Tíminn - 24.02.1984, Side 4

Tíminn - 24.02.1984, Side 4
„HELT AÐ MIN SIÐASTA STUND VÆRIRUNNIN UPP” — segir Valgeir Ásmundsson, starfsmaður Hagvirkis, sem festist inn í húsinu í snjóflóðinu ■ „Ég héll satt að segja að mín síðasta stund væri runnin upp“, sagði Valgeir Ásmundsson, starfsmaður Hagvirkis en hann var annar þeirra sem var að vinna í verkstæðisbyggingu steypustöðvarinn- ar þegar snjóflóðið úr Ennisfjalli skall á húsið. Valgeir slapp með slæmt mar á mjöðmum og rispur í andliti og víðar. Kristján Lárusson, sem einnig lenti í snjúflóðinu, ökklabrotnaði en slapp að öðru leyti að mestu við meiðsl. „Þegar flóðið kom vorum við að leita að vasaljósi sem var á steypubílnum. Ég heyrði smell i plastglugga sem snéri að fjallinu og sá snjógusu koma inn um hann. Eg hélt fyrst að þetta væri hríðar- gusa en síðan skall flóðið á okkur. Ég missti fótanna og rann innundir hefilinn sem stóð á smurgryfjunni og lenti hálfur ofan í gryfjunni. Allur eftir hluti líkam- ans var á kafi í snjó og handleggurinn á mér var klcmmdur fastur en fæturnir voru lausir ofan í gryfjunni. Kristján, sem stóð fyrir framan mig þegar flóðið kom, lenti fyrir aftan mig í gryfjunni og ég geri ráð fyrir að hann hafi flotið yfir mig í snjónum. Honum tókst að losa sig og gat komist til mín og pjakkað snjónum frá andlitinu á mér en ég komst hvergi því handleggurinn á mér var fastur. í flóðinu hafa losnað hettur af gaskútum og við heyrðum hvininn af gasinu en okkur varð ekkert meint af því. „KRAFTAVERK AD MENNIRNIR SKUU HAFA SLOPPH)” — segir Stefán Jóhann Sigurðs- son, forseti bæjarstjórnar, sem telur eignatjón steypustöðvar- innar milli 4-5 milljónir króna ■ „Mér virðist að beint eignatjón steypustöðvarinnar sé á milli 4 til 5 milljónir króna,“ sagði Stefán Jóhann Sigurðsson forseti bæjarstjórnar Ólafsvíkur og einn eigenda steypustöðv- arinnar Bjarg hf. Ég geri mér ekki grein fyrir því hvað ég var lengi fastur. Ég reyndi bara að vera rólegur á meðan. Ég var lengi dofinn í handleggnum á eftir en að öðru leyti líður mér vel“, sagði Valgeir Ás- mundsson. -GSH ■ „Ég hélt að mín síðasta stund værí runnin upp“, sagði Valgeir Ásmunds- son, annar mannanna sem björguðust úr snjóflöðinu. ■ 240 fermetra verkstæðisbyggingin er gerónýt eftir að snjóflóðið skall á henni. Neðst á myndinni sést í tönnina á heflinum sem stóð yfir smurgryfjunni. Tímamynd Sigurjón „Fyrirtækið orðið fyrir milljónatjóni” — segir Árni Baldursson, stadarstjóri verktakafyrirtækisins Hagverks „Fyrstu viðbrögð er að sækja í sig veðrið, byggja stöðina upp aftur og reyna að gera betur. Stöðin var stofnuð árið 1974 og það er því ekki séð fyrir endann á því hvernig við höldum upp á 10 ára afmælið. En vonandi tekst okkur að koma þessu í samt lag bráðlega. Þetta er eina steypustöðin á útnesinu og því eitt af þeim fyrirtækjum sem þarf að vera til staóar. En mér sýnist að við ættum að geta veitt okkar þjónustu aftur mjög fljótlega og fá þann tækjakost sem þarf til þess.“ - Til hvaða ráðstafana mun bæjarfé- lagið grípa í Ijósi þessara atburða? „Það er Ijóst að vegna þessara atburða munum við fara fram á sérstaka athugun á því hvar snjóflóðahætta er mest. Og leggja þá áherslu á fyrirbyggjandi að- gerðir. Það verður fundur í almanna- varnanefnd Ólafsvíkur í dag, og Guðjón Petersen framkvæmdastjóri Almanna- varna ríkisins mun koma hingað vestur á mánudag og funda með okkur þar sem þessi mál verða sérstaklega rædd. Þó snjóflóð hafi aldrei fallið á þessum stað áður getur atburður sem þessi gerst hvenær sem er. Það hefur að vísu verið gífurlega snjóþungt í vetur en það er Ijóst að veðrátta fer kólnandi hér á landi og því má hvergi slaka á í þessum efnum.“ „Þessi atburður hefur fengið á menn hér en viðbrögðin eru yfirleitt sú að það sé hægt að bæta eignir en ekki mannslíf. Og það má kallast kraftaverk að þarna skyldu fjórir menn sleppa eins vel og ■ Stefán Jóhann Sigurðsson forseti bæjarstjómar Olafsvíkur og einn eigenda steypustöðvarinnar Bjargs hf. raun bar vitni. En það virðist vera eitthvað lán yfir staðnum og veginum. Það hafa oft fallið snjóflóð á veginn en menn hafa alltaf bjargast. Það er ekkert leyndarmál að menn hér hafa oft velt þessu fyrir sér og við trúum á hinar góðu vættir í þessu efni“, sagði Stefán Jóhann að lokum. -GSH ■ „Það er ljóst að fyrirtækið hefur orðið fyrir milljónatjóni, hefill, rúta og tveir jeppar eru ónýtir. Þá er verkstæðisaðstaðan og varahlutalagerinn ónýt og ýmis tæki sem þar voru geymd inni, s.s. varahlutir í stórar vinnuvélar og 2 rafsuðuvélar og þessi tæki eru öll ótryggð. Bílarnir eru kaskótryggð- ir,“ sagði Árni Baldursson staðar- stjóri verktakafyrirtækisins Hagverks, en Hagverk hafði að- stöðu í verkstæðishúsi Steypu- stöðvarinnar. Fyrirtækið hefur unnið við nýja veginn fyrir Ólafs- víkurenni í vetur. „Við komum hingað í fyrravor og síðan aftur í haust til að leggja þennan veg“, sagði Árni. „Síðan 12. febrúar hefur verið vitlaust veður hérna og fólk segir að það hafi aldrei séð annan eins snjó hér um slóðir áður.“ -GSH ■ Árni Baldursson staðarstjóri Hag- virkis hf., á Olafsvík bendir á staðinn þar sem Valgeir sat fastur, milli steypubfls og hefils. Upp um þessa holu náðist Valgeir um nóttina. Tímamyndir Ámi Sæberg

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.