Tíminn - 04.01.1986, Blaðsíða 13

Tíminn - 04.01.1986, Blaðsíða 13
12 Tíminn Laugardagur 4. janúar 1986 Laugardagur4. janúar 1986 Tíminn 13 ÍÞRÓTTIR ÍÞRÓTTIR ■ Sigurður P. Sigmundsson. Sigurður vann ■ Gamlárshlaup ÍR fór fram á gamlársdag og voru þátttakcndur fjölmargir. Úrslit í karlaflokki urðu þau að Sigurður P. Sigmundsson sigraði en annar varð Már Hcr- mannsson úr Keflavík. Ágúst Þor- steinsson frá Borgarfirði varð síðan í þriðja sæti. í kvennaflokki varð Steinunn Jónsdóttir úr Ármanni hlutskörpust en Fríða Bjarnadóttir UBK varð önnur. Þriðja varð síðan Sigrún Hafsteinsdóttir ÍS. Reykjavíkurmót hjá fötluðum ■ Reykjavíkurmót fatlaðra fór fram í síðasta mánuði og birtast hcr úrslit í hinunt ýmsu greinum á mót- inu: Boccía, flokkur hreyfihamlaðra sitjandi einstaklinga. 1. sæti Sigurður Björnsson Í.F.R. Boccía, flokkur hreyfihamladra standandi einstaklinga. 1. sæti Haukur Gunnarsson Í.F.R. Boccía, sveitakeppni hreyfihamlaðra. 1. sæti. I. sveit Í.F.R. Boccía, flokkur þroskaheftra einstklinga. 1. sæti Sigrún Gudjónsdóttir ósp. Boccía, sveitakeppni þroskaheftra. 1. sæti II. sveit Aspar Borðtennis, einlidaleikur kvenna. 1. sæti Elsa Stefánsdóttir Í.F.R. Borðtennis, einliðaleikur karla. 1. sæti Viðar Guðnason Í.F.R. Borðtennis, opinn flokkur. 1. sæti Viðar Guðnason Í.F.R. Borðtennis, tviliðaleikur. 1. sæti Trausti Jóhannsson og Olgeir Jóhannsson Í.F.H. Lyftingar. 1. sæti Reynir Kristóf ersson í .F.R. 64,05 stig Bogfimi, kvennaflokkur ófatlaðir 1. sæti Karlín Zophoníasdóttir Í.F.R. 463 stig 5 gull Bogfimi, karlaflokkur fatlaðir. 1. sæti Óskar Konráðsson l.F.R. 404 stig 3 gull Bogfimi, karlaflokkur ófatlaðir. 1. sæti Þröstur Steinþórsson Í.F.R. 500 stig 12 gull Sund: 1. grein 50 m bringusund karla B. flokkur 1. Jónas óskarsson Í.F.R. . . 39.75 ísl. met. D. flokkur 1. Ólafur Eiríksson Í.F.R..........57.48 E. flokkur 1. Birkir Rúnar Gunnarsson.......1:14.26 Ungl. met. 2. grein 50 m bringusund kvenna C. flokkur 1. Sigrún Huld Hrafnsdóttir ösp .... 45.19 D. flokkur 1. Marta Guðjónsdóttir ösp.........59,31 E. flokkur 1. Hildur Davíðsdóttir Björk.....1:25,43 F. flokkur 1. Oddný Óttarsdóttir Í.F.R. .......................... 2:04.73 ísl. met. 3. grein 50 m skriðsund karla A. flokkur 1. Jónas Óskarsson Í.F.R . . 31.44 B. flokkur 1. ólafur Eiríksson Í.F.R 37.35 4. grein 50 m skriðsund kvenna A. flokkur 1. Sigrún Huld Hrafnsdóttir ösp . . . 39.45 C. flokkur 1. Helga Árnadóttir Í.F.R . . 48.62 D. flokkur 1. Kristín Rós Hókonardóttir Í.F.R. 1:03.92 E. flokkur 1. Sigrún Pótursdóttir Í.F.R 1:20.44 5. grein 50 m baksund karla B. flokkur 1. Jónas Óskarsson Í.F.R . . 34.83 D. flokkur 1. Hrafn Logason ösp . . 52.11 E. flokkur 1. Birkir Rúnar Gunnarsson Í.F.R. 1:27.89 6. grein 50 m baksund kvenna B. flokkur 1. Sigrún Huld Hrafnsdóttir ösp . . . 46.31 D.flokkur 1. Marta Guðjónsdóttir ösp 1:08.28 F. flokkur 1. Ásdís Úlfarsdóttir Í.F.R 1:32.11 C. flokkur 1. Helga Árnadóttir Í.F.R . . 56.78 7. grein 50m flugsund karla 1. Jónas Óskarsson Í.F.R . . 