Tíminn - 10.01.1986, Blaðsíða 1
MIMIR , félag stúdenta í íslenskumfræöum, hef-
ur mótmælt harölega vinnubrögöum menntamála-
ráöherra við veitingu stööu lektors í íslenskum bók-
menntum viö HÍ. Félagið telur ákvöröun ráöherra
móðgun og vanvirðingu viö Heimspekideildina og tel-
ur ráðherra ekki hafa sett fram nein gild rök fyrir á-
kvöröuninni.
GORBACHEV Sovétleiötogi er farinn að
skrifast á viö tólf ára gamla japanska stúlku sem heitir
Aiko Fukuda. Aiko skrifaöi Gorbachev bréf fyrir sein-
ustu jól þar sem hún sagðist vona að hann héldi á-
fram aö reyna aö gera heiminn friðsælan. Hún sagöi
m.a. í bréfinu: „Nú eru aö koma jól og ég vonast eftir
gjöf frá þér. “ Gorbachev hefur nú falið sovéska sendi-
ráöinu í Japan aö afhenda Aiko svarbréf, sem hann
hefur skrifað, og jólagjöf.
FARÞEGI í innanlandsflugi í Bandaríkjunum,
sem flugmaður bannaöi aö reykja, var næstum búinn
aö valda flugslysi í gær nálægt New York þar sem
hann réöst á flugmanninn, lamdi hann og greip í
flugstjórnartækin. Flugvélin hrapaði tvö þúsund fet
áöur en flugmanninum tókst aö ná valdi aftur á henni
eftir aö annar farþegi baröi reykingamanninn í rot.
Reykingamaöurinn, sem heitir John Johnson, getur
átt von á því að verða dæmdur í allt aö 20 ára fangelsi
fyriraö truflaflug.
ISLENSKA RÍKISSTJÓRNIN fjaii
aöi í gær um erindi Bandaríkjastjórnar þess efnis að
gripiö yrði til efnahagslegra refsiaögeröa gegn Líbýu
vegna stuðnings þarlendra stjórnvalda viö hryðju-
verkamenn. Ríkisstjórnin sá ekki ástæðu til sérstakra
aögeröa af þessu tilefni, enda væru samskipti ís-
lands og Líbýu mjög takmörkuð.
ALÞJÓÐLEGA SKÁKMÓTINU .
Hasting lýkur á sunnudag. Margeir Pétursson hefur
þar forystu með 8 Vz vinning og þarf einungis 1 vinn-
ing til viðbótar í tveimur síðustu skákunum til aö hljóta
stórmeistaratitil. Hann tefldi viö hinn enska Conquest
í gær og lauk þeirri viðureign meö jafntefli.
STJÓRN STÚDENTARÁÐS Há
skóla (slands ályktaöi á fundi sínum í gær á þann veg
að full samstaða væri með fulltrúum Vöku og Um-
bótasinna vegna afstöðunnar til aögeröa mennta-
málaráðherra gagnvart Lánasjóöi íslenskra náms-
manna. Fyrrnefndir aðilar mynda meirihlutann í ráð-
inu. Þessi ályktun fylair í kjölfar deilna innan félags
Umbótasinna um þaö hvort halda ætti samstarfinu
áfram.
ELDUR kom upp í íbúö við Holtagerði 14 í Kópa-
vogi í gær. Slökkvilið var kallað á staðinn og gekk
greiðlega aö slökkva eldinn. Tjón varö af völdum elds
og reyks, en mun ekki vera mikið. Eldsupptök eru
ekki kunn.
FISKVEIÐASJÓÐUR ÍSLANDS
ákvaö á fundi sínum í gær aö fresta ákvöröun um
sölu skipa sem auglýst hafa verið til sölu á vegum
sjóðsins til næstkomandi þriðjudags.
Mörg útgeröarfélög eru um hituna og hafa til dæm-
is borist sex tilboö í togarann Kolbeinsey frá Húsavík
en mikill styr stendur um hann.
Togarinn hefur aflaö nær helming þess bolfiskafla
sem kom á land á Húsavík á síðasta ári og Ijóst að
mjög alvarlegt ástand mundi skapast þar ef togarinn
,yröi seldur úr byggðarlaginu.
Rekstrarkostnaöur 10 ráðherrabíla:
Tvöf alt hærri en
Fiskvinnsluskólans
■ Tæpar 8,5 milljónir króna
kostaði það ríkissjóð að koma
ráðherrunum okkar úr einum
stað í annan - aðeins hérna
innanlands - árið 1984, sam-
kvæmt yfirliti forsætisráðu-
neytisins um bifreiðakostnað
ráðherra, vegna fyrirspurnar á
Alþingi.
Til samanburðar við þennan
kostnaðarlið má nefna að hann
er t.d. heldur hærri en rekstrar-
kostnaður Fósturskóla íslands
það sama ár (8,2 millj.), drjúg-
um hærri en rekstrarkostnaður
Stýrimannaskólans í Reykja-
vík (6,9 millj.) og um tvöfalt
hærri en rekstur Fiskvinnslu-
skólans (um 4,2 millj. 1984,
samkvæmt Ríkisreikningi).
