemur að
minnka útflutningsbætur og til tals hefur
komið að tengja barnabætur þessum
ráðstöfunum þannig að færa þær frá
hátckjufólki til lágtekjufólks.
Það er eindregin skoðun ríkisstjórnar-
innar að umræti samkomulag muni
■ Albert Guðmundsson
stuðla að heildarsamningum á vinnu-
markaði. Ríkisstjórnin lítur á þennan
skilning sem grundvallaratriði. Bregðist
að heildarsamkomulag náist mun ríkis-
stjórnin taka samþykktina til endur-
skoðunar. Ég vona að það'bregðist ekki,
en ef aðstæður breytast ogsamningurinn
felldur af einhverjum félögum hlýtur
ríkisstjórnin að skoða afstöðu sína til
málsins í heild.
Forsætisráðherra sagði að ríkisstjórn-
in mundi leitast við að veita ellilífeyris-
þegum og örorkubótaþegum úrbætur,
þótt þess sé ekki sérstaklega getið í þeim
drögum sem lögð voru fyrir ríkisstjórn-
ina.
Það er á misskilningi byggt sagði
forsætisráðherra, að einhver rammi hafi
verið sprengdur. Þegar ríkisstjórnin
gerði sínar ráðstafanir við upphaf valda-
tímabils síns var stefnt að því að ná
verðbólgu úr 130% í 30% um s.l.
áramót. í október þegar ríkisstjórnin
birti efnahagsáætlun sína fyrir yfirstand-
andi ár var talað um að komast úr
þessum 30% í 10% í lok þessa árs. En
svo fór að töluvert meiri árangur náðist
en reiknað var með, verðbólgan varð
15% í lok s.l. árs. Nú er verðbólgan um
10% samkvæmt mati Þjóðhagsstofnunar
og Seðlabankans. Við höfðum orðið
fyrir nokkrum skakkaföllum vegna
þorskaflans og í des var talið að aðeins
4% launahækkanir rúmuðust á þessu
ári. Miðað við það að betri árangur
náðist í lok ársins en áður var talið benti
margt til þess að verðbólgan í lok þessa
árs með 4% launahækkunum yrði aðeins
7-8%.
Það að meðalhækkun launa verður
um 6.5% þýðir að við verðum að öllum
líkindum í lok ársins með um 10%
verðbólgu.
Þessir samningar munu einkum setja
aukinn þrýsting á viðskiptajöfnuðinn
en það fer mjög eftir því hvernig við-
skiptakjör þróast hve hallinn verður
mikill.
Steingrímur vísaði því á bug að þessir
samningar brjóti þann ramma sem ríkis-
stjórnin setti sér upphaflega í efnahags-
málum.
Um afstöðuna til samninga við BSRB
sagði forsætisráðherra, að ríkisstjórnin
hafi enn ekki fjallað um þá samninga
eftir að sú staða kom upp sem nú er. En
það hlýtur öllum að vera ljóst að þeir
almennu launasamningar sem gerðir
hafa verið á vinnumarkaðinum hljóta að
hafa veruleg áhrif á þá samninga sem
gerðir hafa verið við opinbera
starfsmenn.
Hafa samninga-
nefndirnar traust?
Þorsteinn Pálsson sagði samningana
ná nokkru lengra en efnahagslegar for-
sendur segja til um. Ljóst er að þjóðar-
tekjur minnka nokkuð á þessu ári og
kaupmáttarbreytingar hljóta að vera í
nokkru samræmi við þjóðartekjur ef
jöfnuður á að ríkja í efnahagslífinu. En
markmið ríkisstjórnarinnar í efnahags-
málum eiga ekki að raskast við þessa
samninga. Árangurinn í baráttunni við
verðbólguna væri meiri en vonast var til
í upphafi aðgerða, og þótt gengið sé lítið
eitt lengra í þessum samningum en
ramminn segir til um eru meginmark-
miðin ekki í hættu.
Hann lagði áherslu á að ekki yrði efnt
til sérstakrar fjáröflunar vegna aðgerða
ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir samn-
ingunum.
