Tíminn - 25.02.1984, Blaðsíða 5

Tíminn - 25.02.1984, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984 5 fréttir 400 ára afmæli Guðbrands- biblíu í ár: 1984 ÞVÍ ÚTNEFNT ÁR BIBLÍUNNAR ■ Hém Pétur Sigurgeirsson biskup og sr. Ragnar Fjalar Lárusson sóknar- prestur í Hallgrímsprestakaiii. Á borð- inu fyrir framan þá er Guðbrandsbiblía sem verður á sýningu Listvinafélagsins og ofan á henni frönsk handskrifuð bibiíuútgáfa frá 12. öld. Tímamynd Róbert ■ „Útgáfa Guðbrandsbibb'u er einn hin merkasti atburður í islenskri sögu, hvort sem litið er á hann frá tniarlegu eða menningariegu sjónariiomi. I því efiii get ég vitnað til hins merka fræðimanns próf. Steingríms J. Þorsteinssonar, sem sagði i einu rita sinna: „Það er ailsendis óvist að við töluðum isiensku ef bibhan hefði ekki verið þýdd jafn snemma og jafn vel og raun ber vitni.“ Þetta sagði biskupinn yfir íslandi, hem Pétur Sig- urgeirsson er hann kynnti fyrir blaða- mönnum í gær hvemig 400 ára afmæii Guðbrandsbibb'u sem er í ár yrði minnst, en vegna þessa afinælis hefúr árið 1984 verið útnefnt ár biblíunnar. 'Samstarfsnefnd kristinna trúfélaga hefur í samvinnu við biblíufélagið skipu- lagt biblíuárið. Eftir guðsþjónustu í Hallgrímskirkju á sunnudaginn hefst aðalfundur Hins íslenska biblíufélags og jafnframt sýning á ýmsum merkum biblíuútgáfum á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Sunnudagurinn hefur verið útnefndur biblíudagur og hefur biskup ritað prestum landsins bréf þar sem hann biður þá sérstaklega um að gera biblíuna að umræðuefni í stól- ræðum sínum, en texti dagsins er dæmi- saga Jesú, Sáðmaður gekk út að sá. Aðaifundi biblíufélagsins lýkur ekki á sunnudeginum heldur verður fram- haldsaðalfundur á Hólum í Hjaltadal á Hólahátíð 12. ágúst n.k. Á Hólum verður einnig stutt athöfn hinn 6. júní í sumar, þar sem Hólaprentsmiðja stóð, en þann dag fýrir 400 árum lauk Jón Jónsson prentari við biblíu Guðbrandar biskups. Prestastefiia íslands hefst á Laugar- vatni 26. júní og verða þar erindi og umræður um biblíuna. Ýmislegt annað er á döfinni á biblíu- ári af hálfu trúfélaganna sem að'því standa, tjaldsamkomur Hvítasunnu- manna og fyrirhuguð er fjöldasamkoma í Háskólabíói eða Laugardalshöll, ef til vill í tengslum við biblíuviku sem haldin verður í öllum prpfastsdæmum landsins. Síðast en ekki síst er væntanleg á markaðinn ný Ijósprentun af þeirri bi- blíuútgáfu, sem kom fyrst á markað 1980 og hefur selst í 38000 eintökum síðan. En þáð er einmitt markmið biblíufélagsins að efla útgáfu, út- breiðslu og notkun þeilagrar ritríing- ar. - JGK ■ Nemendahópurinn fyrir framan skrifstofur bæjarstjórans í Hafnarfirði. Tímamyndir GE ,vð viuum rttvél' — Fylgst með deilum vegna brottnáms ritvélar af bókasafni Flensborgarskóla ■ Einar Ingi Halldórsson bæjarstjóri tekur við yfirlýsingunni úr hendi fulltrúa nemenda. ■ Ritvélaslagurinn mikli var háður í Hafnarfirði nú fyrir helgina er stór hópur nemenda úr Flensborgarskóla hélt á fund bæjarstjórans tii að mótmæla þeim „gerræðislegu vinnubrögðum yfir- valda að taka fram fyrir hendur skólayf- irvalda og fræðsluráðs og stöðva vinnu á bókasafni skólans...“„með því að láta nema á brott...“ „ómissandi hjálpartæki af bókasafni skólans, ritvél bókavarð- ar...“ eins og það er orðað í yfirlýsingu nemenda og kennara skólans sem nem- endum tókst að fá bæjarstjóranum Ein- ari Inga Haiidórssyni í hendur. Staðan er því nú 1:1 í siagnum en málið kemur væntaniega fyrir bæjarráðsfund á fimmtudag. Er blaðamaður og ljósmyndari Tím- ans komu að bæjarstjóraskrifstofunum í Strandgötu í Hafnarfirði um kl. 2.30 í gærdag var þar fyrir framan stór hópur nemenda Flensborgarskólans, svo stór að umferð um götuna var teppt. Öskruðu nemendur til skiptis slagorðin „Við vilj- um ritvél“ og „Við viljum bæjarstjórann" en í þann mund sem okkur bar að hópnum heyrðist einn nemandinn segja: „Ég veit nú ekki einu sinni hvernig þessi bæjarstjóri lítur út.