Þá má nefna að ráðherrabíl-
arnir hafi verið ríkissjóði rúm-
lega tvöfalt kostnaðarsamari
en rekstur Hæstaréttar.
Töluverður meirihluti kostn-
aðarins var vegna launa-
greiðslna til hinna 10 ráðherra-
bílstjóra, eða um 5,3 milljónir,
sem jafngilda mundi um 720
þús. króna árslaunum á ný-
liðnu ári, miðað við hækkun
skattvísitölu milli ára. Til
samanburðar við þessar 5,3
milljónir til 10 bílstjóra má geta
þess að listamannalaun til um
200 listamanna sarna ár nárnu
rúmum 7 millj. króna. sam-
kvæm* Ríkisreikningi.
Nokkuð voru bílstjóralaunin
misjöfn. Þeir Sverrir. Stein-
grímur og Halldór virðast hafa
verið mest á ferðinni, því laun
bílstjóranna þeirra námu frá
650-674 þús. (885-915 þús. á
1985 verðlagi).
Yfirlitið nær cinnig til fyrstu
4ra mánaðanna af árinu 1985.
Þessa fjóra ntánuði hefur bíl-
stjóri Sverris þegið 311 þús.
króna laun (slagar væntanlega
hátt í ráðherralaunin), scm er
um 120 þús. krónurn hærra en
hjá nokkrum öðruni ráðherra-
bílstjóra á því tímabili. Að
rekstrarkostnaði bílanna með-
töldum hefur það kostað 550-
560 þús. að koma þeir Sverri og
Halldóri rnilli staða þessa 4
mánuði, eða um 140 þús. krón-
ur á mánuði að meðaltali.
Heildarkostnaður við akst-
urinn þessa 4 mánuði nam 3,7
milljónum króna, eða að með-
altali um 93 þús. krónur á
hvern ráðherrabíl.
Hlutfallslega hefur launa-
kostnaður vegna bílstjóranna
hins vegar lækkað árið 1985
Smyglið var
innsiglað
■ Bíræfnir smyglarar náðust á
Seyðisfirði, ekki alls fyrir
löngu. Fragtskip lagði að
bryggju, og við tollskoðun fund-
ust rúmlega fjörutíu kassar af
áfengu öli. Megin hluti ölsins
var geymdur í innsiglisgeymslu
í skipinu. Að sögn lögreglunn-
ar á Seyðisfirði var leyniop
undir koju eins skipverjans, og
var þaðan hægt að komast nið-
ur í innsiglað herbergið. Skip-
verjar munu hafa komið ölinu
fyrir, áður en innsiglað var er-
lendis. Líklegt er að framhald
verði á málinu, þarsem innsigl-
isbrot er alvarlegt brot.
Áfengi og tóbak var geymt.
í öðru innsigluðu herbergi en
ölið.
Þá fundust 26 kassar af bjór í
fragtskipi sem kom til Seyðis-
fjarðar í fyrradag. Einriig
fannst lítilræði af áfengi og
vindlingum, sem reyndist vera
í eigu tveggja skipverja.
Bæði málin eru upplýst, en
lögregla á Seyðisfirði vill ekki
láta uppi nöfn þeirra skipa sem
eru viðriðin málin.
Egill Ragnarsson varðstjóri á
Seyðisfirði sagði í samtali við
Tímann í gær að nú væri farið
að taka mun harðar á málum af
þessu tagi, en veriö hefur hing-
að til.
-ES
Bræla á
loðnunni
■ Bræla vará loðnumiðunum
aðfaranótt fimmtudags og til-
kynntu aðeins fjögur íslensk
skip samtals um 2000 tonna
afla. Einkum hefur veiðst á
Kolbeinseyjarsvæðinu fyrir
norð-austurlandi að undan-
förnu. Heilaraflinn á vertíðinni
er nú í kringum 665 þús. lestir,
en um áramót var hann 644,799
tonn.
í gærmorgun var 31 norskur
bátur á miðunum, en 13 voru þá
farnir hcim mcð samtals
10.135 tonna afla að sögn land-
helgisgæslunnar. Veðurútlit
var óhagstætt fyrir austan í gær
en eitthvað skárra fyrir
norðan.
miöað við árið áður, hefur
„aðeins" verið um 46.600 krón-
ur á mánuði að meðaltali á bíl-
stjóra.
Þar hefur bílstjóri landbún-
aðarráðherra þó borið sýnu
skarðastan hlut frá borði. rneð
aðeins 31 þús. kr. á niánuði að
meðaltali mánuðina jan.-apríl
1985 og er varla neinn ofhlað-
inn af því.
- HEl
rg 0 ■
Skrafað í skjóli styttu* Mynd-Sverrir
’Hli
BG