Tíminn - 25.02.1984, Blaðsíða 11

Tíminn - 25.02.1984, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984 10 íþróttir | umsjón: Samúel Öm Eriingssc NJARDVIKINGAR ENN A SIGURBRAUT — gjörsigruðu slappa Hauka 94:75 í gær ■ Njarðvíkingar eru enn á sigurbraut, þeir unnu Hauka, 94-75, í úrvalsdeild- inni í körfuknattleik, í gærkvöld. Leikur- inn var háður í íþróttahúsinu í Njarðvík. Staðan í hálfleik var 48-39 Njarðvíking- um í vil. Fyrri hálfleikur var mjög jafn framan af og aðeins örfá stig skildu liðin að. Þegar 3 mínútur voru til leikhlés fóru Njarðvíkingar á fulla ferð og skoruðu 7 stig í röð og tryggðu sér gott forskot í VflLSSTULKUR UNNU VÍKING ■ Einn leikur var í 1. deild kvenna í handknattleik í gærkvöld, Valur vann Víking 16-11, í íþróttahúsi Seljaskóla. Vals-stúlkurnar höfðu yfirhöndina frá byrjun og í hálfleik voru þær þremur mörkum yfir, 8-5. Víkings-stúlkurnar skoruðu þrjú fyrstu mörkin í síðari hálfleik og jöfnuðu 8-8 og skömmu síðar 10-10. En lengra komust þær ekki því Vals-stúlkurnar skoruðu næstu fimm mörk og breyttu stöðunni í 15-10. Leiknum lauk síðan með öruggum Vals- sigri 16-11. Mörk Vals skoruðu: Erna Lúðvíks- dóttir 5, Stcinunn Einarsdóttir 5, Karen Guðmundsdóttir 2, Soffía Hreinsdóttir 2, Elín Kristinsdóttir 1 og Harpa Sigurð- ardóttir I. Mörk Víkings skoruðu: Helga Braga- dóttir 3, Inga Þórisdóttir 3, Valdís Birgisdóttir 2, Sigurrós Björnsdóttir 1, Eiríka Ásgrímsdóttir 1 og Svava Bald- vinsdóttir 1. - BL 500 þúsund kr. úthlutað — í styrkjum frá íþróttaráði Reykjavfkur ■ Áflmmtudag var úthlutað úrstyrkt- arsjóði íþróttaráðs Reykjavíkur, í flmmta sinn. Alls var 500 þúsund krón- um úthlutað að þessu sinni. Styrkimir komu í hlut 8 aðila og að auki hlutu sex sigurvegarar sérstakar viðurkenningar. Körfuknattleiksdeild Vals og hand- knattleiksdeild Víkings fengu 100 þús- und krónur hvor, en þessi félög urðu Íslands-Reykjavíkur- og bikarmeistarar 1983. Skíðadeildir Ármanns, KR og 1R hlutu 50 þúsund hver fyrir langt og árangursríkt starf að eflingu skíðaíþrótt- arinnar meðal Reykvíkinga. Sundfélagið Ægir fékk 50 þúsund krónur í tilefni að kjöri íþróttamanns Reykjavíkur, Guðrúnar Femu Ágústs- dóttur og fyrir ágætt starf að sundmálum. íþróttafélagið Ösp fékk 50 þúsund fyrir ágætan árangur og dugmikið íþrótta- starf fyrir þroskahefta. Körfuknattleiksdeild ÍR fékk 50 þús-l und krónur fyrir mikið og gott unglinga- starf, en yngri flokkar félagsins hafa á undanförnum árum staðið sig sérstak- lega vel. Þá hefur iðkendafjöldi innan deildarinnar aldrei verið meiri en nú. Sex einstaklingar hlutu sérstakar viðurkenningar. Bjami Friðriksson júdó- maður úr Ármanni fékk sérstaka viður- kenningu fyrir frábæran árangur í íþrott sinni, en Bjarni hefur veriðósigrandi hér innanlands um nokkurt