38.04 8. grein 50 m flugsund kvenna 1. ína Valsdóttir Ösp . . 44.45 9. grein 100 m þrísund karla 1. Jónas óskarsson Í.F.R 1:23.34 10. grein 100 m þrísund kvenna 1. Sigrún Huld Hrafnsdóttir ösp . 1:36.00 Handknattleiksvertíðin: Mótslokin nálgast Víkingar og Valsmenn standa best að vígi - Þrjár umferðir eftir ■ Nú fer að styttast verulega í að vertíð handknattleiksmanna í I. Arnarmót í dag ■ Hið árlega Arnarmót í borð- tennis fer fram í dag í aðalsal Laug- ardalshallar og hefst það kl. 13.30. Keppt er í sameiginlegum meist- ara- og fyrsta flokki karla, öðrum flokki karla og einum flokki kvenna. Keppt er um Arnarbikar- inn. Búist er við að allir bestu borð- tenniskappar landsins mæti til leiks á þetta fyrsta stórmót ársins. deild fari að ljúka. Aðeins þrjár um- ferðir eru el'tir á íslandmótinu í I. deild og verður ein þeirra nú um helgina. í dag verða tveir leikir. FH mætir Víkingum í Hafnarfirði kl. 14 og á santa tíma spila KA og Fram á Akureyri. Á morgun spila síðan Þróttur og Stjarnan kl. 14 í Höllinni og strax á eftir mætast KR og Valur. Staðan í deildinni er nú þessi: Víkingur........... U 9 0 2 271-210 18 Valur............. 11 9 0 2 258-220 18 Stjarnan.......... 11 7 2 2 257-222 16 FH .............. 1160 5 268-255 12 KA ............... 11 4 1 6 223-229 9 Fram .............11 4 0 7 257-263 8 KR ............... 11 3 1 7 233-256 7 Þróttur.......... 11 0 0 11 223-335 0 Þeir leikir sem eftir eru eru: KA- Þróttur, Stjarnan-FH, Víkingur- Valur, Frant-KR, FH-KA, Þróttur- Fram, KR-Víkingur og Valur- Stjarnan. ■ Jakob hjá Val mun standa í ströngu. Körfuknattleiksmót í Keflavík: A-liðið reyndist aðeins sterkara og sigraði B-liðið með fjórum stigum í gær ■ í gærkvöldi hófst í Keflavík fjögurra liða mót í körfuknattleik. í þessu móti spila ísland A og B lið og Danir og lið frá Luther Háskólanum í Bandaríkjunum. í gærspiluðu A og B lið íslands innbyrðis og var sá leik- ur skemmtilegur og spennandi fram á lokamínúturnar. A-liðið hafði betur í lokin og sigraði í leiknum með 71 stigi gegn 67. Staðan í leikhlé var34- 29 fyrir A-liðið. Eins og fyrr sagði þá var um jal'na viðureign að ræða sent farið gat á hvorn veginn sem var. Pálntar skoraði mest fyrir A-liðið eða 14 stig en Torfi gerði 10. Hjá B- liðinu skoraði Símon 17stigogTóm- as Holton 12. Leik Dana og Luther var ckki lokið en Luther var yfir í hléi 54-46. ■ Valur hjálpaði A-liðinu til sigurs í gær. Veistu hvað heppnin er skammt undan ? VinningaríH.H.Í. 1986: 9 ákr. 2.000.000; 108 á kr. 1.000.000; 216 á kr. 100.000; 2.160 ákr. 20.000; 10.071 ákr. 10.000; 122.202 á kr. 5.000; 234 aukavinningarákr. 20.000. Samtals 135.000 vinningar á kr. 907.200.000. HAPPDRÆTTI HASKÓLA vænlegast til vinnings Vinninj>smioinn 19: injtsmiOintt 19} ■ . HfY-- ISLANDS uvm ' Vinniíií^mióiriit U: i-múdi W7*f \ m Vinninjismióinn l9Ht) r-*-., . ______'w -______________________;•__ • •• \ ÍHniiH;siuiötMH 1979 Vtiitiht^smk>(iti» to.