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar er gefin í
þeirri trú, sagði Þorsteinn, að báðar
samninganefndir vinnumarkaðarins hafi
traust sinna félaga. Ef kemur á daginn
að einstök félög innan ASÍ og VSÍ lýsi
vantrausti á samningana sé komin upp
önnur staða og á það verði að reyna
hvort samninganefndirnar hafi umboð
til að gera samkomulagið.
Kjartan Ólafsson sein nú situr á þingi
sem varamaður Guðrúnar Helgadóttur
flutti skilmerkilega ræðu og lagði fram
spurningar.
Þingfundurinn hafði nú dregist mjög
á langinn og Svavar Gestsson bað um
orðið til að ræða þingsköp, og sagðist vera
orðinn óþolinmóður að bíða þess að
Albert Guðmundsson léti frá sér heyra
og bað þingforseta að gefa honum orðið.
Þorvaldur Garðar kvaðst ekki hafa
vald til að knýja neinn til að tala eða tala
ekki. En Albert tók áskoruninni.
Samningarnir
ekki frjálsir
Fjármálaráðherra las yfirlýsingu ríkis-
•stjórnarinnar og sagðist ekki vita hvernig
ætti að fjármagna þær 306-330 millj. kr.
sem þar er lofað til að greiða fyrir
samningum.
Hann sagðist ekki sjá annað en að
ríkisstjórnin hafi skammtað sér sem
fjármálaráðherra að færa til innan
ramma fjárlaga það sent þarf til að mæta
óskum verkalýðssamtakanna og vinnu-
veitenda. Ef árangurinn sem náðst hefur
í baráttunni við verðbólguna er brotinn
á bak aftur og verðbólgan tekur sína
gömlu stefnu þá tel ég að ríkisstjórnin
eigi að láta fólkið í landinu ráða því
hvort hún eigi að halda fast við stefnu
sína eða ekki. Mitt mat er það að það
eigi að kjósa ef stefna ríkisstjórnarir.nar
verður brotin á bak aftur.
Ef sú leið verður farin að nota hluta
af niðurgreiðslum búvöruverðs í niður-
greiðslur launa getur það þýtt að greiða
þurfi hærri útflutningsbætur og að vöru-
verð hækki. Þá hlýtur stefna ríksstjórn-
arinnar að vera í mikilli hættu.
Albert kvaðst ekki líta á þessa samn-
inga eins frjálsa og stefna ríkisstjórnar-
innar í kjaramálum segir til um. Hann
sagðist líta á þátt ríkisstjórnarinnar í
samningum sem niðurgreiðslu á launum
og það væri á móti sinni lífsskoðun.
Þetta væri ekkert annað en að taka á sig
hluta af launagreiðslum sem atvinnu-
reksturinn ætti að geta staðið undir.
Um þær yfirlýsingar sínar að ef launa-
hækkanir færu yfir 4% ætti ríkisstjórnin
að segja af sér, sagði Albert Guðmunds-
son, að hann hafi litið svo á að þegar
forsætisráðherra og iðnaðarráðherra
voru að tala um 6% hækkun, að þá hafi
þeir verið aðtala um hinn frjálsa vinnu-
markað.
Ég hef ekki látið eitt einasta orð falla
um hinn frjálsa markað , sagði Albert,
en litið svo á að mér komi hann ekkert
við samkvæmt yfirlýstri stefnu ríkis-
stjórnarinnar. Ef aðilar vinnumarkaðar-
ins semja um meira en 4% þá er það
þeirra mál svo lengi sem breyting á
fjárlögum kemur ekki þar inn í.
Kallað á afsögn
með óþolinmæði
- Það er orðið algengt að kallað sé á
afsögn mína með óþolinmæði, en það er
ekki komið að því ennþá. Ef mér tekst
að færa til á fjárlögum innan þess ramma
það sem ríkisstjórnin hefur samþykkt
þannig að ekki þurfí að grípa til yfirdrátt-
ar í Seðlabankanum, ekki auka þá
prósentu sem er í erlendum lánum eða
leggja á aukna skatta og án þess að
verðbólgan fari af stað þá lít ég ekki svo
á að ramminn sé sprunginn.
- En þegar ég fer úr þessum stól, sem
getur orðið bráðlega, sagði fjármálaráð-
herra, vona ég að 7. þingmaður Reyk-
víkinga verði kominn inn.