skeið og á mótum erlendis hefur Bjarni oftast verið í verðlaunasæti þegar hann hefur tekið þátt í þeim. Þá varð Bjarni í sjötta sæti í síðustu Ólympíuleikum og á OL í Los Angeles í sumar mun Bjarni vafalaust standa fyrir sínu. Einar Ólafsson íþróttakennari fékk sérstaka viðurkenningu fyrir langt og gott þjálfarastarf. Einar hefur starfað við þjálfun hjá körfuknattleiksdeild ÍR í um 30 ár og gerir enn. Hann hefur oft verið nefndur faðir körfuboltans hjá ÍR og er það orð að sönnu. Atli Helgason prentari, fékk viður- kenningu fyrir langt og gott þjálfarastarf hjáKR. Hjónin Margrét Eyjólfsdóttir og Jón Halldórsson fengu viðurkenningu, en þau hafa stundað sundlaugarnar í Laug- ardal svo að segja daglega í áratugi. Jóhannes Markússon flugstjóri, sem skokkað hefur á Melavellinum í ein 15 ár fékk einnig sérstaka viðurkenningu. -BL hálfleik, 48-39. Upphafsmínútur síðari hálfleiks voru, eins og svo oft áður.mjög góðar hjá Njarðvíkingum. Þegar 4 mín- útur voru búnar af hálfleiknum höfðu heimamenn náð 17 stiga forskoti 62-45. Þrátt fyrir miklar innáskiptingar Njarð- víkinga veiktist lið þeirra alls ekki, þvert á móti styrktist liðið og jók forskotið í 83-56, þegar 5 mínútur voru til leiksloka. Haukarnir voru ekki með á nótunum og gátu ekki stöðvað hamfarir Njarðvík- inga. Pálmar Sigurðsson reyndi þó að fylgjast með, en mátti sín lítils einn gegn andstæðingunum. Pálmar skoraði 18 stig í síðari hálfleiknum og var eini Hauka- maðurinn sem eitthvað reyndi að klóra í bakkann. Njarðvíkurliðið kemur mjög sterkt frá þessum leik og sýndi að breidd skortir ekki í liðið. Varamennirnir stóðu sig mjög vel þegar þeir komu inná, þó sérstaklega Hreiðar Hreiðarsson, sem átti mjög góðan leik og kom skemmti- lega á óvart. Hann var bestur Njarðvík- inga ásamt þeim Val Ingimundarsyni, Árna Lárussyni og Gunnari Þorvarðar- syni. Áberandi var hve Njarðvíkingar stálu boltanum oft af Haukunum og skoruðu með leifturhröðum hraðaupp- hlaupum. Þessi ósigur Hauka kemur sér illa fyrir liðið, því nú eru komnir margir leikir í röð hjá þeim án þess að þeim takist að sigra, þó er nokkur huggun fyrir þá að þeim nægir að vinna í öðrum af þeim tveimur leikjum sem eftir eru í deildinni, til þess að komast í úrslita- keppnina. Stig UMFN: Valur 28, Árni 16, Gunn- ar 15, Hreiðar 13, Ingimar 9, ísak 9, Kristinn 2 og Júlíus 2. Stig Hauka: Pálmar 28, Kristinn 11, Sveinn 10, Reynir 10, Ólafur 6, Eyþór 4 og Hálfdán 4. Val/BL Bjarni vard í öðru sæti — á opna skoska meistara- mótinu í júdó ■ Bjarni Friðriksson júdókappi varð í öðru sæti í 95 kg flokki á opna skoska meistaramótinu í júdó, sem haldið var í Edinborg um síðustu helgi. Margir þekktir júdómenn víða að úr Evrópu tóku þátt í mótinu. 