Tíminn - 10.01.1986, Síða 9
Föstudagur 10. janúar 1986
Tíminn 9
Listahátíðin í sumar:
Picasso-
sýningin
mesti við-
burðurinn
■ Nú þegarerákveðiðaösett verði
upp rnikil málverkasýning á verkum
eftir Pablo Picasso að Kjarvalsstöð-
um á Listahátíð í Reykjavík sem
haldin verður dagana 31. maí til 17.
júní.
Einnig er ákveðið að píanóleikar-
inn heimsþekkti. Claudio Arrau
komi og haldi hér einleikstónleika.
Að auki mun rithöfundurinn Doris
Lessing sækja okkur hcini og koma
frani á sérstakri dagskrá auk þess
sem hún mun afhcnda verðlaun í
smásagnasamkeppni sem efnt hefur
verið til.
Salvör Nordal framkvæmdastjóri
Listahátíðar sagði í samtali við Tím-
ann að fyrirhugað væri að bjóða fjöl-
mörgum öðrum listamönnum til há-
tíðarinnar og væri verið að ganga frá
ýmsum efnisatriðum þessa dagana
og eftir að dagskráin hefur verið lögð
fyrir fulltrúaráð hátíðarinnar muni
hún kynnt en það verður væntanlega
í næsta mánuði.
Hvað smásagnasamkeppnina
snertir þá eru vegleg verðlaun í boði
en fyrstu verðlaun eru að upphæð
250 þúsund krónur og skilafrestur er
til 10. apríl.
Að öðrum atriðum ólöstuðum þá
verður sýningin á verkum Picasso
væntanlega mesti listaviðburðursýn-
ingarinnar og er það afrek út af fyrir
sig að fá slíkan fjársjóð sendan hing-
að til lands. Salvör sagði að það væri
fyrst og fremst fyrir tilstuðlan Errós
að vilyrði hefði fengist fyrir því að
myndirnar kæmu hingað en þær
koma úr einkasafni málarans sem er
í eigu Jacqueline, ekkju hans.
■ Halldór Haraldsson píanólcikari. Tímamynd-Svcrrir
HalldórHaraldsson píanóleikari:
Tónleikar í til-
efni 20 ára ferils
- í Austurbæjarbíói á laugardag
■ Halldór Haraldsson píanóleik-
ari heldur tónleika á vegum Tón-
listarfélagsins laugardaginn 11.
janúarkl. 14.30 í Austurbæjarbíói.
Þegar Halldór lauk námi viö
Royal Academy of Music í London
árið 1965 hélt hann sína fyrstu op-
inberu tónleika í Reykjavík á vcg-
um félagsins, þannig að um þessar
mundir eru liðin rétt 20 ár frá því
hann hóf feril sinn. Síðan þá hefur
Halldór haldið fjölda tónleika bæði
hcrlendis og erlendis og oft komið
fram sem einleikari með Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Hann hel'ur
frumflutt mörg verk íslenskra sam-
tíðartónskálda ogsíðustu árin hafa
þeir Gísli Magnússon píanóleikari
leikið talsvert saman á tvö píanó og
m.a. gefið út hljómplötu með
Vorblóti Stravinskys. Síðan 1966
hefur Halldór vcrið kennari í Tón-
listarskólanum í Reykjavík.
A efnisskránni er Sónata í
f-molL Appassionata eftir
Beethoven, tvö Scherzi, nr. 1 og 3
eftirChopin. Funeralis, Konsertet-
ýða nr. 2 og tvær Etude d'Execut-
iontranscendante,nr. lOog 11 eftir
Liszt og Sónata eftir Bartók.
Miðasala er hafin í Bókabúðum
Sigfúsar Eymundssonarog Lárusar
Blöndal og í ístóni.
Norræna húsið:
Svava Bernharðsdóttir
heldur víólutónleika
■ Svava Bernharðsdóttir heldur
víólutónleika í Norræna húsinu
föstudagskvöldið 10. janúar kl.
20.30. A efnisskránni eru verk eftir
Bach, Paganini og Shostakovitch.
David Knowles annast undirleik á
píanó og sembal.
Svava lauk Bachelorprófi frá
Julllard-tónlistarskólanum í New
York í fyrra og stefnir að meistara-
prófi frá sama skóla í vor. Áður var
hún við nám við Tónlistarskólann í
Haag hjá Nubuko Imai, en burtfarar-
prófi í víóluleik og fiðlukennara-
prófi lauk hún Irá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík vorið 1983.
Svava hóf fiðlunám 8 ára að aldri í
Tónlistarskóla Selfoss og fyrstu
kennarar hennar voru sr. Sigurður
Sigurðarson og Sigurður Rúnar
Jónsson. Síðan var hún nemandi
Gígju Jóhannsdóttur í Tónmennta-
skóla Reykjavíkur. Á unglingsárun-
um dvaldist hún erlendis með fjöl-
skyldu sinni og var þá hjá ýmsum
kennurum í Eþíópíu og Bandaríkj-
unum m.a. dr. John Kendall sem er
einn helsti frumkvöðull Suzuki að-
ferðarinnar í fiðlukennslu. Hann
kom hingað til lands með hóp ungra
fiðluleikara sem vöktu mikla
athygli.
