Tíminn - 24.02.1984, Blaðsíða 9

Tíminn - 24.02.1984, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1984 á vettvangi dagsins 9 byggt og búið i gamla daga 385 Landnýtingaráætlun: Sáttmáli um ráð- stöfun og nýt- ingu lands á sem flestum sviðum ■ Davíð Aðalsteinsson hefur mælt fyr- ir þingsályktunartillögu um landnýting- aráætlun, sem hann flytur ásamt fjórum öðrum þingmönnum. Er tillagan á þá leið að ríkisstjórnin hlutist til um að hafinn verði undirbúningur landnýting- aráætlunar sem taki til allra meginþátta landnýtingar og áhersla verði lögð á sem hagkvæmasta nýtingu og varðveislu landgæða. Þessi tillaga hefur áður verið flutt á Alþingi en ekki hlotið afgreiðslu þótt Ijóst sé að hún er studd af öllum þingheimi. I framsöguræðu sinni sagði Davíð Aðalsteinsson m.a.: „í sem fæstum orðum má segja, að áætlun um landnýtingu sé ætlað að svara þeirri víðtæku spurningu, hvernig við ætlum að umgangast landið. Slíkri spurningu verður að sjálfsögðu aldrei svarað afdráttarlaust í smáatriðum í eitt skipti fyrir öll. Eftirleiðis sem hingað til mun vafalaust verða breyting á nýtingu lands og landgæða og útilokað að allt verði séð fyrir í fjarlægri framtíð. Að sjálfsögðu getur sitt sýnst hverjum hvað eru landgæði og hvernig ber að umgang- ast landið. Verðmætamat hlýtur ætíð að verða afstætt og eftir atvikum ólíkt eftir því hver á í hlut. Ég vil leyfa mér að tala um landgæði og nefna landgæði hvort heldur er í efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti. Að mínu áliti er tilgangur áætlunar um landnýtingu fyrst og fremst sá að leiða af sér eins konar sáttmála um ráðstöfun og nýtingu lands á sem flestum sviðum. Ég geri mér nokkuð ljósa grein fyrir því að það er allt annað en áhlaupa- verk að gera slíka áætiun um landnýtingu eins og ég hef raunar vikið að áður. Sjónarmiðin eru fjölmörg og þarfirnar breytilegar. Þess vegna er óhjákvæmi- legt að fjölmargir komi með einum eða öðrum hætti að þessu starfi, einstakling- ar, samtök og stofnanir. Ef menn á ánnað borð vænta árangurs og afrakstur- inn verði sæmilega skýr heildarmynd. Þrátt fyrir allt ætti að vera mögulegt að ganga til slíks starfs með það markmið að sameiginlegu leiðarljósi að auka fremur en rýra landkosti. Landnýtingaráætlunin er nánar skil- greind í greinargerð: Á seinni árum hefur gætt vaxandi skilnings á nauðsyn skipulegrar og hóf- legrar nýtingar auðlinda til lands og sjávar. Með landgræðsluáætlun 1974 var gert stórátak til að vinna markvisst að stöðv- un gróðureyðingar og uppblásturs f þeim tilgangi að varðveita og bæta landgæði. Nú, þegar unnið er að framkvæmd nýrrar landgræðsluáætlunar, er við hæfi að fylgja því starfi eftir með gerð víðtækrar áætlunar er taki til hinna fjölmörgu þátta landnýtingar í landbún- aði, svo sem nýtingar beitilanda og ■ Davíð Aðalsteinsson alþingismaður ræktunar skóga. Enn fremur þarf að tryggja orkuvinnsluiðnaðinum land til afnota. Huga þarf að landnotum vegna einstakra mannvirkja og þéttbýlis, en einnig vegna útivistar og sumarbyggða. Einn af veigamiklum þáttum landnýt- ingar er nýting úthagabeitar, bæði í heimalöndum og afréttum. Landbúnað- urinn, einkum sauðfjárræktin, byggist á þessari miklu auðlind, fjölbreyttum og kjarnmiklum gróðri. Framtíð íslensks landbúnaðar hlýtur reyndar að byggjast mjög á hóflegri og hagkvæmri nýtingu beitilanda. Metum við framleiðslugildi úthaga- gróðurs að verðleikum? Náttúrleg gróðurlendi eru veigamikil auðlind á tímum síhækkandi orkukostnaðar. Til dæmis er hætt við að framleiðslukostnað- ur sauðfjárafurða yrði mun hærri ef ekki tækist að varðveita beitargæði úthaga, sérstaklega afréttanna. Sem best samræmi þarf að vera á milli búfjárfjölda og tiltæks haglendis í hinum ýmsu beitarsvæðum landsins. Því þarf að koma á nánara samhengi á milli vals á búgreinum, uppbyggingar og búfjár- fjölda á sérhverri bújörð annars vegar og hins vegar þeirra landgæða sem jörðin hefur til umráða. Þannig verði ekki aðeins tekið tillit til. ræktunarskilyrða, heldur einnig og ekki síður landrýmis í heimahögum og afréttum. Hér