15 keppendur voru í flokki með Bjarna á mótinu. Bjarni glímdi til úrslita við danskan kappa, Carsten Jensen, og sigraði Jensen í hörkuviðureign. Þess má geta, að Bjarni hefur glímt fimm sinnum áður við þann danska, og alltaf unnið hann á Ippon, en það er fullnaðarsigur. Sá danski er mjög sterkur um þessar mundir, og er talið að hann verði eini danski keppandinn í júdó frá Danmörku á Ólympíuleikunum í Los Angeles í sumar, en Bjarni stefnir á að komast á leikana. -SÖE Bjarni Friðriksson júdókappi tekur hér við viðurkenningu sinni. Tímamynd Róbert. • Finnbogi Gunnlaugsson og félagar hans t am leika gegn HK klukkan 1550 í Digrancsi ag. Leikurinn er í 1, deild karla i hlaki. Tnnamynd Róbert ■ Einar Ólafsson „faðir körfuboltans í ÍR“ tekur hér við viðurkenningu sinni úr hendi borgarstjórans í Reykjavík, Davíðs Oddssonar. Tímamynd Róbert Knattspyrna ■ íslandsmótið í innanhúsknattspyrnu verður háð í Laugardalshöll um helgina. Keppt verður í I. deild og 3. deild karla og einnig i kvennaflokki. Keppni hefst kl. 10á laugardags- morgun og á sama tíma á sunnudagsmorgun. Báða dagana verður leikið frarn til ki. 21. Körfuknattleikur Laugardagur: Selfoss: UMFL-Fram 1. deild karla kl. 14. Akureyri: Þór-ÍS 1. dcild karla kl. 14. Sunnudagur: Seljaskóli: Valur-KR úrvalsdeild kl. 20. Seljaskóli: ÍR-Njarðvík L dcild kvenna kl. 21.30 Handknattleikur Laugardagur: Varmá: UMFA-Þór Ak. 3. dcild karia kl. 14. Digranes: HK-ÍBV 2. deild kvenna kl. 14. Seljaskóli; Þróttur-Þór Ak. 2.d kvenna kl. 14.30 Sunnudagur: Seljaskóli: Ögri-Skallagrímur 3.d karla kl.15 Frjálsar íþróttir Um helgina fer fram meistaramót islands 14 ára og yngri innanhúss. Keppnin hefst i iþróttahúsinu í Hafnarfirði kl. 9.30 og i sunnudag hefst kcppni kl. 10.00 í Baldurshaga. Skíðaíþróttir Á Húsavík fcr íram bikarmót í Alpagreinum fullorðinna og á Akureyri verður hikarmót fuilorðinna og unglinga í góngu og stökki. Þá verður einnig á Akureyri trimmmót. Keppt verður í göngu, Kjarnaganga. Sund Unglingamót sunddeildar Ármanns verður í Sundhöll Reykjavíkur a sunnudag. Júdó i dag kl. 15. hefst í íþróttahúsi Kennarahaskói- ans sveitakeppni drengja í júdó. Lyftingar Kl. 13 í dag hefst fyrsta íslandsmót unglinga U-23 ára í kraftlyftingum. Keppt er í íþrótta- húsinu í Hveragerði. Víðavangshlaup Flöahlaup UMF. Samhygðar hefst kl. 14 í dag við Vorsabæ í Gaulverjabæjarhreppi. Hlaupnir verða 10 kra. Blak Laugardagur: Digranes: HK-Fram l.deild karla kl. 15.50 Digranes: HK 2-UBK 2.deild karla kl. 17.10 Hagaskóli: ÍS-Vi'kingur l.deild karia kl. 14.00 Hagaskóli: ÍS-Þróttur l.deild kvenna kl. 15.20 Hagaskóli: V.