Tíminn - 04.01.1986, Blaðsíða 5

Tíminn - 04.01.1986, Blaðsíða 5
Laugardagur 4. janúar 1986 ÚTLÖND Noregur: Stroku- fangar kríta liðugt ■ Lðgreglumenn berja á lýðveldissinnum á Norður-írlandi. Nú óttast menn að kosningar og hungurvcrkföll komi af stað nýjum uppþotum og hryðjuverkaöldu. Ný ofbeldisalda yfirvofandi á Norður írlandi? Osló-Reuter ■ Tveir norskir þrjótar, sem struku úr fangelsi fyrir þremur mánuðum, hafa síðan krítað sig vítt og breitt um heiminn með alþjóðlegum krítar- kortum að sögn lögreglunnar. Nú þegar hafa lögreglunni bor- ist reikningar upp á um þrjár milljón- ir norskra króna (17 milljónir ísl. kr.) fyrir útgjöld tvímenninganna í Rio De Janeiro, Tokyo, Hongkong og Singapore þar sem þeir dvöldust á lúxushótelum. Fangelsisverðir mannanna segjast hafa fengið póstkort nteð hjartanleg- um kveðjum frá Östein Christiansen og Per Wold stm skrifuð voru í Trinidad og Mið-Ameríku. Bclfast-Reuter ■ Margir óttast að hungurverkföll og aukakosningar síðar í þessum mánuði leiði til nýrrar ofbeldisöldu á Norður-írlandi næstu vikurnar. Stuðningsmenn Roberts Tohills, sem hóf hungurverkfall 19. desem- ber síðastliðinn, spá því að hann lát- ist innan þriggja vikna. Tohill, sem er 26 ára lýðveldissinni hefur lést um rúmlega þrettán kíló og hann þjáist af uppköstum. Tohill er einn 27 manna sem voru dæmdir fyrir morð og aðra ofbeldis- glæpi vegna framburðar manns sem er á mála hjá lögreglunni og hefur sjálfur viðurkennt á sig morð. Mennirnir 27 hafa allir lýst því yfir að þeir séu tilbúnir til að svelta sig í hel ef bresk stjórnvöld taki mál þeirra ekki aftur upp. Nú þegar hafa tveir samfangar Thills hafið hungurverkfall með hon- um og hinir segjast munu bætast í hópinn, einn á hverri viku. Hungurverkföllin núna minna mjög á hungurverkföll félaga í Irska lýðveldishernum, ÍRA, árið 1981 sem lauk ekki fyrr en tíu fangar höfðu svelt sig til bana. Hungurverk- föllin komu af stað mikilli ofbeldis- öldu og óeirðum sem juku þrýsting á bresk stjórnvöld að finna lausn á vandamálum Norður-írlands. Kosningarnar, sem haldnar verða 23. janúar, eru aukakosningar sem stafa af því að fimmtán þingmenn Eitrað te í Sri Lanka? Colombo-Rcuter ■ Embættismenn í Sri Lanka segja að sendiráð Bandaríkjanna og Breta þar í landi hafi fengið bréf þar sem því sé haldið fram að skæruliðar Ta- mila hafi eitrað te, sem hafi verið pakkað niður til útflutnings, með ar- seniki. Stjórnvöld í Sri Lanka segja ekk- ert benda til þess að teið hafi verið eitrað en viðeigandi varúðarráðstaf- anir hafi samt verið gerðar. Sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum eru stjórnvöld nú að láta athuga allt te sem búið hefur verið til útflutnings. Teútflutningur er mikilvægasta tekjulind Sri Lanka og á tímabilinu janúar til október 1985 voru flutt út 166,1 milljón kíló af tei. Skæruliðar Tamila berjast fyrir sjálfstæði þeirra svæða Sri Lanka þar sem Tamilar eru fjölmennastir. Skæruhernaður þeirra hefur ein- kennst af miklu ofbeldi og hafa margir óbreyttir borgarar látið lífið í árásum þeirra. sambandssinna sögðu af sér á breska þinginu vegna andstöðu við samning bresku stjórnarinnar við stjórn írska lýðveldisins um samráð í málefnum Norður-írlands. Sambandssinnarnir telja samkomulag þetta skref í átt til sambandsslita Norður-írlands við Bretland og innlimum svæðisins í Irska lýðveldið. Breska stjórnin er nú farin að fjölga nokkuð í herliðinu á Norður- írlandi vegna þeirrar hættu sem talin er á auknu ofbeldi þar. Dhaka-Rcuter ■ Um 25.000 ríkisstarfsmenn, sem eru í verkfalli, gengu fylktu liði í gegnum Dhaka höfuðborg