Tíminn - 10.01.1986, Page 19
Föstudagur 10. janúar 1986
ÚTVARP/SJÓNVARP
flokksstarf
Tíminn 19
Sjónvarp kl. 23.15:
■ Pétur Steinn Guðmundsson er
nú umsjónarmaður Skon-
rokks og sér uni poppannál-
ana.
Sjónvarp kl. 21.10:
Innlendur
poppannáll
í klukkutíma
■ í kvöld kl. 21.10 hefst klukku-
stundar langur Skonrokksþáttur og
verður nú rakinn innlendur popp-
annáll ársins 1985. Fyrir einni viku
var rakinn erlendur poppannáll.
Umsjónarmaður er Pétur Steinn
Guðmundsson og kynnir er Ylfa
Edelstcin.
Að sögn Péturs Steins verður
reynt að gera eins góð skil innlend-
um poppmyndböndum frá liðnu ári
og hægt er, en af augljósum ástæð-
um verður erfitt að gera upp á milli
þeirra 37 banda sem sýnd voru í 26
þáttum í einum klukkustundar-
löngum þætti, þar sem varla kom-
ast fyrir nema 12-15 lög. En meðal
þeirra sem koma fram má nefna
Rikshaw, Herbert Guömundsson,
Stuðmenn og Ragnhildi Gísladótt-
ur, auk fleiri.
í þættinum verða líka tvö viðtöl,
m.a. við Gunnlaug Helgason „lista-
spekúlant Rásarinnar'' eins og
Pétur Steinn titlar hann. Pá hafa
verið fengnir 6 aðilar til að velja ís-
lenskt myndband ársins og verða
úrslitin kynnt í þættinum.
Rás 2 kl. 20.
Þroskandi Spánarferð
■ Breska bíómyndin Ást og kvöl
(Love and Pain) frá 1973 er föstu-
dagsmynd sjónvarpsins í þetta sinn
og byrjar kl. 23.15. Leikstjóri er
Alan J. Pakula og með aðalhlut-
verk fara Maggie Smith og Tim-
othy Bottoms.
Maggie Smith leikur fertuga
óframfærna piparmey sem fer í
hópferð til Spánar. Sessunautur
hennar í rútubílnum er 18 ára
piitur, sem Timothy Bottoms leik-
ur. Hann er á sinn hátt jafn vansæll
og ómögulegur og piparmeyjan.
Það eina sem þau eiga sameiginlegt
er skortur á sjálfstrausti, en með
tímanum fer svo að þau dragast
hvort að öðru og stráksi telur kon-
una á að yfirgefa hópinn, og þau
tvö kanna ókunna stigu saman.
■ Piparmærin fertuga og ungi maðurinn læra heilmikið um lífið í Spánar-
ferðinni.
Meðferð hljómplatna
í Hljóðdósinni
■ Á Rás 2 kl. 20 í kvöld verður
þátturinn Hljóðdósin í stjórn Þór-
arins Stefánssonar. Gestur hans
verður Finnbogi Marinósson,
verslunarstjóri í Steríó.
„Við ætlum að fjalla um meðferð
á plötum, hvernig best sé að geyma
þær svo að þær skemmist ekki og
endist sem lengst, og jafnvel hvort
það sé ekki aðstaða einhvers staðar
þar sem menn geta látið þvo plöt-
urnar sínar," segir Þórarinn og
finnst fyllilega timabært að kanna
hvar fólk geti fengi þjónustu fyrir
plöturnar sínar.
Finnbogi hefur verið gestur Þór-
arins og Hljóðdósarinnar tvívegis
áður. í annað skiptið ræddu þeir
um plötuspilara og þeim síðari
magnara og hátalara. Þeir svara
gjarna spurningum hlustenda um
þessi mál.
Föstudagur
10. janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Stelpurn-
ar gera uppreisn" eftir Fröydis Guld-
ahl Sonja B. Jónsdóttir les þýðingu sína
(5).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleikar,
þulurvelurog kynnir.
10.00 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum dagblað-
anna.
10.40 „Sögusteinn" Umsjón: Haraldur I.
Haraldsson. (Frá Akureyri):
11.10 Málefni aldraðra Umsjón: Þórir S.
Guðbergsson.
11.25 Morguntónleikar a. Pepe og Celin
leikaspænska tónlist á tvo gítara. b. Ung-
verskir listamenn leika ungverska þjóð-
dansa.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Ævintýramaður,"
- af Jóni Ólafssyni ritstjóra Gils Guð-
mundsson tók saman og les (7).
14.30 Sveiflur - Sverrir Páll Erlendsson.
(Frá Akureyri).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Píanókonsert nr. 3
í c-moll op. 37 eftir Ludwig van Beetho-
ven. Wilhelm Backhaus leikur með Fíl-
harmoníusveit Vínarborgar. Hans
Schmidt-lsserstedt stjórnar.
17.00 Helgarútvarp barnanna Stjórnandi:
Vernharður Linnet.
17.40 Úr atvinnulifinu - Vinnustaðir og
verkafólk. Umsjón: Hörður Bergmann.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál Margrét Jónsdóttir flytur
þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins Þóra Björg Thor-
oddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Staðastaðarprestar
Þórður Kárason flytur fyrri hluta frásagnar
sinnar. b. Endurminning Þorsteinn frá
Hamri les úr Ijóðum Gríms Thomsens. c.