kemur m.a. til álita hvernig fjárfestingu er hagað í landbúnaði, hvernig er hægt að koma á virkari og markvissari stjórnun, hvernig er hægt að aðstoða bændur sem gera róttækar breytingar í búskaparháttum. Nauðsyn ber til að taka sérstakt tillit til landnýtingar við gerð búrekstrar- og byggðaáætlana. Þar eð nýting jarðar- gróða er einn af hornsteinum lífvænlegr- ar byggðar um land allt er landnýting veigamikið byggðamál. Athuga þyrfti m.a. hvort æskilegt eða fært væri að §1111 koma á einhvers konar svæðaskipulagn- ingu landbúnaðarframleiðslunnar í sam- ræmi við hóflega og skynsamlega nýtingu landkosta og jafnframt með tilliti til markaðsþarfar fyrir hinar ýmsu búvörur. Mismunandi verðlagning búvara eftir framleiðslusvæðum gæti ef til vill komið til greina, en ljóst er að slíkt yrði mjög flókið í framkvæmd. Hér er komið að tengslum milli landnýtingar og fram- leiðslumála. Kvótakerfið svonefnda tekur lítið sem ekkert mið af landnýtingar- og byggða- sjónarmiðum, en hugsanlega mætti byggja upp einhvers konar framleiðslu- stjórnun sem gerði það. Það leiðir aftur hugann að svæðaskipulagningu. Dæmi mætti taka bæði úr nautgripa- og sauð- fjárrækt. Hér er um margþætt og við- kvæmt mál að ræða sem þarfnast ítar- legrar könnunar og umræðu. Bændur vilja að sjálfsögðu hafa sem mest frelsi til athafna, en flestir gera sér Ijósa þörf fyrir bætta skipulagningu. Hún kemur stéttinni til góða í framtíðinni og stuðlar að bættum þjóðarhag. Skógrækt til nytja er í raun landbúnað- ur, og kanna þarf hvernig heppilegast er að tengja hana traustari böndum þeim atvinnuvegi. Síðustu árin hefur komið fram viðleitni til að tengja skógrækt hefðbundnum búskap, einkum á Aust- urlandi, en líta ekki á þessar greinar sem andstæður. Þannig er unnt að samræma t.d. sauðfjárrækt ræktun nytjaskóga. Skilyrði til skógræktar eru greinilega breytileg í landinu og virðist þörf mark- vissari skipulagningar þeirra mála. Líkt og á við um beitarmá! er hér að nokkru leyti um byggðamál að ræða. Trúlega gætu tekjur af skógrækt skipt nokkru máli þegar tímar líða, því að líkur eru á hækkandi verði á timbri og ýmiss.konar skógarafurðum í framtíð- inni og jafnvel gæti orðið skortur á þeim. Margt fleira þarf að sjálfsögðu að taka til umfjöllunar þégar lögð eru á ráðin um skipulega nýtingu landgæða, svo sem nýtingu hlunninda, enda þótt allir þættir landnýtingar verði ekki raktir hér. Gerð landnýtingaráætlunar verður einnig að taka til þarfa orkuvinnsluiðn- aðarins fyrir land. Orkulindir landsins eru ein veigamesta auðlind þess, en nýting þeirrar auðlindar er tiltölulega skammt á veg komin. Ef að líkum lætur mun þjóðin í vaxandi mæli byggja af- komu sína á skynsamlegri nýtingu inn- lendrar orku. Því er nauðsynlegt að tryggja orkuvinnsluiðnaðinum nægilegt landrými, ekki síst til að forðast árekstra í framtíðinni. En landnýting varðar ekki aðeins hinn beina efnahagslega afrakstur landsins. Með breyttum þjóðfélagsháttum og auknum áhuga almennings. á náttúru- vernd, umhverfismálum og útivist hefur komið í Ijós að nauðsynlegt er að fjalla um landnýtingu á breiðum grundvelli. Hin náttúrlegu gróðurlendi eru viðkvæm fyrir óhóflegum ágangi, hvort sem er af völdum fénaðar eða manna. Með bætt- um skilyrðum til ferðalaga um óbyggðir landsins hefur sá vandi farið vaxandi. Öll meðferð gróðurlendis er náttúru- verndarmál. Nú er ljóst, að ekki er unnt að komast hjá röskun lífríkja, t.d. með virkjun fallvatna, vegagerð og framræslu mýra. Það, sem skiptir meginmáli, er að meta vandlega allar aðstæður og leita þeirra leiða, sem minnstri röskun valda, og að skilningur ríki varðandi hin ýmsu landnot. Velferð þjóðarinnar í nútíð ogframtíð byggist á því að nýta af skynsemi þann auð sem fólginn er í gæðum landsins. Ætla má að landnýtingaráætlun geti stuðlað að æskilegri þróun á þessu sviði. ■ Hörpudiskur (nú markaðsvara), kræklingur og öðuskel (aða) Mataröflun í hallærum ■ Rætt hefur verið um nýlega, að sjófang, annað en fiskur, selir og hvalir, hafi lítið sem ekki verið hagnýtt á liðnum öldum, jafnvel