Tíminn - 25.02.1984, Blaðsíða 8

Tíminn - 25.02.1984, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrimsson. Umsjónarmaður Helgar-Timans: Atli Magnússon. Ðlaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Baldur Kristjánsson, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv . Hermannsson, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristin Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Flosi Kristjánsson, Guðný Jónsdóttir Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavík. Simi: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsimar: 86387 og 86306. Verð i lausasölu 20.00, en 22.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 250.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Klofningurinn í Alþýðubandalaginu ■ Það hefur komið glöggt í ljós á undanförnum misserum, að mikill tvískiptingur ríkir í röðum forustuliðs Alþýðu bandalagsins. Annars vegar eru fulltrúar verkalýðshreyfing- arinnar, hins vegar hópur svokallaðra menntamanna, sem slitnað hafa úr tenglsum við alþýðuna í landinu, en telja sig þó sjálfkjörna vegna gáfna og menntunar til að segja verkalýðsleiðtogunum fyrir verkum. Þessi klofningur í forustusveit Alþýðubandalagsins hefur sjaldan komið betur í ljós en í sambandi við kjarasamningana nú. Langflestir verkalýðsleiðtogar í flokknum hafa gert sér fulla grein fyrir því, hvernig ástatt er í efnahagsmálum þjóðarinnar. Á þessu stigi yrði ekki hægt að endurheimta kaupmáttinn eins og hann var mestur, því að tilraun í þá átt myndi enda með nýju verðbólguflóði og stórauknu atvinnu- leysi. Leiðina til að ná þessu marki yrði að fara í áföngum og hún yrði því aðeins fær, að hægt væri að auka og bæta framleiðsluna. Verkalýðshreyfingin yrði í samræmi við það að reyna að hafa þau áhrif á atvinnurekendur og stjórnarvöld að markvíst yrði stefnt að aukinni og fjölþættari atvinnustarf- semi. í samræmi við þetta yrði að miða kröfugerðina við það, að boginn yrði ekki spenntur of hátt. Nú væri um varnarbaráttu að ræða. Launþegar yrðu sjálfir verst úti, ef afleiðingin yrði aukin verðbólga og atvinnuleysi. Menntamannahópurinn í Alþýðubandalaginu hafði önnur sjónarmið. Markmið hans var að nota verklýðshreyfinguna í pólitískri valdabaráttu Alþýðubandalagsins. Ríkisstjórninni yrði að misheppnast í baráttunni við verðbólguna. Þannig yrði að reyna að bæta taflstöðu Alþýðubandalagsins. Það er flestum verkalýðsforingjum innan Alþýðubanda- lagsins til lofs, að þeir létu ekki blekkjast af þessum áróðri menntamannahópsins. Þeir tóku ábyrga og raunhæfa afstöðu undir forustu Ásmundar Stefánssonar. Þannig náðu þeir fram eins miklu og frekast var mögulegt undir núverandi kringum- stæðum, ef ekki átti að efna til meiri verðbólgu og atvinnuleysis. Einn af hinum öldnu verkalýðsleiðtogum Alþýðubanda- lagsins, Guðmundur J. Guðmundsson, hlustaði þó um of á málflutning þeirra Svavars Gestssonar og Ólafs Ragnars Grímssonar. Hann klauf sig frá meginþorra verkalýðsleiðtog- anna, sem unnu að gerð nýju kjarasamninganna. Það sýndi sig þó á fundi Dagsbrúnar á fimmtudaginn, að Guðmundur J. ætlaði að fara frekar hóflega í sakirnar. Hann deildi að vísu hart á Ásmund Stefánsson og félaga hans fyrir áhugaleysi og deyfð. Ætlun hans var þó ekki að láta fella nýja kjarasamninginn, heldur gagnrýna vissa þætti hans og óska eftir frekari viðræðum við atvinnurekendur í samræmi við það. Hér stóð Guðmundur J. Guðmundsson nokkurn veginn í svipuðum sporum og Héðinn Valdimarsson, þegar hann var að keppa við kommúnista í Dagsbrún á sínum tíma. Hann gerði yfirboð, en kommúnistar gerðu enn meiri yfirboð og fengu þau samþykkt, því að Héðinn var óbeint búinn að undribúa jarðveginn. Pétur Tyrfingsson lék hér nákvæmlega sama leikinn. Hann gekk á lagið og flutti tillögu um að fella samninginn. Eftir ádeiluræðu, sem Guðmundur var búinn að halda, var tæpast annað fyrir hann að gera en að sætta sig við forustu Péturs. Sú varð líka niðurstaðan. Eftir þessa afgreiðslu málsins á Dagsbrúnarfundinum er erfitt að dæma um hver afstaða Dagsbrúnar kann að verða. Boðskapur Guðmundar eftir fundinn er þessi: Verum harðir - en yfirvegaðir og rólegir. Bersýnilegt er, að Guðmundur er hér að leita að útgönguleið. En hann ræður vart ferðinni lengur. Hann er búinn að láta menntamannahópinn teyma sig of langt. Pétur Tyrfingsson, Ólafur Ragnar Grímsson og Svavar Gestsson segja nú líkt og maðurinn forðum: Nú get ég. Þ.