óp^ít tS9io UMFNerefst -íkörfunni ■ Körfuknattleikurinn hefst á ný eftir jólasteikur og landsleiki jiann 10. janúar nteð leik UMFN og ÍBK í Njarðvíkum. Eins og staðan er í dag þá viröast Njarövíkingar líklegastir til að vinna deildina en ásamt þeint koma Haukar, Valur og ÍBK sterk- ast til greina í úrslitakeppnina um ís- landsmeistaratitilinn. Njarðvíkingar hafa 20 stig eftir 12 umferðir en Haukar koma næstir með 16. Valur og ÍBK hafa 12 en KR er mcð 8. ÍR-ingareru neðstirmeð4 stig. Íshokkí: Rússumgengurvel ■ Nú stendur yfir í Kanada heims- meistaramót unglinga í íshokkí. Eins og við er að búast þá eru það Sovétmenn og Kanadamenn sem slást um sigurinn á mótinu. Sovét- menn standa betur að vígi því þeir unnu sigur á Kanadamönnum 4-1 í gær. Svíar eru þriðju í röðinni á mót- inu en þeir lóku V-Þjóðverja í kennslustund og unnu þá 10-0. Eftir sex umferðir þá hafa Sovétmenn fullt hús eða 12 stig en Kanadamenn eru með 10. Svíar hafa 8 en Finnar, Tékkar og Bandaríkjamenn hafa 6. Svisslendingar og V-Þjóðverjar eru án stigá. Nýárssund ■ íþróttasamband fatlaðra efnir sunnudaginn 5. janúarnk. til hinsár- lega Nýárssundmóts fatlaðra barna og unglinga. Mótið fer fram í Sund- höll Reykjavíkur og hefst kl. 15.00. Rétt til þátttöku eiga börn og ung- lingar fædd 1968 og síðar, en keppt vcrður í flokkum blindra og sjón- skertra, þroskaheftra og hreyfihaml- aðra. Keppt verður í eftirtöldum grein- [] ■ 50 m bringusundi 50 m skriðsundi 50 m baksundi 50 m flugsundi Foreldrar fatlaðra b;irna eru sér- staklega boðnir velkomnir, en sér- stakur heiðursgestur móts þessa er borgarstjórinn í Reykjavík Davíð Oddsson og mun hann í mótslok af- hcnda sigurvegara mótsins svo- nefndan Sjómannabikar, sem er far- andbikar gefinn af Sigmari Ólasyni sjómanni Rcyðarfirði. Gaspoz hlutskarpastur ■ Svisslendingurinn Joel Gaspoz sigraði í stórsvigi í heimsbikar- keppninni á móti í Kranjska Gora í gær. Hann kom niður brekkuna rétt á undan Hubert Strolz frá Austurríki. Tími Gaspoz var 2:03,89. Þriðji í röðinni var Markus Wcsmeier frá V- Þýskalandi en Marc Girardelli frá Lúxemborg varð fjórði. Hann hefur nú forystu í heimsbikarkeppninni. Þess má gcta að lngemar Stenmark varð áttundi í keppninni í gær. Rahn er meiddur ■ Þýski knattspyrnumaðurinn Uwe Rahn gekkst undir uppskurð á ökkla í fyrradag og sagðist óttast mjög að þessi aðgerð gæti orðið til þess að liann missti af heimsmeist- arakeppninni í Mexíkó. Rahn sagði við blaðamenn í gær að þetta væru fyrstu alvarlcgu meiðsl sín og hann harmaði mjög að þau skyldu koma á þcssum tíma. „Ég verð úr leik fram í mars að minnsta kosti og það gæti kostað sæti í landsliðinu," sagði Rahn cn hann spilar með Borussia Mönchengladbach. Putztil meðvitundar ■ Austurríska skíðastúlkan Christine Putz sem slasaðist illa í brunkeppni í Frakklandi fyrir þrem- ur vikuin er nú komin til meðvitund- ar. Hún hefur verið í dái síðan óhappið varð. Læknir hennar segir að hún muni ná sér að fullu. Telur hann að líkamlcgt ástand hennar muni hjálpa þar ntikið til. Putz var í góðri þjálfun er slysið varð. Hún er aðeins 19 ára.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.