Tíminn - 25.02.1984, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1984
bridge • • • •
Bridgespilarar
safna kröftum
■ Bridgespilarar slappa flestir af um þessa
helgi og búa sig undir stórátökin um þá næstu
þegar Bridgehátíð hefst 2. mars. Eins og
fram hefur komið spila 44 pör í Barometer-
tvímenning föstudagskvöld og laugardag, en
á sunnudag hefst opin sveitakeppni með
monradsniði. Þegar þetta er skrifað eru
líkur til að tæplega 30 sveitir taki þátt í því
móti og verður það þá stærsta sveitakeppni
sem haldin hefur verið hérlendis.
Reykjavíkurmótinu í sveitakeppni lauk
um síðustu helgi. Úrslitin urðu þau að
Úrvalssveitin sigraði örugglega; fékk 48 stig
en sveit Ólafs Lárussonar kom næst með 30
stig. Úrval var vel að þessum sigri komið því
liðsmenn sveitarinnar spiluðu tvímælalaust
best af þeim sem voru saman komnir á Hótel
Hofi. Menn Ólafs Lárussonar spiluðu þokka-
lega en Samvinnuferðarmönnum og liðs-
mönnum Þórarins Sigþórssonar voru sérlega
mislagðar hendur í mótinu og spiluðu upp til
hópa undir styrkleika, hvað sem olli.
Reykjavíkurmeistarar í sveitakeppni urðu
sem sagt þeir Karl Sigurhjartarson, Asmund-
ur Pálsson, Hjalti Elíasson, Guðlaugur
Jóhannsson og Örn Arnþórsson. Sigur á
mótum er þessum mönnum ekkert nýnæmi
þó þeir hafi lítið haft sig í frammi síðustu ár.
Bridgedeild Breiðfirðinga
Þegar einu kvöldi er ólokið í aðaltvímenn-
ing félagsins virðist fátt geta komið í veg fyrir
sigur Magnúsar Oddssonar og Jóns G. Jóns-
sonar en þeir hafa leitt mótið frá upphafi.
Staðan eftir 36 umferðir af 41 er þessi;
Magnús Oddsson - Jón G. Jónsson 539
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 424
Eggert Benónýsson - Sigurður Ámundason 281
Birgir Sigurðsson - Óskar Karlsson 273
Halldór Helgason - Sveinn Helgason 266
Benedikt Björnsson - Magnús Björnsson 247
Gylfi Baldursson - Sigurður Þorsteinsson 244
Mótinu lýkur næsta fimmtudag en að því
loknu hefst hraðsveitakeppni. Þátttökulistar
munu þá liggja frammi hjá keppnisstjóra.
Bridgefélag Akureyrar
Akureyrarmótinu í tvímenning lauk s.l.
þriðjudag með sigri Jóns Stefánssonar og
Símonar Gunnarssonar en þeir hlutu 651
stig. Alls tóku 50 pör þátt í mótinu. Næstu
pör voru:
Stefán Vilhjálmsson -
Guðmundur V. Gunnlaugsson 571
Magnús Aðalbjörnsson -
Gunnlaugur Guðmundsson 457
Alfreð Pálsson -
Júlíus Thorarensen 453
Einar Sveinbjömsson -
Sveinbjörn Jónsson 425
Ragna Gunnarsdóttir -
Gissur Jónsson 412
Arnar Daníelsson -
Stefán Gunnlaugsson 399
Næsta mót félagsins er sveitahraðkeppni
og hefst hún 28. febrúar í Félagsborg kl.
19.30.
Þá er nú um helgina spilað úrtökumót fyrir
íslandsmótið í sveitakeppni. 11 sveitir taka
þátt í mótinu og kemst ein þeirra áfram á
íslandsmótið.
Þá er lokið firmakeppni Bridgefélags Ak-
ureyrar sem spiluð var jafnhliða Tvímenn-
ingskeppni félagsins. Spiluð voru alls 24 spil
fyrir hvert fyrirtæki, eftir Barometersfyrir-
komulagi, þ.e. allir spiluðu sömu spilin. Að
þessu sinni sigruðu með yfirburðum matsölu-
staðirnir Bautinn-Smiðjan sem eru bæjarbú-
um svo og ferðafólki að góðu kunnir.
Hlaut Bautinn-Smiðjan 184 stig en þeir
sem spiluðu voru Stefán Gunnlaugsson einn
af eigendum Bautans-Smiðjunnar og spila-
félagi hans Arnar Daníelsson.
1. Bautinn-Smiðjan
Arnar Daníelsson -
Stefán Gunnlaugsson 184
2. Almenna tollvörugeymslan
Magnús Aðalbjörnsson -
Gunnlaugur óuðmundsson 135
3. Verktækni s.f.
Gissur Jónasson -
Ragnhildur Gunnarsdóttir 133
4 Höldur s.f.
Ármann Helgason -
Jóhann Helgason 128
Bridgefélag Akureyrar þakkar öllum' er
þátt tóku í firmakeppni félagsins fyrir velvild
og stuðning.
Bridgedeild Rangæinga
Sveit Hjartar Elíassonar sigraði örugglega
í aðalsveitakeppni félagsins en hún endaði
með 111 stig. Með Hirti spiluðu í sveitinni
Björn Kristjánsson, Daníel Halldórsson,
Guðjón Guðmundsson og Þórður Elíasson.
Sigurleifur Guðjónsson 89
Gunnar Helgason 81
Lilja Halldórsdóttir 80
Barometertvímenningur félagsins hefst 7.
mars en næsta miðvikudag verður spilað við
Barðstrendinga.
Bridgefélag Reykjavíkur
Nú er lokið 30 umferðum af 43 í aðaltví-
menningskeppni félagsins og hafa þeir Sig-
urður Sverrisson og Valur Sigurðsson tekið
örugga forustu en röð efstu para er þessi:
Sigurður Sverrisson -
Valur Sigurðsson Ásgeir Ásbjörnsson - 495
Guðbrandur Sigurbergsson Jón Ásbjörnsson - 326
Símon Símonarson 304
Guðmundur Pétursson -
Sigtryggur Sigurðsson Aðalsteinn Jörgensen - 302
Runólfur Pálsson 289
Júlíus Snorrason -
Sigurður Sigurjónsson Helgi Jóhannsson - 225
Páll Valdimarsson 185
Jón Baldursson -
Hörður Blöndal 183
Guðmundur Páll Arnarson—
Þórarinn Sigþórsson 182
Næstu 7 umferðir verða spilaðar n.k.
miðvikudag kl. 19.30 í Domus Medica.
Félagið vill vekja athygli á breytingu á
áður tilkynntri dagskrá, en hún er í því
fólgin, að ekki verður spilað hjá félaginu
vikuna 11.-17. mars. Board a match keppni
félagsins hefst þriðjudaginn 20. mars og
heldur áfram miðvikudaginn 21. mars.
Bridgefélag Breiðholts
Síðastliðinn þriðjudag lauk Aðalsveita-
keppni félagsins með sigri sveitar Gunnars
Traustasonar, sem hlaut 166 stig. Auk Gunn-
ars voru í sveitinni Trausti Eyjólfsson, Sveinn
Harðarson, Ólafur Tryggvason og Guðjón
L. Sigurðsson. Næstu sveitir voru þessar:
2. Sveit Antons Gunnarssonar 152 stig
3. Sveit Heimis Tryggvasonar 151 stig
Næstkomandi þriðjudag hefst Butler -
tvímenningur og eru menn beðnir um að
mæta tímalega til skráningar. Spilað er í
Gerðubergi kl. 19.30.
Vegna lítillar þátttöku sá Bridgefélag
Húsavíkur sér ekki fært að heimsækja félagið
að þessu sinni, en þeir voru væntanlegir um
helgina og verður því engin spilamennska á
laugardag eins og sagt var frá í síðustu
fréttum frá félaginu.
Bridgedeild Skagfirðinga
Þriðjudaginn 21. febrúar var spiluð síðasta
umferð í aðalsveitakeppni deildarinnar og
lauk með sigri sveitar Magnúsar Torfasonar.
Með Magnúsi spiluðu Guðni Kolbeinsson og
Keflvíkingarnir Jóhannes Sigurðsson, Gísli
Torfason, Guðmundur Ingólfsson og Karl
Hermannsson.
1. Sveit Magnúsar Torfasonar 125
2. Sveit Sigmars Jónssonar 119
3. Sveit Guðmundar Theodórssonar 113
4. Sveit Guðrúnar Hinriksdóttur 104
5. Sveit Björns Hermannssonar 103
Þá var einnig spiluð Board and Match
sveitakeppni sem sveit Sigmars Jónssonar
vann með 24 stigum.
2. Sveit Sverris Kristinssonar 23 stig
Næsta þriðjudag hefst ný keppni. Spilað
verður Board and Match sveitakeppni og
verða veitt 1. og 2. verðlaun (peningar).
Skráning er þegar hafin hjá Sigmari Jónssyni
í síma 687070 eða 35271, og hjá Guðmundi
Kr. í síma 21051.
Spilað er í Drangey, Síðumúla 35, kl.
19.30 stundvíslega.
Fréttlr frá
Bridgefélagi Seyðisfjarðar
Bridgefélag hefur starfað á Seyðisfirði frá
septemberlokum og hefur verið spilað einu
singj í viku í vetur.
Nýlokið er Seyðisfjarðarmóti í tvímenn-
ingi. Þátt tóku 10 pör. Röð efstu para varð
þessi:
1.-2. Ólafur Óskarsson og
Sigurður E. Valdimarsson 248
1.-2. Ásgeir Friðgeirsson og
Jón H. Guðmundsson 248
3. Einar Guðmundsson og
Gísli Sigurðsson Meðalskor var 216 stig. 240
Sveitakeppni félagsins er fyrirhuguð síðar
í vetur.
Bridgefélag Sauðárkróks
Mánudaginn 13. febrúar var spilaður tví-
menningur hjá félaginu. Úrslit urðu þessi:
A-RIÐILL
Geirlaugur Magnússon og
Agnar Kristinsson
Agnar Sveinsson og
Valgarð Valgarðsson
Garðar Guðjónsson og
Gunnar Þórðarson
Geir Eyjólfsson og
Kristinn Ólafsson
B-RIÐILL
Skúli Jónsson og
Einar Svansson
Björn Guðnason og
Margrét Guðvinsdóttir
Stefán Skarphéðinsson og
Kristján Sölvason
Jón Dalman og
Sigrún Angantýsdóttir
121
116
114
112
128
118
116
114
fréttir
■ Þýska sendiherrafrúin Krieg, klippir á borðann við vígslu skíðabraularinnar.
Skíðabrautir lagðar
í Öskjuhlíð
■ Þótt hláka hafi verið að undanförnu
hér í Reykjavík, er enn eftir talsvert af
snjó sumum til gleði en öðrum til
armæðu. Hótel Loftleiðir hafa nú látið
leggja skíðabrautir á útivistarsvæðinu í
Öskjuhlíð, sem hótelgestir sem borgar-
búar geta haft afnot af. Skíðabrautin var
tekin í notkun við hátíðlega athöfn í
fyrradag, þar sem frú Krieg, eiginkona
þýska sendiherrans á íslandi, klippti á
borða við Hótel Loftleiði og hún ásamt
• Emil Guðmundssyni hótelstjóra ók á
vélsleða einn hring um skíðabrautirnar.
Hótel Loftleiðir benda þeim sem vilja
nota brautirnar á þann möguleika að
nýta sér þá þjónustu sem hótelið býður
upp á, að skíðagöngu lokinni, og nefna
sem dæmi sundlaug hótelsins og veit-
ingasali.
■ Emil Guðmundsson hótelstjóri áður en lagt var í fyrstu ferðina eftir skíðabrautinni
í Öskjuhlíð við undirleik þýskra tónlistarmanna. Tímamyndir G.E.
Ohádi söfnudurinn:
Guðsþjónusta
tileinkuð þriðja
heiminum
■ Sunnudaginn 26. febrúar kl. 14 verð-
ur regluleg guðsþjónusta í kirkju Óháða
safnaðarins við Háteigsveg en þar eru
guðsþjónustur á hálfsmánaðar fresti.
Messan á sunnudaginn verður á ýms-
an. hátt nýstárleg. Má segja að hún sé
helguð þriðja heiminum og einingu
mannkyns. Kórar Hagaskóla og Fjöl-
brautarskólans í Breiðholti munu syngja
sálma og þjóðlög frá Afríku, Albaníu og
Ameríku undir stjórn Jónasar Þóris sem
jafnframt leikur á orgelið. Dr. Gunnar
Kristjánsson mun predika.
Þá sunnudaga sem ekki er regluleg
guðsþjónusta er Barna og fjölskyldu-
guðsþjónusta í kirkju Óháða safnaðar-
ins. Þá eru sungin lög við hæfi barna,
lesin framhaldssaga, börn fá sunnudaga-
póstinn, sýndar eru stuttar barnamyndir
o.fl.
Allir eru að sjálfsögðu alltaf velkomn-
ir í allar athafnir í kirkju Óháða safnað-
arins. -FRI
Starfsdagar í
Fjölbraut á
Suðurnesjum
■ Starfsdagar verða í Fjölbrautarskóla
Suðurnesja dagana 27. til 29. febrúar
næst komandi. Að sögn nemenda
skólans, sem komu í heimsókn á blaðið,
verður hefðbundið skólastarf lagt niður
og mun ætlunin vera að nemendur og
kennarar hittist í starfi og leik.
Fjölmargt verður um að vera þessa
daga, allt frá kassabílarallíi upp í tölvu-
sýningar. Skemmtiatriði verða að mestu
heimatilbúin, leikrit, tónlistarflutningur
og fleira. Þá verður sérstök kynning á
matargerðarlist fjarlægra þjóða, svo sem
Kínverja, ítala ogfleiri. Kappræðufund-
ir og mælskukeppni eru á efnisskránni
auk fjölda annarra viðburða.
EV- SALURINN
Á 3. HÆÐ í FIATHÚSIIMU
800 FERMETRA SÝNINGARSALUR
ENGIN ÚTBORGUN
Jú - Það er staðreynd
Talsvert magn af notuðum bílum sem greiða
má á 3 - 6 - 9 eða jafnvel 12 mánuðum
BARA HRINGJA - SVO KEMUR ÞAÐ
HRINGIÐ - KOMIÐ - SKOÐIÐ
Opið kl. 9-19, virka daga. Laugardaga 10-16.
SÍFELLD ÞJÓNUSTA - SÍFELLD BÍLASALA
1929 ALLT Á SAMA STAÐ 1984
SÍFELLD BÍLASALA - SÍFELLD ÞJÓNUSTA
notadir bílar
EGILL * eigu umbodsins
VILHJÁLMSSON HF
Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Sími 79944