Þ. skrifað og skrafað Verðlag á ekki að hækka Þeir kjarasamningar sem nú hafa tekist eru gleðilegur vottur um að tekið hefur verið á málum af ábyrgð og raunsæi og eru þeir miðaðir við getu atvinnuveganna til að standa undir þeim kjara- bótum sem um er samið. Ríkisvaldið lagði sitt af mörkum til að liðka fyrir samningagerðinni og hefur lýst yfir að úrbætur verði gerðar til aðstoðar þeim lægstlaunuðu og þeim sem við lökust kjör búa. Þetta verður gert án við- bótarútgjalda ríkissjóðs. Með tilfærslum innan ramma fjárlaga verður unnt að ná þessu marki. Atvinnufyrirtækin verða einnig fyrir sitt leyti að standa undir hærri launakostnaði án þess að hækka vöru sína eða þjónustu. Ef samningarnir leiða til slíkra hækkana mun það aðeins auka verðbólguna og er það atvinnurekstrinum síst til hagsbóta. Lækkun verðbólgu, stöðugt gengi og mikil vaxtalækkun hafa leitt til mikils fjármagnssparnaðar og ættu fyrirtækin því að vera í stakk búin að taka á sig eitthvað af byrðunum og láta enda ná saman án þess að velta auknum launakostnaði beint út í verðlagið. Fjallað er um þetta í for- ystugrein Morgunblaðsins daginn eftir að samningarnir voru undirritaðir. Þar segir m.a.: „Talnaþulur um áhrif samninganna á þróun verð- bólgu og viðskiptajöfnuð eru næsta marklausar á þessu stigi. Öllum ætti að vera Ijóst að boginn er spenntur til hins ýtrasta. Mörgum at- vinnufyrirtækjum mun reyn- ast erfitt að axla þyngri kostn- aðarbyrði en þau bera nú þegar. Vélrænir útreikningar á verðþróun miðað við launa- hækkanir segja ekki alla söguna því að þeir verða vafalaust margir ef að líkum lætur sem munu misnota launahækkanir til að hækka verð á vöru og þjónustu meira en þær gefa efni til. Gegn slíkri misnotkun verða neytendur og verðlagsyfir- völd að bregðast með fullum þunga. Afnám verðlagshafta á helstu neysluvörum heimil- anna frá 1. mars næstkom- andi færir neytendum meira vald í þessum efnum en þeir hafa nokkru sinni áður haft. Það vald hljóta þeir að nota til hins ýtrasta með lögskip- aðri aðstoð verðlagsyfir- valda.“ A það hefur verið lögð áhersla að þetta séu frjálsir samningar milli launþega og atvinnurekenda og verða þeir sem reka fyrirtæki að skilja að frjálsræði þeirra leyfir ekki að þeir komist undan að taka á sínar herðar þann kostnað sem af samningagerð þeirra hlýst. Það er vonandi úreltur hugsunarháttur að verðbólgan geti greitt skuld- irnar. Hinn 1. mars verðurverð- lag gefið frjálst og hljóta menn að sjá sóma sinn í því að nota ekki það frjálsræði til að hrifsa meira til sín en eðlilegt getur talist. Þinggrín Tveir grínistar verma nú varamannabekki á Alþingi Þingflokkaformennirnir fyrr- 'verandi sem felldir voru í : prófkjörum af flokks- mönnum sínum, þeir Ólafur Ragnar Grímsson og Sig- hvatur Björgvinsson, láta gamminn geisa á meðan sætt er á þingsölum. Þeir tala í hvprju máli og fljótandi mælskan leikur um þing- heim. Þeir eru eins og síamství- burar hvað málflutning snert- ir og verður aldrei sundur- orða eins og áður brá heldur betur við, og er samlyndið slíkt að frekar mætti halda að þeir séu tveir einir í þing- flokki en að annar þeirra sitji í varamannssæti fyrir Al- þýðubandalagið og hinn fyrir Alþýðuflokkinn. Til að mynda lýsti Sighvat- ur gjörólíkur skoðunum á heildarkjarasamningunum er þeir voru til umræðu á þingi en Karl Steinar, sem á að heita flokksbróðir hans. í umræðum um stjórnarfrum- varp