“ Vinkona hans svar- aði að bragði: „Hann er hár og myndar- legur“. Þegar ekkert hafði gerst um nokkra hríð var einn nemenda sendur út af örkinni og inn á bæjarstjórnarskrifstof- urnar til að athuga hvort bæjarstjórinn ætlaði ekki að hitta nemendurna að máli. Nemandinn kom að vörmu spori til baka og sagði í dyrunum: „Hann vill hitta ykkur“. Ruddist þá allur hópurinn af stað en nemandinn reyndi að kalla á móti um leið og hann rétti upp báðar hendurnar: „Ekki alla...“ meira heyrðist ekki í honum og má hann kallast heppinn að vera ekki troðinn undir í ákafa nemenda að berja bæjarstjórann augum. Bæjarstjórinn tók við yfirlýsingu kennara og nemenda úr höndum for- svarsmanna þeirra og sagði hann m.a. um leið að þetta væri á misskilningi byggt hjá þeim þar sem ekki væri til fjárveiting á fjárlögum fyrir téðri ritvél. Yfirlýsingin hljóðar svo: „í dag gerðist sá fáheyrði atburður í skólasögu íslands að bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar létu nema á brott ómiss- andi hjálpartæki af bókasafni skólans, ritvél bókavarðar, sem fræðsluráð hafði gefið vilyrði fyrir að keypt yrði. Við undirritaðir, kennarar og nem- endur við Flensborgarskóla í Hafnarfirði mótmælum þessum gerræðislegu vinnu- brögðum yfirvalda að taka fram fyrir hendur skólayfirvalda og fræðsluráðs og stöðva vinnu á bókasafni skólans. Við treystum því að bæjaryfirvöld endurskoði afstöðu sína og finni farsæla lausn á máli þessu í samráði við Skóla- stjórn Flensborgarskóla, svo komast megi hjá frekari aðgerðum." Að sögn Margrétar Loftsdóttur bókasafnsvarðar á bókasafni Flensborg- arskóla er forsaga málsins dálítið flókin. „Ritvélin sem notuð hefur verið á bókasafninu var orðin allt að því ónothæf síðastliðið vor en á hana þarf oft að vélrita á þykkan pappír og hún hélt honum ekki. Þetta er gömul skóla- ritvél sem notuð hafði verið af nemend- um en hún dugði ekki lengur til nota á bókasafni. Ekki tókst að láta gera við hana þótt það hafi verið reynt nokkrum sinnum“ sagði Margrét. Talað var við fræðsluráð Hafnarfjarð- ar um að bókasafnið fengi að kaupa nýja ritvél í vor en ekki sótt formlega um slíkt...“ Strax í haust kom svo í Ijós að ritvélin var alveg búin að vera, í þessari notkun og þá sótti skólinn um aukafjár- veitingu því ekki voru til peningar fyrir nýrri ritvél" sagði Margrét. Umsóknin var lögð fyrir Fræðsluráð og voruþeii hlynivirerindinu en treystu sér ekki til að mæla með því vegna þess að það gæti orðið lördæmaskapandi fyrir aðrar stofnanir bæjarins, þ.e. að fá aukafjárveitingu. Alltaf var rætt um að fá elektróníska ritvél með litlu minni eins og vinsæl er á öðrum söfnum. Fræðsluráð sagði skólanum að bíða með þetta í október þar til fjárhagsáætl- un fyrir næsta ár yrði gerð, þ.e. 1984 en hún var þá í undirbúningi. „Þetta var efst á óskalistanum hjá , okkur því í millitíðinni er safnið ritvélar- laust en þar vinna auk mín, fimm nemendur og þau voru mikils til verk- efnalaus fyrir utan afgreiðsluna. Síðan töldum við að við værum búin að fá munnlega heimild fyrir því að vélin yrði keypt strax eftir áramótin og gerðum við það en bæjarstjórinn neitar að greiða reikninginn og biður um að vélin sé sótt af viðkomandi söluaðila" sagði Margrét. „Við töldum að málið væri leyst en það reyndist ekki.“ Einar Ingi Halldórsson bæjarstjóri sagði í samtali við Tímann að frá þeirra sjónarmiði væri þetta sáraeinfalt mál. Pöntuð hefði verið ritvél án þess að fyrir því lægi heimild frá bæjaryfirvöldum eða fjárveiting á fjárhagsáætlun. „Fjárhagsáætlun bæjarins er óafgreidd og ekki er heimild til kaupa á þessari ritvél frá réttum aðilum,“ sagði hann. - FRI ■ Ritvélin fjarlægð af bókasafninu. Margrét Loftsdóttir safnvörður og Kristján ■ Vélin sem um ræðir er af gerðinni Facit og kostar 58.000 kr. Bersi skólastjóri fyigjast með.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.