íkingur-KA l.deild kvenna kl. 16.: I 11 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984 SUMARÁÆILUN ÚTSÝNAR Feröaskrrfstofan UTSYN Utsýn leggur áherslu á vandaða gististaði, góðan aðbúnað, fræð- andi og skemmtilegar kynnisferðir og heil- brigð, fjölbreytt og uppbyggjandi við- fangsefni í sumarleyf- inu Feröasknfstofan UTSYN vekur hrifningu og Nýir, vandaðir en ódýrari gististaðir geta lækkað verð frá fyrra ári um ailt að 14-20% fyrir fjöl- skyldur. ferðasjóðinn Yar einhver að tala um afslátt pantanir streyma inn Dœmi um verð-Hjón með tvö börn: 2-5 ára og 6-11 ára Costa del Sol 16. maí - 3 vikur: Gisting: íbúð á Timor Sol: Kr. 20.00x4 kr. 83.600 Afsl. Frí-klúbbsins kr. 3.000 Barnaafsl. 2-5 ára kr. 6.000 Samtals kr. 67.600 -eða 16.900 áfarþega. Samtals afsláttur kr. 16.000 Greitt með Frí+láni á 12 mánuðum: kr. 5.633,- á mánuði. Sumardvöl í Rínarlöndum Brottför 8. júní - 2 vikur. Gisting: Dorint Feriepark & Sporthotel: Kr. 14.870x4 kr. 59.480 Afsl. Frí-klúbbs . kr. 3.000 Barnaafsl. 2-11 2x5.000 ... kr. 10.000 Samtals kr. 46.480 -eðakr. 11.620 á farþega. Samtals afsláttur kr. 13.000 Greitt með Frí+láni á 12 mánuð- um: kr. 3.873,- á mánuði Ítalía - Valbella 29. maí - 3 vikur: Gisting: íbúð í Residence Valbella: Kr. 20.700x4 kr. 82.800 Afsl. Frí-klúbbsins kr. 3.000 Barnaafsláttur 2-5 ára kr. 7.000 Barnaafsláttur 6-11 ára kr. 6.000 Samtals kr. 66.800 -eða 16.700 á farþega Samtals afsláttur kr. 16.000 Greitt með Frí+láni á 12 mánuðum: kr. 5.567,- á mánuði. Portúgal - Algarve 17. maí - 3 vikur: Gisting: íbúð á Villa Magna: Kr. 21.000x4 kr. 84.000 Afsl. Frí-klúbbsins kr. 3.000 Barnaafsl. 2-5 ára kr. 7.000 Barnaafsl. 6-11 ára kr. 6.000 Samtals kr. 68.000 - eða kr. 17.000 á farþega Samtais afsláttur kr. 16.000 Greitt með Frí+láni á 12 mánuðum: kr. 5.667,- á mánuði. Sumar á Sjálandi: Brottför 18. maí - 2 vikur. Gisting: íbúð á Marienlyst Palæ: Kr. 16.430x4 kr. 65.720 Afsl. Frí-klúbbsins kr. 3.000 Barnaafsláttur 2-112x6.000 kr. 12.000 Samtals kr. 50.720 - eða kr. 12.680 á farþega Samtals afsláttur kr. 15.000 Greitt með Frí+láni á 12 mánuðum: kr. 4.227, á mánuði. þýðir NYTT LIF fyrir þig! UMBOÐSMENN UM ALLT LAND Feróaskrifstofan AUKIN LlFSORKA - LlFSFYLLING - LfFSGLEÐI ÞÝÐIR NÝTT LÍF FYRIR ÞIG: FRÍ-KLÚBBURINN sparar þér útgjöld ailt árið. Afsláttur af líkamsræktaraðstöðu. Afsláttur hjá: sólbaðsstofu, videoleigu snyrtistofu, kvikmyndahúsi, dansskóia, sportvöruversiun og 1.000 króna afsláttur af sjálfri sumarleyfisferðinni með Útsýn þar sem þér býðst afsiáttur á: matsölustöðum, íþróttaaðstöðu, diskótekum, bílaleigu og ókeypis þátttaka í margs konar skemmtun, heilsurækt og góðum félagsskap. Þátttaka í FRÍ-KLÚBBNUM kostar þig ekkert nema 100 króna skráningargjald gegn útgáfu skírteinis og er opin ollu fólki frá 16 ára aldri. Skírteini með fullum réttindum tekur gildi um leið og farpöntun er staðfest. Reykjavík: Austurstræti 17, símar 26611, Akureyrir Hafnarstræti 98, sími 22911

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.