um að breyta lausa- skuldum bænda í löng lán lýsti Steingrímur Sigfússon yfir að hann styddi málið af alhug. Á eftir honum hljóp Ólafur Ragnar í pontu og taldi frumvarp þetta óalandi og óferjandi og mundi hann aldrei Ijá því liðsinni. Hver hugur þingflokks Alþýðu- bandalagsins í heild er til málsins er ekki vitað. Aðeins þessar gagnstæðu skoðanir komu fram úr þeim flokki. Nú hafa þessir eindrægu skoðanabræður lagt fram frumvarp sem þeir álíta vera gott grín. Það er samhljóða frumvarpinu um skuldbreyt- ingar til bænda, nema að þar er lagt til að lausaskuldum launafólks verði breytt í föst lán. Er náttúrlega enginn greinarmunur gerður á skuldum vegna atvinnuvega og einkaskuldum í frumvarpi þeirra fóstbræðra. Þessa skemmtun þinggrín- istanna kallar Þjóðviljinn frumvarp frá fulltrúum fé- lagshyggjuflokkanna um breytingu á lánum. Gaman væri að fá nánari útlistun á hverjir aðrir þing- menn eru fulltrúar félags- hyggjuflokka að mati Þjóð- viljans og hver er sú félags- hyggja sem býr að baki svona tiltæki. OÓ Öll verkalýðsfélög samþykkt samningana sem fundað hafa nema Dagsbrún: F „Forseti ASI hefur sýnt mikla ábyrgð og festu“ — segir Jón Eggertsson, formaður Verkalýðsfélags Borgarness ■ Öll verkalýðsfélög sem þegar hafa haldið fundi um nýgerða kjarasamninga hafa samþykkt þá - flest með miklum meirihluta - nema Dagsbrún í Reykja- vík. í Borgarnesi var samningurinn sam- þykktur með 44 atkvæðum gegn 9, en 4 sátu hjá. Að sögn Jóns Agnars Eggerts- sonar, formanns V.B! létu fundarmenn í Ijós þakkir til samninganefndarinnar fyrir vel unnin störf við erfiðar aðstæður - þar sem félögin hafi ekki verið tilbúin að beita verkfallsaðgerðum. „í forseta- tíð Ásmundar Stefánssonar hefur verið lögð rík áhersla á að bæta hag þeirra lægst launuðu," sagði Jón Agnar. „Dag- vinnutekjutryggingarkerfið sem komið var á í samningunum haustið 1981 var vcrulega til bóta fyrir þá sem verst eru settir og nú er haldið áfram á sömu braut. Þó gallar séu á þessu kerfi, er það tvímælalaust til bóta fyrir þá sem eru á lægstu töxtunum. Ég tel að forseti ASI hafi sýnt mikla ábyrgð og festu í þessum samningum og ekki hafi lengra verið komist nema með verkfallsaðgerðum. Og hér um slóðir a.m.k. er verkafólk ekki tilbúið til slíkra aðgerða," sagði Jón Agnar. . „Hér gerðist ekki annað en að þetta var samþykkt án nokkurra mótatkvæða, sagði Bárður Jensson, spurður um fund Jökuls í Ólafsvík. „Maður er auðvitað ekkert sérstaklega ánægður. En ástandið hjá okkur er þannig að ekki er hljóm- grunnur meðal fólks að fara út í harðar aðgerðir. Maður verður bara að vona að staðið verði við gefin loforð. Hún hefur verið tekin mjög hátíðlega hér þessi yfirlýsing forsætisráðherra", sagði Bárður. Verslunarmannafélag Reykjavíkur samþykkti samningana með 73 at- kvæðum gegn 21 og Verslunarmannafé- lag Akurcyrar með 22 atkv. gegn 12, en 5 voru auð. Verkalýðs- og sjómannafé- lag Keflavíkur og Njarðvíkur samþykkti með 27 atkvæðum gegn 5 og Verkalýðs- félag Þorlákshafnar og Hveragerðis með 18 atkvæðum gegn 3. Verkalýðsfclagið Rangæingur samþykkti mótatkvæða- laust. Fleiri félög vissum við ekki úm í gær sem haldið hafi fund um samning- ana. „Ég á nú ekki von á neinum stórtíðind- um héðan," sagði Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða í gær, en þar verða fundir haldnir á sunnudag meðal hátt í 20 félaga. „Ég býst við að menn mæli með að samning- ' urinn verði samþykktur og kem til með að gera það sjálfur, enda engin staða til annars. Þeir sem ég hef talað við eru nokkuð sammála um það,“ sagði Pétur. Á Austurlandi verða fundir ekki haldnir fyrr en í næstu viku. Sömuleiðis verður Eining á Akureyri með allsherjar- atkvæðagreiðslu þriðjudag og miðviku- dag í næstu viku. Framsókn í Reykjavík verður með fund kl. 3 í dag og verkalýðs- félögin í Vestmannaeyjum sameiginleg- an fund á sunnudag. - HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.