Ljósið í hríðinni Svanhildur Sigurjóns-
dóttir les frásögn eftir séra Sigurð Einars-
son. Umsjón: Helga Ágústsdóttir.
21.30 Frá tónskáldum Atli Heimir Sveins-
son kynnir einleiksplötu Guðnýjar Guð-
mundsdóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Kvöldtónleikar „Rómeó og Júlia",
svita nr. 2 eftir Sergej Prokofjeff. „Nation-
al“-hljómsveitin í Washington leikur.
Mstislav Rostropovitsj stjórnar.
22.55 Svipmynd Þáttur Jónasar Jónasson-
ar. (Frá Akureyri).
24.00 Fréttir.
00.05 Djassþáttur - Jón Múli Árnason.
01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á RÁS 2 til
kl. 03.00.
Föstudagur
10. janúar
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórnendur:
Páll Þorsteinsson og ÁsgeirTómasson.
HLÉ
14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdis
Gunnarsdóttir.
16.00-18.00 Léttir sprettir Stjórnandi: Jun
Ólafsson.
Þriggja m i nútna f réttir sagðar klukkan 11.00,
15.00,16.00 og 17.00.
HLÉ
20.00-21.00 Hljóðdósin Stjórnandi: Þórar-
inn Stefánsson.
21.00 Djass og blús. Stjórnandi: Vernharð-
ur Linnet.
22.00-23.00 Rokkrásin Stjórnendur: Snorri
Már Skúlason og Skúli Helgason.
23.00-03.00 Næturvaktin Stjórnendur:
Vignir Sveinsson og ÞorgeirÁstvaldsson.
17.00-18.30 Ríkisútvarpið á Akureyri -
svæðisútvarp.
17.00-18.00 Svæðisútvarp Reykjavikur
og nágrennis (FM 90,1 MHz)
Föstudagur
10. janúar
19.10 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
19.20 Nú getur hann talið kýrnar (Ná bare
man kan tælle köerne) Dönsk barnamynd
um það hvernig drengur í Bhútan eignast
gleraugu. Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir. (Nordvision - Danska sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Kastljós
21.10 Skonrokk Umsjónarmaður Pétur
Steinn Guðmundsson.
22.10 Derrick Þrettándi þáttur. Þýskur
sakamálamyndaflokkur. Aðalhlutverk:
Horst Tappert og Fritz Wepper. Þýðandi
Veturliði Guðnason.
23.10 Seinni fréttir.
23.15 Ást og kvöl (Love and Pain) Bresk bíó
mynd frá 1973. Leikstjóri Alan J. Pakula.
Aðalhlutverk: Maggie Smith og Timothy
Bottoms. Fertug kona og átján ára piltur
verða sessunautar í hópferð um Spán.
Þrátt fyrir aldursmuninn fella þau hugi
saman og fara tvö ein í ævintýraleit. Þýð-
andi Rannveig Tryggvadóttir.
01.10 Dagskrárlok.
Skagstrendingar
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guömundsson veröa til viötals í
Fellsborg föstudaginn 10. janúar kl. 13-15
Austur Húnvetningar - Blönduósingar
Alþingismennirnir Páll Pétursson og Stefán Guömundsson veröa til viðtals í
Hótel Blönduósi föstudaginn 10. janúar kl. 16-18
Suðurland
Kjördæmissambandiö boðar til fundar meö forystumönnum framsóknarfélag-
anna á Suðurlandi svo og þvi fólki sem stendur aö og ætlar aö vinna aö
sveitarstjórnarmálefnum laugardaginn 11. janúar n.k. í Framsóknarhúsinu
á Selfossi kl. 13.30. Dagskrá:
1. Flokksstarfiö
2. Sveitarstjórnarkosningar
3. Önnur mál
Gestir fundarins eru alþingismennirnir Þórarinn Sigurjónsson, Jón Helgason
og Haukur Ingibergsson framkvæmdastjóri
Stjórnin
Landssamband framsóknarkvenna heldur námskeiö fyrir konur á öllum aldri i
Mettubúö Ólafsvík dagana 10., 11. og 12. janúar. Námskeiðið hefst kl. 20
þann 10. janúar. Veitt veröur leiösögn í styrkingu sjálfstrausts, ræöumennsku,
fundarsköpum og framkomu í útvarpi og sjónvarpi. Þátttaka tilkynnist í síma
93-6306 eöa 93-6234.
LFK
Ungir framsóknarmenn
Hafnarfirði
Aöalfundur félags FUF Hafnarfiröi veröur haldinn laugardaginn 11. janúar kl.
17.00 aöHverfisgötu 25.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Þorlákshöfn og nágrenni
Jón Helgason, ráöherra og Þórarinn Sigurjónsson, alþingismaöur veröa til
viðtals og ræöa þjóömálin í Kiwanishúsinu í Þorlákshöfn 13. janúar kl. 20:30.
Allir velkomnir.
Selfoss
Jón Helgason ráöherra og Þórarinn Sigurjónsson alþingismaöur veröa til viö-
tals og ræöa þjóömálin í Inghóli þriöjudaginn 14. janúar kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss