Tíminn - 24.02.1984, Side 7

Tíminn - 24.02.1984, Side 7
FOSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984 * 7 B.St. oe K.L. ■ Scott litli þurrkaði tár af auga en hinir strákarnir brostu. ■ Það hrundi tár niður kinn sigurvegarans Scotts Hamilton frá Bandaríkjunum, þegar hann stóð á verðlaunapalli sigurvegari í iisthlaupi á skautum. Hann fékk gullverðlaunin, þessi smá- vaxni ungi maður, sem við höfum séð í sjónvarpsútsending- um frá OL, þar sem hann flýgur yfir ísinn, eins og hann sé þyngd- arlaus. Hann er reyndar víst ekki svo mjög þungur, innan við 100 pund stóð einhversstaðar í blaði nýlega. Þeir sem með honum eru á pallinum eru silfur- og brons- verðlaunahafar, og sýnast ánægðir með það. Þeir eru Brian Orser frá Kanada og Jozef Sabo- veik frá Tékkóslóvakíu, báðir brosandi út að eyrum, meðan gullverðlaunahafinn þurrkar af sér tárin! ■ Svíar eru mjög ánægðir með konungsfjölskylduna sína og sætta sig vel við að börnin verði ekki fleiri en þrjú. SÆNSKA KONUNGS- FJÖLSKYLDAN FULLKOMIN ■ Nú þykir það staðfest, þó að óbeint sé, að Karl Gústaf Svía- konungur og Silvia drottning hans hafi ákveðið að láta við það sitja að eiga þrjú börn. Örugga vísbendingu um þá ákvörðun hjónanna telja menn við sænsku hirðina þá, að konug- ur hefur fallist á að sitja fyrir „ásamt allri fjölskyldu sinni“ hjá málara nokkrum, sem fengið hefur það verkefni að mála opin- bert málverk af konugsljölskyld- unni. Það verður síðan hengt upp innan um önnur slík málverk af forverum fjölskyldunnar. Þykir það augljóst mál, að konungur hefði aldrei fallist á að gera þetta nú, ef á dagskrá væri að fjölga í fjölskyldunni. BR0S0GTARA0L við nám í um tveggja ára skeið. Með því námi lærði hann svo líffræði í Öldunga- deild Menntaskólans við Hamrahlíð. „Það eru tiltölulega fáir menn sem stunda þetta hér- lendis og þótt rætt hafi verið um stofnun stéttarfélags innan þess hóps hefur ekk- ert orðið úr framkvæmdum á því sviði. Menn læra þetta hjá þeim sem verið hafa í þessu lengi og reka sínar eigin stofur, eins og til dæm- is Edwald og segja má að hver maður á þessu sviði hafi sinn eigin stíl eða hrynj- anda í nuddinu". Hvað viðskiptavinina varðar segir Gunnar að mest sé þetta kyrrsetufólk sem notfæri sér þjónustu sjúkra- nuddara, það er að segja fyrir utan þá sjúklinga sem þurfa á því að halda, og íþróttafólk sem ofreynt hef- ur vöðva sína. „Það er mikið um að kyrrsetufólk beiti ekki líkama sínum rétt við vinnu sína, situr til dæmis hokið við skrifborðin og vegna þess myndast brátt vöðva- bólga ofarlega í baki þess eða strengir 'niður með hryggnum og ef ekkert er að gert getur þetta leitt upp um hálsinn og í höfuðið og valdið höfuðverkjum. Þeir sem koma hingað koma yfir- leitt svona tvisvar til þrisvar í viku til að byrja með en síðan yfirleitt á svona hálfs- mánaðarfresti til að halda sér í formi en nuddið losar um allskonar þreytu og spennu í líkamanum" segir Gunnar. Fyrir utan nuddið er Gunnar með sólbaðstofu, gufubað, vatnsnudd og gikt- arlampa á stofunni sinni en auk þess hefur hann sam- starf við snyrtifræðing og hárgreiðsludömu á efri hæð hússins. -FRI ■ Jean-Maric le Pen. ■ Gcorges