Bangla- desh og kröfðust þess að stjórnvöld létu sjö félaga þeirra úr haldi. Alls taka um 40.1M10 læknar, verk- fræðingar og landbúnaðarsér- fræðingar þátt í verkfallinu sem hófst fyrir hálfum mánuði. Þeir krefjast hærri launa og aukinna friðinda og leiðtogar þeirra hóta fjöldauppsögn- um ef stjórnvöld ganga ekki að kröf- Christiansen stofnaði einkafyrir- tæki, á meðan hann dvaldist í fang- elsinu, til að öðlast rétt til krítarkort- anna. Hann gerði Wold félaga sinn að framkvæmdastjóra fyrirtækisins og svo þegar þeir voru í stuttu heim- sóknarleyfi úr fangelsinu stungu þeir af til útlanda með krítarkortin. Christiansen og Wold voru upp- haflega dæmdir í tugthúsið fyrir eit- urlyfjasölu en alls er óvíst hvenær norsku lögreglunni tekst næst að hafa hendur í hári þeirra. um þeirra í dag. Verkfallið hefur áhrif á rekstur flestra sjúkrahúsa og truflanir hafa verið á rafmagni og símaþjónustu. Embættismenn stjórnarinnar segja að a.m.k. 25 sjúklingar hafi látist vegna skorts á læknaþjónustu sem hægt sé að rekja beint til verkfallsins. Verkfallsmenn hrópuðu vígorð gegn stjórninni í kröfugöngunni í gær og hrópuðu m.a. „Við munum deyja fyrir kröfur okkar.“ Mannskæöur snjóstormur á Indlandi s'ýja Dclhi-Reutcr ■ Á annað hundrað menn hafa arist á síðustu tíu dögum í harð- tsta snjóstormi sem gengið hefur /fir Norður-Indland í tvo áratugi. Fyrstu þrjá daga ársins unnu ind- ^erskar hersveitir og lögregla að aví að flytja níu þúsund pílagríma aurt frá Vaishno Devi-hindúahof- inu í Kashmir eftir að fjallavegur- inn þangað varð ófær en hofið er í 1.500 metra hæð yfir sjávarmáli. Hermenn og öryggissveitir hafa að undanförnu einnig verið kallað- ar til að flytja mörg hundruð menn frá ýmsum þorpum sem hafa orðið illa úti í snjóstorminum. Fjöldamótmæli í Bangladesh Sjúklingar deyja vegna læknaverkfalls Tíminn 5 Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Stundakennara vantar í sálfræði. Upplýsingar í skólan- um, í síma 685155, og hjá deildarstjóra í sálfræði, Jóni Friðrik Sigurðssyni, í síma 54178. Síðasti innritunardagur nýnema í öldungadeild er þriðju- daginn 7. janúar kl. 17-19. Rektor Frá Æfingaskóla Kennaraháskólans íþróttakennara vantar að skólanum nú þegar. Nánari upplýsingar á skrifstofu skólans og hjá skóla- stjóra í síma31781. Skólastjóri Olíutankur Tilboð óskast í olíutank, tæplega 100 þús. lítra, sem staðsettur er við Höfn í Hornafirði. Tankurinn er sívalur (liggjandi) 13,9 m langur og 3,20 m í þvermál. Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 31333 e.h. næstu daga. Tilboð þurfa að hafa borist fyrir kl. 11 þriðjudaginn 14. janúarn.k. Sala varnarliðseigna, Grensásvegi9 Bifreiðainnflytjendur Áætlað er að kaupa um það bil 100 nýjar bifreiðar fyrir ríkisstofnanir á árinu 1985. Tilboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri og eiga tilboð að berast fyrir 24. janúar 1986. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 *Br Frá Fjölbrautaskólanum ™ viðÁrmúla Nemendur komi í skólann þriöjudaginn 7. janúar milli kl. 11 og 13. Þá verða af- hentar stundaskrár og bókalistar gegn greiðslu nemendagjalda, sem er kl. 1.000,- Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 8. janúar. Skólameistari BLAÐBERA VANTAR í eftirtalin hverfi: Laugavegur, Hverfisgata, Skerjafjörður, Síðumúli, Lang- holtsvegur, Hjallavegur, Eikjuvogur, Nýi Miðbærinn og Seltjarnarnes, Fossvogur, Ægisíða, Meistaravellir, Greni- melur, Hagamelur og Hofsvallagata. Einnig vantar blað- bera á biðlista í öll hverfi. Tíniiim Síðumúli 15. Sími 686300

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.