Rut Ingólfsdóttir var kennari
Svövu íTónlistarskólanum í Reykja-
vík. Að loknu stúdentsprófi frá HM
1980 sneri Svava sér að víóluleik undir
leiðsögn Stephen King og einnig
naut hún handleiðslu Mark Reed-
man innan strengjasveitar tónlistar-
skólans.
Svava Bernharðsdóttir er styrk-
þegi Thor Thors sjóðsins, Julliard-
skólans og Sumarskólans í Aspen í
Colorado, þarsem hún varsl. sumar.
Miðar á tónleikana fást við inn-
ganginn.
■ Svava Bernharðsdóttir víóluleikari
Nýr yf irmaður
þýskrar f erða-
málaskrifstofu
■ Þann 1. janúar sl. var Knut
Haenschke skipaður yfirmaður
þýskrar ferðamálaskrifstofu í Kaup-
mannahöfn, Deutsche Zentrale fur
Tourismus, en hann hefur starfað að
ferðamálum um 25 ára skeið. Skrif-
stofan þar er svæðismiðstöð fyrir öll
Norðurlöndin þ.á.m. ísland. Einn
þátturínn í milligöngu Haenschke
felst í samskiptum við erlend flug-
félög, eins og t.d. Flugleiðir.
Garðbæingar
^ - lóðarhafar
Að beiðni bæjarstjórnar Garðabæjar hefur bæjarfógeti
dómkvatt tvo menn til að endurmeta fjárhæð lóðarleigu í
Garðabæ fyrir árin 1985-1989. Að báðum árum með-
töldum. Til að gæta hagsmuna lóðarhafa vegna matsins
hefur bæjarfógeti að beiðni bæjarstjórnar tilnefnt Brynj
ólf Kjartansson hæstarréttarlögmann. Miðvikudaginn
15. janúar nk. kl. 17.00 munu hinir dómkvöddu mats-
menn halda matsfund á bæjarskrifstofu Garðabæjar og
geta lóðarhafar sem sjálfir vilja koma fram með athuga-
semdirmættáfundinn.
Bæjarstjórinn í Garðabæ
Til sölu
b/v Sigurfari II. SH-105
Skipið er talið vera 431 brúttórúmlest að stærð, smíðað árið
1981. Aðalvél skipsins er af gerðinni Alco 2230 hö. frá 1980.
Skipið er nú í Reykjavíkurhöfn og verður selt í því ástandi,
sem það nú er í, án veiðarfæra.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fiskveiða-
sjóðs í síma 28055 og hjá eftirlitsmanni sjóðsins, Valdimar
Einarssyni, í síma33954. Tilboðseyðublöð eru til afhendingar
á skrifstofu Fiskveiðasjóðs og óskast tilboð send í lokuðum
umslögum merkt „Sigurfari II.“ og skulu hafa borist á skrifstofu
sjóðsins eigi síðar en 21. janúar nk. kl. 16.00.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum.
Fiskveiðasjóður íslands.
Til Sölu
b/v Sölvi Bjarnason BA-65
Skipið er talið vera 404 brúttórúmlestir að stærð, smíðað
árið 1980. Aðalvél skipsins er af gerðinni Wichmann
2100 hö. frá 1980. Skipið er nú í Reykjavíkurhöfn og
verður selt í því ástandi, sem það nú er í án veiðarfæra.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fisk-
veiðasjóðs í síma 2-80-55 og hjá eftirlitsmanni sjóðsins
Valdimar Einarssyni, í síma 3-39-54. Tilboðseyðublöð
eru til afhendingar á skrifstofu Fiskveiðasjóðs og óskast
tilboð send í lokuðum umslögum merkt „Sölvi Bjarna-
son“ og skulu hafa borist á skrifstofu sjóðsins eigi síðar
en 21. janúar n.k. kl. 16.00. Áskilinn er réttur til að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Fiskveiðasjóður íslands.
Hryssur í óskilum
í Marteinstungu í Holtahreppi eru í óskilum 3 hryssur.
1. Brún 7-9 vetra ómörkuð með trippi.
2. Dökkrauð Ijósari á fax 6-8 vetra ómörkuð með fol-
aldi.
3. Dökkjörp 4-5 vetra ómörkuð með folandi. Hryssurn-
ar verða seldar á opinberu uppboði laugardaginn 18.
janúar 1986 kl. 14.00 hafi hugsanlegir eigendur ekki vitj-
að þeirra og sannað sinn eignarrétt.
Hreppstjóri Holtshrepps
Evrópuráðsstyrkir
Evrópuráðið veitir styrki til kynnisdvalar erlendis á árinu
1987 fyrir fólk sem starfar á ýmsum sviðum félagsmála.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást í félagsmála-
ráðuneytinu. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar n.k.
Félagsmálaráðuneytið,
8. janúar 1985.