Marchais. Verdur Le Pen skeinuhætt- ur þeim Chirac og Giscard? Nýr hægri flokkur að eflast í Frakklandi ■ FLOKKUR kommúnista í Frakklandi er í verulegum vanda staddur um þessar mundir. Vörubílstjórar hafa undanfarna daga valdið skipulegum truflun- um á þjóðvegum landsins með því að leggja bílum sínum þannig, að þeir stöðvuðu umferð. Bílstjórarnir gera þetta til að leggja áherzlu á kröfur sínar um bætt kjör og fljótari afgreiðslu á tollstöðvum við landamærin. Ríkisstjórnin hefur ekki viljað hefja viðræður við bílstjórana fyrr en þeir hættu þessum að- gerðum. Um skeið leit út fyrir, að stjórnin fengi þessu framgengt, en erfiðlega hefur gengið fyrir forustumenn bíl- stjóranna að fá þá til að fallast á þetta. Margir þeirra halda því áfram að trufla samgöngur með framangreindum hætti. Það er samgöngumálaráð- herra ríkisstjórnarinnar, Charles Fiterman, sem stendur hér í eldlínunni af hálfu hennar. Ljóst er að staða hans er næsta erfið, þar sem hann er einn af fjórum ráðherrum kommúnista í ríkis- stjórninni. Það hefur orðið hlut- skipti hans undanfarna daga að glíma við bílstjórana og fá þá til að hætta samgöngutruflunum áður en setzt yrði að samninga- borði. Skoðanakannanir, sem fram hafa farið að undanförnu, hafa gefið til kynna, að fylgi kommún- ista fari minnkandi og sé jafnvel koraið niður í 12%. Árið 1981 var það 15%, en nokkrum árum áður hafði það haldizt nálægt 20% um talsvert skeið. Bersýnilegt virðist á þessu, að kommúnistar hafa ekki grætt á stuðningi við Mitterrand í for- setakosningunum 1981, né á þátttöku í ríkisstjórn. Aðstaða þeirra í ríkisstjórninni er líka veik sökum þess, að flokkur Mitterrands, Sósíalistaflokkur- inn, hefur meirihluta á þingi, en hann fékk meirihlutann með til- styrk kommúnista í þingkosning- unum 1981. Vonir þær, sem voru bundnar við stjórn Mitterrands um bætt lífskjör og minna atvinnuleysi, hafa ekki rætzt. Þvert á móti hefur Mitterrand orðið að grípa til allróttækra efnahagsaðgerða, sem hafa frekar rýrt kjörin en hitt. Þessar aðgerðir hafa valdið óánægju, sem virðist bitna mest á kommúnistum. Samt hafa leiðtogar þeirra undir forustu Georges Marchais talið rangt að draga ráðherra þeirra úr stjórn- inni. Enn er líka tími til stefnu, því að þingkosningar fara ekki fram fyrr en 1986 og forsetakosn- ingar ekki fyrr en 1988. ÞAÐ LIGGUR í augum uppi, að Gaullistar undir forustu Chir- acs og miðjumenn undir forustu Giscards láta sér fylgistap kommúnista vel líka. Það dregur úr vonum vinstri manna um að hatda meirihlutanum í þingkosn- ingunum 1986. Það gæti jafnvel stuðlað að því, að þingkosningar yrðu fyrr. Það dregur þó nokkuð úr þess- ari ánægju Chiracs og Giscards, að þeir virðast vera að eignast keppinaut á hægri kanti stjórn- málanna, sem getur átt eftir að reynast þeim hættulegur. Hér er um að ræða afturhaldssaman þjóðernisflokk, Front National, sem hefur átt litlu fylgi að fagna þangað til á síðastliðnu ári, en þá tókst honum að fá frá 10-16% greiddra atkvæða í aukakosning- um. Það gerðist í fyrsta sinn hinn 13. þ.m, að foringi þessa flokks, Jean-Marie le Pen, fékk að koma fram í sjónvarpi og svara spurn- ingum fjögurra blaðamanna í klukkustundarlöngum þætti. Hann slapp furðu vel úr þessari spurningahríð og mun frekar hafa styrkt stöðu sína en hið gagnstæða. Le Pen stofnaði Front Nation- al fyrir 12 árum. Flokkurinn bauð fram í forsetakosningunum 1974 og fékk þá 0.75% greiddra 'atkvæða. í þingkosningunum 1981 fékk hann 2-3% greiddra atkvæða. Það hefur því komið meira en lítið á óvart, að hann hefur komizt í allt að 16% í aukakosningum á síðastliðnu ári. Þessi skjóta fylgisaukning er skýrð með því m.a.. að aukið atvinnuleysi sé vatn á myllu hans, þar sem hann hefur rekið harðan áróður gegn útlendum verkamönnum í Frakklandi, en flestir þeirra eru frá Araba- löndum, sem áður voru nýlendur Frakka. Eitt af vígorðum flokks- ins er: Hvorki rauður eða arab- iskur. Með valdatöku Mitterrands fékk flokkurinn sérstakt tækifæri til að beita sér gegn vinstri flokk- unum og honum virðist hafa tekizt það öllu betur en Gaullist- um og miðjumönnum. í áróðri sínum leggur Le Pen sósíalisku flokkana og Gaullista nokkurn veginn að jöfnu. Burt með hina sósíalisku pólitík, segir Le Pen, sem er nákvæmlega eins, hvort heldur sósíalistinn Mauroy eða Gaullistinn Chirac gegnir stöðu forsætisráðhera. Le Pen er 55 ára, sjómanns- sonur frá Bretagne. Faðir hans fórst með skipi sínu á striðsárun- um. Le Pen þótti líklegur til forustu, þegar hann var í skóla, Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar en síðan hefur hann oft gengið undir nafninu ljóshærða kempan. Eftir að hafa lagt stund á laganám, gerðist hann fallhlíf- armaður í franska hernum í Indó-Kína, en skömmu síðar biðu Frakkar ósigurinn, sem kenndur er við Dien Bien Phu. Þegar Le Pen kom aftur heim til Parísar, átti flokkurinn, sem var kenndur við Poujade, blóma- skeið sitt. Le Pen skipaði sér undir merki hans og náði kosn- ingu til þingsins, þegar hann var 28 ára gamall. Le Pen kunni ekki vel við sig í þinginu. Hann taldi meiri þörf fyrir sig í stríðinu í Alsír. Hann gerðist sjálfboðaliði þar. Eftir stríðslokin þar, samdi þeim Po- ujade ekki lengur, og Le Pen stofnaði því sinn eigin flokk 1972. Le Pen og flokksmenn hans hafa oft sætt miklu aðkasti. Það gekk meira að segja svo langt, að sprengju var varpað á íbúðarhús Le Pens og það eyðilagt. Hann naut þess þá að eiga auðugan og sérvitran vin, sem gaf honum miklu stærra hús og bætti hann þannig tjónið. Le Pen mótmælir því, að hann sé nazisti og kynþáttahatari. Það hefur ýtt undir þetta álit, að hann er hljómplötuútgefandi að atvinnu og hefur gefið út hljóm plötur með ræðum Hitlers og fleiri nazistaleiðtoga. En hann hefur einnig gefið út hljómplötur með ræðum de Gaulles og Churchills. FRÉTTASKÝRENDUR telja, að kosningar til þings Efna- hagsbandalagsins sem fara fram í sumar, muni leiða í ljós, hvert fylgi Le Pens muni reynast í reynd. Þar mun hann ekki beina geiri sínum aðallega gegn sósíal- istum, heldur gegn Simone Veil, sem verður leiðtogi samfylkingar Gaullista og miðjumanna. Hún er Gyðingur, en Le Pen hefur heldur horn í síðu þeirra. Mestu skiptir þó, að hún kom fram löggjöf um fóstureyðingar, en Le Pen berst gegn þeim með oddi og egg.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.