Tíminn - 10.01.1986, Blaðsíða 3
Föstudagur 10. janúar 1986
Tíminn 3
Siökkvilið Reykja-
víkur:
Annasamasta
ár í sögunni
■ Sinubrunar einkcnndu síðastlið-
ið starfsár hjá Slökkviliði Reykja-
víkur. Sökum þess hve margir þeir
voru, hafa aldrei verið fleiri útköll
hjá Slökkviliði Reykjavíkur á einu
ári, frá upphafi vega. Útköllin voru
581 áárinu. Árið 1984voruþau447.
Inn í þeim tölum, sem nefndar eru
að ofan, er öll aðstoð sem slökkvilið-
ið veitti á árinu. Útköll þar sem
slökkva þurfti eld voru 377. Þar af
voru 30 á gamlársdag.
Sá bruni sem hvað mesta tjón
hlaust af, var í skemmtistaðnum Ríó
daginn fyrir gamlársdag. Þá varð
mikið tjón í bruna á barnaheiniilinu
Sólbrekku á Seltjarnarnesi. Enginn
fórst í eldsvoða árið 1985, fremur en
1984.
Sjúkraflutningum fækkaði frá því
1984, um sex hundruð. Þeir voru
10.096. Fjöldi sjúkraflutninga hefur
haldist svo til óbreyttur frá því 1973
eða rúmlega tíu þúsund útköll á ári.
Borgardómur:
Aukning
á áskor-
unarmálum
■ Gífurleg aukning varð á áskor-
unarmálum hjá Borgardómaraem-
bættinu í Reykjavík á árinu 1985.
AIIs voru afgreidd 13.602 áskorun-
armál hjá embættinu. Árið 1984
voru þessu sömu mál 9.423.
Áskorunarmál eru vanskilamái
hverskonar. Tékkar, víxlar og fjár-
skuldbindingar ýmisskonar. Þessum
málum hefur fjölgað jafnt og þétt hjá
embættinu síðastliðin ár, og náðu há-
marki á síðastliðnu ári.
Þessi mikla aukning á áskorunar-
málum veldur því að heildarmála-
fjöldi sem afgreiddur var hjá em-
bættinu var talsvert meiri í fyrra, en
1984. Alls voru þingfest mál hjá
embættinu 17.089 á liðnu ári. 1984
voru þau 14.178.
Aðrir málaflokkar hjá embættinu
voru af svipaðri stærð og 1984.
ES
g & Lansing &Lansing & Lansing
& Lansing ^ Lansing & Lansing
ansing ^ Lansing &Lansing
ng &Lansing ^ Lansing
J&Lansing JRLansing
ansing & Lansing
ing & Lansing
Lansing
DIESEL OG RAFMAGNSLYFTARAR AF ÖLLUM
STÆRÐUM OG GERÐUM ÚRVAL AUKAHLUTA
HAFIÐ SAMBAND
VIÐ SÖLUMENN OKKAR
BUNADARDE
ARMULA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900
Verður tilsýnis
laugardag og sunnudag
frá 10-17 báða dagana