ekki fískleysis- árum. Ótrú og vanþekkingu um kennt. Sannleikskjarni mun í þessu, en þó fulldjúpt tekið í árinni. Söl voru t.d. allmikið notuð til matar og sums staðar skelfiskur í verulegum mæli. En þegar hafís var aðalorsök harðinda vandaðist málið. Isinn skefur botn á grunnsævi og eyðir bæði þaragróðri og skeldýr- um. Líða mörg ár uns þörungar og skeldýr hafa náð sér verulega aftur. Það sást t.d. eftir hafísárið 1918, mjög greinilega. Hvað segja öldungar um not af skel- físki? Halldóra Bjarnadóttir, er náði einna hæstum aldri allra íslendinga, skráði nokkrar frásagnir um matföng og læknislyf úr náttúru íslands í gamla daga og birti í tímariti sínu Hlín árið 1961. Sagnirnar voru skráðar eftir gömlu fólki á árunum 1920-1930 og eru frá eldri tímum. Aldraða fólkið segir frá: Björg og Ingibjörg, mæðgur frá Skálmardal í Barðastrandarsýslu. (Björg á níræðisaldri, Ingibjörg á sextugsaldri). Mjög mikið notaður skelfiskur þarna, þótti herramannsmatur. Eng- inn nefndi neina óhollustu af því, eða eitrun, aldrei kom það fyrir. Ef skeljar liggja lengi uppi í lónum, þar sem sjór leikur ekki um þær, geta þær orðið banvænar, ef til vill. Ingibjörg segir að krakkar hafi borð- að ósköp af þessu í Dýrafirði eftir aldamótin 1900; oft þröngt í búi, aldrei orðið meint af. Heilar börur fullar, soðið - og þótti fullsoðið er skelin opnaðist sjálfkrafa. Mátti vel hafa í súpur líka, en þurfti að hreinsa það vel; ekki frítt við að sandur kæmist ofurlítið inn. Stundum tekið úr skelj- unum hráum og haft í súpur, en annars soðnar skeljarnar með öllu saman, líka ágætt. Stundum voru skeljarnar steiktar á glóð,. þurfti aðgæslu að aska færi ekki inn í. Þá var kræklingur (bláskel), kúfiskur og aða allt ágætt. Öðulskeljar (aða) þóttu bestar; koma mest á land eftir rosagarða. Feiknin öll þarna inni í fjörðunum. Björg man ekki hve marg- ar skeljar þóttu jafngilda nýmjólkur- potti, það var talað unt það. Sumir tóku magann úr, hann er grænleitur, sætur á bragðið. Aldrei tóku börn Ingibjargar hann úr. Hjálparvök í Gufudal Sagt er að hún hefði alltaf verið opin í harðindum, svo fátæklingar náðu þar í skeljar. Skarfakál sótt út í hólma, heilir bátsfarmar. Nýr skarfakálsgrautur góður. Kálið var látið í tunnur, ekki soðið, kom fljótt mikill vökvi úr því. Þurfti að hræra í því við og við, vildi mygla ofan. Var liaft í grauta, brauð og slátur. Hvannnjóli (hvannstönglar ungir) eins og veisla. Súrleggir og blöð (súrblöðkur) not- uð í brauð að gamni. Geitarskóf, grá, flöt skán, sprettur á steinum, föst á einni taug, höfð í pottbrauð, slátur og grauta, ekki eins römm og fjallagrösin. Alltaf var hlaupið til grasa á vorin, tínt svona í skjólur, eftir þvt' sem tók upp. Allur kornmatur fíuttist ómalaður í verslanir. Handkvörn var til á hverjum bæ; einstaka kornmyllur við læki. Bankabygg mjög mikið notað. Fínt bankabyggsmjöl þótti sérstaklega vel hæft í lummur, sem voru eina kaffi- brauðið á þeim árum. Svo ritar Halldóra í Hlín, en heim- ildakonur hennar eru að lýsa matar- öflun og venjum fyrri tíma. Nú er í vaxandi mæli farið að hagnýta skelfisk. Steiktur kræklingur t.d. þykir lostæti. Er ræktaður til matar í ýmsutn löndum. Hefur og mikið verið hafður í beitu; einnig aða o.fl. Hörpudiskur (dráttan'öðvi hans) er orðin talsverð útflutningsvara, enda Ijúfmeti. Kúfiskur var til skamms tíma mikið notaður til beitu. Var plægt með sérstöku tæki, skelplóg, til að ná í kúskelina. Vinda (spil) þá knúin með handafli í bátunum. Man ég að for- vitnilegt þótti að sjá ýmsar skeljateg- undir, sem auk kúskeljarinnar, komu í plógpokann. Víða er allmikið af skeljum í gömlum ösku- og ruslahaugum. Hefur skelfiskurinn sjálfsagt aðallega verið hafður í beitu, en sennilega eitthvað líka til matar. Þá hefur varla verið að óttast mengun í sjó. Nú þarf að fara með gát vegna mengunar allvíða. Ath. I þættinum 14. febrúar var birt mynd af Oddi bónda Loftssyni og systrum hans í Þrándarholti. Hann var ranglega sagður Þórðarson. Ingólfur DavRksson, skrtfar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.