Hér átti hann við Guðmund J. vin
sinn, en Ólafur Ragnar situr nú sem
varamaður hans, og var hann heldur
ónotalegur í garð Alberts í framsögu-
ræðu sinni.
Albert kvaðst ekki geta á því augna-
bliki sem hann talaði sagt neitt til um
hvort hann mundi bjóða opinberum
starfsmönnum svipuð kjör og samningur
ASÍ og VSÍ hljóðar upp á. Það mál þyrfti
að skoða miklu mun betur en hann hafi
haft tækifæri til.
Fjármálaráðherra sagði að hinn marg-
umtalaði rammi fjárlaga yrði skoðaður.
Hann hefði ekki hugmynd um hvaðan
ætti að taka féð, en það væri illa komið
fyrir íslensku þjóðfélagi þegar fara ætti
að greiða niður launakostnað fyrirtækj-
anna.
Látið verkafólk í friði
Meðal þingmanna sem töluðu í unt-
ræðunni var Karl Steinar Guðnas’on.
Hann gagnrýndi harðlega þá sem snérust
gegn samningunum og sagði að samn-
inganefnd ASÍ hafi náð því sem hægt er
án átaká og vissa hans væri að það væri
vilji verkalýðsfélaganna um allt land að
vinnufriður héldist. Hann kvað ástæðu-
laust að gera lítið úr því fólki sem að
samningunum hafi st'aðið því verulegur
árangur hafi náðst á nokkrum sviðum og
það sem mestu skipti er að þeir sem verst
eru settir fá verulegar úrbætur sam-
kvæmt þessum samningum. Mæltist Karl
Steinar til þess að verkafólk fengi að
vcra í friði fyrir þeim sem sitja í hlýjum
og rnjúkum stólum og skrumskæla þcnn-
an samning og gera tortryggilegan
Uppboðsskýrsla/Shadow refur/London Fur Group,
Hudson’s Bay London, 15.2.1984.
33.691 skinn, öll seldust, svipuð verð og í desember 1983
Gengi 42.17
Um 800 skinn frá íslandi
Litgreining: Extra-dökk Dökk Miðlungs Ljóst Extra -Ljóst
XD XD D D M M P P XP XP XXP XXP
Gæðafl-/stærð Lágt Hátt Lágt Hátt Lágt Hátt Lágt Hátt Lágt Hátt Lágt Hátt
1670-00 0 00 37 38 39 40.5 42 40 43 42 43.5
0 0 0 1560 1602 1644 1708 1771 1687 1813 1771 1834
LONL-OO 28 35 31.5 37.5 32 37 33 40 36 40 36 41
1181 1476 1328 1581 1349 1560 1391 1687 1518 1687 1518 1729
I-00 23 30 36 32.5 29 34.5 22 36.5 33 37 33 34.5
970 1265 1518 1370 1223 1455 928 1539 1391 1560 1391 1455
1670-0 33.5 34 33.5 37.5 41.5 42.5 40.5 42.5 41.5 46.5 46 55
1413 1434 1413 1581 1750 1792 1708 1792 1750 1961 1940 2319
LONL-O 25 34 28.5 34.5 34.5 42 35 43.5 34.5 40 35 47
1054 1434 2102 1455 1455 1771 1476 1834 1455 1687 1476 1982
l-O 20.5 30 20 32.5 23.5 36.5 18 36.5 27.5 37.5 29 38
864 1265 843 1370 991 1539 759 1539 1160 1581 1223 1602
1670-1 29.5 32.5 34.5 36 35 40.5 35 43 36.5 39 35.5 40
1244 1370 1455 1518 1476 1708 1476 1813 1539 1644 1497 1687
LONL-1 19.5 30 29.5 35.5 28 36.5 34.5 37 34 38.5 32.5 36
822 1265 1244 1497 1181 1539 1455 1560 1434 1623 1370 1518
1-1 22 27 21.5 32.5 25 33 21.5 35 27 36.5 31 36
928 1138 907 1370 1054 1391 907 1476 1138 1539 1307 1518 Kjörbær hf/Skúli Skúlason/ Kópavogur, sími 91-4450