Tíminn - 23.03.1984, Qupperneq 8
FÖSTUDAGUR 23. MARS 1984
BILA- OG BATASALAN
SÍMI 53233
Lækjargötu 46, Hafnarfirði.
Trillubátar, hraðbátar og hraðfiski-
bátar í miklu úrvali.
Bílar af flestum gerðum og við allra
hæfi.
Leitið upplýsinga.
SMURSTÖÐ Qssí
Reykjavíkurvegi 54
Hafnarfirði Sími 50330
Höfum fyrirliggjandi loft- og
olíusíur í flestar gerðir bifreiða
Vilt þu spara
3-4 þúsund
á íbúð?
■ STJÖRNU
IVIEZ I MÁLNING
Fullnægir fyllstu kröfum sem gerðar eru
til góðrar plastmálningar.
ÞEKUR OG HOLUFYLLIR
SÉRSTAKLEGA VEL.
Við framleiðum nú einnig:
Stjörnu hraunmálningu úti-met
acrylbundna útimálningu, sem hefur frábæra
viðloðun og veðrunareiginleika.
Verslið þar sem varan er góð og verðið
er hagstætt
ÖLL OKKAR MÁLNING Á HEILDSÖLUVERÐI
STJÖRNU ★ LITIR
Málningarverksmiðja Sigurður Jónsson forstjóri
Hjallahrauni 13. - Sími 54922 Heimasími 51794
BLABAWU
HAFNARFJORÐUR
8
Tímamynd Róbert
„Hef fengið ofanígjöf en...
Flestir Hafnfirðing-
ar taka þessu nú vel“
— segir Magnús Ólafsson ábyrgðar-
maður Hafnarfjarðarbrandaranna
■ Hafnarfjarðarbrandararnir eru
löngu orðnir landsfrægir og líklega eru
Hafnfirðingar einna þekktastir af þeim
sökum. Við töluðum við Magnús Ólafs-
son og báðum hann að segja okkur frá
tilurð þeirra. Hann sagði okkur líka einn
nýjan Hafnarfjarðarbrandara.
- Hvernig urðu Hafnarfjarðarbrand-
ararnir til upphaflega?
„Þeir urðu upphaflega til á gamla
Vísi. Óly Tynes blaðamaður ákvað að
fara að skjóta á Akureyringa í von um
að fá einhver viðbrögð, en það varð
ekkert annað en einhver leiðindi í kring
um það. Akureyringum þótti þetta ekk-
ert fyndið, þannig að við vorum að velta
vöngum yfir því hvort eitthvert annað
bæjarfélag kæmi til greina. Og þar sem
ég sjálfur bjó í Hafnarfirði var ég gerður
að fulltrúa Hafnfirðinga, og við Óli
settum saman í sameiningu skot á
Hafnfirðinga og síðan áttu Hafnfirðingar
að hringja í mig og svara þessu. Þeir
tóku þessu ágætlega og svona þróaðist
þetta fram. Þetta byrjaði sem sé í
Sandkorni fyrir svona 6-7 árum.“
- Þetta hefur haldið áfram síðan.
„Já, síðaþ hefur þetta aukist og farið
kannski út fyrir mörkin. Hafnfirðingar
eru að verða eins og Molbúar, en sem
betur fer taka nú flestir Hafnfirðingar
þessu vel. Þó hefur maður verið stoppað-
ur niður í bæ í Hafnarfirði og fengið
ofanígjöf fyrir þetta, vegna þess að ég
hef alltaf haldið þessu í mínu skemmti-
prógrammi, og alltaf verið að búa til
nýja og nýja Hafnarfjarðarbrandara."
-Þetta hefur sem sagt verið frumsamið
í upphafi?
„Já. Svo fóru menn að nota brandara
úr blöðum frá Norðurlöndunum, Danir,
Svíar og Norðmenn hafa alltaf verið
með eitthvað svona sín á milli og jafnvel
innbyrðis milli smábæjar. Nú, við ætluð-
umst til að þetta yrði bara í smátíma
þetta um Hafnarfjörð en núna er þetta
orðin hálfgerð þjóðsaga."
- Kanntu einhvern nýjan?
„Við getum sagt þennan með Hafn-
firðinginn, mjög virtan borgara í Hafnar-
firði, það var kallað á lögregluna vegna
þess að hann sást ofan í bæ um hánótt
með byssu, alveg snaróður. Lögreglan
mætti og náði nú kauða og þegar hún
nær honum þá segir hún.
- Hvað er að þér Guðmundur minn,
hvað hefur nú komið fyrir. Ertu orðinn
alveg snargeggjaður?
-Geggjaður? Nei, konan mín var að
eignast tvíbura.
-Tvíbura? Nú, þú ættir nú að vera
ánægður með það.
- Ánægður? Nei, ég er sko ekkert
ánægður, ég er að leita að hinum mann-
inum.“
ÁDJ
ROCKWOOL
Sparncdur é komandi érom.
ROCKWOOL
steinull einangrun gegn
hita, eldi, kulda og hljóði, einnig
plasteinangrun.
Algengustu stærðir
avallt fyrirliggjandi.
amaiurent
Helluhraun 12
222 Hafnarfirði
NÓtuð
Plasteinangrun
í öllum þykktum
og eftir máli
Greiðslukjör við allra hæfi
- Líttu við eða hringdu
Það borgar sig
SENDUM UM
LAND ALLT
Í ^
Lækjargötu 34, Hafnarfirði
sími50975