Tíminn - 24.02.1984, Page 5

Tíminn - 24.02.1984, Page 5
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984 ■ Afstöðumynd af Ólafsvíkurenni og verkstæðinu fyrir neðan sem flóðið féll á. Örin bendir á staðinn þar sem talið er að flóðið hafi byrjað að renna. Bflamir fremst á myndinni voru á stæði fyrir aftan verkstæðið. „HVARFIADI EKKI ANNAÐ AÐ OKKUR EN BAEHR MENNIRNIR VÆRU IÁTNIR” — segir Bjarni Ólafsson, tækjamaður, sem kom að verkstæðinu eftir snjóflóðið ■ „Ég held að það sé ein versta lífsreynsla sem hægt er að verða fyrir, að koma að svona löguðu og vita af vinnu- félögum sínum gröfnum einhversstaðar undir snjófarginu“ sagði Bjarni Ólafsson tækjamaður sem kom að verkstæðinu skömmu eftir að snjóflóðið féll. „Við vorum fjórir að vinna á verk- stæðinu við gröfu sem var höfð tilbúin vegna ótta um snjóflóðahættu á Enn- isveginum. Lárus Kristjánsson, faðir Kristjáns, ætlaði síðan út á Rif en varð að snúa við þar sem snjóflóð hafði fallið á veginn. Valgeir og Kristján urðu eftir á verkstæðinu enda ætluðu þeir að vinna þar um nóttina. Þegar við komum að staðnum þar sem snjóflóðið féll reyndi Lárus að kalla í verkstæðið í talstöð. Þegar enginn svar- aði náði hann sambandi við Rif og bað um að hringt væri í verkstæðið en án árangurs. Lárus fór því að huga að verkstæðinu og sá hvers kyns var. Lárus snéri þá við og sótti mig. Þegar við komum að húsinu hvarflaði ekki annað að okkur en að mennirnir væru báðir látnir. Við kölluðum samt inn og þá kom Kristján skríðandi út gegnum rifu á veggnum. Hann sagðist vera fótbrotinn og þegar við spurðum hann um Valgeir sagði Kristján að hann væri fastur milli steypubílsins og hefilsins. Lárus tróð sér þá inn um rifuna og komst að Valgeiri en ég dröslaði Krist- jáni inn í upphitaðan.i smurbíl sem stóð skammt frá. Veðrið var svakalegt, varla stætt, og djúpur snjór og krap. Ég varð að láta Kristján skríða mestan part leiðarinnar því ég gat ekki borið hann. Við kölluðum síðan út lögregluna og örskömmu síðar var hún komin á staðinn ásamt björgunarsveitinni, sjúkrabíl og lækni. Og kl. 2.00vorumviðal!irkomnir niður á heilsugæslustöð. Það var aðdáunarvert hvað mennirnir voru rólegir, sérstaklega Valgeir. Það hefur sjálfsagt orðið honum til lífs að Kristján fann hann og gat krafsað snjó- inn frá andlitinu á honum,“ sagði Bjarni að lokum. ■ Bjami Ólafsson tækjamaður við rífuna á vegg verkstæðisins sem Kristjáni Lárussyni tókst að skríða út um. ■ Við verkstæðisbygginguna lágu bílar eins og hráviði eftir að flóðið skall á þeim og bar þá suma marga metra með sér. Þrír steypubflar og tveir jeppar sem stóðu á bflastæði við verkstæðið eru gerónýtir. „A ÞESSUM STAÐ VERÐUR ALDREI BYGGT FRAMAR” segir Vigfús Sigtryggsson, einn eigenda steypustödvarinnar Bjargs ■ „Á þessum stað verður aldrei byggt framar" sagði Vigfús Sigtryggsson einn eigenda steypustöðvarinnar Bjargs hf. en verkstæðisbyggingin sem snjóflóðið lenti á var í eigu stöövarinnar. „Það hefur aldrei fallið snjóflóð á þessum slóðum áður svo vitað sé og því var talið óhætt að byggja hér á sínum tíma. En eftir svona mikla snjókomu og verið hefur í vetur er ljóst að það er aidrei að vita hvar snjóflóð geta fallið.“ „Það má segja að-allar eigur steypu- stöðvarinnar séu ónýtar", sagði Vigfús. Fyrst og fremst er húsið auðvitað ónýtt, ný blöndunarstöð hérna fyrir framan, sem átti að fara að taka í notkun, er ónýt. Og þrír steypubílar eru ónýtir, bíllinn sem er inni í húsinu og tveir sem stóðu á planinu fyrir utan. Það eina sem slapp var lítil ámokstursvél sem stóð í einu horni hússins." „Það var verið að undirbúa vélarnar hér, það stóð til að við færum að steypa í nýja frystihúsinu á Rifi eftir nokkra daga en það verður sjálfsagt ekki af því í bráð.“ sagði Vigfús.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.